Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 26
26 d MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Áfni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Tilboð í Granda hf. Fréttir af fyrirtækjum í sjávarútvegi eru yfirleitt á þann veg um þessar mund- ir, að þau berjist í bökkum. Skal síður en svo gert lítið úr þeim vanda, sem þar er við að glíma. Meðal annars vegna mikilla umræðna um hann vekur sérstaka athygli, að fjögur öflug fyrirtæki hafa gert tilboð í eignarhlut Reykjavíkurborgar í Granda hf. Útgerðarfyrirtækið Grandi hf. varð til í nóvember 1985 eftir sameiningu Bæjarút- gerðar Reykjavíkur (BÚR) og Isbjamarins hf. Áttu þessi tvö fyrirtæki þá í erfíðleikum. Raunar var Bæjarútgerð Reylgavíkur um margra ára skeið þungur baggi á borgar- sjóði óg þar með borgarbúum. Frá 1947, þegar Bæjarútgerð- in var stofnuð, og til 1985, greiddi borgarsjóður samtals 1,2 milljarða króna á verðlagi ársins 1985 vegna rekstrar fyrirtækisins. í þau 38 ár sem BÚR var starfrækt varð borg- arsjóður að leggja fram pen- inga öll árin, að undanskildum árunum 1967 og 1968. Eftir tilkomu Granda hf. 1985 hefur tekist að halda þannig á rekstri fyrirtækisins að bæði 1986 og 1987 skilaði hann hagnaði. I ár hefur fé- lagið glímt við samskonar erf- iðleika og önnur útgerðar- og fískvinnslufyrirtæki og í vor var gripið til hagræðingar og annarra ráðstafana til að koma í veg fyrir halla. Þegar ákveðið var fyrir forgöngu Davíðs Oddssonar, borgar- stjóra, að sameina BÚR og ísbjöminn snemst vinstri- sinnar í borgarstjórn Reylq'avíkur gegn þeim ráða- gerðum. Þeir hafa síðan leit- ast við að gera uppbyggingar- starfíð í Granda hf. sem tor- tryggilegast og oftar en einu sinni látið eins og fyrirtækið væri að stíga sín síðustu skref. Það er í hróplegri andstöðu við þann málflutning allan, að nú skuli fjögur einkafyrir- tæki taka höndum saman og gera 500 milljóna króna tilboð í eignarhlut Reykjavíkurborg- ar í Granda hf., en hann er 241 milljón króna. Ef eitthvað hefði verið að marka það, sem talsmenn vinstrisinna í borg- arstjóm Reykjavíkur hafa sagt um þetta mál, hefði mátt ætla að hér væri um byrði og vandræðafyrirtæki fyrir borg- arsjóð að ræða, sem hann mætti þakka fyrir að geta losnað við. Undir forystu Davíðs Odds- sonar hafa sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur staðið skynsamlega að því að breyta Bæjarútgerð Reykjavíkur í einkafyrirtæki. Strax þegar BÚR og ísbjöm- inn hf. vom sameinuð var því lýst yfír að ætlunin væri að selja hlut borgarsjóðs. Hann hefur vaxið að verðmæti á þeim tæpu þremur ámm sem síðan em liðin. Engin ein mælistika dugar til að meta verðmæti eignar Reykjavíkur- borgar í Granda hf. í því efni geta menn byggt ákvarðanir sínar á ólíkum forsendum. Reglur þær sem nú gilda um kvóta veita eigendum Granda hf. ákveðinn rétt en enginn segir að þessar reglur gildi til langframa. Þannig mætti áfram telja og meta einstaka þætti í þessu stóra fyrirtæki. Borgarstjóri telur tilboðið, sem hann hefur nú til athug- unar, ’mjög athyglisvert og fyrsta alvömtilboðið sem borginni hefur borist í eignar- hlut sinn í Granda hf. Morgunblaðið hefur ein- dregið stutt þá viðleitni meiri- hluta borgarstjómar Reykjavíkur sem hófst með stofnun Granda hf. haustið 1985 og blaðið hefur hvatt til þess oftar en einu sinni, að borgin seldi sinn hlut í fyrir- tækinu, þegar aðstæður væm til þess. Þær virðast nú vera fyrir hendi. Þannig hefur ver- ið staðið að þessu máli al- mennt, að vísa má til þess sem fordæmis við sölu opinberra fyrirtækja og einkavæðingu. Þá er tilboðið í Granda hf. til marks um að sem betur fer telja menn enn álitlegt að íjár- festa í fiskvinnslu og útgerð á íslandi. Saga Granda hf. ætti að geta orðið öðmm til leiðbeiningar um, hvemig unnt er að styrkja stöðu sjáv- arútvegsfyrirtækja í einstök- um byggðarlögum. Jón Ingvarsson; Granda til góða að losna út úr pólitískri umræðu Atvinnu fjölda fólks stefnt í voða, segir Siguijón Pétursson „ÞAÐ er af hinu góða fyrir Granda að losna út úr þeirri pólitísku umræðu sem hefur verið í kringum fyrirtækið. Hún hefur háð rekstrinum og myndi gera það í framtíðinni. Mér lýst mjög vel á þetta tilboð," sagði Jón Ingvarsson hluthafi í Granda hf. í gær. Hann er ásamt fjölskyldu sinni eigandi að 15% prósentum hluta- bréfa i fyrirtækinu. Siguijón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins mótmælir því harðlega að hlutur borgarinnar í fyrir- tækinu verði seldur. „Þjóðin lifír á sjávarútvegi og Reykjavíkurborg á að vera þátt- takandi í grunnatvinnuvegum hennar. Með því að selja fyrirtæk- ið mönnum sem hafa aðeins eigin gróða að markmiði er verið að stefna atvinnu fjölda fólks í voða,“ sagði Siguijón. Fjögur fyrirtæki, Hvalur, Ven- us, Sjóvátryggingarfélag Islands og Hampiðjan lögðu fram tilboð í hlutabréf Reykjavíkurborgar í Granda hf. á þriðjudag. Tilboðið hljóðar upp á 500 milljónir króna. Borgin á 78% hlutafjár, fjölskylda Jóns Ingvarssonar og OLÍS á 7%. Óli Kr. Sigurðsson eigandi OLÍS sagði ekki hafa fengið neinar fregnir af kauptilboðinu og gæti hann því ekki tjáð sig um það. Siguijón Pétursson kvað kaup- tilboðið hljóða upp á allt of lága upphæð. Hér væri um meira en eigið fé fyrirtækisins að tefla, heldur einnig framtíðarverðmæti sjávarfangsins og atvinnu fólks. „Reyndin er sú að einkafyrirtæki í sjávarþorpum víðs vegar um land eru að fara á höfuðið, selja burt skip og taka þannig heil byggðar- lög með sér í fallinu. Þetta kerfi er sér til húðar gengið. Hér þarf augsýnilega að koma til sam- ábyrgð hins opinbera og einkaað- ila,“ sagði Siguijón. Jón Ingvarsson sagði að tilboðið væri sanngjamt miðað við eiginfj- árstöðu fyrirtækisins þegar keypt- ur væri svo stór hlutur. „Minni- hlutinn í borgarstjóm hefur alltaf verið að agnúast út í þetta fyrir- tæki. Fulltrúi framsóknarflokks- ins, Alfreð Þorsteinsson, hefur haldið því fram að fyrirtækið sé á hausnum og eigi sér ekki viðreisn- ar von. Það er fróðlegt að vita hvað þeir segja núna þegar jafn vænlegt tilboð er komið fram og rekstur þess metinn sem ábata- samur," sagði Jón. Tillögur samstarfsnefndar ráðuneyta um fjölskyldumál: Lengrí skólatími og gjc skipulag dagvistarmá Fjölga þarf stöðugildum um 600 á fimm árum samkvæmt till< LENGRI skóladagur yngri barna, samfelldur skóladagur, samræmd lengd skólaárs og samræmdur kennslustundafjöldi í forskóla, óháð fjölda barna, eru meðal þess, sem samstarfsnefnd ráðuneyta um fjölskyldumál leggfur til i áfangaskýrslu sem skilað var til ríkissljórn- arinnar á þriðjudag. Þar er ennfremur lagt til að barnabætur komi i auknum mæli í staðinn fyrir niðurgreiðslur vistgjalda á dagvistar- stofnunum, að tekið verði mið af efnalegum aðstæðum foreldra í stað hjúskaparstöðu við gerð gjaldskrár, að fullnaðaráætlun um nppbyggingu dagvistarstofnana verði lokið á fimm árum með stuðn- ingi rikisins og leikskólavistun verði í auknum mæli í takt við þarf- ir útivinnandi foreldra. Nefndin leggur til fimm ára áætlun um fram- kvæmdir og þar kemur fram, að fjölga þarf stöðugildum um 600, ef tillögurnar eiga að ná fram að ganga. Þessi stöðugildi skiptast jafnt á kennara og fóstrur. Heildarkostnaður við breytingarnar er áætlaður l.150 milljónir króna i dagvistarmálum, eða um 230 milljón- ir á ári. í skólamálum er áætlað að aukinn rekstrarkostnaður sam- kvæmt tillögunum nemi um 250 miiyónum króna á ári. Samkvæmt fjárlögum 1988 er rekstrarkostnaður grunnskóla 3.200 milljónir krona.. Samstarfsnefnd ráðuneyta um yölskyldumál var skipuð fyrir ári síðan. Nefndinni var falið að gera úttekt og tillögur um skólamál, dagvistarmál, lífeyrismál, skatta- mál og sveigjanlegan vinnutíma. Tillögur nefndarinnar eiga að miða að því að treysta stöðu fjölskyldunn- ar og auka velfarð bama. Nefndin skilaði áfangaskýrslu til ríkisstjóm- arinnar um tvo fyrstnefndu mála- flokkana á þriðjudag. Helstu tillög- ur nefndarinnar fara hér á eftir, en þær voru kynntar á blaðamanna- fundi í gær. Skóladagnr verði minnst 6 klst Nefndin telur æskilegt markmið, að allir grunnskólanemar njóti skóladvalar að minnsta kosti sex klukkustundir á dag. Þessu mark- miði á að ná í §ómm áföngum, þannig að skóladagur verði lengdur úr 22-35 stundum á viku í 30-36 stundir á viku. í fyrsta áfanga verði skólatími 1. og 2. bekkjar lengdur sem nemur íjórum stundum á viku og komi til framkvæmda skólaárið 1989-1990. í öðmm áfanga er gert ráð fyrir að forskólanum verði breytt í bekkjafyrirkomulag þannig að allir nemendur njóti sama kennslustundafjölda óháð fjölda bama í árgangi í hveijum skóla. Þessi áfangi á að taka gildi skólaá- rið 1990-1991. í þriðja áfanga er gert ráð fyrir almennri lengingu skólatímans sem jafnhliða einsetn- ingu í skóla og samfelldum kennslu- degi þýðir að stækka þarf húsnæði skólanna. Kostnaðaráætlun í því sambandi hljóðar upp á 1.250 millj- ónir króna, þar af er hlutur ríkisins 430-625 milljónir. Þessi áfangi á að koma til framkvæmda skólaárið 1991-1992.Loks er frjórði áfanginn skólaárið 1992-1993 og felur í sér lengingu skóladagsins þannig að yngstu nemendumir verði 30 kennslustundir á viku í skólanum og þeir elstu 36-37 stundir. Samtals 300 nýjar kennarastöður þarf til að skólamir ráði við þetta breytta fyrirkomulag. Aukinn rekstrarkostnaður yrði um 250 milljónir króna á ári. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndarinnar, lagði mikla áherslu á, að lengri skólatíma ætti ekki að nýta einungis til viðveru í skólunum, heldur væri markmiðið að auka kennsluna að sama skapi og nýta þannig skólatímann sem best í þágu nemendanna. Öryggi barnanna Nefndin leggur til að á meðan framangreindar tillögur eru ekki komnar til framkvæmda, verði komið á skólaathvörfum sem nem- endur gætu dvalið í utan kennsl- utíma. í skýrslunni segir m.a.: „Stuttur skóladagur yngstu bekkja grunnskólans (þ..e. 7 og 8 ára bama) og forskólans hefur auk þess víða leitt til erfiðleika fyrir Inga Jóna Þórðardóttir, formað- ur samstarfsnefndar ráðuneyta um fjölskyldumál. útivinnandi foreldra. Erfítt getur reynst að fá gæslu fyrir börn eftir að skólatíma lýkur. Þetta hefur í för með sér mikið öryggisleysi og vandamál bæði fyrir böm og full- orðna.“ Lagt er til að forskóladeildum við grunnskóla verði breytt þannig að allir nemendur njóti sama kennslustundaíjölda óháð fjölda bama. Nú er úthlutað einni kennslustund á ^viku fyrir hvert bam í hveijum fórskóla. Það leiðir af sér, að skólatími forskólabama í fámennum byggðarlögum er skammur, jafnvel einn dagur á viku. Nefndin leggur til að við hvern grunnskóla starfí skólaráð, sem í eigi sæti fulltrúi foreldra. Með því móti fái foreldrar aðgang að skipu- lagningu skólastarfsins. Þá er lagt til að staða umsjónarkennara við 7. til 9. bekk verði styrkt og þeim gert kleift að sinna betur tengslum við nemendur og foreldra. Loks leggur nefndin til að kann- að verði rækilega hvað valdi þ að skólaár er enn víða styttra en níu mánuðir. Kostnaður við 8 mán- aða skóla er nánast sá sami og við 9 mánaða skóla, nemendur eiga rétt á að fá sömu kennslu hvort heldur þeir búa á Selfossi eða Sauð- árkróki, þess vegna eigi skólaárið að vera jafn langt, nema sterk rök hnígi til annars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.