Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.08.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 SIÐAN Ammæli enn og aftur Fyrsta lagið sem Sykurmolarn- ir gáfu út var 7“ með laginu Amm- æli. Það lag seldist lítið hér á landi, en þegar það var gefið út í Bretlandi fleytti það hljómsveit- inni á topp óháða listans breska og kom henni á forsíðu Melody Maker. Alls hefur Ammæli komið fimm sinnum út í Bretlandi, sem 7“, 12" (á þeirri tólftommu var lagið einnig á íslensku), sem geisladiskur (þar á var einnig íslensk útgáfa af lag- inu), á 10“ af Deus (á íslensku) og á plötunni Life’s too Good. Mönn- um þykir þó ekki fullreynt enn og síðasta mánudag kom lagið enn út. Að þessu sinni er það gefiö út sem 7“ og 12“ og gengur undir tveimur nöfnum, Birthday og Christmas. Meðlimir hljómsveitar- innar The Jesus and Mary Chain leika undir í þeim útgáfum sem bera nafnið Christmas. Á sjö- tommunni verður Birthday á a- hliðinni, en Christmas á b-hliðinni. Á tólftommunni verða lögin Christmas Eve/Christmas Day sam'föst á a-hliðinni og Christmas Present (án söngs) og tónleikaút- gáfa af Petrol á b-hliðinni. 30. ágúst kemur síðan út geisladiskur með öllum þessum lögum. 5. september kemur út tólf- tomma með Birthday á a-hlið, en á b-hlið verða tónleikaupptökur af F***ing in rhythm & sorrow, Cow- boy og Cold Sweat, sem teknar voru upp í London Astoria 19. maí síðastliðinn. Sama dag kemur út geisladiskur með sömu lögum á. Aö sögn talsmanna One Little Indi- an, sem gefur alltsaman út, hyggj- Birgir, Gunnar og Sigurjón í Sýrlandi. Ljósmynd/BS Allt byrjaði þetta með þessari plötu. Hún fór hægt af stað, en er uppseld í dag og borga safnar- ar í Bretlandi 50 sterlingspund fyrir eintak (um 4.000 krónur). the sugarcubes. Stikkorðið er ekkert væl Svanasöngur S.h. draums og Dýr á braut ■'SVr- Fyrsta breska útgáfan af Birth- day, sem kom Sykurmolunum á allra varir. ast þeir koma Birthday inn á topp 30 í Bretlandi með og um leið koma Life’s too Good vel yfir gullplötu- múrinn (100.000 eintök seld), en þar á vantar 3—4.000 eintök. Svart hvítur draumur er á með- al eldri rokksveita ISIenskra og um leið þeirra merkari. Sveitin hefur þó runnið sitt skeið á enda og var í hljóðveri fyrir skemmstu að hljóðrita sína síðustu plötu. Platan sú verður fjögurra laga tólftomma og kemur út í næsta mánuði. Með Draumnum starfaði að þessari plötugerð Sigurjón Kjart- ansson sem upptökustjóri, en Sig- urjón er gítarleikari hljómsveitar- innar Ham, sem Gunnar Hjálmars- son bassaleikari Draumsins mun leika með sem gítarleikari. Rokk- síðan hitti á þá Gunnar, Sigurjón og Birgi Baldursson trommuleikara í Sýrlandi fyrir stuttu. „Power pop“ Á plötunni verða lögin Dýr á braut, Grænir frostpinnar, Trú- Mannakorn: Bræðrabandalagið *j!r ☆ MANNAKORN eru hundgamalt fyrirbæri og erfitt að festa hendur á þeim að öðru leyti en að hægt er að bóka að Magnús Eiríksson er þar f broddi fylkingar ásamt Pálma Gunnarssyni. Báðir sjóaðir f „bransanum" og kunna skil á þeim brögðum, sem helst eru til þess fallln að búa til gott fslenskt popp. Bræðrabandalagið er gott íslenskt popp. Á plötunni koma fyrir gamlir kunningjar eins og Ell- en Kristjánsdóttir, Mezzo-strák- arnir Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunnarsson, Tryggvi Hiibner, Kalii Sighvats og Siggi Centaur, sem þenur munnhörpu af miklum móð. Þægilegar melódíur Magnúsar þekkja allir og þær svíkja ekki hér frekar en fyrri daginn. Hljóöfæra- leikur og útsetningar eru allar til fyrirmyndar,. en mér finnst söngstíll Pálma Gunnarssonar svolítið staðnaður. Á hinn bóginn má kannski segja að Pálmi hafi bara „fundið sig“ og láti þar við sitja. Þrátt fyrir að platan sé hefð- bundin og þægiieg áheyrnar finnst mér hún hreint út sagt ekki nógu spennandi. Þarna eru góð lög: „Víman", „Ekki dauðir enn", „Lifði og dó í Reykjavík" og „Ég elska þig enn“, en um raunveruleg meistarastykki, eins og Maggi Eiríks hefur reglulega sent frá sér, er vart að ræða. Kannski að maður hugsi of mik- ið um plötur eins og I gegnum tíðina og Brottför klukkan 8 til þess að maður sé sanngjarn gagn- vart þessari skífu, því hún mætti vera fjári góð til þess að færa þær aftar í bunkann. Hvað sem því líður er erfitt að festa hendur á því hvað það er sem vekur efasemdir um Bræðrabandalagið, ef svo sterkt má að orði komast. Tvær spurningar vöknuðu hjá mér við skoðun umslagsins. ( fyrsta lagi hvaðan nafnið „Bræðra- bandalagið" er komið, en það minnir óneitanlega á nokkuð vafa- saman félagsskap í Suður-Afríku, sem heitir „Broederbund”, enda er merkið ekki ósvipað þó það sé reyndar fengið að láni frá eynni Mön á írlandshafi. Hvort duldar merkingar liggja hér að baki skal ósagt um látið. (Fyrst umslagið er komið til umræðu á annað borð, skal enn vælt um leyndarhyggju íslenskra plötuútgefenda og óskaö eftir sem ítarlegustum upplýsing- um á umslagi. Vilji þeir ekki verða við þessari ósk fyrir mig, vil ég minna á ókomnar kynslóðir, sem myndu standa í ævarandi þakkar- skuld við þá og gera nöfn þeirra ódauöleg fyrir vikið.) Þetta er plata, sem er gott að hafa við höndina og setja á öðru hverju, en hún hún veldur ekki ósjálfráðum eyrnasperringum eins og það besta, sem frá Mannakorn- um hefur komið. Hins vegar hef ég á tilfinningunni að Magnús'og Pálmi hafi haft afskaplega gaman af að gera hana og þeir sýna að þeir eru „ekki dauðir enn." András Magnússon. boðinn og Sóli, hvað er um þau að segja? Gunni: Það sem verður á þess- ari plötu er rjóminn af því sem orðiö hefur til síðan Goð var tekin upp fyrir um ári. Sigurjón: Það var kominn tími til að það kæmi kraftmikil rokk- plata frá þessari hljómsveit. Gunni: Og vel gerð í alla staði. Biggi: Þetta verður grand og kraftmikið. Gunni: Lögin eru náttúrulega popplög í bland. Sigurjón: Þetta er poppplata, kraftmlkil poppplata. Gunni: „Power pop“. Hvað leggur Sigurjón til? Sigurjón: Eg ber ábyrgð á heild- aryfirbragðinu, en hef ekkert lagt til útsetninganna, þær eru þeirra. Ég hef þó mátt gera athugasemd- ir, en hef lagt aðaláherslu á hljóm- inn og þá sérstaklega á gítarhljóm- inn. Biggi: Gítarinn hefur alltaf orðið undir í hljóðblönduninni. Sigurjón: Já, mér finnst að gítar- inn hafi alltaf verið látinn sæta afgangi, það hefur ekkert verið pælt í því hvernig haiin hefur hljómað. Gunni: Þetta verður gítarplata Draumsins. Fyrsta platan var trommur, önnur platan var bassi. Sigurjón: Ekkert væl. Gunni: Þetta verður besta plat- an með bestu lögunum. Dýr á braut Hvað með textana, hvað liggur á bak við t.d. textann i laginu Dýr á braut? Gunni: Ég er ekki dýramaður. Biggi: Víst. Sigurjón: Hann er á móti dýrum. Gunni: Ég er á móti Greenpe- ace-væli og þetta er einskonar skot á þá. En fyrir utan það þá er þetta bara samansafn af flottum orðum. Það segja þetta svo margir textahöfundar, en einhvern veg- inn finnst mór það ekki vera sannleikanum samkvæmt. Það hlýtur að vera einhver grunn- hugsun. Gunni: Skapa einhverjar stemm- ur. Sigurjón: Tjá tilfinningar, segðu það. Biggi: Fyrst og fremst er þetta bara stemmningin í textunum óháö innihaldi eða næringargildi. Stendur til að fylgja plötunni eitthvað eftir? Gunni: Já, við gerum tvö mynd- bönd og höldum tónleika. Sigurjón: Tvenna tónleika. Biggi: Við ætlum að klára sveit- ina með stórtónleikum og ganga þá frá öllum lögunum í eitt skipti fyrir öll. Gunni: Við spilum ekkert fyrr en fyrsta október með Pere Ubu og Ham. Biggi: Það verður einskonar kynning á plötunni, en hún á að vera komin út fyrir þann tíma. Leikur Gunni þá með Draumn- um og Ham sama kvöldið? Gunni: Já, ætli ég spili ekki lika með Pere Ubu. Svanasöngurinn Snúum okkur aftur að plöt- unni, verður þetta meistaraverk- ið, svanasöngurinn? Gunni: Þetta verður svanasöng- urinn hjá S.h. draumi, því það verð- ur ekki gefið meira út undir því nafni. Menn eru þó ekkert að fara að drepast. Biggi: Það er komið. afr því að að fara að stokka upp. Við Gunni erum aö ræða það að spila eitt- hvað saman áfram en það er allt óráðið hvað úr verður. Gunni: Það má segja að Steini gítarleikari sé að leysa upp sveit- ina, því hann hefur verið að draga sig út úr þessu. Biggi: Þetta er orðin spurning um áherslubreytingar í tónlist og um að fá nýja menn inn í þetta. Gunni: Ég ætla að fara yfir á gítarinn, ætla aö selja bassann. Sigurjón: Hann er genginn til liðs við alvöru hljómsveit, sem þýðir peninga og völd. Ég er að kenna honum ýmis gítargrip og það hvernig á að haga sér í popp- inu. Þið ætlið þá ekki að endur- vekja Drauminn? Gunni: Nei, við finnum nýtt nafn, t.d. SH eða Black White Dream, eða eitthvað þessháttar. Það var kominn tími til að þessi hljómsveit hætti, búin að hjakka í þessu í sex ár. Ekki hafa þessi sex ár verið til einskis. Gunni: Nei, en hljómsveitin hef- ur liðið fyrir það síðasta árið í það minnsta að þetta hefur verið unnið með hangandi hendi. Þetta er spurning um að vera í hljómsveit eða í einhverskonar æfingahljóm- sveit, sem hangir alltaf inni í bílskúr. Sigurjón: Þetta er spurning um að vera eða ekki. Ekkert væl. Gunni: Ekkert væl, það er stikk- orðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.