Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 57
—^urrr WTVbtlMSfc OIG' ET/UníIOT/ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Danir vilja mæta íslend- ingum á Idrætsparken! DANSKA knattspyrnusam- bandið hefur boðið islending- um ieik á Idrætsparken 28. september, og ræðst það á allra næstu dögum hvort af viðureign þjóðanna verður. Hringt var frá danska sam- bandinu i Ellert B. Schram, formann KSÍ, á mánudaginn og spurt hvort íslendingar væru til- búnir að mæta til leiks gegn Dön- um. 28. september er miðvikudagur — en vikunni áður, 21. septem- ber, mætast íslendingar og Ung- vetjar í vináttuleik á Laugardals- velli. íslandsmótinu lýkur laugar- daginn 24. september með heilli umferð í 1. deild og lokahóf knatt- spymumanna verður kvöldið eftir. Ef af verður, verður leikur Dana og íslendinga í Kaupmanna- höfn, síðasti leikur Dana áður en þátttaka þeirra í heimsmeistara- keppninni hefst. Fyrsti leikur þeirra í keppninni er gegn Grikkj- um 19. október í Aþenu. DanirunnuSvia Því má bæta við hér að Danir og Svíar mættust í vináttulandsleik í knattspymu í gærkvöldi í Stokk- hólmi og gerðu Danir sér lítið fyrir og sigruðu í þeirri viðureign, 2:1. Það var Lars Élstrup sem gerði bæði mörk Dana — á 29. og 64. mínútu. Stefan Pettersson svaraði fyrir Svía á 81. mín. Áhorfendur voru 20.528. KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM Morgunblaðið/Einar Falur Arnór Guðjohnsan lék mjög vel. Hér er hann i þann mund að skapa sér eftirminnilegt færi í upphafi síðari hálfleiks. Hann vippaði knettinum skemmti- lega yfir Kuznetsov (nr. 4) og þrumaði að marki. íslenska liðið Hvað sögðu þeir? Amór Guðjohnsen „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við fáum á okkur mark svona seint — það endurtekur sig allt of oft. Við emm vissulega undir pressu og menn orðnir þreyttir. En mér finnst óþarfi að vera óánægður með þessi úrslit. Við fengum góð færi — sum að vísu ekki opin, eins og til dæmis færið sem ég fékk í byijun seinni hálfleiks. Ég bjó það alveg til sjálf- ur, var til hliðar og færið þröngt. Líka þegar ég gaf á Sigga Grétars í fyrri hálfleiknum. Það færi hans var þröngt Þeir fengu svo auðvitað tækifæri til að skora líka. Ég held að þessi úrslit hljóti að auka sjálf- straust liðsins. Það er allt í lagi að stefiia á 2. sætið í riðlinum eins og menn hafa talað um, en það má þó ekki einblína algjörlega á það. Við verðum að taka hvem leik fyr- ir sig og gera okkur grein fyrir því að við þurfum að eiga toppleik i hvert einasta skipti. Ekki bara núna. Og það er allt í lagi að vera bjartsýnn..." Ásgefr Sigurvinsson „Eins og leikurinn þróaðist gátum við unnið — við höfum aldrei verið jafn nærri því að vinna svona þjóð í HM eins og í dag. Það hefði auð- vitað verið gaman ef við hefðum unnið þá — en við fengum á okkur ódýrt mark og verðum að taka því. Þegar við komum inn í hálfleik 1:0 yfir vissum við að þetta var ekki búið og reyndum að hugsa þannig að staðan væri enn 0:0 þegar við komum út aftur. Við fengum ágæt- is færi í seinni hálfleiknum en tókst ekki að nýta þau; þeir skoruðu hins vegar mark þar sem varla var hægt að tala um færi. Við vomm því mjög óheppnir að vinna þá ekki.“ Er raunhæft að stefna á annað sætíð í riðlinum? „Við verðum að taka hvern leik fyrir sig og sjá til hvemig keppnin þróast. Það er kannski óþarfa pressa að tala mikið um 2. sætið, en ég er þó á þvf að það sé raun- hæft. Við megum þó ekki gleyma því að við emm með fleiri sterkum þjóðum í riðli en Sovétmönnum.“ Gunnar Gíslason „Það var svekkjandi að vinna ekki leikinn. Við áttum færin, en fengum svo á okkur svona klúðursmark. Þetta var helv... óheppni. Atli og j— Zavarov börðust um boltann og ég held að boltinn hefði farið framhjá eftir skot Zavarovs ef Bjami hefði ekki varið. Síðan náði sá sovéski að skora frá endalínu — framhjá þremur eða fjómm vamarmönnum. Það var ótrúlegt." Atli Eðvaldsson „Við áttum að vinna þennan leik. Við hefðum bara þurft að bæta við og fengum færin til þess. Sovét- menn fengu hinsvegar aðeins eitt færi. Ef við leikum svona eins og við gerðum í dag, gemm engin mistök og nýtum færin þá eigum við möguleika. Við megum ekki gleyma því að við eigum í höggi við atvinnumenn sem refsa okkur fyrir mistök. Dómarinn var hræði- legur og maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hvað hefði gerst ef við hefðum fengið heimadómara. Við vomm alltaf að svekkja okkur yfir dómgæslunni og vissulega hafði það áhrif á leikinn. s Við emm mjög litlir. Bara 16 strákar sem em alltaf að koma á óvart En ef okkur gengur vel í haust þá er hægt að fara að spá í möguleika okkar." Bjaml Sigurósson „Þetta var mjög ódýrt mark sem Sovétmenn skoruðu. Ég náði að fálma í boltann og átti alls ekki von á að Sovétmaðurinn næði honum. Mark þeirra var mikil vonbrigði því við áttum að vinna þennan leik. Við fengum fleiri færi og ég held að við höfum leikið vel.“ Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið taugaveiklaður yfir skotum þeirra fyrir utan. Ég bjóst við mörg- um langskotum og vissi að ég varð að halda boltanum því þeir em mjög snöggir að fylgja eftir eins og sást í.leiknum úti í fyrra. Þessi leikur hefur gefið okkur sjálfetraust ög sýnt okkur að við getum gert stóra hluti ef við gemm okkar besta." Guðni Bergsson „Við áttum að vinna og Sovét- mennimir vom greinilega á sömu skoðun því þeir vom ánægðir með jafntefli. Völlurinn var glerharður og ósléttur og því kom það fyrir að við misstum boltann í öftustu vöm, en það bjargaðist. Við verðum að leika með okkar sterkasta lið og spila eins og við gerðum í dag ef við ætlum að eiga möguleika í þessari keppni. Við höfum sterkan kjama og eigum möguleika á 3. sæti og jafnvel 2. ef allt gengur upp.“ SœvarJónsson „Fyrirfram hefðum við verið ánægðir með 1:1, en eftir leikinn em þetta vonbrigði. Við áttum að gera út um leikinn í fyrri hálfleik. Ég fann boltann stijúkast við löppina á mér þegar þeir skomðu, en ég var á of mikilli ferð til að ná að koma boltanum út. Ég var ekki ánægður með hlut áhorfenda á þessum leik. Við emm að leika gegn.einni bestu þjóð heims og þurfum að fá meiri stuðning. Það hefur mjög mikið að segja fyr- ir okkur að fá hvatningu." Siguröur Grótarsson „Það vom Sovétmenn sem unnu eitt stig í þesum leik. Við hefðum átt að vera 2:0 yfir í fyrri hálfleik og ég hefði átt að skora annað mark. Það er ekki oft sem við fáum svo mörg tækifæri gegn liði eins og því sovéska og þá verðum við á nýta þau. í fyrra færinu náði ég ekki að slcjóta en í því síðara hefði ég átt að skora. Hann [Dassajev] gaf mér annað homið og lokaði hinu, en hann náði að pota í boltann. Þessi leikur lofar góðu, en við verðum bara að taka hvem leik fyrir sig og vona það besta." Bjami Sigurðsson ■ Bjami var öryggið uppmálað í markinu, greip vel inn í þegar á þurfti að halda og bjargaði meist- aralega, þegar vömin gleymdi sér. Guðni Bergsson ■ Sovétmenn réðu ekki við hraða Guðna. Hann var yfirvegaður, en full rólegur með knöttinn undir lok- in. Sœvar Jónsson ■ Sævar er sterkur leikmaður, sem er mikið á hreyfingu og les leikinn vel. Hann er fljótur að átta sig á hvenær best er að fara fram og átti stóran þátt í markinu sem Sigurður skoraði. Atli Eövaldsson lEins og áður þá barðist Atli vel, en hann var mistækur í leiknum. Gerði góða hluti, en var óömggur á stundum. Siguröur Jónsson ■Sigurður lék nú inni á miðjunni, þar sem hann nýtur sín best. Hann var mjög hreyfanlegur og gaf ekkert eftir. Pétur Ormslev ■Pétur skilaði vamarhlutverki sínu ágætiega, en hann fann sig ekki í sóknarleik liðsins. Var ólíkur sjálf- um sér. Gunnar Gfslason ■Gunnar var mjög traustur að vanda og gaf ekki tommu eftir. Gunnar er leikmaður sem aldrei bregst þegar mikið liggur við. Ólafur Þóröarson ■Ólafur er eins og Gunnar — geysi- legur vinnuhestur. Hann var alltaf á ferðinni, skapaði stöðugt hættu og átti mikinn þátt í marki Islands. Ásgeir Sigurvinsson < ■Ásgeir vann vel í leiknum og dreifði knettinum á milli kanta. Sovétmenn gáfu honum aldrei frið ’ - voru fljótir að ijúka í Ásgeir, þegar hann fékk knöttinn. Siguröur Grótarsson ■Sigurður skapaði mikinn usla í vöm Sovétmanna með krafti sínum Og hraða. Var óheppinn að skora ekki annað mark. Sigurður er orð- inn mjög öflugur leikmaður, sem er alltaf á ferðinni. Amór Guöjohnsen ■Arnór átti mjög góðan leik. Var óhræddur að kljást við Sovétmenn- ina, sem höfðu góðar gætur á hon- um eins og Ásgeiri. Guömundur Torfason ■Guðmundur kom inn á sem vara- maður rétt fyrir leikslok, þannig að hann kom lítið við sögu. Siegfried Held landsliðsþjálfari: „Besti leikurinn undir minni stjóm“ „Þetta var mjög góður leikur. Mínir menn léku samkvœmt áœtlun — þetta er besti lelk- urinn undir minni stjórn," sagöi Sigi Held þjálfari yfir sig ánægöur skömmu eftir að flautað var til leiksloka. Held var samt jarðbundinn. „Leikurinn sýnir að með full- skipuðu liði erum við til alls vísir, en því skal ekki gleymt að þetta er í fyrsta sinn, sem allir eru til taks. í öðru lagi fengum við þijá vináttuleiki á dögunum, en æf- ingaleikir eru nauðsynlegir fyrir átök í keppni sem þessari og alls er óvíst um að framhald verði þar á. Við lékum betur og áttum skil- ið að sigra, en úrslitin gilda. Sov- étmenn voru meira með knöttinn, en náðu aðeins að skapa sér tvö góð marktækifæri gegn fjórum okkar. Jöfiiunarmarkið kom okkur úr jafnvægi. Taugaóstyrkleiki gerði vart við sig og ég er ekki frá því að sumir leikmannanna hafi hugs- að aftur til leikjanna gegn Svíum, Búlgörum og Portúgölum, þegar svipuð staða kom upp, en Sovét- menn sættu sig við jafnteflið og jafnvægi komst á. Hvað dómarann varðar þá bendir margt til þess að hann sé kommúnisti!" sagði Held.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.