Morgunblaðið - 25.08.1988, Side 2

Morgunblaðið - 25.08.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 Þingflokksfundur Sjálfstæðismanna: Niðurfærsla krefst samstöðu sérstaklega - segir Ólafur G. Einarsson Á FUNDI þingflokks sjálfstæðismanna, sem haldinn var á Akureyri í gær, var samstaða um að ríkisstjómin ætti að verða við tillögum ráðgjafamefndar um að reyna niðurfærsluleið. Bæði Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra og formaður flokksins, og Ólafur G. Ein- arsson, þingflokksformaður, lögðu mikla áherslu á að það væri forsenda fyrir þvi að leiðin heppnaðist að samráð yrði haft við samtök launþega um launalækkun og að samstaða næðist með laun- þegum um leiðina. „Það er forsenda þess að leið þessi lánist að samráð og samstaða náist við samtök vinnumarkaðar- ins,“ sagði Ólafur G. Einarsson. „Við gerum okkur ljóst að það er ekki á vísan að róa um að sam- komulag verði um efnahagsráð- stafanir yfirleitt, en þessi leið krefst þess sérstaklega." Ólafur sagði að ef niðurfærslu- leiðin yrði farin, teldi hann eðlilegt að fiysta kauphækkanimar, sem koma eiga til framkvæmda um mánaðamótin, og létta þannig byrðum af launagreiðendum, sem þeir hefðu þegar gengist undir. „Það gæti hins vegar leitt af sér uppsögn samninga, og launagreið- endur verða þá að standa frammi fyrir nýrri samningalotu. Atvinnu- lífið hefur ekki staðið undir þeim launahækkunum, sem um hefur verið samið, og það gera menn sér vonandi ljóst í næstu samningum," sagði hann. Ólafur var spurður hvort orð Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ, um að niðurfærsluleiðin sé óðs manns æði og að uni hana geti ekki tekist þjóðarsátt, útilokuðu ekki í raun samkomulag við verka- lýðshreyfinguna. „Við getum ekki fyrirfram litið svo á að orð Ás- mundar séu lög í landinu, þótt við gerum okkur stöðu hans auðvitað ljósa," sagði hann. „Við viljum kanna málin með formlegum hætti; þar á meðal viðræðum við aðila vinnumarkaðarins." Þorsteinn og ólafur sögðu báðir að á fundi sjálfstæðismanna hefði aðeins verið gert ráð fyrir lög- bindingu launa, en ekki verðlags eða vaxta með beinum ákvörðun- um, heldur muni það lækka sjálf- krafa með hjöðnun verðbólgu. „Ef niðurfærsluleiðin verður farin hrapar verðbólgan mjög hratt,“ sagði Þorsteinn. „Þá kemur það af sjálfu sér að vextimir lækka jafnharðan. Verðlag á vörum og þjónustu verður jafiiframt að lækka að svo miklu leyti sem launin hafa áhrif á verðmjmdun. Menn verða hins vegar að gera sér grein fyrir því að verðlagið lækkar ekki um sama hundraðshluta og launin. Lækkun á vörum og þjónustu yrði afar misjöfn eftir tegundum og því ekki hægt að tala um eina pró- sentutölu sem gengi yfir línuna þar sem launakostnaður við einstakar vörur og þjónustu er afar misjafn." Ólafur G. sagði að ekki hefði verið tekin afstaða sérstaklega til ýmissa hliðarráðstafana, sem ráð- gjafamefpdin leggur til að verði famar, og að ljóst væri að þær yrðu að skoðast vandlega, þar sem til dæmis niðurskurður ríkisút- gjalda og fækkun ríkisstarfsmanna væm ekki létt verk. Ákveðin and- staða hefði ekki komið fram á fund- inum gegn neinum af tillögum nefndarinnar. „Þessi mál verður að skoða. Ef niðurfærsluleiðin gengur ekki upp munu sjálfstæðis- menn að stjálfeögðu íhuga aðrar leiðir og hafa nýjar tillögur á tak- teinum," sagði Ólafur. Alþýðuflokkurinn: Ráðherrar fá umboð til að vinna að niðurfærsluleið ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokks- ins hefur veltt formanni og ráð- herrum flokksins fullt umboð tíl að vinna að framkvæmd niður- færsluleiðar innan ríkisstjómar- innar. Á fundi í gær lýsti flokk- urinn sig reiðubúinn til að láta reyna á það til hins ýtrasta að skapa samstöðu um þessa leið og gerði um það sérstaka álykt- un sem verður afhent forsætis- ráðherra og ríkisstjóminni á ríkisstjóraarfundi i dag. Form- aður Alþýðuflokksins segir að það verði væntanlega ákveðið á þeim fundi hvort frestað verði 2,5% launahækkun, hækkun á tryggingaiðgjöldum og 18% bú- vöruverðshækkun, sem koma eiga til framkvæmda 1. septem- ber. Jón Baldvin Hannibalsson flár- málaráðherra og formaður Al- þýðuflokksins sagði við Morgun- blaðið eftir þingflokksfundinn að ráðherrar Alþýðuflokksins hefðu skýrt aðalatriðin í því sem flokkur- inn teldi nauðsynlega útfærslu á niðurfærsluleiðinni á síðasta ríkis- stjómarfundi, og á viðræðufundum flokkanna. Þingfiokkurinn hefði síðan áréttað það i ályktuninni. Hann vildi ekki upplýsa nánar hver þessi atriði væru fyrr en ályktun- inni hefði verið komið á framfæri, en þar mun m.a. vera krafa um að Reykjavíkurborg dragi úr fram- kvæmdum sínum. Þegar bomar voru undir Jón Baldvin almennar efasemdir um framkvæmd niðurfærsluleiðarinn- ar, m.a. um að laun og verðlag lækki almennt, sagði hann að auð- vitað væri fullt af efasemdarmönn- um út um allt. Hins vegar væri niðurfærslan ekki fullunnin, þótt menn kæmu sér saman um for- sendur, og menn yrðu að leggja á sig þá vinnu að skoða það til þraut- ar hvort hægt væri að eyða þessum efasemdum og tryggja fram- kvæmdina þannig að hún skilaði árangri. Aðspurður um afstöðu Ásmundar Stefánssonar forseta ASÍ, sem hefur algerlega hafnað niðurfærsluleiðinni, sagði Jón Bald- vin að allir vildu samstöðu og þjóð- arsátt, „en ef einhver segir nei, á það að ráða úrslitum?" Niðurfærslan gangi gegnum allt efnahagslífið: Lít svo á að verið sé að selja frelsið undir stjóm - segir Steingrímur Hennaimsson formaður Framsóknarflokksins RÁÐHERRAR Framsóknarflokksins fengu umboð þingflokksins til að ná samstöðu í rfldsstjóminni um niðurfærsluleiðina, enda verði hún látin ganga jafnt yfir alla í þjóðféiaginu. Steingrímur Hermanns- son utanrikisráðherra og formaður flokksins segir að framsóknar- menn séu tiibúnir að fresta öllum hækkunum, sem koma eiga til framkvæmda 1. september en viiji að nafnvextir iækld samfara þvi. Steingrimur segist alls ekki hafna því að rætt verði við laun- þegasamtökin um framkvæmd niðurfærsiuleiðar en vilji þá gjaraan fá það fram frá þeim hvaða skilyrði þau seija. Steingrímur Hermannsson sagði við Morgunblaðið eftir þingflokks- fund Framsóknarflokksins í gær, að flokkurinn hefði farið yfir tals- vert langan lista yfir þær aðgerðir sem hann teldi að ætti að fylgja niðurfærsluleiðinni. Heildarlýsing- in á því væri að hún næði gegnum allt efnahagskerfið, opinberar gjaldskrár lækkuðu allar skilyrðis- laust og verðlag lækkaði eins og hægt væri að ráða við, fjármagns- kostnaður yrði að lækka mjög mik- ið og draga yrði úr þenslunni. Ríkis- sjóður yrði að vera rekinn halla- laus, helst með greiðsluafgangi. Þá mætti samdráttur ekki vera minni á vegum sveitarfélaganna, sérstaklega þar sem þensla sé mik- il. Þegar bomar voru undir Steingrím efasemdir um að verðlag lækki í kjölfar launalækkunar sagði hann að enginn { þjóðfélaginu ímyndi sér að slíkt verði auðvelt. Hins vegar væri hálfur vandinn yfírunninn ef menn gerðu sér grein fyrir því og gripu þá til allra mögu- legra ráðstafana. Hann nefndi sem dæmi að f Noregi væri bannað með lögum að hækka laun meira en 1%. Aðspurður sagðist Steingrímur ekki hafa kynnt sér viðurlögin en nefndi sviptingu verslunarleyfis sem dæmi. „Sumir eru að tala um höft í þessu sambandi en við erum á tíma- mótum. Það er gríðarleg kreppa að skella yfir okkur, atvinnuvegir að stöðvast, og ég Ht svo á að við séum fremur að setja frelsið undir stjóm. Síðan getum við slakað smám saman á því, eftir því sem efnahagslífið - leyfir," sagði Steingrímur. Aðspurður um tillögur ráðgjaf- amefndar ríkisstjómarinnar sagði Steingrímur að ekki hefði verið farið yfir hvem einasta lið á þing- flokksfundinum. Einstökum þátt- um hefði hvorki verið hafnað, né þeir samþykktir, en þó hefðu verið efasemdir um ýmsa liði, eins og að hægt sé að fækka ríkisstarfe- mönnum um 1.000. Morgunblaöið/Ámi Sæberg Skaftárhlaup írénun Hlaup, sem hófst í Skaftá á mánudag, náði hámarki sinu I gærmorgun og síðdegis i gær var farið að sjatna í ánni. Ekki er vitað til að skemmdir eða vand- ræði hafi hlotist af hlaupinu í þetta sinn. Vatnið náði upp að vegum, en flæddi ekki yfir þá. Myndin er tekin skömmu eftir að hvað mest var í ánni í gær- morgun. Ársbyqun 1987 til fyrsta ársfjórðungs 1988: Kaupmáttur jókst um 5,3% Á FUNDI kjararannsóknar- nefndar í vikunni kom fram að kaupmáttur launa hækkaði að meðaltali um 5,3% frá fyrsta árs- fjóðungi 1987 til fjrrsta ársfjórð- ungs 1988. Aukning kaupmáttar er mjög mismunandi eftir starfs- stéttum. Þannig jókst kaupmátt- ur launa skrifstofukarla um 14,3% á þessu tímabili en kaup- máttur verkamanna aðeins um 0,6%. Á fyrrgreindu timabili hækkaði kaup þeirra stétta sem athuganir Kjararannsóknamefndar ná til um 31,7% að meðaltali. Á sama tíma hækkaði framfærsiuvísitalan um 25,1%. Tfmakaup skrifstofukarla hækkaði á þessu tímabili um 43% en verkamanna um 25,9%. Næst á eftir skrifstofukörlum jókst kaupmáttur launa mest hjá iðnaðarmönnum eða um 10,4% og laun þeirra hækkuðu um 38,1% á tímabilinu. Kaupmáttur karla í af- greiðslustörfum hækkaði um 9,3% en kvenna um 2,2%. Kaupmáttur skrifetofukvenna hækkaði mun minna en karla í sömu störfum eða um 3,4%. Kaupmáttur verkakvenna hækkaði hinsvegar mun meira en karla í þeim störfum eða um 2,3%. Þegar skoðaðar eru tölur um breytingar á vinnutíma milli fyrr- greindra ársQórðunga kemur í ljós að hann hefur minnkað nokkuð hjá verkafólki og iðnaðarmönnum en aukist lítillega hjá öðrum starfs- stéttum. Minnkunin er mest hjá iðnaðarmönnum eða 3,8%. Meðal- fjöldi vinnustunda iðnaðarmanna fór úr 50,8 stundum í 47 stundir á viku. Hjá verkamönnum varð minnkunin svipuð eða 3,4% og vinnustundir fóru úr 53,1 í 49,7 að meðaltali á viku. Skrifetofukarlar juku aðeins við vinnu sína eða 0,6%, fóru úr 41,6 stundum á viku í 42,2 stundir. Niðurstöður Kjararannsóknar- nefndar fyrir 1. ársfjórðung 1988 byggja á úrtaki 11.917 einstaklinga hjá 131 fyrirtæki. Af þessum fjölda voru 3.740 einstaklingar einnig í úrtakinu á 1. ársflórðungi 1987. í frétt frá nefndinni segir að saman- burður úrtaka hafi verið erfiður vegna þess að mörg fyrirtæki skiptu um merkingarkerfi á einstaklingum úr naftinúmerum yfir í kennitölu. Skákþing íslands: Einvígi stór- meistaranna MARGEIR Pétursson og Jón L. Árnason hafa tekið forystuna f landsliðsflokki á Skákþingi ís- lands. Þeir unnu báðir sinar skák- ir í gærkvöldi. Þremur skákum af sex var lokið þegar síðast fréttist í gærkvöldi. Ifyrstir til að Ijúka sinni skák voru þeir Karl Þorsteins og Hannes Hlífar Stefánsson. Hannes gerði sig sekan um gróf mistök f byijuninni sem Karl notfærði sér og vann í fáum leikjum. Margeir vann síðan Róbert Harðarson og Jón L. vann Ágúst Karisson. Staða efetu manna er þá sú, að loknum níu umferðum, að Margeir er efetur með átta vinninga, Jón L. hefur sjö og hálfan, Karl sex og hálfan og Hannes Hlífar sex vinn- inga. Enginn hinna getur náð þessum fjórum að vinningafjölda í þessari umferð. Það stefnir því í að stór- meistaramir Margeir og Jón L. keppi um íslandsmeistaratitilinn f skák að þessu sinni. Tíunda og næstsíðasta umferðin verður tefld í kvöld og hefst kl. 18.00. Ellefta og síðasta um- ferðin verður síðan tefld á laugardag og hefst hún kl. 14.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.