Morgunblaðið - 25.08.1988, Page 51

Morgunblaðið - 25.08.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988 51 HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMÓTIÐ „...og aðeins betur ef þaðer þaðsem þarf“ ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik vann einhvern sinn stœrsta sigur í gœr er liðið sigr- aði Sovétmenn ftroðfullri Laugardalshöll, 23:21. Ekki að- eins var leikurinn frábœr og mikið afrek að sigra Sovót- menn sem af mörgum eru tald- ir með besta landsliðs heims, heldur var þessi sigur á Sovét- mönnum einnig mjög mikil- vœgur svo skömmu fyrir Ólympíuleikana. Segja má að allt hafi gengið upp hjá íslend- ingum. Dyggilega studdir af rúmlega þrjú þúsund áhorf- endum gerðu þeir sitt besta og jafnvel aðeins betur! Byrjunin var þó ekki góð og Sovétmenn komust í 4:2. Þá tóku íslendingar við sér með Alfreð Gíslason í broddi fylkingar og skor- uðu fimm mðrk í röð. íslendingar héldu 3-4 marka forskoti út fyrri hálfleikinn, en í leik- hléi var staðan 13:10. Fyrri hálfleikurinn var frábær og líklega það besta sem íslenska landsliðið hefur sýnt. AJlir leikmenn skiluðu sínu hlutverki og gott betur. Sovétmenn byijuðu vel f fyrri hálfleik, skoruðu sex mörk gegn tveimur og náðu forystunni, 15:16. Þá tóku íslendingar við sér að nýju og komust yfír. Þegar sex mínútur voru til leiks- loka var staðan jöfn 20:20. Guð- mundur Guðmundsson skoraði glæsilegt mark úr hominu, Einar varði frá Sovétmönnum og Alfreð Gíslason jók muninn í tvö mörk þegar rúmar þijár mínútur voru eftir. Tæpum tveimur mínútum fyrir leikslok fengu Sovétmenn vítakast. Einar Þorvarðarson varði glæsi- lega, en eftir mistök í fslensku sókn- inni tókst Sovétmönnum að minnka muninn í eitt mark, 22:21, þegar 35 sekúndur voru ti! leiksloka. Það var svo Páll Ólafsson innsiglaði sig- ur íslands á síðustu sekúndunum. Þeir rúmlega þijú þúsund áhorf- endur sem troðfylltu höllina gleyma þessum leik ekki í bráð. Stemmn- ingin var ólýsanleg og áhorfendur fengu að sjá handknattleik eins og hann gerist bestur. Bjarki Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson áttu stórkostlegan leik f homunum. Bjarki skoraði með uppstökki fyrir framan himinháa vöm Sovétmanna og Guðmundur skoraði þijú dýrmæt mörk, auk þess að fiska fjögur vítaköst. Alfreð Gíslason fór á kostum, einkum þó í fyrri hálfleik er hann skoraði fimm af fyrstu átta mörkum íslands. Ein- ar Þorvarðarson lokaði markinu á þýðingarmiklum augnablikum. Sig- urður Gunnarsson lék vel, þrátt fyrir slæman kafla í fyrri hálfleik og nafni hans Sveinsson stóð sig einnig vel. Þá áttu Þorgils Óttar og Geir Sveinsson góðan leik á línunni og í vöminni. Þessi sigur er íslenska liðinu mjög mikilvægur. Það hefur mikið að segja að sigra liðið, sem margir telja það besta í heimi, svo skömmu fyrir Ólympíuleikana. Það sýnir íslensku leikmönnunum að Sovét- menn eru ekki ósigrandi. Þá var ánægjulegt að sjá að þeir leikmenn sem ekki hafa náð að sýna sitt besta eru að ná sér á strik. Margir hefðu viljað sjá þessi úr- slit á Ölympíuleikunum, frekar en núna. En ef íslendingar halda áfram að gera sitt besta og aðeins betur — þá er aldrei að vita... LogiB Eiðsson skrifar Island-Sovétr. 23 : 21 Flugleiðamótið { handknattleik, Laug- ardalshöll, miðvikudaginn 24. ágúst 1988. Gangur leiksins: 0:2, 1:2, 2:4, 7:4, 9:5, 12:8, 12:10, 18:10, 18:11, 14:11, 14:14, 15:14, 15:16, 18:16, 18:18, 19:18, 19:19, 20:19, 20:20, 22:20, 22*21 28:21. Mörk' íslands: Alfreð Gíslason 6/2, Kristján Arason 3, Guðmundur Guð- mundsson 3, Bjarki Sigurösson 3, Sig- urðúr Sveinsson 3/2, Sigurður Gunn- arsson 2, Geir Sveinsson 1, Atli Hilm- arsson 1 og Páll Ólafsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 12/1 Utan vallar: 12 mín. Mörk Sovétríkjanna: Viacheslav Atawin 8/4, Alexandr Tuchkin 4, Ge- orgij Swiridenko 2, Andrei Tjumentsev 2, Konstantin Scharowarow 2, Walery Gopin 1, Jurij Nesterov 1 og Alexanrd Karschakevich 1. Varin skot: Igor Tschimak 5/1 og Andrei Lawrow 4. Utan vallar: 6 mín. Dómarar: Erhard Hoffmann og Manf- red Prause frá V-Þýskalandi. Áhorfendur: 3000. Gegnum Sovétmúrinnl MW9“ Kristján Arason brýst af harðfylgi í gegnum sterka vöm Sovétmanna. Kristján skoraði þijú mörk í leiknum. Dæmigerð mynd fyrir leikinn þar sem krafturinn, dugnaðurinn og viljinn var einkennandi hjá íslenska liðinu. „Þetta er minn stærsti sigur“ „ÉG MAN ekki eftir betrl leik hjá íslenska landsliðinu og þetta er stœrsti slgur minn síðan ég tók við liðlnu," sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari ístenska landsliðsins, í sam- tali við Morgunblaðið, eftir leikinn. „Liðið lék ótrúlega vel og áhorfendur höfðu mjög mikið að segja. Sovétmenn eru mjög erfíðir andstæðingar og mikilvægt að sigra þá. En það er enn mikil vinna fyrir höndum. Liðið þarf meiri stöðugleika og það þarf meiri einbeitingu í alia leiki. En eftir svo leik er vart hægt að kvarta," sagði Bogdan Kowalczyk. Við lékum betur á þessu móti en á Spáni, en tapið gegn íslenska liðinu sýnir að við emm ekki ósi- grandi,“ sagði Anatofij Evtus- henko, þjálfari sovéska landsliðs- ins. „Það er mánuður þar til ólympíuleikamir heijast og aug- ljóst að við höfum verk að vinna," sagði Evtushenko.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.