Morgunblaðið - 25.08.1988, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988
Martha Ernstdóttlr.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ MARTHA Ernstdóttir úr ÍR
setti nýtt íslandsmet í hálfmaraþoni
í Reykjavíkur maraþoninu sl.
sunnudag. Hún hljóp á 1:18,36 klst.
en gamla metið var 1:20,40. Vindur
var óhagstæður fyrir þá sem hlupu
maraþon og hálfmaraþon á sunnu-
daginn og voru þvi flestir nokkuð
frá sínu besta. Þess er árangur
Mörthu athyglisverðari. Martha
keppir næst í 5.000 m hlaupi á
sterku móti í Köln í Vestur-Þýska-
landi 3. september nk. Mun hún
þar reyna að bæta íslandsmet Lilju
Guðmundóttur, sem er 16:36,98
mín.
■ FLUGFÉLAGIÐ SAS gefur
vinningana í happdrætti það sem
verður í sambandi við „pakkamiða"
á Evrópuleiki Vals og Fram. Hér
er um að ræða tvær ferðir fyrir
tvo til Bankok, með hóteli. Verð-
mæti ferðar fyrir tvo er 400 þús.
kr. Þetta er mjög rausnaleg gjöf
^ frá SAS.
■ FRANZ Beckenbauer hefur
valið fimm nýja leikmenn fyrir
landsleik Vestur Þjóðverja og
Finna, sem fram fer í næstu viku.
Þessir leikmenn eru: Holger Fach,
vamarmaður, miðvallarleikmenn-
imir Thomas Haessler og Guenter
Hermann, og miðframheijinn Karl
Heinz Riedle. Þá bætist Libero
Gunnar Sauer einnig í hópinn.
■ FRANSKIR þjálfarar hafa
nú hafið herferð gegn réttindalaus-
um erlendum þjálfurum. Stéttarfé-
lag þjálfara í 1. og 2. deild hefur
farið fram á það við franska knatt-
spymusambandið að réttindalaus-
um þjálfurum verði bannað að vera
við hliðarlínu í leikjum liða. Fimm
erlendir þjálfarar hafa ekki fullgild
réttindi: Tomislav Ivic hjá Paris
St. Germain, Miroslav Blazevic
hjá Nantes og Nened Bjekovic hjá
Nice, en þessir þrír eru frá Júgó-
slavíu. Þá eru það Artur Jorge, frá
Portúgal sem þjálfar Matra Rac-
ing og Belgíumaðurinn Georges
Heylens sem þjálfar Lille. Auk
útlendinganna eru þrír Frakkar
sem hafa ekki réttindi. Það eru
Rolland Courbis, þjálfari Toulon
Gerard Gili, þjálfari Marseille og
Jean Fernandez sem þjálfar Cann-
es.
■ UEFA, knattspymusamband
Evrópu hefur fært nokkra leiki í
-Evrópumótunum í knattspymu
vegna ólympíuleikanna í Seoul. Þau
lið sem eiga leikmenn í ólympíuliði
í knattspymu leika einni viku síðar
en önnur lið. Á meðal leikja sem
fara fram 12. október í stað 5. er
leikur Stuttgart og Tatabanya frá
Ungveijalandi, en einnig hefur
leikjum Werder Bremen og Dyn-
amó Berlín frá Austur-Þýska-
landi og leik AC MUanó og Vitosc-
ha Sofia frá Búlgaríu verið frestað
um eina viku.
■ COCA-Cola mót verður haldið
í golfi' að Jaðarsvelli við Akureyri
helgina 27. og 28. ágúst. Það er
Vífilfell hf. sem er styrktaraðili
mótsins og gefur öll verðlaun til
keppninnar. Keppt verður bæði í
kvenna- og karlaflokki. Leiknar
verða 36 holur með og án forgjaf-
ar. Auk bikarverðlauna, verða veitt
aukaverðlaun fyrir að vera næst
holu í höggi.
HANDKNATTLEIKUR
Júgóslavar í ham
Unnu Ungverjafjórum sinnum ífimm vináttuleikjum.
Peter Kovacs skoraði ekki í einum leiknum — 284.
landsleikur hans og sá fyrsti markalausi
HEIMS- og Ólympíumeistarar
Júgóslava, sem eru með ís-
lendingum í riðli á Ólympíuleik-
unum í Seoul, eru í miklum ham
um þessar mundir. Liðið mætti
Ungverjum í fimm vináttuleikj-
um fyrr í mánuðinum, sigraði í
fjórum þeirra og gerði eitt jafn-
tefli. Þessi lið mættust einmitt
í úrslitum síðustu heimsmeist-
arakeppni — í Sviss 1986.
Fyrstu þrír leikimir fóru fram í
Sekadin í Ungveijalandi. Júgó-
slava/ unnu þann fyrsta 26:24,
annan leikinn unnu þeir 23:22 og
AFREKSMANNASJÐUR ÍSÍ
hefur gert tvær breytingar á
styrkjum úr sjóðnum til íþrótta-
manna. Ragnheiður Runólfs-
dóttir, sundkona hefur verðið
færð úr B-flokki upp í A-flokk,
þannig að hún fær 36 þús. kr.
úrsjóðnum á mánuði. Þá hefur
Ragnheiður Ólafsdóttir, hlaup-
ari, verið tekin af listanum yfir
þá íþróttamenn sem fá styrki.
Fimm íþróttamenn era í A-flokki
og fá þeir 36 þús. kr. á mán-
UM HELGINA hefst keppni f
ensku deildinni íknattspyrnu
Sigurður Jónsson og fólagar
hjá Sheffield Wednesday mæta
Luton í fyrsta leik á heimavelli.
Sheffield Wednesday hefur leik-
ið nokkra æfingaleiki síðustu
daga, einkum gegn liðum úr 3. og
4. deild. Sigurður hefur skorað í
tveimur leilq'um. Hann skoraði
fyrsta markið í 3:0 sigri á nágrönn-
unum, Sheffield United og fyrra
markið í 2:1 sigri á Notts County.
„Mér hefur gengið ágætlega í þess-
um leikjum, en okkur gengur illa
að skora," sagði Sigurður í samtali
við Morgunblaðið. „Við höfum ekki
enn tapað leik, en höfum heldur
í GÆRKVÖLDI var leikið í átta
liða úrslitum norska bikarsins.
íslendingaliðin Moss og Brann
sigruðu bæði í sfnum leikjum
og eru þvf komin f undanúrslit
ásamt Rosenborg og Start.
Moss lék á heimavelli gegn
Válerengen og sigraði 1:0.
Það var Jan Kr. Fjærested sem
þann þriðja 24:22. Fyrsti viðureign
þjóðanna í Sekadin var 284. lands-
leikur ungversku stórskyttunnar
frábæra Peter Kovacs. Það athygli-
verðasta við leikinn var að Kovacs
skoraði ekki eitt einasta mark —
og er það í fyrsta sinn sem hann
skorar ekki í landsleik.
Þjóðimar mættust síðan tvívegis
í Júgóslavíu. Fyrri leikurinn endaði
með jafntefli, 22:22 og Júgóslavar
sigraðu í þeim síðari, 23:21.
Leikimir vora allir mjög jafnir,
en skv. heimildum Morgunblaðsins
léku Júgóslavar mjög vel. Besti leik-
maður Júgóslava var markvörður-
uð. Það era Bjami Ásgeir Friðriks-
son, júdómaður, Vésteinn Haf-
steinsson, Einar Vilhjálmsson og
Sigurður Einarsson, fijálsíþrótta-
menn og sundmennimir Eðvarð Þór
Eðvarðsson og Ragnheiður Run-
ólfsdóttir.
Þrír íþróttamenn eru í B-flokki
og fá þeir 18 þús. kr. á mánuði.
Það era Helga Haldórsdóttir og íris
Grönfeldt, frjálsíþróttamenn og
Magnús Már Ólafsson, sundmaður.
Siglingamennimir Gunnlaugur
Liðið fyrir leikinn gegn Luton
verður valið á föstudaginn og það
verður bara að koma í ljós hvort
ég verð í þeim hópi,“ sagði Sigurð-
ur.
Sigurður meiddist á ökkla á æf-
ingu fyrir skömmu, en reiknar þó
með að vera tilbúinn fyrir fyrsta
leikinn í deildinni: „Ég bólgnaði
svolítið, en reikna með að þetta
verði í lagi
Mér lýst vel á deildinni. Það era
að vísu ekki skemmtilegar fréttir
að Ian Rush skuli vera kominn aft-
ur til Liverpool og meistaramir
verða án efa mjög erfiðir," sagði
Sigurður.
skoraði sigurmarkið fyrir Moss á
60. mínútu úr þröngri stöðu. Sér-
lega glæsilegt mark. Moss sótti lát-
laust það sem eftir lifði leiks, en
mörkin urðu ekki fleiri. Gunnar
Gíslason var að vonum ánægður
eftir leikinn. Um framhaldið í bik-
amum sagðist hann vonast til að
mæta Brann í undanúrslitum og
síðan Rosenborg í úrslitaleik, en
inn Mirko Basic, sem var frábær —
lokaði markinu hreinlega á köflum.
Af útileikmönnum liðsins var Vesel-
in Vujovic langbestur; skoraði 38
mörk í leikjunum fimm. Zlatko
Portner gerði 36 mörk. Báðir þess-
ir menn era íslenskum áhorfendum
að góðu kunnir fyrir góða frammi-
stöðu í leikjum í Laugardalshöll.
Einnig markvörðurinn Basic sem
leikið hefur hér bæði með landslið-
inu og Metaloplastika Sabac. Þess
má geta í leiðinpi að Basic hefur
yfirgefið Sabac-liðið og stendur í
marki Medvescac Zagreb næsta
keppnistímabil.
Jónasson og ísleifur Friðriksson
fengu 50 þús. kr. á mann vegna
undirbúnings fyrir Ólympíuleik-
anna, en þeir félagar halda fyrstir
íþróttamanna til Seoul, eða í næstu
viku.
Júdómaðurinn Sigurður Berg-
mann, sem er búsettur í Grindavík,
fékk 30 þús. kr. í ferðastyrk, þar
sem hann hefur farið og fer dag-
lega á æfingar frá Grindavík til
Reykjavíkur, þar sem hann æfir
með Bjama Á. Friðrikssyni.
SlgurðurJónsson.
Rosenborg er sem stendur efsta lið
deildarinnar.
Brann sigraði 3. deildar liðið
Ráde á heimavelli með einu marki
gegn engu. Þrátt fyrir látlausa sókn
heimaliðsins urðu mörkin ekki fleiri
enda vörðust gestimir vel. Odd
Johnsen skoraði mark Brann.
Mlrko Baslc, frábær í marki Júgó-
slava í leikjunum gegn Ungveijum.
DOMARAMÁL
Hond
— wfli!
Oft kemur upp ágreiningur
um það hvort dæma eigi
vítaspymu þegar vamarmaður
fær boltann í hönd innan vlta-
teigs. Það er mjög ríkt í leik-
mönnum og ég tala nú ekki um
áhorfendur, að vilja fá víta-
spymu bara ef boltinn snertir
hönd leikmanns. En hvað segja
knattspymulögin um þetta ? „Sá
sem handleikur knöttinn er allt-
af gjörandi athaftiar, sá sem fær
knöttinn í hönd eða handlegg
er þolandi athafnar. Það er ein-
ungis gjörandinn sem handleik-
ur knöttinn viljandi, þolandan-
um má aldrei refsa."
Á þessu sést að það er alltaf
spuming hvort um ásetninga-
brot er að ræða þegar boltinn
fer í hönd leikmanns. Það má
ekki refsa leikmanni sem á sér
enga vöm og handleikur boltann
án þess að hafa hugmynd um
það. Sem sagt, það er spuming
hvort boltinn fer í höndina eða
höndin í boltann.
Örygglsnet á vellinum
Svo er það sagan um eigin-
manninn sem hafði mjög mikinn
áhuga á knattspymu og var allt-
af að reyna að fá eiginkonuna
með sér á völlinn. Hún hafði
engan áhuga, eða eins og hún
sagði sjálf, þá þekkti hún ekkert
til knattspymunnar og vissi ekk-
ert út á hvað hún gekk.
Eiginmaðurinn gafst ekki upp
fyrr en frúin lét loks til leiðast
og fór með manni sínum á völl-
inn. Þegar leikurinn hafði staðið
yfir um stund spyr karl konu
sína hvort henni finnist ekki
bara gaman. „Jú jú, þetta er
ágætt,“ segir frúin. „En það er
eitt sem ég skil ekki.“ „Hvað
er það elskan mín,“ spyr bóndinn
mjög umburðarlyndur. „Það er
þetta með þessa tvo sem era í
öðruv ísi peysum." „Það era
markverðimir, vina mín.“ „Af
hveiju eru þeir með sérhlunnindi
umfram aðra leikmenn ? „Hvað
áttu við,“ spyr eiginmaðurinn.
„Nú, þeir eru þeir einu á vellin-
um sem eru með öryggisnet,
þannig að ekki er hægt fyrir
áhorfendur að kaata neinu í
þá.“ „Þetta era mörkin," sagði
eiginmaðurinn og stundi við.
Með dómarakveðju
Guðmundur Haraldsson
OLYMPIULEIKAR / AFREKSMANNASJOÐUR
Fimm íþróttamenn fá
36 þús. kr.á mánuði
ENGLAND
„Okkurgengur
illa að skora“
- segirSigurðurJónsson. Enska
. deildin hefst um helgina
ekki leikið gegn mjög sterkum lið-
um.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Moss og Brann áfram