Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 19
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra;
Hlynntur því að samningi um
kjarnorkutilraunir verði breytt
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, átti í síðustu
viku fund með Steingrími Hermannssyni, utanríkisráðherra, þar sem
hann óskaði eftir því að ísland yrði í hópi ríkja sem lýstu yfir formleg-
um stuðningi við gerð samnings sem bannaði allar tilraunir með lqarn-
orkuvopn. Þingmannasamtök, sem Ólafur Ragnar er í forsæti fyrir,
hafa barist fyrir því, að þeim samningi, sem nú er í gildi, um takmarkan-
ir við kjarnorkutilraunum, verði breytt, þannig að allar tilraunir verði
bannaðar. Steingrímur Hermannsson sagði, í samtali við Morgunblaðið,
að hann væri persónulega hlynntur því, að núverandi samningi um kjarn-
orkutilraunir yrði breytt, en hann hefði ekki tekið ákvörðun um það
hvort hann myndi bera málið upp í ríkisstjórninni.
Til athugunar fyrir safnara
Ekki alls fyrir löngu kom út
níunda tilkynning Póst- og síma-
málastofnunarinnar á þessu ári. Þar
Segir m.a., að ákveðið hafi verið,
að smáörk sú, sem út var gefin 9.
október 1987, að söluverði 45 krón-
ur, verði aðeins höfð á boðstólum
til 1. september 1988, hafi hún
ekki selzt upp áður. Ekkert segir
þar svo, hvað verði um það upplag
arkarinnar, sem óselt kann að verða
í lok þessa mánaðar.
í þessari tilkynningu birtir póst-
stjómin myndir af tveimur stimpl-
um, sem notaðir verða á landssýn-
ingum erlendis. Raunar er önnur
þeirra þegar um garð gengin, þegar
þessi þáttur birtist. Hún nefndist
SCAREX 88, og var haldin í Skara
í Svíþjóð dagana 11.-14. þ.m. Þar
sýndu tveir íslenzkir safnarar söfn
sín, þeir Hjalti Jóhannesson í
Reykjavík og Óli Kristjánsson á
Húsavík. Fengu þeir báðir stórt silf-
ur. Um þessi söfn hefur áður verið
fjallað hér í þætti, en þau voru
bæði á LÍFÍL 88. Á þessari sýningu
var íslenzkur dómaranemi, Ólafur
Elíasson. Hin sýningin verður í
Riccione á Ítalíu 27.-29. þ.m. Ekki
er mér kunnugt um, að nokkur
héðan að heiman taki þátt í þeirri
sýningu eða sæki hana heim. Póst-
stjómin tekur fram, að til stimplun-
ar í sambandi við þessar sýningar
verði aðeins tekið við almennum
bréfpóstsendingum.
Heyrt og séð
í Þýzkalandi er félag, sem heitir
S.M.S. Navicula. Félagar þess safna
skipafrímerkjum og öðm því, sem
heyrir undir það svæði. 1980 kom
út fyrsta handbók um sjávar-
frímerkjasöfnun í Evrópu. Þrem
árum síðar kom þess konar handbók
út fyrir Ameríku og svo fyrir Afríku
1985. Og nú hefur komið út bók
um þetta efni fyrir Ástralíu og
landssvæði þar í kring. — Bækum-
ar eru á þýzku og gefnar út í laus-
blaðaformi. Eru þær eins konar al-
fræðibók um þessa söfnun og nauð-
synleg öllum þeim, sem við hana
fást. Þessar bækur kosta 98 DM,
hvert bindi, og má panta þær frá D
J Engelhardt, Am Prinzenrain 6,
D-5300 Bonn 1. Burðargjald mun
leggjast á þetta verð.
Filatelisten 2 (marz 1988).
1 matsk. smjör,
2 matsk. hveiti,
32 dl sveppasoð,
rjómi,
salt og pipar.
Kartöflur soðnar til fulls, flysjað-
ar og stappaðar. Saman við stöpp-
una er hrært smjöri, mjólk, osti
eggjarauðum og salti. Kartöflu-
stappan er síðan sett í smurt hring-
.form, eða lítil eins skammta form
og bakað í formi, 175°C, í ca. 30
mín., ef um lítil form er að ræða,
45 mín. ef það er hringform.
Sósan
Ef notaðir eru niðursoðnir svepp-
ir er soðið af þeim notað líka. Ef
sveppimir em ferskir þarf að skera
þá í stóra bita, bregða þeim í smjör
á pönnu og fá þar vökvann í sós-
una, hellt af áður en bætt er við
smjörið og laukurinn brúnaður með.
Hveiti stráð yfir, þynnt með soði
og ijóma, látið sjóða við vægan
straum, kryddi bætt í eftir þörfum.
Borið fram með kartöflubakstri.
' Ætlað fyrir 4.
Kartöflu-soufflé
750 g kartöflur,
2 matsk. smjör,
1 tsk. salt,
2 dl héit mjólk,
2 egg,
2 matsk. rifinn ostur.
Kartöflurnar soðnar og flysjaðar,
stappaðar, smjöri, salti og pipar
hrært saman við. Heitri mjólkinni
hrært saman við, sömuleiðis eggja-
rauðunum og að síðustu stífþeytt-
um eggjahvítunum. Sett í smurða
ofnfasta skál, rifnum osti stráð yfir
og bakað í ca. 15 mín. við 200-
225°C. Gott grænmetissalat borið
með. Ætlað fyrir 4-5.
Fimm ríki, Indónesía, Mexíkó,
Perú, Sri Lanka og Júgóslavía hafa,
fyrir tilstuðlan þingmannasamtak-
anna Hnattrænt átak (Global Act-
ion), farið fram á það við Bandaríkin,
Sovétríkin og Bretland að boðað verði
til alþjóðaráðstefnu til að ræða bann
við tilraunum með kjamorkuvopn.
Tillagan er. sett fram á grundvelli
samnings frá 1963 um takmarkanir
á tilraunum með kjamorkuvopn og
undirritaður var af 116 ríkjum, þar
á meðal íslandi. Ef þriðjungur aðild-
arríkjanna krefst þess ber að kalla
saman samningaráðstefnu um breyt-
ingar á samningnum.
„Ólafur Ragnar kom til mín út af
þessum þingmannasamtökum og vildi
kynna mér þessa ákvörðun nokkurra
ríkja að krefjast endurskoðunar á
samningnum og var það mjög fróð-
legt,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son í samtali við Morgunblaðið. Ut-
anríkisráðherra sagði Ólaf Ragnar
hafa nefnt að það yrði vel þegið ef
íslendingar yrðu aðilar að þessari
kröfu.
„Ég hef ekki tekið afstöðu til þessa
máls ennþá en það er mín persónu-
lega skoðun að tilraunum með kjam-
orkuvopn beri að linna og að það
væri mikilvægt skref í þeirri viðleitni
stórveldanna að draga úr vígbúnaðar-
kapphlaupinu."
Steingrímur sagðist vera hlynntur
því að samningnum um takmarkanir
við kjamorkutilraunum yrði breytt.
Hann hefði hins vegar ekki rætt þetta
mál í ríkisstjóminni né leitað eftir
afstöðu annarra ráðherra. Þetta væri
mál sem hann þyrfti að athuga betur
áður en hann tæki ákvörðun um hvort
það yrði rætt í ríkisstjóminni.
OTRULEGT EN DAGSATT
100-000 kr.
verðlækkun á NISSAN PRAIRIE 2.0 4wd
N bjóðum við 100.000 kr. verðlækkun á þeim IMissan Prairie 2.04WD sem
eftireru á lager. Þetta endurtekursig ekki. ÞETTA ER EINSTAKTTÆKIFÆRI.
IMISSAIM PRAIRIE ER ENGUM VEIMJULEGUM BÍL LÍKUR.
2,0 lítra vél. Sú stærsta sem þú færð ífjórhjóladrifnum fólksbíl. Aflmikil og skemmtileg.
Meira rými í Nissan Prairie 4WD en nokkrum öðrum fjórhjóladrifnum fólksbíl.
Afturhuröirnarerurennihurðir. Frábærlausnsemauðveldarótrúlegaaðkomastinn
íbílinn.
J 14 tommu felgur sem þýðir að hæð undir Nissan Prairie er meiri en þú getur vænst
^ af fjórhjóladrifnum fólksbíl.
-J Fjórhjóladrifið er sett á með því að ýta á tákka sem er á gírstönginni. Einfaldara
t getur það ekki verið.
V 3ja ára ábyrgö.
Rétt júlíverðer:
Fullt verð
Staðgreiðsluverð
Nissan Prairie GL Nissan Prairie GLX Nissan Prairie GLX með sóllúgu o.fl. Kr. 890.000.- Kr. 955.000.- Kr. 995.000.- Kr. 863.000.- Kr. 926.000.- Kr. 965.000.-
Tilboðsverð í þetta eina sinn er: Fullt verð Staðgreiðsluverð
Nissan Prairie GL Nissan Prairie GLX Nissan Prairie GLX með sóllúgu o.fl. Kr. 790.000.- Kr. 855.000.- Kr. 895.000.- Kr. 766.000.- Kr. 829.000.- Kr. 868.000.-
Greiðslumöguleikar eru nánast óendanlegir, t.d. 25% út og afgangurinn á 30 mánuðum.
Tökum flesta nýlega bíla upp í nýja.
Verið vel á verði, því hér er einungis um fáa
Nissan Prairie 4WD að ræða sem seljast upp
á skömmum tíma.
Opið laugardag og sunnudag kl. 14.-17.
Ingvar
Helgason hf.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
sími 91-3 35 60.
I