Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988
19
Karvel Pálmason
„Þessir yfirlýsinga-
glöðu menn ættu líka
að muna það, að heimil-
in — mörg- hver — eiga
í miklum greiðsluerfið-
ieikum og eru hrein-
lega gjaldþrota vegna
þeirrar efnahagsstefnu
sem fylgt hefur verið
undangengin ár.“
greiðsluerfiðleikum og eru hrein-
lega gjaldþrota vegna þeirrar efna-
hagsstefnu sem fylgt hefur verið
undangengin ár.
Við, sem búum úti á landi, viljum
fá að vita það í eitt skipti fyrir öll
— og þá undanbragðalaust — hvort
það sé vilji ráðamanna í reynd, að
landsbyggðin lifi. Ef svo er ekki,
þá er eins gott fyrir þá hina sömu,
sem þessar yfirlýsingar stunda, að
segja frá því, svo viðkomandi þol-
endur — þ.e. fólkið úti á lands-
byggðinni — geti hagað sér í sam-
ræmi við það.
Yfirlýsingar af þessum toga eru
ekki við hæfi og allra síst þeirra
sem telja sig málsvara þeirra sem
minna mega sín, þ.e. launafólks í
landinu.
Höfundur er alþingismaður.
Smurstöð Heklu hf. er í alfaraleið við Laugaveginn.
Hún er skammt frá miðbænum og því þægilegt að skilja bílinn
eftir og sinna erindum í bænum á meðan bíllinn er smurður.
Nýlega var tekin í notkun fullkomin veitingaaðstaða fyrir þá
viðskiptavini sem vilja staldra við á meðan bíllinn er smurður.
Fljót og góð þjónusta fagmanna tryggir fyrsta flokks smurningu.
Lítið við á Laugavegi 172 eða pantið tíma í símum
695670 og 695500.
Veriðvelkomin.
Áskriftarsíminn er 83033 1
10% minn
Sanitas