Morgunblaðið - 01.09.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTIJMBER 1988
9
KAUPÞING HF
Húsi verslutuirinnar, sími 686988
Ný Spariskírteini
ríkissjóðs
hjá Kaupþingi
Hin nýju Spariskírteini ríkissjóðs fást
að sjálfsögðu hjá okkur og eru nú fáanleg
3 ára bréf með 8% vöxtum
5 ára bréf með 7,5% vöxtum
8 ára bréf með 7% vöxtum
Kaupþinghefur á að skipa sérfrœðiþekkingu á sviði
fjárfestinga ogfjármála, hvaða nafni
sem nefnast og viðskiptavinir njóta menntunar
ráðgjafa okkar og þeirrar þekkingar
sem ára/öng reynsla hefur skapað.
Auk hinna nýju Spariskírteina ríkissjóðs
býður Kaupþing
Einingahréf 1, 2, 3
Lífeyrisbréf
Bankabréf
Veðskuldabréf
Skuldabréf stœrstu fyrirtœkja
H/utabréf í fyrirtœkjum
Skammtímabréf
SÖLUGENGIVERÐBRÉFA PANN1 SEPT. 1988
EININGABRÉF 1 3.256,-
EININGABRÉF 2 1.868,-
EININGABRÉF 3 2.081
LlFEYRISBRÉF 1.637,-
SKAMMTlMABRÉF 1.148,-
Ráðgjöf ogfagþekking Kaupþings stendur œtíð
einstaklingum sem fyrírtœkjum til boða.
L.
BorÖbúnaÖur — sem ber af
ASIMMETRIA matar- og kaffistell
frá Rosenthal.
Glös og hnífapör í sama stíl.
Hönnun: Björn Wiinblad, Danmöfk.
studiohúsið
A HORNl LAUGAVEGS OG SNORRABRAUTAR
SIMI 18400
1 Könnun SKÁÍS og Stöðvar 2 á fylgi stjÓCTimálaflokkanna:
Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 63,4% í Reykjavík
Skoðanakönnun og friðarsetur
Drepið er á tvö mál í Staksteinum í dag. Annars vegar skoðana-
könnun um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík og hins vegar
ráðstefnu Alþýðubandalagsins um öryggismál, sem haldin var
á Hallormsstað. Ólíklegt er, að alþýðubandalagsmenn geti auk-
ið fylgi sitt meðal kjósenda með því að beina athyglinni að varn-
arleysisstefnu sinni.
Úr 29,8%
í 5,7%
Þegar kosið var til
borgarstjómar í
Reylg'avík vorið 1978 og
vinstri menn fengu
meirihluta í borgar-
stjóminni fékk Alþýðu-
bandalagið 29,8% at-
kvæða í borginni, hvorki
meira né minna. Þá var
fylgi Sjálfstæðisflokksins
47,5%. í borgarstjómar-
kosningunum 1982 fékk
Alþýðubandalagið 19%
atkvæða en Sjálfstæðis-
flokkurinn 52,53% og
1986 fékk Alþýðubanda-
lagið 20,3% en Sjálfstæð-
isflokkurinn 52,7% at-
kvæða í Reykjavik.
Síðasta skoðanakönnun
SKÁÍS fyrir Stöð 2 um
fylgi stjómmálaflokka i
höfuðborginni hefur að
geyma þá niðurstöðu, að
Sjálfstæðisflokkurinn
fengi atkvæði 63,4%
Reykvíkinga, ef nú yrði
kosið en Alþýðubanda-
lagið aðeins 5,7%. Á 10
árnrn hefur fylgi Al-
þýðubandalagsins þannig
hrunið i höfuðborginni
úr 29,8% í 5,7%.
Þær tölur sem raktar
em hér að ofan sýna, að
Alþýðubandalagið hefur
með réttu getað kallað
sig oddvita stjómarand-
stöðu í Reykjavík; það
hefur fengið mest fylgi
af andstæðingum sjálf-
stæðismanna í borginni.
Nú em bæði Kvennalisti
og Alþýðuflokkur með
sterkari stöðu. Kvenna-
listinn bauð ekki fram i
Reykjavík 1978, hann
hlaut 10,94% atkvæða
1982 og 8,1% 1986 en
14,9% samkvæmt siðustu
könnun frá SKÁÍS. AI-
þýðuflokkurinn fékk
13,5% 1978, 8,01% 1982
og 10% 1986 en 9,1% í
SKÁÍS-könnuninni.
Framsóknarflokkurinn
fékk 9,4% 1978, 9,52%
1982 og 7% 1986 en 5,7%
samkvæmt SKÁÍS. Um
Borgaraflokkinn og
Flokk mannsins þarf
ekki að tala á þessu stigi.
Af niðurstöðum SKÁ-
ÍS-könnunarinnar má
draga tvær meginálykt-
anir: í fyrsta lagi er íjóst,
að andstæðingum Sjálf-
stæðisflokksins hefur
ekki tekist að koma
höggi á hann í borgar-
málum, þótt hart hafi
verið sótt gegn flokknum
undanfarinar vikur og
mánuði. Í öðm lagi er
Alþýðubandalagið á svo
hraðri niðurleið í borg-
inni að með ólíkindum
er. Virðist flokkinn
skorta alla viðspymu og
sú árátta hans að vera
sjálfkrafa á móti öllum
framfaramálum i borg-
inni skilar sér síður en
svo.
Röng niður-
staða
Um síðustu helgi
efndu alþýðubandalags-
menn til ráðstefnu á
Hallormsstað, undir heit-
inu: ísland — herstöð eða
friðarsetur. Á það hefur
þegar verið bent svo oft
og af svo mörgum, að
fsland er einmitt friðar-
setur af þvi að haldið er
uppi vömum í landinu,
að í raun var óþarft fyr-
ir Alþýðubandalagið að
velta þessu vandamáli
sérstaklega fyrir sér.
Nokkrir forystumenn
flokksins gerðu það þó
samt einmitt í þeim til-
gangi að komast að
rangri niðurstöðu, sem
sé þeirri að vegna land-
vama Íslands sé landið
ekki friðarsetur heldur
„skotmark og vfgvöllur í
byrjun stríðsátaka," eins
og segir í ávarpi ráð-
stefnunnar.
Hvergi er brýnna að
hafa viðbúnað tíl vama
en einmitt í löndum sem
em á svo viðkvæmum
stað í herfræðilegu tíllití
að kæmi til átaka yrði
fyrst keppt um yfirráð i
þeim. Ovissa um stöðu
slikra ríkja í öryggismál-
um kynni ein og sér að
ýta undir spennu og
hættuástand. Það hefur
leitt til stöðugleika og
þar með stuðlað að friði
að öllum er ljóst, að ís-
lendingar hafa tekið af-
stöðu í öryggismálum
með aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og varnar-
samningi við Bandarikin.
Er raunar minna deilt
um þessi grundvallarat-
riði i stjómmálaumræð-
um okkar i seinni tið en
áður, þegar þau réðu
miklu almennt um af-
stöðu manna til lands-
mála.
1 Hallormsstaðaávarpi
sinu krefjast alþýðu-
bandalagsmenn þess, að
vamarsamningnum við
Bandaríkin verði sagt
upp, „erlendum her verði
vfsað á brott frá íslandi
og þjóðin skipi sér á bekk
óháðra ríkja". Ekkert af
þessu er nýtt nema það
að orðið „óháð“ er notað
en ekki „hlutlaust" og
alþýðubandalagsmenn
tala um „óháð Island" en
ekki „hlutiaust" eins og
áður. Em þeir að gefa
til kynna með þessu að
við eigum að skipa okkur
i flokk með Indveijum,
Kúbumönnum, Egyptum,
og Júgóslövum svo að
nokkur fremstu riki i
samtökum óháðra ríkja
séu upp talin? Einnig i
þeim hópi em kjamorku-
veldi en af ávarpinu má
helst ráða, að við eigum
að slita sambandið við
nágranna- og vinarfki
okkar i vamarmálum, af
þvi að sum þeirra ráða
yfir kjamorkuvopnum
og við erum undir þeirri
hlíf.
í ávarpinu segir m.a.
að ríkisstjóm íslands
hafi á vettvangi NATO
samþykkt stefnu sem
m.a. feli i sér „að Nato
eigi að verða á undan að
beita kjamavopnum".
Hér er hallað réttu máli.
Stefna NATO er sú f
fyrsta lagi, að vera ekki
á undan að beita nokkr-
um vopnum; verði banda-
lagsriki hins vegar fyrir
árás á að snúast gegn
henni með venjulegum
vopnum og ekki grípa til
annarra ráða fyrr en allt
um þrýtur og þá hugsan-
lega kjamorkuvopna.
Þetta er kjami vamar-
stefnunar sem kennd er
við sveigjanleg viðbrögð
og NATO hefur fylgt i
rúma tvo áratugi, meðal
annars áþeim árum, þeg-
ar ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins sátu sælir
og glaðir i rikisstjóm ís-
lands.