Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 Valdimarsson framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Samstarf þeirra Guðmundar var mjög gott. Oft hefí ég heyrt á Þráni, að hann telji Guðmund einhvem allra besta samstarfsmann sem hann hafl haft. Guðmundur var líka traustur í starfi og gætti þess vel sem honum var trúað fyrir. ' Á þessum árum var oft gaman að koma á flokksskrifstofuna, enda lögðu margir þangað leið sína. Guðmundur var ævinlega reiðu- búinn að ræða mál sem hann taldi horfa til framfara enda er hagur þjóðarinnar honum ofarlega í huga. Hann er hafsjór af fróðleik, les griðarlega margt og leitar sér upp- lýsinga um alla hluti. Það var ekki bara fískeldið. Guðmundur er hug- sjónamaður. Ef ég man rétt, var hann t.d. farinn að ræða lúpínurækt til þess að græða landið löngu áður en almenningur gerði sér grein fyr- ir þeim möguleika. Frá orðræðum á þessum árum minnist ég þess sérstaklega að Guðmundur sá ævinlega margar hliðar á hveiju máli. Minnisstætt er mér að einhveiju sinni ræddum við grein, þar sem greinarhöfundur lagði sig í fram- króka við að lýsa konu. Ég taldi lýsinguna svo góða að þekkja mætti konuna og lífsviðhorf hennar af greininni. „Vera má það“, sagði Guðmundur, „en þó hygg ég að þessi grein segi meira um greinar- höfund en konuna sem hann er að lýsa.“ Ég varð undrandi við, en eftir dálitla umhugsun sá ég að Guð- mundur hafði enn einu sinni skyggnst dýpra en ég. Með lýsing- um sínum lýsti greinarhöfundur auðvitað mest því, sem hann sjálfur taldi frásagnar vert. Guðmundur flytur mál sitt á þann hátt sem fáum er lagið. Með meitl- uðum setningum án stóryrða kveð- ur hann skýrt að orði. Stundum finnst mér að þannig geti aðeins þeir talað, sem ungir hafa lesið ís- lendingasögumar og lesið þær vel. Til Guðmundar var ævinlega leit- að við kosningar. Það var flokknum ómetanlegt enda var hann ævinlega skyggn á aðalatriði og samræðu- snilli hans á fárra valdi. Guðmundur hefur auðvitað gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann var hvatamaður að stofiiun Kaupfélags Kjalamesinga 1950 og fyrsti formaður þess. Hann var í stjóm KRON 1948—50 og heiðurs- félagi Framsóknarfélags Reykja- víkur. Hann var endurskoðandi Búnaðarbankans 1949—79 og tók þátt í bókaútgáfu, Snælandsútgáf- unni hf. 1945—49. Hann sá um útgáfu blaða og, bæklinga fyrir KRON og síðar fyrir Framsóknar- flokkinn. Margar greinar hefur hann ritað og mest um samvinnu- mál. Guðmundur Tryggvason giftist 20. febrúar 1937 Helgu, dóttur Kolbeins Högnasonar í Kollafirði og fyrri konu hans, Guðrúnar Jó- hannsdóttur kennara. Þau Helga eignuðust fímm böm, 3 dætur og 2 syni, og bamabömin em orðin mörg. Konu sína missti Guðmundur 1985. Starfsferill Guðmundar Tryggva- sonar er orðinn langur. Við fram- sóknarmenn eigum honum mikið að þakka. Sjálfur tel ég mér það happ að hafa átt þess kost að kynnast hon- um. Þegar ég heimsótti Guðmund síðast á Miklubrautina kom gamli maðurinn til dyra. Röddin hlýleg og vinsemd í augum. Við tókum tal saman um heima og geima. Heilsan mætti vera betri, en em er Guð- mundur, hugsunin skýr og minnið gott. Drepið var á dyr og inn kom dóttursonur hans, með vasklegri ungum mönnum sem ég hefi séð. Auðséð þótti mér að kært var með þeim þó aldursmunur væri all- nokkur. Þá ósk á ég besta til Guðmundar Tryggvasonar á áttræðisafmæli hans, að hann fái enn um ókomin ár að njóta góðrar heilsu og bjarts ævikvelds. Það vona ég líka að bamabömin nái að kynnast þessum athyglis- verða manni og festa í minni ævi hans og viðhorf. Hamingjuóskunum fylgja síðan þakkir frá framsóknarmönnum. Þakkir fyrir vel unnin störf, fyrir öll sporin, fyrir samveruna og sam- vinnuna, hugmyndimar og ábend- ingamar og síðast en ekki síst fyr- ir vináttuna. Guðmundur G. Þórarinsson Áttræður er í dag, 1. september 1988, Guðmundur Tryggvason fyrrum bóndi í Kollafirði á Kjalar- nesi. Guðmundur er fæddur og upp- alinn í Húnaþingi og Húnvetningur .í föðurkyn en Austur-Skaftfellingar í móðurætt. Hann er samvinnu- skólamaður og stundaði framhalds- nám í Þýskalandi. Ungur rak hann bú með móður sinni á Stóm-Borg og stundaði þá kennslu meðfram en vann síðar um langt árabil að félagsmálum og atvinnurekstri. Hann var framkvæmdastjóri Pönt- unarfélags Verkamannafélagsins Hlífar, félagsmálafulltrúi KRON og framkvæmdastjóri Tímans og Framsóknarflokksins. Hann sat í stjóm KRON um skeið, varð síðar frumkvöðull að stofnun Kaupfélags Kjalarnessþings og fyrsti formaður þess. Um árabil var hann éndur- skoðandi Búnaðarbankans. Eftir að hann brá búi í Kollafírði gerðist hann skrifstofustjóri fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík uns hann lét af störfum vegna ald- urs. Þessi afmæliskveðja og þökk, sem hér er skráð, er einkum tengd minningum úr Kollafírði en þar bjuggu þau Helga heitin Kolbeins- dóttir og Guðmundur frá 1948 til 1961 er laxeldisstöð var stofnsett á jörðinni. Þar áttum við systkinin, systurböm Helgu, ævinlega annað heimili. í rauninni mótuðumst við þar jafnt sem af Hlíðahverfínu og við búúm enn að þeirri fyrstu gerð. Ekkert ómak var of mikið fyrir okkur gert í Kollafírði og í öllu vorum við systkinin þar eins og eig- in böm þeirra hjóna. Þess er minnst og skal þakkað. Þegar Guðmundur stendur nú á áttræðu minnist ég margra ógleym- anlegra stunda með þessum leiftur- gáfaða manni. Mér hefur orðið það ómetanlegt að hann tók'mig dreng- staulann, í trúnað sinn og ræddi við mig eins og fullþroskaðan mann um háleit efni, fi-amkvæmdir, byggðamál og bókmenntir. Hann var stórhuga og var alltaf að bijót- ast í einhveiju, reyna eitthvað, taka upp á einhveiju sem braut viðjar vana og hversdags. Sumt tókst, annað gekk ekki. Guðmundur er makalaus kvæðasjóður og kveður þungt að þeim hendingum sem hrifa hann. Fyrstu kynni mín af sam- vinnumálum og kaupfélagsskap eru stundirnar hjá Guðmundi og hann trúir því víst varla að enn man ég mörg orð hans um þau eftii eins og sögð hefðu verið í gær. Og enn er ég að læra að skilja og meta ýmislegt af þvf sem hann sagði. Við systkinin úr Lönguhlíðinni færum Guðmundi innilega kveðju og margfalda þökk á þessum merk- isdegi á langri ævi hans. Við óskum frænkum og frændum til hamingju með föðurinn. Megi Guðmundur Tryggvason enn eiga mörg góð ár. Jón Sigurðsson lnnilegar þakkir fœrum við öllum þeim, œttingj- um og vinum, sem glöddu móður okkar, KRISTÍNU HREIÐARSDÓTTUR, með heim- sóknum, skeytum og gjöfiim á 100 ára afirnœli hennar 19. ágúst. Einnig þökkum við sambýl- is- og starfsfólki á Hrafnistu í Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Systkinin frá Presthúsum ogfóstursonur. hot“ Víctor Borge hinn frábæri háðfugl, skemmtir í kvöld, fimmtudagskvöld, á Hótel íslandi. Verð kr. 2.500,- Húsiðopnaðkl. 20.00. Uppseft a morgun, föstudagskvöldið 2. september. Missið ekki afþessum einstaka listviðburði á íslandi. Borða- og miðapantanir ísíma 687111. kenns/a Tónlistarskóli s 'Tarðabæjar Smiðsbúð 6, sími42411 Forskóli, hljóðfæradeildir, söngdeild. Tekið á móti umsóknum um skólavist til 8. september. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 14-18. Skóiastjóri Gerpla - fimleikar Innritun byrjenda stendur yfir í símum 74925 og 74907. Æfingatöflur afhentar mánudag- inn 5. september. Nánar auglýst í föstudagsblaði. íþróttafélagið Gerpia. Landakotsskóli Landakotsskóli verður settur 6. september n.k. Börnin mæti sem hér segir: 6. bekkur kl. 09.30. 5. bekkur kl. 10.00. 4. bekkur kl. 10.30. 3. bekkur kl. 11.00. 2. bekkur kl. 11.30. 1. bekkur kl. 13.00. Undirbúningsdeild kl. 14.00. Skólastjóri. I ti/ sö/u | Skyndibitastaður og söluturn Tvær lóðir til sölu undir skyndibitastað og söluturn meðfram einni umferðarmestu götu á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar í síma 82312. Seiðaeldisstöð Til sölu er seiðaeldissstöð þrotabús Vatna- gulls hf. í Landmannahreppi, Rangárvalla- sýslu. Eignin er nánar tiltekið: 1. Eldishús, bárujárnsklætt, um 300 fm að stærð, ásamt eldiskerjum, lögnum, fóðr- urum, öryggiskerfi og tilheyrandi búnaði. 2. Steyptur grunnur að ca 2200 fm eldis- húsi. 3. 6 útiker úr bárujárni, ásamt vatnslögnum og dælum. 4. Vatnsréttindi að heitu og köldu vatni, ásamt dælum og lögnum. 5. Dieselrafstöð (á kaupleigusamningi). 6. Um 350.000 laxaseiði sem nú eru í fóðrun í stöðinni. Tilboðum skal skilað til undirritaðs fyrir 9. september nk., og veitir hann jafnframt allar frekari upplýsingar. Selfossi, 31.8. 1988 Ingimundur Einarsson, hdl., bústjóri í þrotabúi Vatnaguiis hf., Tryggvagötu 2a, Selfossi, sími 98-21265.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.