Morgunblaðið - 25.08.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988
27
Morgunblaðið/K.G.A.
Formenn bankamannasambanda Norðurlandanna ásamt fram-
kvæmdastjóra Norræna bankamannasambandsins (NBU),Jan-Erik
Lidström. Frá vinstri talið: Pauli Salmio, Finnlandi, Hinrik Greips-
son, Jan-Erik Lidström, Sviþjóð, Tonni Vedsted, Danmörku, Fritz
P. Johansen, Noregi, Frode Sörensen, Danmörku, og Wilhelm Lemec-
hen, Svíþjóð.
Ráðstefna norrænna bankamanna:
Lyftistöng fyrir alla
fræðslu bankamanna
- segir Benedikt Guðbjartsson
5. FRÆÐSLURÁÐSTEFNA norr-
ænna bankamanna hófst í
Reyigavík á miðvikudag. Yfir-
skrift ráðstefnunnnar er: Góð
starfsmenntun - besta atvinnuör-
yggið. Að sögn Benedikts Guð-
irbreytt
la
igum nefndarinnar
Gjörbreytt fyrirkomu-
lag dagvistunar
Gjörbreytt greiðslufyrirkomulag og
uppbygging gjaldskrár er megin-
inntak í tillögum nefndarinnar um
dagvistarmál. Lagt er til að stuðn-
ingur ríkisins við barnafjölskyldur
verði aukinn með hækkuðum bama-
bótum og um leið dregið úr beinum
niðurgreiðslum vistgjalds. Með
þessu á að gera þeim kleift að ráða
við hærra vistgjald, jafnframt því
sem valfrelsi þeirra um einstök vist-
form eykst. Megináhersla er lögð á
að aðstoða beri tekjulága foreldra.
I því skyni sé nauðsynlegt að breyta
uppbyggingu gjaldskrár þannig að
í stað þess að taka mið af hjúskap-
arstöðu verði í ríkari mæli miðað
við efnalegar aðstæður foreldra og
að kaupmáttur tekjulægstu foreldra
verði tryggður.
Nefndin telur brýnt að fullnað-
aráætlun um uppbyggingu dagvist-
arstofnana verði lokið með sérstök-
um stuðningi ríkisins. Kynnt er
fimnm ára áætlun þar sem gert er
ráð fyrir fjölgun vistrýma á leik-
skólum um 850 og á dagheimilum
um 1.300. Heildarkostnaður við
þetta er áætlaður 1.150 milljónir
króna, eða um 230 milljónir á ári.
Til að manna þessar vistunarstofn-
anir þarf að fjölga stöðugildum um
300 og til þess að fá fólk í þessar
stöður er lagt til að boðið verði upp
á menntun fósturliða í fjölbrautar-
skólum.
Nefndin leggur til að boðið verði
upp á 6 tíma leikskólavistun í sam-
ræmi við aukinn sveigjanleika í
vinnutíma. Jafnframt verði felld
brott reglugerðarákvæði um skyldu
til að hafa heitan mat ef vistun er
lengri en 5 tímar á dag.
Nefndin telur brýnt að settar séu
reglur um starfsemi dagmæðra og
að þáttur þeirra í dagvistunarkerf-
inu verði styrktur.
Samstarfsnefnd ráðuneyta um
fjölskyldumál skipa Inga Jóna Þórð-
ardóttir formaður, Bessí Jóhanns-
dóttir, Jóna Ósk Guðjónsdóttir,
Lára V. Júlíusdóttir og starfsmaður
nefndarinnar er Sigurður Snævarr.
bjártssonar, lögfræðings Lands-
bankans, sem sæti átti í undirbún-
ingsnefnd ráðstefnunnar, er meg-
in áhersla lögð á að ræða kröfur
um aukna menntun bankamanna
í kjölfar æ sérhæfðari bankaþjón-
ustu. Ráðstefnuna sitja um 120
manns frá öllum Norðurlöndun-
um, fulltrúar starfsmanna, banka-
stjórna og fræðslustofnana í
bankakerfinu. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, var við-
stödd setningu ráðstefnunnar.
Fluttir voru þrír ítarlegir fyrir-
lestrar um efni dagsins, sem var
„Menntun bankastarfsmanna sam-
tímans", og sérstakar umræður voru
uin þema ráðstefnunnar, „Góð
starfsmenntun - besta atvinnuörygg-
ið“. Umræðunum stjómaði Jón As-
geirsson, hjá Ráðstefnumiðstöð
Reykjavíkur. Hann sagði að umræð-
umar hefðu verið fjörlegar og fróð-
legar. „Umræðumar snemst mikið
um það hvar fræðslan ætti að vera,
innan opinbera skólakerfísins eða á
vegum bankanna sjálfra. Einnig um
hvenær hún ætti fara fram, í vinn-
Morgunblaðið/K.G.A.
Benedikt Guðbjartsson, lögfræð-
ingur Landsbankans, sem átti
sæti í undirbúningsnefnd ráð-
stefnunnar.
utíma eða utan, og hver ætti að
borga. Og þama ræddust við bæði
stjómendur og starfsfólk banka.“
sagði Jón í samtali við Morgunblaðið.
Að sögn Benedikts Guðbjartssonar
er markmiðið með ráðstefnunni að
fara yfír stöðu fræðslumála og kanna
þörfína fyrir almenna og sérhæfða
menntun bankamanna. „Ég held að
þessi ráðstefna verði mikil lyftistöng
fyrir Bankamannaskólann og aðra
fræðslu fyrir bankamenn hér á landi.
Fjármagnsmarkaðurinn hér á landi
er þröngur og vanþroska, en stigin
hafa verið mjög þýðingarmikil skref
síðustu árin. Við emm aðeins búin
að opna dymar en höfum einungis
séð hluta þess sem koma skal. Því
er nauðsynlegt að ræða um menntun
bankamanna í tengslum við þessar
brejrtingar," sagði Benedikt.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar
er Anker Jörgensen, fyrrverandi for-
sætisráðherra Danmerkur. Í dag kl.
16 mun hann flytja erindi um Norð-
urlönd og önnur Evrópulönd, sam-
skipti landanna á sviði efnahags- og
atvinnumála, Evrópubandalagið, til-
gang þess, hlutverk og framtíðar-
horfur.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir EHDWARD MORTIMER
• •
Ofgastefna Ceausescus
krefst skjótra viðbragða
ÞAÐ er ákaflega erfitt að fella sig við það sjónarmið að ríki
Evrópu geti ekki haft afskipti af þróun mála i Rúmeniu. En eitt-
hvað verður að gera. Landinu ræður harðstjóri sem þjáist af
mikilmennskubrjálæði og hann vinnur skipulega að því að upp-
ræta menningu þjóðarinnar og spilla náttúru landsins. Hann neit-
ar þegnum sínum um nauðsynjavörur og lætur rífa heimili þeirra.
Þjóðartekjur renna til umfangsmikilla „uppbyggingarverkefna“
sem krefjast þess að heilu þorpin og landsvæðin eru lögð í eyði.
Afgangur teknanna fer í að greiða erlendar skuldir.
essi skrif kunna að sýnast
einkennileg en í raun eru þau
aðeins samantekt á fréttum, sem
styðjast við traustar heimildir og
hafa borist frá Rúmeníu á undanf-
örnum vikum og mánuðum. En
kemur okkur þetta við - okkur
sem erum svo heppin að búa ekki
í Rúmeníu?
Nicolae Ceausescu Rúmeníu-
forseti er alltjent þeirrar skoðunar
að stjómunaraðferðir hans séu
einkamál. Hann hefur fyrirskipað
sendimönnum Rúmeníustjórnar á
Ráðstefnu um öryggi og samvinnu
í Evrópu að koma í veg fyrir að
fram nái að ganga tillögur, sem
m.a. gera ráð fyrir því að fylgst
verði skipulega með því að ákvæði
Helsinki-sáttmálans séu virt.
Hann heldur fast við þá hug-
myndafræði að sjálfstæði og sjálf-
ræði þjóðarinnar tryggi yfírvöld-
um rétt til að hundsa hagsmuni
þegnanna og framferði stjóm-
valda komi öðmm ekki við.
Helsinki-sáttmálinn
hundsaður
Þessi stefna hefur lengi notið
mikillar hylli meðal ráðamanna í
ríkjum Þriðja heimsins, eins og
alkunna er. Sjónarmið sem þessi
em hins vegar komin úr tísku í
Evrópu og raunar em þau í einu
og öllu í andstöðu við ákvæði
Helsinki-sáttmálans, sem Rúm-
enía hefur skuldbundið sig til að
virða. Almenningur allur og velf-
lestar ríkisstjórnir í Evrópu er
þeirrar skoðunar að skipuleg
mannréttindabrot séu áhyggju-
efni og geti ekki talist einkamál
þeirra sem gerast sekir um þau.
I þessu viðfangi skiptir engu hvar
þau em framin.
Vissulega hafa ráðamenn víða
sýnt meiri villimennsku en Nicolae
Ceausescu. Enn hefur hann t.a.m.
ekki gripið til skipulegra mann-
drápa. Stjómarhættir hans hafa
enn ekki leitt hungursneyð yfir
þjóðina líkt og í Eþíopíu þó svo
að hluti þjóðarinnar sé vafalítið
vannærður og heislufari hafi
hrakað. (Tölur um dánartíði ung-
bama innan sex mánaða aldurs
em ekki lengur teknar með í opin-
bemm útreikningum). En ávissan
hátt er jafnvel hryllilegra að spilla
náttúmnni og uppræta menningu
þjóða og þjóðarbrota.
Ástandið virðist ekki réttlæta
bein afskipti í skjóli hervalds.
Þótt það kunni að virðast freist-
andi að ráðleggja Míkhaíl S. Gorb-
atsjov Sovétleiðtoga að frelsa
rúmensku þjóðina með því að
senda skriðdrekasveitir inn fyrir
landamærin þá veit hann betur.
Það er hægðarleikur að senda
herafla inn í eitthvert nágrann-
aríkið. Vandinn er hins vegar fólg-
inn í því að koma hersveitunum
aftur til síns heima.
Stjórnað í anda Stalíns
Þótt tekist hafi að koma Gustav
Husak frá völdum í Tékkóslóvakíu
og Janos Kadar í Ungveijalandi
er ekki þar með sagt að beita
megi sömu aðferðum gegn Ceau-
sescu Rúmeníuforseta. Undanfar-
in 20 ár hefur Ceausescu unnið
skipulega að því að fyrirbyggja
að slíkt gerist. Hann hefur nýtt
sér andúð landsmanna á Sovét-
mönnum og komið S veg fyrir
bein afskipti Kremlveija af stjórn
landsins. Raunar hefur sú sjálf-
stæða utanríkistefna sem Rúmen-
ar hafa fylgt slegið ryki í augu
almennings á Vesturlöndum.
Rúmenar neituðu t.d. að slíta
stjómmálasambandi við ísraela
eftir sex daga stríðið árið 1967
og stjórnvöld þar fordæmdu innr-
ás Rauða hersins í Tékkóslóvakíu
árið 1968. Af þessum sökum hef-
ur stjórnarháttum Ceausescus
sem sóttir eru í smiðju til Jósefs
Stalíns ekki verið veitt tilhlýðileg
athygli.
Rúmenar verða sífellt háðari
Sovétríkjunum og öðrum ríkjum
austurblokkarinnar því vegna
óstjómar og mannréttindabrota
reynist þeim æ erfíðara að selja
útflutningsvömr sínar vestan
Jámtjaldsins. Orkuframleiðsla
hefur dregist saman á undanförn-
um ámm og kaupa þarf olíu og
gas frá Sovétríkjunum. Það ofur-
kapp sem Ceausescu leggur á að
greiða erlendar skuldir landsins
hefur leitt til stöðnunar fram-
leiðslugreina og skorts á neyslu-
varningi.
Viðskiptabann
Sú spurning kann að vakna
hvort ríki Vesturlanda geti ekki
fært sér þetta í nyt í því skyni
að bæta hag almennings í Rúm-
eníu. Ef til vill mætti gefa Rúmen-
um upp skuldimar eða neita að
taka við greiðslum þeirra. Gallinn
er hins vegar sá að það er í sjálfu
sér vafasamt fordæmi að aðstoða
slíka ógnarstjórn fjárhagslega
auk þess sem það er engan veginn
tryggt að Ceausescu myndi vetja
þeim fjármunum sem þannig spör-
uðust til að bæta hag rúmenskrar
alþýðu. Hann kynni þvert á móti
að veita þeim til hinnar brjálsem-
islegu „sistematisere“-áætlunar
sinnar sem gerir ráð fyrir að þús-
undir þorpa verði jöfnuð við jörðu
til að innleiða samyrkjubúskap
með tilheyrandi steinkumböldum
til að hýsa verkalýðinn.
Hyggilegra væri að ríki Vestur-
landa sameinuðust um að kaupa
ekki vömr frá Rúmeníu. Alltjent
væri ráðlegt að kaupa ekki þær
nauðsynjavörur frá Rúmeníu sem
landsmenn skortir en fluttar em
út til að afla gjaldeyristekna.
Röksemdir sem settar hafa verið
fram gegn viðskiptabanni á Suð-
ur-Afríku vegna kynþáttaaðskiln-
aðarstefnu stjómvalda þar eiga
tæpast við í þessu tilfelli.
Fram til þessa hafa þessi sjón-
armið sem hér hefur verið lýst
ekki þótt skynsamleg. Ríki Vest-
urlanda hafa þvert á móti reynt
að vinna gegn því að tiltekin ríki
verði háð Sovétríkjunum. En eins
og málum er háttað í Rúmeníu
væri það vafalítið heillavænleg
þróun. Gorbatsjov hefur fram til
þessa gætt þess að gagnrýna ekki
Nicolae Ceausescu opinberlega.
Þvert á móti hefur hann verið
sæmdur Lenín-orðunni og á leið-
togafundi ríkja Varsjárbandalags-
ins í síðasta mánuði var Ceauses-
cu sýnd sérstök virðing. Þegar
tekið er tillit til þess að Gorb-
atsjov á við margvíslegan vanda
að glíma á heimavígstöðvunum
er þess tæpast að vænta að hann
vinni skipulega að því að grafa
undan leiðtogum leppríkjanna.
Hins vegar er líklegt að sá virðing-
arvottur sem Sovétleiðtoginn hef-
ur sýnt Rúmeníuforseta sé til þess
fallinn að auka áhrif Sovétríkj-
anna í landinu.
Ógnun við Varsjárbanda-
lagið
Takist að treysta þau ítök geta
Sovétmenn fengið Ceausescu til
að láta af stefnu sinni , sem er
ekki aðeins í hróplegri mótsögn
við þróun mála í Sovétríkjunum í
tíð Gorbatsjovs heldur einnig
dragbítur á frekari slökun í sam-
skiptum austurs og vesturs. Þá
eru stjómarhættir Ceausescus
ekki síst ógnun við samstöðu að-
ildarríkja Varsjárbandalagsins
líkt og berlega hefur komið í ljós
í Ungveijalandi. Stjórnvöld þar
hafa mótmælt áformum Rúm-
eníustjórnar um að jafna þúsundir
þorpa við jörðu kröftuglega enda
koma þau harðast niður á ung-
verska minnihlutanum í landinu.
Höf undur starfar sem blaða-
maður við dagblaðið The Finan-
cial Times
Ungveijar hafa mótmælt áformum Ceausescus Rúmeníuforseta
um að jafna þúsundir sveitaþorpa við jörðu. Myndin var tekin í
Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í lok júnímánaðar er mikill
fjöldi fólks safnaðist saman við rúmenska sendiráðið i borginni.