Morgunblaðið - 20.08.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
Hugsanlegt að taka
við kjamorkuúrgangi
- segir meðlimur sovésku vísindaakademiuimar
SOVÉTMENN íhuga að laka við
kjarnorkuúrgangi frá öðrum
ríkjum til eyðingar. Að sögn sov-
ésks vísindamanns kemur slíkt
til greina sem hluti af sameigin-
legum verkefnum á sviði kjarn-
orkuframleiðslu.
Hefndar-
morð fram-
in í Belfast
Belfast, Reuter.
Grímuklæddir menn skutu
mann til bana í Belfast á Norður-
írlandi í fyrradag. Lögregla tel-
ur að morðöldu undanfarinnar
viku megi rekja til þess að kaþó-
likkar og mótmælendur hafi ver-
ið að ná fram hefndum. Talið er
að mótmælendur hafi borið
ábyrgð á ódæðinu.
Níkolaj Ponomarjov-Stepnoj,
meðlimur í sovésku vísindaakade-
míunni, sagði á blaðamannafundi í
Moskvu á fimmtudag, að Sovét-
menn hefðu fengið beiðni um að
taka við úrgangi frá kjanorkuverum
frá ýmsum löndum. „Það er afar
erfítt að verða við slíkum beiðnum,
en kæmi til greina ef um væri að
ræða þjóðir sem við ættum sam-
starf við til dæmis um smíði og
sölu á kjamaofnum," sagði Ponom-
aijov-Stepnoj. Hann lagði áherslu
á að engin ákvörðun hefði verið
tekin í þessu eftii.
Ponomaijov-Stepnoj sagði að eft-
ir Tsjemobyl-slysið í apríl árið 1986,
hefði orðið ljóst hversu mikilvægt
væri að ríki heims tækju höndum
saman til að tryggja öryggi í kjam-
orkuverum. „Þetta samstarf er þeg-
ar hafíð og sendinefnd frá Banda-
ríkjunum er væntanleg til Moskvu
til að ræða samvinnu á þessu sviði,"
sagði Ponomaijov-Stepnoj. Banda-
ríkjamennimir koma til Moskvu í
dag, föstudag.
Kirkja heilags
Basils liggur
undir
skemmdum
Kirkja heilags Basils sem stend-
ur við Rauða torgið í Moskvu
liggur undir skemmdum, að þvi
er AP-fréttastofan hefur eftir
sovéska tímaritinu Sovétskaja
Kúltúra. Undirstöður kirkjunn-
ar eru ónýtar af völdum grunn-
vatns sem á greiðan aðgang
gegnum illa fama veggi og
gólf kirkjunnar. Fleiri bygg-
ingar í Moskvu hafa orðið illa
úti vegna skemmda af völdum
grunnvatns, sem stendur alla
jafna hátt í borginni. Fyrir
fimm árum var ljóst að kirkja
heilags Basils, sem nú heyrir
undir Þjóðminjasafnið í
Moskvu, var illa farin. Kirkjan
er mikilvægasta tekjulind
safnsins og telja yfirmenn
safnsins að það hafi ekki ráð á
að loka henni. Árlega heim-
sækja kirkjuna um 300.000
ferðamenn.
Að sögn lögreglu var maðurinn
skotinn í höfuðið af stuttu færi.
Grímuklæddir menn réðust inn í hús
í miðborg Belfast þar sem þeir
myrtu manninn, sem var kaþólikki.
Þeir komust á brott í leigubíl sem
þeir stálu. Ekki er ijóst' hversu
margir ódæðismennimir voru.
Fiskveiðistefna Evrópubandalagsins:
Endurskoðendur EB ávíta
Undanfarið hafa verið framin
morð í Belfast til skiptis á mótmæl-
endum og kaþólikkum. Telur lög-
regla að upphaf þessara hefndar-
morða hafi verið þegar tveir kaþól-
skir menn vom skotnir á verslana-
götu í Belfast í síðustu viku. Á
miðvikudag skutu kaþólskir hryðju-
verkamenn verslunareiganda sem
var mótmælendatrúar til að hefna
morðanna á mönnunum tveim. Tel-
ur lögregla að morðið á manninum
hafi verið ffamið til að hefna ódæð-
isins.
í fyrrakvöld slösuðust þrír lög-
regluþjónar, ein kona og tveir
menn, þegar sprengja sprakk á
bensínstöð í borginni Fermanagh á
Norður-írlandi. Konan hlaut alvar-
lega áverka á augum. Lögreglu-
mennimir fóra að stöðinni er þjófa-
bjaila fór í gagng. Þegar þeir birt-
ust þar sprakk sprengjan. Állt bend-
ir til þess að írski lýðveldisherinn
(IRA) hafí verið að verki.
Júgóslavía:
Fundu gröf
frá tímum
Rómverja
Belgrað. Reuter.
SKTRT var frá því í Júgó-
slavíu í gær að þarlendir
verkamenn, sem vinna við
lagningu hitlaleisðslna í Bel-
grað, hefðu komið niður á
rómverska gröf frá þriðju
öld.
Kistan, sem verkamennimir
fundu, er rúmlega tveir metrar
á lengd og dýpt hennar er um
einn meter. Fræðimenn, sem
hafa rannsakað hana, segja að
á loki hennar megi sjá að hún
hafi verið gerð fyrir rómverskan
hermann, Marcus Aurelius Glyc-
onos.
Talið er að Glyconos hafí ver-
ið Grikki og tilheyrt fjórðu her-
deild Flavíusar nokkurs í Sing-
indum en svo nefndu Rómveijar
þá borg sem nú nefíst Belgrað.
Singindunum var stofnsett við
komu Flavíusar árið 91 fyrir
Krist.
Spánverja og Portúgali
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins i Belgiu.
NÝT.EGA var birt í Brussel skýrsla endurskoðenda Evrópubandalags-
ins um framkvæmd ýmissa atriða í fiskveiðistefnu þess á Spáni og
í Portúgal. I skýrslunni kemur fram að mikið vantar á að reglum
bandalagsins sé fylgt I þessum löndum hvað snertir gæðamat á fiski,
uppboðsaðferðir og ráðstafanir vegna offramboðs á uppboðsmörkuð-
um.
Fulltrúar
endurskoðunarskrif-
stofunnar (Court of Auditors) sem
hefur aðsetur í Lúxemborg, heim-
sóttu fískvinnslustöðvar og upp-
boðsmarkaði í löndunum tveimur á
síðastliðnu hausti. Þessi skýrsla var
unnin að beiðni Evrópuþingsins í
framhaldi af samskonar skýrslu
sem unnin var á vegum sömu aðila
við inngöngu Spánar og Portúgals
í bandalagið. I skýrslunni kemur
fram að fyrirtæki innan viður-
kenndra framleiðslusamtaka á
Spáni hafa 80% markaðshlutdeild
en í Portúgal einungis 45%. Helsta
ástæða þessa er talin sú að verð á
fískmörkuðum í löndunum er alla-
jafna vel yfír innlausnarverði
bandalagsins. Aðild að viðurkennd-
um samtökum er talin nauðsynleg
vegna þess að kaup bandalagsins á
físki af jnörkuðum fara fram í gegn-
um þessi samtök. Arlega ákveða
sjávarútvegsráðherrar EB viðmið-
unarverð á físki með tilliti til vænt-
anlegs framboðs og eftirspumar.
Innlausnarverð EB á fískmörkuðum
er 70-90% af viðmiðunarverðinu.
Bandalagið greiðir úr sjóðum sínum
85% af innlausnarverðinu, 15%
verða samtök seljenda að sjá um.
Samtök seljenda hafa heimild til
að ákveða inniausnarverðið 10%
hærra eða lægra en það er ákveðið
af ráðherranefnd. I skýrslu endur-
skoðendanna kemur firam að mat
og flokkun á físki á uppboðsmörk-
uðum er stórlega ábótavant þannig
að líklegt sé að lægra verð fáist
fyrir fískinn en eðlilegt sé. Inn-
lausnir á mörkuðunum verði því oft
óeðlilegar. Þá sé og algengt að físk-
ur sem keyptur hefur verið sam-
kvæmt reglum bandalagsins hafi
ekki verið sendur viðstöðulaust í
gúanó heldur hafí hann verið
geymdur. Mai'kmið innlausnarkerf-
isins sé ekki að gera mönnum kleift
að koma í verð físki sem ekki sé
hæfur til manneldis heldur að
tryggja afkomu seljenda og stöðugt
framboð á físki með því að jafna
sveiflur á mörkuðunum.
Endurskoðendurnir gerðu at-
hugasemdir við þær aðferðir sem
beitt er við gæðamat á físki en þar
er einungis miðað við það hversu
lengi fískiskip hefur verið á sjó en
ekki litið á útlit, ilm og að öðra
leyti ástand aflans sem á að gera
samkvæmt heilbrigðisreglugerðum
EB. Á mörkuðunum var fískurinn
ekki flokkaður eftir stærð eða gæð-
um og engin vottorð fylgdu körfun-
um sem boðnar vora upp. Dæmi
vora þess að fískur væri seldur
undir innlausnarverði. Nokkur sam-
tök framleiðenda/seljenda urðu
uppvís að þvi að greiða framleiðend-
um einungis hluta opinberra sjóða
og bandalagsins í innlausnarverðinu
en bandalagið greiðir 85%, opin-
berir aðilar venjulega 2.5% og sjóð-
ir á vegum framleiðenda sjálfra
afganginn. Málið er nú í höndum
framkvæmdastjómarinnar.
Koparviðskipti Finna
og stjórnvalda í
Chile valda deilum
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðins.
VIÐKIPTI finnska koparversins Outokumpu og herforingjastjórnar-
innar í Chile hefur verið helsta pólitíska umræðuefnið i finnskum
fjölmiðlum í sumar. DeUt er um hvort mál þetta snúist um stjórn-
mál og siðfræði eða hvort stjóramálamenn og verkalýðsleiðtogar
hafi gerst sekir um fáránleg mistök. Ríkisstjórnin og koparfyrirtæk-
ið annars vegar og nokkur verkalýðssambönd hins vegar hafa i allt
sumar deilt um hvort finnskt ríkisfyrirtæki megi fjárfesta í koparná-
mu i Chile og hvort þetta megi gerast i samstarfi við fjölþjóða fyrir-
tæki sem er á svörtum lista sameinuðu þjóðanna vegna námurekst-
urs í Namibíu. Þetta hefur næstum kostað klofning innan Jafnaðar-
mannaflokksins þvi ráðherrar flokksins vilja heimila viðskipti Outok-
umpu og sljórnvalda i Chile en verkalýðsleiðtogar og fulltrúar flokks-
ins á þingi eru andvígir þvi.
f síðustu viku kom flokksstjóm
jafnaðarmanna saman til fundar og
var niðurstaðan sú að ekki skyldi
Qallað frekar um málið innan ríicis-
stjómarinnar en í ályktun fundar-
manna var jafnframt tekið fram að
óæskilegt væri að skipt væri við
aðila sem ekki virtu grundvallarat-
riði lýðræðis. Ráðherrar jafnaðar-
manna og flokksforastan vildi
greinilega ekki kljúfa ríkisstjómina
vegna þessa máls. Ilkka Suominen,
iðnaðarráðherra og flokksformaður
hægri manna, hefur marg sinnis
lýst yfír því að hann sjái ekkert
athugavert við koparviðskipti Out-
okumpu. Flokkur hans hyggst ekki
falla frá þeirri afstöðu. Og Jafnað-
armannaflokkurinn verður að sætta
sig við þessa niðurstöðu hyggist
hann sitja áfram í stjóm með hægri
mönnum.
Samstaða með
verkamönnum
Hins vegar hefur verkalýðsarmur
Jafnaðarmannaflokksins hótað að
stöðva koparflutninga frá Chile ef
ekki næst samkomulag við stjóm-
völd um ýmis sifræðileg atriði varð-
andi fyrirkomulag þeirra viðskipta.
Verkalýðsfélögin vilja sýna sam-
stöðu með verkamönnum, sem kúg-
aðir séu af herforingjastjóminni í
Chile og leggja þeir áherslu á að
Outkumpu ætti með réttu að kaupa
hráefni frá námu í eigu chileanska
rikisins. Þetta fyrirkomulag þykir
verkalýðsforastunni siðferðislega
réttlætanlegt en námurekstur í
samvinnu við annað Qölþjóða fyrir-
tæki getur hún ekki sætt sig við.
Finnska ríkisfyrirtækið Outok-
umpu er eitt hið stærsta í Evrópu
á sviði koparframleiðslu. Fyrir
skömmu keypti Outokumpu m.a.
tvö sænsk risafyrirtæki, Gránges
og Wirebo. Stjómendur fyrirtækis-
ins hafa hins vegar af því áhyggjur
að málmur í kopamámum þess í
Evrópu er að ganga til þurrðar auk
þess sem vinnslan öll er orðin mjög
dýr. Til þess að tryggja nægilegt
hráefni ákvað stjóm Outokumpu
fyrir nokkram áram að hefla sam-
starf við nokkra erlenda aðila til
að eignast stóra kopamámu í Chile.
Náman heitir La Econdita en helsti