Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 15 ræðanna: Of hátt kaupgjald. Kaup- gjaldið hefir á undanförnum árum farið langt fram úr greiðsluþoli framleiðslufyrirtækjanna. Hvernig hægt sé að losna úr vítahringnum sá þjóðin fyrir fáum árum, en Steingrímur virðist hafa gleymt því. Eg er helzt á því, að erfiðleikar SÍS valdi honum truflunar. Furðu- legast í viðtalinu er það, að Steingrímur segist hafa það eftir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að veru- legra víxlhækkana gæti í íslenzku efnahagslífi. Hvar hefir Steingrím- ur verið seinustu 40 árin? í Tímanum hinn 30. júlí síðastlið- inn heldur Steingrímur svo áfram. Hann segir að opinber stefna í pen- ingamálum leiði til „peninga- kreppu". Það er þá ekki hinn mikli og almenni taprekstur framleiðsl- unnar sem skapar hina óeðlilega miklu lánsijárþörf, sem lítur svo út í augum hinna þurfandi sem láns- fjárskortur, heldur sé það hin opin- bera stefna í peningamálum sem leiði til „peningakreppunnar". Hann var forsætisráðherra í fyrrverandi ríkisstjóm, og utanríkisráðherra í þeirri sem nú situr, svo að hann er að dæma eigin verk. Hann segir að um „vísvitandi bragð“ sé að ræða. Frjálshyggjustefnan sé ekki verjandi, segir hann. Landið sé far- ið að líta út sem blóðvöllur af þess- um sökum. Steingrímur virðist sem sé vera að bjóða þjóðinni gömlu skömmtunarhyggjuna í stað mark- aðshyggjunnar. Samvinnuverzlunin þolir ekki fijálsa viðskiptahætti, fijálst efnahagslíf, þótt hún virðist eiga heilan stjórnmálaflokk til að styðja sig við. Nefndir Eitt af því nýjasta í þessum málum er það, að forysta Fram- sóknarflokksins kallaði nýlega sam- an fund frammámanna í atvinnu- lífinu, auk forstjóra Þjóðhagsstofn- unar. Þetta var gert til þess að heyra sjónarmið manna í atvinnu- lífínu, sagði Steingrímur. Þarna hafði forstjóri SÍS framsögu, og tveir samvinnuforstjórar með hon- um. Sama daginn sagði Morgunbiaðið einnig frá því, að ríkisstjómin hefði skipað nefnd sér til ráðuneytis. Nefndinni er ætlað að gefa ríkis- stjóminni álit, annarsvegar um ráð- stafanir til að bæta rekstrarskilyrði útflutnings- og samkeppnisgreina, og hinsvegar ráðstafanir til að treysta eiginíjárstöðu íslenzkra at- vinnufyrirtækja. Nefndin á að taka mið af stefnu ríkisstjómarinnar um jafnvægi í verðlagsmálum og á fjár- magnsmarkaði. Nöfn nefndar- manna sýna að þetta em nokkrir þekktustu forstjórar atvinnulífsins. Guðjón forstjóri Sambandsins er aftur kominn í nefnd. Hann er því orðinn tvíefldur sem ráðunautur Steingríms. Er þetta kannski vísbending um það að flytja eigi vandamál SÍS yfir á herðar þjóðar- innar allrar með tilheyrandi kostn- aði? Víglundur Þorsteinsson er einn nefndarmanna. Hann hefir vitnað í tillögu Félags íslenzkra iðnrekenda, svo sem ég hefi áður minnst á: Lausnin er að komast út úr hinu íslenzka peningakerfi. Sem sagt: Lausnin er að taka meira af erlend- um lánum, og víst að leggja hinn íslenzka myntfót niður. Eg held að það hljóti að koma upp í hugann hjá fleirum en mér þessi spurning: Hversvegna sam- þykkja þessir forstjórar sífellt launakröfur, sem þeir vita að fram- leiðendur ráða ekki við? Og ef for- stjórarnir vita svarið, hversvegna snúa þeir sér ekki að því að fá málið leyst á réttum vettvangi? Af ráðgjafafundi framsóknar og ráðgjafanefnd ríkisstjórnarinnar ræð ég það, að mikil vandræði ríki hjá Sambandinu og Framsóknar- flokknum. Og oft er erfitt að greina á milli þeirra. Maður gæti freistast til að halda að nefndin eigi að knýja á um óheillavænlega hluti, sem öll þjóðin fái að gjalda fyrir. En sem betur fer hefir ríkisstjórnin tals- verða „ballest" þar sem eru þeir Þorsteinn með sínu liði og Jónarnir tveir, sem báðir eru mjög færir hagfræðingar. Höfundur varáður um árabil ráðunautur ríkisstjórnarinnar i efnahagsmálum og síðar banka- stjóri Framkvæmdabanka íslands. OPNUM NYJA ÆFINGASTOFU HVAÐ ER G^flencler Qfc OU FigureSalons i dag, laugardaginn 20. ágúst, með hinum viðurkenndu SLENDER YOU bekkjum. HVAÐ ER SLENDER YOU? Tvisvar í viku leggst þú sex sinnum í 10 mínútur á sex vélvædda bekki, sem eru sérstaklega hannaðir til að örva starfsemi mikilvægustu vöðva líka- mans: Maga, fætur, brjóst, læri, mjaðmirog handleggi. Andstætt hefðbundnum aðferðum veldur SLENDER YOU því ekki, að vöðv- arnir bólgni upp, heldur styrkjast þeir og verða liprari. Og þar sem SLENDER YOU hjálpar þér að losna við fitu og appelsínuhúð, líka á „erfiðu“ stöðunum, getur þú losnað við nokkra aukasentimetra. Auk þess ert þú algerlega úthvíld(ur) eftir SLEND- ER YOU meðferð og full(ur) af orku. Eftir að þú hefur reynt einu sinni ókeyp- is, getur þú ekki verið án SLENDER YOU. Komdu og reyndu SLENDER YOU ókeypis til þess að sannfærast og fáðu jafnframt gerða líkamsgreiningu úr tölvu. Hamraborg 20, Kópavogi, sími 46191. SANIKEPPNI UM SLAGORÐ! í ágúst mánuöi gefst þér tækifæri á því aö taka þátt í samkeppni um slagorð fyrir Royal Export Bjór. Verðlaun eru 6 daga ferð til Kaupmannahafnar með gistingu á lúxushóteli, fyrir tvo. Sendu inn hugmynd þína aö slagoröi fyrir 30. ágúst n.k. ásamt nafni, heimilisfangi og síma- númeri. Valiö verður úr innsendum tillögum af fulltrúum verksmiöjanna þann 1. september n.k. og veröa úrslit tilkynnt samdægurs. Nafn: Sími: Heimilisfang: Póstnúmer: Slagorð: (Ath. Ein hugmynd) Líklega sá besti! p I ' Va y \ l 0. § , "c/. t' I f í- A r* — 5 • -r.' — - • ' 0. Johnson & Kaaberhf Sendist til: Ó. Johnson & Kaaber hf. ■ Pósthólf 5340 ■ 125 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.