Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 60

Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 60
EIGIVA MIÐUMIV 27711 f" I M C H 0 t T S 5 T R H ' Krislinsson, sölusljiiri - Þorieto Guritnundssoo, sölum. rir HsMórason. lojlr.-Uraisiejnn B«ct teL.simi 11310 T I 3 JMtfgmiÞliifrife LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. ------q dpf '£*SÉBJg0 5 HRtSSAHDl. FKiSKA BRACB Ráðherrar fara tíl Seoul BIRGIR ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, og Matt- hías Á. Mathiesen, samgönguráð- herra, verða væntanlega við- staddir Ólympíuleikana, sem haldnir verða í Seoul í S-Kóreu í næsta mánuði. Birgir ísleifur sagði að Ólympíu- nefndin hefði farið þess á leit að hann færi með íslenska liðinu sem ráðherra íþróttamála, og myndi hann að öllum líkindum fylgja þeim hópi sem legði af stað héðan 11. septem- ber nk. Matthías fer til Seoul, m.a. til að sitja fund þar sem ákveðið verður hvar heimsmeistarakeppnin í hand- knattleik fer fram árið 1993, en hann er formaður undirbúnings- nefndar sem sett var á laggimar til að koma því til leiðar að keppnin verði haldin hér á landi. Kolbeinseyjardeilan: sóknar Dana? Morgunblaðið/Einar Falur 60 ára samn- ingur grund- völlur máls- Viðrar vel á ijaldbúa EINA hugsanlega leiðin sem Dan- ir hafa til að vísa Kolbeinseyjar- deilunni til Alþjóðadómstólsins i Haag er samningur sem gerður var milli íslands og Danmerkur árið 1930. Ber samningurinn heit- ið „Samningur um aðferðir til úrlausnar deilumála". Þijár leiðir eru fyrir mál að kom- ast í meðferð dómstólsins. í fyrsta lagi geta aðilar gert með sér sér- stakt samkomulag um slíka meðferð og er stærstur hluti mála dómstóls- ins þannig til kominn. I öðru iagi getur verið í gildi milliríkjasamningur milli aðila sem kveður á um að deilumálum skuli vísað til dómstólsins. Næstflest mál dómstólsins eru þannig til komin. I þriðja lagi gerir stofnskrá dóm- stólsins ráð fyrir því að ef ríki viður- kenni lögsögu dómstólsins gagnvart öllum öðrum ríkjum geti þau vísað málum til hans. Danir og Norðmenn viðurkenna þessa leið án fyrirvara en ísland hefur aldrei gert slíkt. Af þessu er ljóst að útilokað er fyrir Dani að fara með Kolbeinseyj- ardeiluna fyrir Alþjóðadómstólinn eftir fyrstu og þriðju leiðinni. Sjá nánar Áf innlendum vett- vangi á bls. 32. Tjaldstæðið í Laugardal í Reykjavík hefur verið vel sótt í sumar og sólin skein á gesti þar í gær. Eftir að lokið var við endurbæt- ur tjaldstæðisins í júlí hafa tjaldbúar staðið lengur við en áður tíðkaðist. Um níu af hveijum tíu gestum á tjaldstæðinu eru útlend- ingar, en erlendum ferðamönnum hérlendis fjölgaði um átta af hundraði í síðasta mánuði. Sjá umfjöllun um ferðamál í sumar á blaðsíðu 7. Utflutningur fyrstu 6 mánuði ársins: Verðmæti sjávarafurða féfl um nær hálfau mifljarð FYRSTU 6 mánuði þessa árs voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 470 milljónum króna, eða 2,8%, iægra verð en á sama tíma í fyrra. Fyrstu 6 mánuði þessa árs voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 16,302 millj- arða króna en á sama tíma í fyrra voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 16,772 milljarða króna, samkvæmt tölum frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sambandinu, Landssambandi islenskra útvegsmanna og Sölustofnun lagmetis. Sölusamband íslenskra fiskfram- I 5,048 milljarða króna, samkvæmt leiðenda flutti út 32.538 tonn af bráðabirgðatölum, en 35.977 tonn saltfiski fyrstu 6 mánuði ársins fyrir | fyrir 5,294 milljarða króna á sama Kaupmenn hafa áhuga á að reyna niðurfærsluleið - segir formaður Kaupmannasamtakaima FORMAÐUR Kaupmannasamtakanna segir að kaupmenn séu fullir áhuga á að taka þátt í niðurfærsluleið, reynist hún fær, en verið sé að afla nánari upplýsinga um málið. Hann segir það sína skoðun að verðlag verði að lækka um leið og annað og stingur upp á að veittur verði ákveðinn afsláttur frá kaupverði þegar vara er greidd svo allir sjái hver niðurfærslan sé. Stjórn Kaupmannasamtakanna hefur rætt við ráðgjafanefnd rikisstjórnarinnar um hugsanlega nið- urfærslu kaupgjalds 6g verðlags þar sem viðraðar hafa verið hug- myndir um 10% launalækkun og 6% verðlagslækkun, eða 8% launa- lækkun og 4% verðlagslækkun. Guðjón Oddsson formaður Kaupmannasamtakanna sagði við Morgunblaðið að samtökin hefðu mælt með niðurfærsluleiðinni árið 1959 en nú hefðu þau enga af- stöðu tekið til hennar enda væri enn verið að afla upplýsinga. „Menn eru þó fullir áhuga á því, innan okkar samtaka, að reyna einhveijar aðrar leiðir en þessar hefðbundnu gengisfellingarleiðir, og lýstu yfir að þeir væru tilbúnir til að taka á í þessu máli,“ sagði Guðjón. Ráðgjafanefndin lýkur væntan- lega störfum á sunnudag. Enn er ekki ljóst hvort hún muni leggja til að niðurfærsluleið verði farin í væntanlegum efnahagsaðgerðum en samkvæmt upplýsingum blaðs- ins hafa útreikningar Þjóðhags- stofnunar fyrir nefndina nú síðustu daga, snúið að þeirri leið. Sjá innlendan vettvang bls. 24. tíma í fyrra, að sögn Magnúsar Gunnarssonar framkvæmdastjóra SÍF. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna flutti út 37.474 tonn af sjávarafurð- um fyrstu 6 mánuði ársins fyrir 4,61 milljarð króna en 45.422 tonn fyrir 4,923 milljarða króna á sama tíma í fyrra, að sögn Bjarna Lúðvíkssonar framkvæmdastjóra hjá SH. SH flutti út 10.174 tonntil Banda- ríkjanna fyrstu 6 mánuði ársins fyr- ir 1,8 milljarða króna en 13.663 tonn fyrir 2,2 milljarða króna á sama tíma í fyrra, 11.933 tonn til Vestur- Evrópu fyrir 1,5 milljarða króna en 13.935 tonn í fyrra fyrir svipað verð, 4.793 tonn til Sovétríkjanna fyrir 475 milljónir króna en 3 þúsund tonn í fyrra fyrir 244 milljónir króna og 10.112 tonn til Asíu fyrir 1,045 milljarða króna en 14.289 tonn í fyrra fyrir 914 milljónir króna. Framleiðsla þeirra, sem aðild eiga að SH, var 44.403 tonn fyrstu 6 mánuði þessa árs en 47.684 tonn á sama tíma í fyrra. Sambandið flutti út 29.545 tonn af sjávarafurðum fyrir 3,267 millj- arða króna fyrstu 6 mánuði þessa árs en 31.373 tonn fyrir 3,483 millj- arða króna á sama tíma í fyrra, að sögn Sigurðar Markússonar fram- kvæmdastjóra sjávarafurðadeildar Sambandsins. Sambandið flutti út 22.353 tonn af frystum sjávarafurð- um fyrstu 6 mánuði ársins fyrir 2,926 milljarða króna en 24.306 tonn fyrir 3,050 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Sambandið flutti út um helmingi minna af sjávaraf- urðum til Bandaríkjanna fyrstu 6 mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra, tvisvar sinnum meira til Asíu, fjórðungi meira til Sovétríkjanna en svipað til Vestur-Evrópu. Sam- bandsfrystihúsin framleiddu 25.900 tonn af frystum sjávarafurðum fyrstu 6 mánuði þessa árs en 27 þúsund tonn á sama tíma í fyrra. Seld voru 49.453 tonn af fersk- fiski úr gámum og skipum erlendis fyrstu 6 mánuði þessa árs fyrir 2,995 milljarða króna en 49.755 tonn fyrir 2,722 milliarða króna á sama tíma í fyrra, að sögn Vilhjálms Vilhjálms- sonar fulltrúa hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Seld voru 19.276 tonn af ferskum þorski fyrir 1,188 milljarða króna, eða 61,64 króna meðalverð fyrir kílógrammið, fyrstu 6 mánuði þessa árs en 19.509 tonn fyrir 1,107 milljarða króna, eða 56,77 króna meðalverð fyrir kíló- grammið, á sama tíma í fyrra. Sölustofnun Lagmetis flutti út 1.203 tonn fyrstu 6 mánuði þessa árs fyrir 381,770 milljónir króna en 1.462 tonn fyrir 350,021 milljón króna á sama tíma í fyrra, að sögn Theodórs S. Halldórssonar fram- kvæmdastjóra Sölustofnunar lag- metis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.