Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
55
- VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Ófremdarástand í Suðurgötu
Velvakandi góður!
Við heitum á fulltingi þitt. Suður-
gatan hérí miðbæ Reykjavíkur er
vinsæl spyrnugata bifhjólasveina,
einkum seint á kvöldin og jafnvel
fram á miðjar nætur. Fæstum verð-
ur þá svefnsamt í húsunum við
þessa elstu götu bæjarins, þvílíkur
hávaði fylgir þessum tryilingsakstri
þeirra.
Þó verður að gera ráð fyrir, að
aldurs vegna ættu þeir að gera sér
grein fyrir því, að þannig hagar
maður sér ekki í neinu íbúðarhverfi
hér í Reykjavík. Að minnsta kosti
ekki án þess að kalla yfir sig hörð
viðbrögð samborgara sinna. Það er
vissulega viðfangsefni umferðar-
lögreglunnar, að koma í veg fyrir
þetta.
Þess. var getið í blöðunum í sum-
ar, að komin væri á innileg og góð
samvinna milli mótorhjólasvein-
anna og lögreglu. Að minnsta kosti
svo góð, að ástæða var til þess að
geta þess sérstaklega í blöðunum.
Við vonum að svo sé, og að um-
ferðarlögreglan láti þetta ófremdar-
ástand til sín taka nú þegar. Það
er ekki síður verkefni lögreglunnar
að stöðva svona geðveikisakstur og
tilheyrandi djöfulgang en að stöðva
akstur ölvaðra manna.
Um leið og Velvakanda er þakk-
að fyrir að koma tilskrifi þessu á
framfæri, þá væntum við þess, að
þeir aðilar sem mál þetta snertir
láti nú verkin tala.
íbúar í Suðurgötu.
Háar afborg-
anir af lánum
Kæri Velvakandi!
Ég samgleðst þeim, sem fá niður-
fellda dráttarvextina af sköttunum
sínum og öfunda þá ekki, þótt ég
sé ekki í þeirra hópi.
Margir eiga við annað vandamál
að stríða og er ég í þeirra hópi. Það
eru afborganir af lánum, þar sem
ég borga til dæmis 10.000,00 kr.,
en lánið lækkar ef til vill um
1.000,00, — ef það þá hækkar ekki.
Þama er ég að kaupa eitt þúsund
krónur á kr. 10.000,00, sem varla
getur talist hagkvæmt.
Nú vil ég koma þeirri spumingu
á framfæri, hvort eitthvað sé hægt
að gera fyrir fólk eins og mig, sem
er sokkið í svona skuldafen.
Ein sem er alveg að gefast
upp.
Þessir hrlngdu . . .
Að leita dunum og
dynkjum
Sveinn hringdi:
„Ég kann ekki við þetta orðalag
„að leita í dyrum og dyngjum",
sem ég er alltaf að sjá og heyra.
í mínu ungdæmi var talað um að
leita dunum og dynkjum, og finnst
mér það mun kraftmeira og fal-
legra."
Er Steingrímur inn und-
ir hjá íslenskum aðalverk-
tökum?
Þrasari hringdi:
„Steingrímur Hermannsson
segir það engu breyta um emb-
ættisfærslu sína gagnvart ís-
lenskum aðalverktökum að þiggja
boð um laxveiðar í fokdýrum ám.
Má satt vera, en það hlýtur að
skiljast þannig, að hann og hans
menn séu nú þegar inn undir hjá
aðalverktökum og aðalverktakar
inn undir hjá þeim.“
Seiko-úr týndist í
Reykjavík
Gyllt og silfurlitað úr af seiko-
gerð týndist í Reykjavík þriðju-
daginn 16. ágúst. Úrið er þunnt
og með keðju. Líklegt er að úrið
hafi týnst á einhverjum eftirtal-
inna staða: Austurbæjarapóteki,
Heilsuvemdarstöðinni, Suðurgötu
eða Glæsibæ. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 685704.
Kann einhver öll erind-
in?
Guðjón Árnason hringdi:
„Kannast einhver við kvæði,
sem hefst svo: Viltu með mér
vaka, sofa. . . Erindin munu alls
vera átta, en ég kann aðeis fjög-
ur. Gaman væri líka að fá að vita
nöfn höfunda kvæðisins og lags-
ins, sem það var sungið við.“
Svart kvenhjól týndist
Svart kvenhjól hvarf í mið-
bænum aðfaranótt síðasta laugar-
dags. Stýri og bjalla hjólsins eru
svört. Klikkhljóð heyrist þegar
það er á ferð. Þeir sem kunna að
geta gefið upplýsingar um hjólið
eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 611610 eða
611447. í boði eru fundarlaun.
Bröndótt læða í óskilum
Á þriðjudagskvöld fannst brún-
bröndótt læða við Lækjargötu.
Hún er með svartar rendur og er
hvít á trýninu. Þegar læðan fannst
var hún með mosagræna ól um
hálsinn, en merkingin var dottin
af. Upplýsingar í síma 10539, eða
á Dýraspítalanum.
Dónaskapur hjá Pósti
og síma
íslendingur hringdi:
„Ég er fæddur á íslandi, en
fluttist 7 ára gamall til Banda-
ríkjanna. Ég hef komið til íslands
á hveiju sumri og tala íslensku
ágætlega, þótt hún sé kannski
ekki fullkomin hjá mér. Á mið-
vikudaginn kom ég svo hingað frá
Bandaríkjunum og þurfti að afla
mér upplýsinga um ákveðið síma-
númer. Því hringdi ég í 03, upplýs-
ingasíma Pósts og síma. Þar var
mér mætt með dónaskap og sagt,
að ekki væri hægt að veita mér
þær upplýsingar sem ég þyrfti,
því ég talaði ekki nægilega góða
íslensku. Hvemig er með útlend-
inga sem þurfa að fá upplýsingar
um símanúmer? Er þeim vísað frá
ef þeir tala ekki íslensku? Nú
hélt ég, að hlutverk þeirra, sem
svara í þessu númeri væri að að-
stoða fólk. Það er kannski mis-
skilningur. Mér finnst greinilegt,
að sumir starfsmenn þama taka
starf sitt ekki nógu alvarlega.“
Dómkirkjan
Sumarferð
aldraðra
Efnt verður til sumarferðar eldri borgara í Dómkirkjusókn -
miðvikudaginn 24. ágúst nk. kl. 13.00. Farið verður frá Dóm-
kirkjunni, ekið um Grímsnes að Gullfossi og Geysi og til baka
um Laugarvatn og Þingvelli. Að venju verður gefið kaffi í ferð-
inni.
Þátttökugjald kr. 500,-
Þátttaka óskast tilkynnt í síma 12113 mánudaginn 22. ágúst
frákl. 14.30-17.00.
Sóknarnefnd.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Háteigsvegur
Laugavegur
Bankastræti
Glaðheimar
Vogahverfi
Samtún
Drekavogur
Stigahlíð 49-97
KOPAVOGUR
Kársnesbraut 77-139 o.fl.
GRAFARVOGUR
Svarthamrar
Vegghamrar
Krosshamrar
UTHVERFI
Hraunbær