Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 59
59
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
tebm
FOLK
■ LOBANOVSKY, þjálfari
sovézka landsliðsins í knattspymu,
fékk enn eitt hjartaáfallið fyrir
skömmu. Hann var þá staddur á
ítaliu í keppnisferð ásamt liði sínu,
Dynamo Kiev.
■ KARLSRUHE komst í efsta
sæti v-þýzku 1. deildarinnar í
knattspymu um síðustu helgi. Láðin
era 28 ár frá því að liðið sat síðast
á toppnum.
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
iV-Þýzkalandi
m FRANZ Beckenbauer, v-
þýzki landsliðseinvaldurinn, er laf-
hræddur við Finna eftir jafntefli
þeirra gegn Sovétmönnum fyrir
skömmu. V-Þjóð-
verjar eiga að
mæta Finnum í
undankeppni HM
innan skamms.
Þjóðveijarnir mega ekki við að
tapa stigi vegna þess að þeir era í
riðli með Hollendingum og aðeins
efsta liðið í riðlinum er öraggt með
að komast áfram.
■ DALEY Thompson, tug-
þrautarkappi, segist þurfa á hinum
gamla keppinaut sínum, V-Þjóð-
veijanum Jiirgen Hingsen, að
halda til að ná sínu bezta á ÓL.
Hingsen, sem hefur átt við meiðsli
að stríða, er alls ekki öraggur með
að komast til Seoul og fær síðasta
tækifærið til að sanna getu sína á
móti í V-Þýzkalandi um þessa
helgi. Thompson hefur því ákveðið
að taka einnig þátt í mótinu í þeim
tilgangi að hvetja Hingsen til dáða.
■ FELDKAMP, þjálfari
Eintracht Frankfurt, er farinn í
nokkurra daga frí. Liði hans hefur
gengið afleitlega það sem af er og
ekki hlotið stig. Óvíst er hvort hann
kemur aftur til starfa hjá félaginu.
Hann var ekki hafður með í ráðum
þegar Detari var seldur frá félag-
inu en það riðlaði öllum undirhún-
ingi hans. Fleiri era óánægðir með
stjórn félagsins og ekki ólíklegt að
til meiri háttar uppgjörs komi á
næstunni.
■ GLADBACHhefur sömuleiðis
gengið mjög illa í upphafí og stjór-
inn, Wolf Werner, þykir valtur í
sessi. Það sem helzt virðist koma í
veg fyrir að hann verði látinn taka
pokann sinn er að aldrei í sögu fé-
lagsins hefur það gerzt, að þjálfari
hafí verið rekinn.
■ STEINN Jóhannsson, FH,
setti í gærkvöldi unglingamet í
1000 metra hlaupi á ftjálsíþrótta-
móti í Ludwigshafe í V-Þýzkal-
andi. Hann hljóp á 2.27,9 mín og
varð 3. í hlaupinu. Þar með bætti
hann met Kristleifs Guðbjörns-
sonar frá árinu 1957 en það var
2.29,1 mín. Frímann Hreinsson
hljóp á 2.37 mín í sama hlaupi.
Súsanna Helgadóttir náði góðum
árangri í 100 m hlaupi á mótinu.
Hún hljóp á 12,1 sek og sigraði.
■ LEIKMENN Liverpool vora
boðaðir á fund í gær og héldu allir
að tilkynna ætti eftirmann AJans
Hansens. Annað kom á daginn og
John Aldridge
FráBob trúði ekki því sem
Hennessy hann heyrði og
í Englandi hringdi í íþróttadeild
Liverpool Echo til
að fá fregnina staðfesta! Arsenal
vildi fá Aldridge í fyrra og víst er
að áhuginn er ekki minni nú. Rush
fer í sína gömlu stöðu en lækkar
um helming í launum — fékk sex
þúsund pund á viku hjá Juventus,
en fær „aðeins" þijú þúsund hjá
Liverpool.
■ „ÉG vildi að áhorfendastæðin
á Anfield tækju fleiri, því eftir-
spum eftir ársmiðum hefur verið
gríðarleg eftir að tilkynnt var að
Rush væri á heimleið,“ sagði Peter
Robinson hjá Liverpool í gær.
■ RONNIE Whelan var fyrirliði
Liverpool í tveimur leikjum á
Spáni um daginn, meistaramir
sigraðu — og Whelan heldur fyrir-
liðastöðunni.
HANDKNATTLEIKUR
Bogdan Kowalczyk
með tilboð erfendis frá
Verður ekki þjálfari Víkings í
vetureins og um hafði samist
SAMKOMULAG hefurtekizt
milli handknattleiksdeildar
Víkings og Bogdans Kowalc-
zyk landsliðsþjálfara um að
hann þjálfi ekki 1. deildarlið
Víkings ívetur, eins og um
hafði samist i sumar.
Hallur Hallsson formaður
handknattleiksdeildar
Víkings tjáði Morgunblaðinu í
gærkvöldi að gengið verði frá
þessu um helgina og væntanlega
verði einnig gengið frá ráðningu
þjálfara í stað Bogdans um helg-
ina.
Hallur vildi ekki tjá sig um
ástæður þess að Bogdan þjálfar
ekki Víking í vetur. En samkvæmt
heimiidum Morgunblaðsins er
mögulegt að Bogdan fari til starfa
erlendis strax eftir Ólympíuleik-
ana í Seoul. Samkvæmt sömu
heimildum hefur Bogdan fengið
nokkur mjög gimileg tilboð frá
þekktum handknattleiksliðum á
meginlandi Evrópu um að gerast
þjálfari, enda orðinn einn þekkt-
asti og virtasti handknattleiks-
þjálfari heims vegna hins góða
árangurs, sem hann hefur náð
með íslenzka landsliðið.
Bogdan Kowalczyk kom til
starfa hjá Víkingi sumarið 1978.
Undir hans stjóm varð Víkingur
íslandsmeistari í íjögur skipti og
bikarmeistari þrisvar. Arangur
Bogdans sem landsliðsþjálfari
hefur einnig verið frábær en ís-
land náði 6. sæti bæði á Ólympíu-
leikunum í Los Angeles 1984 og
í Heimsmeistarakeppninni í Sviss
1986, þriðja sæti á Júgóslavíu-
mótinu í fyrra og þvi fjórða ^
heimsbikarkeppninni f Svfþjóð f
janúar.
Morgunblaðíð/Bjami
Bogdan Kowalczyk þjálfar ekki 1. deildar lið VTkings í vetur eins og
til stóð.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Fylki vantar tvö
stig úr fimm leikjum
FYLKIR er nú svo gott sem
komið með báða fœtur í 1.
deild; þeir sigruðu Selfoss 2:1
á sama tíma og Víðir í Garði
tapaði 2:3 fyrir ÍR. Fylkismenn
eru því komnir með 14 stiga
forskot þegar 5 umferðir eru
eftir, og þurfa þvf ekki nema
einn sigur í viðbót til þess að
gulltryggja sig.
Sigur Fylkis var sanngjam, því
það var aldrei neinum vafa
undirorpið hvort liðið væri betra.
Fýlkismenn vora áberandi meira
•■■■■■ með knöttinn f fyrri
KristinnJens hálfleik, og á 10.
Sigurþórsson mín uppskára þeir
skrifar fyrra mark sitt. Það
var Ólafur Magnús-
son, sem afgreiddi knöttinn í netið,
eftir góða sókn upp hægri kantinn.
Þrumufleygur Jóns Bjama
Eitthvert glæsilegasta mark, sem
sést hefur á hinum nývígða Fylki-
svelli sá dagsins ljós í gærkveldi.
Baldur Þór Bjamason, sem var í
framlínunni í stað Amar, sem er í
banni, æddi upp hálfan völlinn með
boltann, en þegar hann var í þann
mund að skjóta, féll hann. Knöttur-
inn barst út til Jóns Bjama, sem
skaut þramuskoti af 25 metra færi,
og það söng nánast í skeytunum
þegar netið þandist út. Markvörður-
inn stóð hreyfingarlaus á meðan
ósköpin gengu yfír, enda ómögulegt
að koma nokkram vömum við.
Glæsilegt mark!
Þar með vora Fylkismenn komn-
ir með tveggja marka forskot og
ólíklegt að Selfyssingum tækist að
jafna. Þeim tókst þó að minnka
muninn með marki Þórarins Ing-
ólfssonar, sem hann skoraði úr víti.
Fylkir hefur mjög heilsteyptu liði
á að skipa og verður eflaust gaman
að fylgjast með þeim í 1. deild að
ári. Bestir í gær vora Pétur, Anton
og Valur; Pétur og Anton era menn-
imir á bak við sóknaruppbyggingu
liðsins, en Valur er sem klettur í
vöminni.
Fylkir - Selfoss
2 : 1(1 : O)
Mörk Fylkis: Ólafur Magnússon og
Jón Bjami Guðmundsson
Mark Selfoss: Þórarinn Ingólfsson
Maður leiksins: Valur Ragnarsson
2. FLOKKUR
KR bikar-
meistari
ÍR-ingar lögðu
Víðismenn
Staðaní
2. deild
FH.............12 11 1 0 37:10 34
Fyikir..........13 9 4 0 32:18 31
Víðir............13 5 2 6 27:24 17
ÍR...............13 5 2 6 20:29 17
Selfoss..........13 4 4 5 17:19 16
UMFT_____________12 5 0 7 18:23 15
ÍBV..............12 4 1 7 23:25 18
KS...............12 3 4 5 27:34 13
UBK--------------12 2 4 6 16:25 10
Þróttur.........12 1 4 7 18:28 7
3.0G4. DEILD
Reynir tapaði
fyrir Dalvík
Tveir leikir vora í B-riðli 3. deild-
ar í gærkvöldi. Reynir, næst-
efsta lið riðilsins, tapaði fyrir Dalvík
á Dalvík 2:1. Mörk Dalvíkur skor-
uðu Ingólfur Kristjánsson og Bjöm
Friðþjofsson en Heimir Bragason
gerði mark Reynismanna.
Magni og Sindri léku á Grenivík-
urvelli og vann Magni stórsigur
4:0. Mörk Magna gerðu Jónas Bald-
ursson, Hafsteinn Jónsson, Hringur
Hreinsson og Tómas Karlsson.
í D-riðli 4. deildar var einn leik-
ur. Æskan sigraði Neista í marka-
leik 6:3. Baldvin Hallgrímsson og
Amar Kristinsson skoraðu tvö mörk
hvor fyrir Æskuna og þeir Einar
Áskelsson og Atli Brynjólfsson sitt
hvort markið. MagnúS Jóhannesson
skoraðu öll mörk Neistans.
2. DEILD KV.
KR-INGAR urðu í gærkvöldi
bikarmeistarar 12. flokki
karla er þeir sigruðu Fram
á Laugardalsvelli með
tveimur mörkum gegn einu.
Mörkin komu öll á stuttum
kafla í byijun leiksins.
Það voru Framarar sem áttu
fyrsta markið og var þar að
verki Gunnar Andrésson. Fögn-
uður Fram stóð ekki lengi, því
aðeins örfáum mínútum síðar
jöfnuðu KR-ingar og komust
síðan yfír nokkra seinna með
öðra marki. Þar með var marka-
kvóti leiksins útfylltur. Mörk
KR gerðu þeir Ólafur Viggósson
og Grétar Guðmundsson.
ÍR-INGAR gerðu sér litið fyrir
og unnu Víðismenn 3:2 í Garð-
inum í gærkvöldi. Heimamenn
sóttu meira, en gestirnir vörð-
ust vel og beittu skyndisókn-
um, sem vörn mótherjanna átti
í mestu erfiðleikum að stöðva.
Víðismenn, sem léku undan
norðan kalda í fyrri hálfleik,
náðu fljótlega forystunni með marki
Vilbergs Þorvaldssonar, en ÍR-
ingar jöfnuðu
nokkrum mínútum
síðar úr vítaspyrnu.
Rétt undir lok hálf-
leiksins ætlaði Vil-
hjálmur Einarsson, varnarmaður
hjá Víði, að skalla frá eigin marki,
en tókst ekki betur til en svo að
Bjöm
Biöndal
skrifar
frá Garði
knötturinn hafnaði í markinu.
í síðari hálfleik komu Víðismenn
ákveðnir til leiks og það var Hlynur
Jóhannsson sem jafnaði. En jöfnun-
armarkið var skammgóður vermir,
því Magnús Gylfason gerði sigur-
mark IR-inga 10 mínútum síðar
með þramuskoti af stuttu færi eftir
aukaspymu.
Víðir-ÍR
2:3 (1:2)
Mörk Vfðis: Vilberg Þorvaldsson (10.)
og Hlynur Jóhannsson (58.).
Mörk ÍR: Bragi Bjömsson (vítasp. á
15.), Vilhjálmur Einarsson (sjálfsm.
35.) og Magnús Gylfason (70.).
Maður leiksins: Halldór Halldórsson
ÍR.
UBKogÞór
í l.deild
Breiðabliksstúlkumar sem féllu
niður í 2. deild í fyrra höfðu
þar stutta viðvera. Þær sigraðu
deildina glæsilega í sumar, töpuðu
ekki stigi og náðu markatölunni
56:3!
í gærkvöldi léku Þór og KS á
Akureyri og var sá leikur hreinn
úrslitaleikur um hvort liðið fylgdi
UBK eftir upp í 1. deild. Þór sigr-
aði í leiknum 3:0. Staðan í leikhléi
en mörk Þórs í síðari hálfleik skor-
uðu þær Steinunn Jónsdottir úr víti,
r Ellen Óskarsdóttir og Kolbrún Jóns-
dóttir.