Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 verið unnið á sviði upplesturs í Ríkisútvarpinu en þegar Helgi Hjör- var las Sturlungu, þetta stórbrotna og erfiða verk um harmleik íslensku þjóðarinnar og forystumanna hennar á 13. öld. Helgi Hjörvar las og túlk- aði Sturlungu með slíkum yfirburð- um og listrænum skilningi, að ógley- manlegt er hverjum þeim, sem á hann hlýddi, og ég held að öll þjóðin hafi hlustað á hann. Mér fínnst ég hafí aldrei komist jafn nærri heimi íslenskra fornsagna og undir lestri Helga Hjörvars." Um fomsagnalestur Helga og frá- sagnir hans fjölmargar af atburðum fyrri alda er líkast því sem þar tali sá er viðstaddur hafí verið atburði og fylgst glöggt með öllu, er fyrir bar. „Eg véit það, af því ég var þar,“ er tilfínning hlustandans er Helgi lýsir vettvangi og segir sögu. Hér er dæmi um endursögn hans og skýringar er Helgi flutti er hann las Sturlungu: „Frá því var sagt í síðasta kafla hversu Þorgils skarði kom á kon- ungsfund og í þjónustu Hákonar konungs þá 18 eða 19 vetra. Kon- ungur gerði hann hirðmann sinn, gaf hon'um laufgrænt klæði fjórtán álna langt til hirðklæða og skjöld og brynju því að þau vopn skorti hann áður, segir í sögu Þorgils. Það er vert að athuga að hér er kominn höfðingjasonur af Islandi, af mikilli og auðugri ætt og hann kemur svo á konungsfund og hann á hvorki skjöld né brynju. Þetta er 17 árum áður en íslendingar ganga að fullu undir Noregskonung. Það verður mönnum nú æ ljósara að það var skipaleysi Islendinga fyrst og fremst, sem steypti sjálfstæði þeirra. Konungur átti við þá allskosta af því að hann gat svelt þá. Þorgils fær bót á andlitslýti sínu í Noregi. Hann situr á fótskemli Margrétar drottningar Skúladóttur. Hún gefur honum sex álnir af skarl- ati og íslenski höfðingjasonurinn þiggur með þökkum og geldur með trúnaði." Gamansemi Helga kom fram í mörgum myndum. Eitt sinn ritaði hann grein í Útvarpstíðindi og vék þar að dagskrárkynningum útvarps- ins. Skopaðist að „hálfhlustendum" er hann nefndi svo, þeim sem vilja láta kynna allt í tíma og ótíma, fyrir- fram og eftirá. „Líklega fer þetta á endanum svo, ef Sigurmundur söngvari syngur langt lag, þá verður þulurinnn að segja þegar komið er fram í lagjð: — Þetta er aría úr óperunni „Hunangsflugan" eftir heimsfrægan höfund. Félag íslenskra ljóðskálda þýddi textann. Nú heldur Sigurmundur Sigfurmund- arson áfram að syngja lagið. Fritz Weisshappel annast undirleik" því nú orðið „annast allir allt: Smiðurinn er hættur að smíða, hann „annast" smíði, prentsmiðjur „annast" prent- un ... Og svo kemur nýtt lag: Næst annast Sigurmundur Sigur- mundsson söng á laginu. Meinlítil skopmynd er Helgi sá í dönsku blaði á sínum fyrstu út- varpsárum verður honum tilefni umræðu. „Ofsareiður maður kemur út úr húsi sínu með útvarpstæki undir hendinni og æðir að heiman. Hann er spurður hvaða ferðalag sé á honum, en hann segir: „Ég ætla, skal ég segja þér, að fara upp í út- varpsráð og lofa þeim sjálfum að hlusta einu sinni á sína eigin dag- skrá.“ Stundum fannst mér, áður fyr, þegar ég sat einn inni í útvarpsráði, löngum, og hlustaði á dagskrána okkar, að nú mundi þessi fokreiði maður koma æðandi inn með tækið undir hendinni. Þá bar ég sjálfur samviskuna, og misjafnlega góða, að vísu. Nú hef ég um langa hríð verið settur í spor mannsins með tækið, þess sem hlusta skal ogþakka skal, eða umbera, eftir því sem Her- rann hefír gefið hveijum einum auð- mýkt til.“ Síðan greinir Helgi frá fjárhag útvarpsins er verið hafí naumur fyrr á árum og sér orðið minnisstætt „þegar vér reikuðum fáeinir félausir menn með allt þetta óséða verkefni, að ég einn lét ör- birgðina raunar aldrei hræða mig. Þetta ætla ég að sé ekki skrum, heldur einfaldur raunveruleiki. Ég var þess öldungis viss og sagði án afláts: „Það getur ekki skift nema fáum árum, eða misserum, að út- varpið komist úr örbirgð, enda varð svo. En öðrum skorti mundum við síðar kenna á. Mannfæðinni til þess að halda uppi þeirri dagskrá, sem samboðin þætti nægum fjárráðum. Einnig þetta mun þunglega koma á daginn." Síðan rifjar Helgi upp lög sem sett voru þar sem opinberir starfs- menn voru skyldaðir til þess að flytja eitt erindi árlega, ókeypis, um sína starfsgrein. Kvað hann lögin enn í gildi ásamt með lögum um að bann- að væri að flytja vopn frá íslandi til Kína. Helgi kvað sér minnisstætt að Jónas Þorbergsson hafi lagt á það ríka og ósveigjanlega áherslu, að fréttimar mundu verða og hlytu að verða einn höfuðþráður í dagskrá útvapsins. „Kannske var ekkert eins einfaldlega rétt séð og þetta. I öllum þessum fyrirgangi útvarpsins, síðan það komst fyrir alvöru í talentumar og gleðihúsin, í allri uppgerðinni, allri þykjustinni, eins og bömin segja, látalátum, sem gutlast meir og meir inn í dagskrá þess úr þvottabala þjóðlífsins, við þessa bak- sýn verður það berara. . . en fyr, að líftaug daglegrar útvarpsdag- skrár eru og verða fréttimar. Staðgóðar traustar fréttir, saman- teknar á einföldu og traustu máli, fluttar af sæmilega talandi mönnum. Silfurþráður íslenskrar tungu er frásögnin. Það er og verður mikið hlutverk fyrir íslenska út- varpið að sólunda ekki þessum auði silfurs, þessum talentum, á skrípatorgi fíflanna. Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri lýsti fyrst ámm Ríkisútvarpsins í samtali við Kristján Friðriksson, rit- stjóra Útvarpstíðinda, er hann rakti sögu stofnunarinnar: „Meginhluti starfsins hvildi vitanlega á form- anninum, Helga Hjörvar.“ Ég leyfí mér að undirstrika ummæli útvarps- stjórans. Hvað sem deilum þeirra líður, hins fyrsta formanns útvarpsr- áðs og útvarpsstjórans í öndverðu, létu þeir falla gagnkvæm viðurkenn- ingarorð og virtu hvor annan, þrátt fyrir allt. Jónas Þorbergsson sagði ennfremur: „Engin starfsgrein Ríkisútvarpsins hefír átt jafn örðugt uppdráttar um nauðsynlegan vinnu- kraft og viðhlítandi starfsaðferðir eins og dagskráin. Enda hefír um nauðsyn verulegrar undirbúnings- vinnu í þeirri grein brostið mest á um skilning þings og stjómar. Og enn er mestur hluti undirbúnings- starfsins unninn í hjáverkum og ákvarðanir teknar á skyndifundum." Nærri má geta hver vandi hefír oft og einatt verið á höndum Helga Hjörvar, að setja saman útvarps- dagskrá með þeim menningarbrag er hann taldi sér skylt. Jafnframt starfí sínu sem for- maður og síðar skrifstofustjóri út- varpsráðs var Helgi þingfréttaritari lengst allra og starfsmaður bókhlöðu Alþingis um hálfrar aldar skeið. Séra Ámi prófastur Þórarinsson, sagnaþulurinn frægi, kvað Helga hafa hlotið „verðskuldaða þjóðar- frægð fyrir það, að hann segir svo vel fréttir frá alþingi í útvarpinu, að unun er á að hlýða, og er þá mikið sagt, því að þessi stofnun eys óhroðanum yfír þjóðina í tíma og ótíma, guðlöstun, málleysum og hræðilegum framburði. Þessi snill- ingur er Helgi Hjörvar, vinur minn. Hann hefír líka skrifað skáldsögur, sem ég hef mikla gleði af að lesa, þegar ég hef legið andvaka á næt- umar.“ Helgi Hjörvar var skapríkur mað- ur og leyndi því ekki, en hann var jafnljúfur og hann var skapríkur, sagði Sólveig dóttir hans í samtali. Fomir samstarfsmenn Helga gætu sagt um hann eins og Fomólfur kvað um Bjöm í Ogri: „... en svo var eins og sýndist hann seggjum flestum meiri hjá annari allri þjóð,- bæði af honum gustur geðs og gerðarþokki stóð.“ Jóhannes skáld úr Kötlum mælti einnig fyrir munn fí'öldans er hann kvað um Helga Hjörvar: Enginn virtist ná oftar né betur heiðustu tónum heilagrar tungu: rödd þín var upphafin reynsla þjóðar yljuð gjafmildi örláts hjarta. Pétur Pétursson þulur „GULLSKRATTI“ - Saxifraga cymbalaria Aldeilis er það merkilegt hvað sum blóm geta verið léttlynd. Þau em síbrosandi hvað sem yfír dyn- ur. Ef þið hafíð aldrei séð hlæj- andi blóm ættuð þið að sjá þennan náunga þar sem hann er reglulega í essinu sínu. Hann hoppar skæl- brosandi stein af steini og pott úr potti, hann getur skotið upp kollinum hvar sem er og er alltaf í sólskinsskapi hvemig sem viðr- ar. Hann kemur mér líka alltaf í sólskinsskap. Einn rigningardag þegar ég sá hvar hann gægðist brosandi út úr skugganum á milli tveggja potta í reitnum mínum þar sem hann hafði potað sér upp úr rauðamölinni, spurði ég hann hvað væri svona skemmtilegt. Hann svaraði brosandi: GETTU? Bara að öllum þætti svona gaman að lifa. „Hláturinn lengir lífíð," segir gamalt máltæki. Það gerir hann ábyggilega hjá þér og mér, en það dugir ekki „GULLSKRATTAN- UM“ því hann lifír bara eitt sum- ar og þessvegna ekki nema sjálf- sagt að njóta vel — og með bros á vör — stuttrar ævi. Kannski getum við eitthvað lært af því! Annars heitir þessi litli ærslabelg- ur víst réttu nafni LAUTAR- STEINABRJÓTUR - Saxifraga cymbalaria — ættaður frá Rúm- eníu, sunnan- og vestanverðri Asíu og N-Afríku. Hann er einn örfárra einærra steinbijótsteg- unda, sem hér eru ræktaðar í görðum. Ekki á hann þó í neinum vand- ræðum með að viðhalda ætt sinni því svo miklu bamaláni á hann að fagna, að ýmsum garðeigend- um þykir nóg um. Þeim líst í fyrstu ekki meira en svo á þennan skrattakoll, sem alls staðar virðist gera sig heimakominn. Þessvegna er þetta viðumefni „GULL- SKRATTI" til komið. Góðlátlegt skammaryrði eins og á ærslafull- um krakka sem öllum þykir þó vænt um. Hann er heldur ekki mikill vexti, aðeins 5—10 sm á hæð. Blöðin em lítil, gljáandi ljós- græn, blómin skærgul og hann er blómstrandi allt sumarið og fram á vetur, svo lengi sem honum endast ævidagar og mætir hann jafnan sínu banafrosti með bros á vör. O.B.G. Ekki er mér kunnugt um hvort þessi litli skrattakollur hefur al- mennt verið fáanlegur í gróðrar- stöðvum, þó minnist ég þess að hafa séð hann á plöntulista frá gróðrarstöðinni Mörk. Ums. Þegar óhappið varð að happi (Um tilraun Davissons frá 1927) Raunvísindi Egill Egilsson í nokkur fyrstu skipti í sögu eðlisvísinda má segja að tilviljun, sem við fyrstu sýn virðist óhapp, snúist upp í happ. Til dæmis upp- götvaði Frakkinn Henri Becquerel geislavirkni skömmu fyrir aldamót fyrir þá tilviljun, að hann geymdi ljósmyndafílmur í sömu skúffíi og (geislavirkt) útanoxíð. Filmumar tóku upp á að sortna, hvemig svo sem hann byrgði ljós að utan. En fram að því var ekki vitað til að annað gæti svert ljósfílmur en venjulegt ljós og röntgengeislar. Énn afdrifaríkara „óhapp" er til- raun Bandaríkjamannsins C.J. Davissons frá árinu 1927 og árun- um þar á undan. Þetta dæmi er að því leyti einstakt, að ótrúleg vandvirkni og fæmi ásamt rök- hugsun í bland við tilviljun verður til að allt annað kemur fram í dags- ljósið en leitað var að. Gildi tilraunarinnar Á þessum árum er önnur megin- grein nútímaeðlisfræðinnar að verða til. Þetta er skammtafræðin. Fræðigreinin var hvorki endanlega sett fram í heild, né studdist hún við tilraunir, nema óbeint. Dálítið af fræðigreininni var sett fram sem tilgáta, og átti það við um kenning- ar franska furstans de Broglie um að rafeindir gætu hagað sér eins og bylgjur. Davisson hafði ekki í hyggju að færa sönnur á þessi fræði með til- raunum. Hvort sem hann kann að hafa þekkt til þeirra eða ekki, þá var tilgangur hans miklu hógvær- ari. Hann var að athuga endurkast rafeinda frá málmflötum, og gerði ráð fyrir að um endurkastið giltu sígild lögmál hinnar eldri eðlis- fræði. Samkvæmt þeim áttu raf- eindir sem skullu á málmyfirborði að endurkastast í allar mögulegar áttir, en ekki einstakar. Óhappið Davisson vann með málmsýni sömu gerðar og málmur er almennt meðal vor. En hann skiptist í smá- kristalla, sem falla óreglulega hver að öðrum. Sú óregla veldur því að útilokað væri að sjá það mynstur endurkastsins sem skammtafræðin segir til um. Rafeindirnar endur- kastast sannarlega undir öllum mögulegum homum, eins og Davis- son bjóst við. Eitt af því sem erfíðleikum olli, var að súrefnissambönd settust á yfírborð málmsins og röskuðu mynstrinu. Þessvegna var málm- sýnið haft í lofttæmi. Óhappið fólst í að súrefnisgeymir sprakk á vinnu- stofunni, og komst í samband við sýnið. Súrefnissamböndin þurfti að fjarlægja að nýju með að hita málmsýnið upp. En einmitt það breytir kristalla- gerð jnálmsins. Við hitun vaxa stórir kristallar á kostnað minni. Eftir upphitunina sat Davisson uppi með sýni úr nægilega stórum einkristal, og án súrefnissambanda á yfírborðinu. Árangurinn varð sem sagt: Rafeindir sem skotið er á málminn koma frá honum í ákveðn- um stefnum en ekki öðrum. Hvað hef ég mælt? Davisson reyndi að skýra niður- stöðurnar á ýmsan hátt samkvæmt hinni gömlu eðlisfræði. Það mis- tókst. Hann vann á því sem heitir nú tilraunastofur Bell-símafélags- ins í Bandaríkjunum. Fyrst eftir að hann hafði kynnst breskum vísindamönnum á fundi Vísindafé- lagsins breska komst hann að því, að mæliniðurstöður hans væru í samræmi við tilgátur de Broglies um að rafeindir gætu verið bylgjur. Sprungna súrefnisflaskan var orðin að fyrstu beinu tilraunalegu sönnun hinnar nýju skammtafræði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.