Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 23 EITT MERKI — ÓTAL GERÐIR Það fást yfir 20 gerðir af MAZDA 323, ein þeirra hentar þér örugg- lega. Til dæmis MAZDA 323 SUPER SPECIAL 4 dyra: • Nóg pláss fyrir fjölskylduna og farangurinn. • Ný, glæsileg luxusinnrétting, niðurfellanlegt aftursæti. • 1.3 L eða 1.5 L vélar. • 5 gíra eða sjálfskiptur, fæst með vökvastýri. • Belti við öll sæti og dagljósa- búnaður. • Sérlega hagstætt verð. Athugið sérstaklega: Ný, hagstæðari greiðslukjör en áður hafa þekkst!! Opið laugardaga frá kl. 1-5. ÐILABORG HF. FOSSHÁLSI 1. S. 68 12 99. Vestur-Þýskaland: Steingervingafundurá Nýja-Sjálandi Ewan Fordyce, jarðfræðingnr, og félagar hans tveir, Craig Jones og Andrew Grebneff, virða fyr- ir sér steingerð bein skíðishvals sem fundust á Nýja-Sjálandi í sumar. Skíðishvalurinn, sem skyldur er hrefnu, lifði fyrir um 30 milljón árum og fundust beinin í 150-200 metra hæð yfir sjó, sem sýnir að hærra var í sjó á þessum tíma en nú er. Talið er að þessi fundur geti varpað nýju ljósi á þróun tegundanna og gefið mikilvægar upplýsingar um veðurfar á þessum tíma. Af beinunum sést að skíðishvalir hafa ekki tekið miklum breytingum siðustu 30 milljón árin og af því má álykta að á þeim tímum, er skíðishvalir af þessari tegund lifðu, hafi skilyrði í hafinu við Nýja-Sjáland verið svipuð og þau eru í Norðurhöfum þar sem hvalimir lifa nú. Danmörk: Hyggjast stunda túnfiskveiðar við Seychelles-eyjar Fornar ást- ir fyrnast ei Bonn. Hjónabandsfólki í Vestur- Þýskalandi hættir mest við því að hrasa á vegi dyggðarinnar er það hittir fólk sem það hefur átt ástarfundi með fyrir hjónaband- ið. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var á vegum tímaritsins Neue Revue sem gerð var nýlega. 41% karla og 40% kvenna, sem aðspurð viðurkenndu að hafa haldið fram . hjá, sögðu að það hefðu þau gert með fyrrverandi unnustum sínum. í ESBJERG hefur um hríð verið unnið af kappi við að búa þrjú dönsk togskip til veiða við Seyc- helles-eyjar sem em á Vestur- Indlandshafi, um þúsund kíló- metra norðaustur af eynni Ma- dagaskar - og tíu þúsund kíló- metra frá Danmörku. Að sögn danska blaðsins Jyllandsposten em bátarnir frá Borgundarhólmi og vilja fiskimennirnir, sem alls em 18 talsins, fá að njóta þess að stunda veiðar án þess að þurfa að hlíta ölhim þeim reglugerðum og veiðitakmörkunum sem gera dönskum fiskimönnum lífið leitt á heimaslóðum. Ætlunin er að tveir bátanna leggi af stað næstu daga og sá þriðji í bytjun september. Fara þeir fyrst til Frakklands þar sem flottroll verða tekin um borð og áhöfnin þjálfuð í notkun þess. Síðan verður siglt sem leið liggur um Miðjarðar- haf, Súez-skurð og Rauða hafið til eyríkisins og er áætlað að ferðin frá Frakklandi vari um einn mán- uð. Við Seychelles-eyjar á að stunda túnfiskveiðar fyrir nýja fiskvinnslu- stöð í Viktoríu, höfuðstað eyjanna og hefur verið gerður eins árs samn- ingur um veiðamar við stjóm eyja- klasans. Áhöfnin mun að jafnaði vinna tvo mánuði og fá síðan mán- aðar leyfi ásamt flugfarmiða til Danmerkur og aftur til Seychelles. Undirbúningur að þéssu framtaki hefur staðið yfir í meira en hálft ár og hafa nauðsynlegar breytingar á hverju skipi kostað tvær milljónir d.kr. (u.þ.b. 13 milljónir ísl.kr.). Sjómennimir verða að treysta al- gerlega á eigin dugnað og heppni þar sem hvorki danska ríkið, Evr- ópubandalagið né stjóm Seychel- les-eyja hyggjast tryggja þeim nein- ar tekjur. MAZDA 323... féwf Uim Viðræður Norður- og Suður-Kóreu: Samið um nýjan fund þingmannanefndar Seoul. Reuter. NORÐUR- og Suður-Kóreumenn samþykktu i gær að viðræðu- nefndir þeirra kæmu að nýju til fundar á föstudag, eftir þrjá ár- angurslausa fundi um siðustu helgi. Park Jun-kyu, formaður suður- kóresku þingmannanefndarinnar, ræddi í gær við formann norður- kóresku nefndarinnar í landamæra- þorpinu Panmunjon og stóð fundur þeirra yfír í tvær stundir. Náðist þar samkomulag um að þingmanna- nefndir ríkjanna hittust á föstudag í þeirri von að þar næðist samkomu- lag um sameiginlegan fund þjóð- þinga Norður- og Suður-Kóreu og um þátttöku Norðanmanna í Ólympíuleikunum. „Ég vona að Norðanmenn breyti tillögum sínum fyrir fundinn," sagði Park í gær. Norður-Kóreumenn hafa krafízt þess að fá að halda hluta leikanna en hafa hins vegar hafnað öllum tillögum Sunnan- manna og Alþjóða Ólympíunefndar- innar (IOC) um skiptingu leikanna. Sunnanmenn reyndu að höggva á hnútinn á dögunum með því að leggja til að fram færu viðræður æðstu manna ríkjanna í Pyongy- ang, höfuðborg Norður-Kóreu, 29. ágúst næstkomandi, þar sem deilan um Ólympíuleikina yrði leyst. Norð- anmenn höfnuðu því tilboði og sögðu að nauðsynlegt væri að ræða samtímis um leiðir til að draga úr spennu á Kóreuskaganum, m.a. að gengið yrði þar frá griðasamningi milli ríkjanna. Nýstárleg rafhlaða; Sjór notaður sem rafvaki í fyrsta sinn Stavanger. Reuter. NORSKA olíufyrirtækið Statoil skýrði frá þvi í gær að sérfræðingar þess hefðu fundið upp neðansjávarraf- hlöðu sem gengi fyrir sjó. Að sögn talsmanns Statoil er um fyrstu sjávarrafhlöðu heims að ræða og mun þetta vera í fyrsta sinn sem sjór er notaður sem rafvaki. Ending- artími rafhlöðunnar er áætlað- ur þijú ár og í fréttaskeyti seg- ir að hún muni taka upp súr- efni með sama hætti og fískar. Með tilkomu rafhlöðunnar er talið að komast megi hjá því að leggja marga kílómetra af rándýrum rafmagnsleiðslum úr landi. Hún verður notuð til að knýja miðunarstöð á sjávar- botni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.