Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 r*'T?'*J3l. :! ’U’AC'i'rW'/M .(iKtUGUJDiloIn— fclk í fréttum ítalir veita Kristjáni Jóhannssyni verðleikaorðuna ITALIR hafa veitt Kristjáni Jóhannssyni, tenórsöngvara, „ Verðleikaorðuna". Ræðismaður ítala á íslandi, Ragnar Borg, af- henti Kristjáni orðuna fyrir hönd Cossiga, forseta Ítalíu, siðastlið- inn sunnudag að viðstöddum nán- ustu ættingjum og vinum Krist- jáns. Að sögn er fátitt að svo ungum manni sem Kristjáni sé veitt orðan og sagðist hann þvi ekki hafa átt von á að hljóta hana. „Þetta er mér mikill heiður og viðurkenning á minni list. Ekki sist vegna þess að Ítalía er vagga óper- unnar,“ sagði Kristján en hann hlýt- ur orðuna fyrir að kynna ítalska tónlist á alþjóða vettvangi. Fyrr á þessu ári hlaut Sigurður Demetz söngkennari, Verðleikaorðuna. Kristján fór til Montreal í Kanada á á mánudag með orðuna í fartesk- inu. þar mun hann syngja aðalte- nórhlutverkið f „Madame Butt- erfly", næstu 4 vikur. Þaðan liggur leið hans til Dallas til að syngja í „Don Carlos" eftir Verdi. Morgunblaðið/KGA Stolt mæðgin; Kristján ásamt móður sinni, Fanneyju Oddgeirsdóttur. Tengdafaðir og eiginkona Kristjáns Jóhannssonar, Sverrir Jónsson og Siguríóna Sverrísdóttir, gaum- gæfa Verðleikarorðuna ítölsku f barmi Kristjáns. Ragnar Borg ræðismaður Italiu, t.h., segir þeim frá orðunni. Krístján Arason og Geir Sveinsson eru hér f skotspili, sem felst f þvi að frelsa dömu úr höndum ræningja. Handboltinn: Landsliðsmenn í leiktækjasal Islensku handboltamennimir okkar hittast ekki einungis á vellinum, þar sem áhorfendur fá að njóta leikni þeirra. Myndir náðust af þeim köpp- um þar sem þeir voru staddir í leiktækjasalnum „Fredda" í Tryggvagötu. Þar komu þeir inn sfðastliðinn föstudag til þess að slaka á fyrir Flugleiða- mótið. Það var létt yfír mannskapnum og skein einbeitnin úr hvers manns svip f viðureign þeirra við ræningja og hraðakstursbíla. COSPER — Mér er alltaf gefið miklu meira þjórfé í rigningu. \ Konungsfj ölskyldan: Prinsessan er nefnd Beatrice Elizabeth Mary Hinni nýfæddu dóttur hertoga- hjónanna Söm og Andrésar hefur verið valið nafnið Beatrice Eiizabeth Mary, var tilkynnt f Buck- ingham höll á mánudag. Hún er nú tveggja vikna gömul og verður hún í framtíðinni titluð Beatrice, prinsessa af Jórvík. Stúlk- an var kynnt fyrir ömmu sinni, Elísabetu drottningu, í sfðustu viku en Beatrice litla er fimmta í röðinni sem arftaki krúnunnar. Hertogahjónin hafa breytt út af þeirri konunglegu hefð að nefna böm sín fímm eða sex nöfnum, og velja dóttur sinni aðeins þijú nöfn. Þau eru sögð hafa valið nafnið Beatrice vegna þess að þeim fannst það mjög fallegt svo og vegna þess að nafnið er í Qölskyldunni. Sú fyrsta í flölskyldunni með þessu nafni var Beatrice dóttir Viktoríu drottningu. Var hún fasdd árið 1857 og lést árið 1944. Árið 1885 giftist hún Hinrik prins af Battenburg og áttu þau fjögur böm. Eitt af þeim, Viktoría, giftist Alfonso XIII spán- arkonungi árið 1906.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.