Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
25
Aðalheiður Lilja Maguúsdóttir og Hannes Jónsson. Morgunbiaðíð/óiafur
Stúlkan sem sökk með kranabílnum:
Sparkaði af öllum
kröftum í rúðuna
Skagaströnd
„ÞAÐ sem ég held að hafi bjargað mér fyrst og fremst var að
við Hannes höfðum nokkrum dögum fyrr verið að ræða um hvað
maður ætti að gera ef maður lenti úti í vatni í bU. Hannes sagði
að frumskilyrði væri að vera rólegur og átta sig og reyna siðan
að gera rétta hluti,“ sagði Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir sem var
í kranabíl sem fór í höfnina á Skagströnd sl. laugardag.
Fréttaritari spjallaði við Lilju
og Hannes Jónsson unnusta henn-
ar á heimili þeirra á Blönduósi en
Hannes stjórnaði krananum er
hann fór í sjóinn.
„Ég mundi eftir þessu er bíllinn
var kominn á botninn. Ég reyndi
að beija í topplúguna á bílnum
af öllum kröftum. Það var ekkert
loft í bílnum því rúðan var opin
bílstjóramegin og þess vegna
fylltist húsið strax af sjó er bíllinn
sökk. Bíllinn lenti á þeirri hlið svo
ég komst ekki þar út. Þegar ég
áttaði mig á að gagnslaust væri
að berja í lúguna tók ég með báð-
um höndum um karminn sem lúg-
an er fest í og sparkaðj af öllum
kröfum í framrúðuna. Ég hélt að
hún ætlaði aldrei að láta sig en
loksins fann ég að hún gerði það
því ég sá ekki neitt að hún hafði
opnast. Þá var innilokunarkennd-
in að ná yfirtökunum en mér tókst
að synda út um gatið og komst
upp á yfirborðið. Einhvem veginn
tókst mér að vera róleg allan
tímann og gerði mér fulla grein
fyrir hvað hafði gerst.
Það skrýtna er að yfirleitt fer
ég ekki með Hannesi þegar hann
er í svona vinnu. í þetta sinn bað
ég um að fá að koma með. Ég
kom litla stráknum okkar í pössun
hjá tengdamömmu og fór með
Hannesi í það sem átti að vera
klukkutíma laugardagsrúntur.
Meðan Hannes hífði bátinn að
flutningavagninum datt mér
augnablik í hug að ef bílinn ylti
mundi ég lenda í sjónum. Þessu
skaut í gegnum hugann en síðan
hélt ég áfram að lesa í bókinni
sem ég var með. Allt í einu fann
ég að bíllinn lyftist og ég reyndi
að opna hurðina en gat það ekki
því hún var svo þung sökum hall-
ans á bflnum. Augnabliki síðar
var ég komin á bólakaf en hafði
samt gripið andann á lofti áður.
Ég reyndi að láta frá mér lítið
loft í einu þarna niðri meðan eg
var að beijast um. Ég var alveg
að springa er ég komst út úr
bílnum.
Ég man að ég hugsaði er ég
var að beija í topplúguna: „ Nei,
andskotinn, ég get ekki átt að
fara að deyja núna.“ Þegar ég
kom upp á yfirborðið sá ég Hann-
es hvergi á bryggjunni. Datt ekki
í hug að ég sæi hann nokkum
tímann aftur því bíllinn hlaut að
hafa oltið yfir hann. Mér tókst
ekki að synda nema tvö sundtök
í átt að bryggjunni. Eftir það tróð
ég marvaðann og hrópaði á Hann-
es því mér fannst ég heyra í hon-
um þótt ég sæi hann ekki. Ég
varð ekki hrædd fyrr en ég komst
upp á yfirborðið og var þá hrædd-
ari um Hannes en sjálfa mig.
Hannes kom svo svamlandi með
spotta sem ég greip um. Síðan
dró hann og annar maður mig upp
í bát sem þama var og þaðan upp
á bryggju og í bfl sem flutti mig
á sjúkrahúsið á Blöndósi.
Mig langar að koma þakklæti
til mannanna á bryggjunni sem
hjálpuðu mér. Sérstaklega þeirra
tveggja er keyrðu mig á sjúkahú-
sið og bám mig þar inn. Ekki
viss um að ég hefði komist það
sjálf skjálfandi úr kulda og
sjokki."
Hannes segir að þegar hann
hafí fundið að bíllinn lyftist reyndi
hann auðvitað að slaka hraðar en
það tókst ekki: „Jarðvegurinn
undir löppinni að aftan gaf sig
og hún fór á kaf. Við það reis
bíllinn að framan og þá varð þung-
inn of mikill á framlöppinni. Hún
kengbognaði og bíllinn valt í sjó-
inn.
Ég stóð sjávarmegin við bílinn
og ég held að ég hafi beygt mig
um leið og bíllinn valt yfir mig.
Annars er ég hreint ekki viss því
mér er óskiljanlegt hvernig ég
slapp svona vel. Það sér hvergi á
mér utan smámarblettur á ann-
arri öxlinni. Það er auðvitað ekki
gaman að horfa á eftir kær-
ustunni fara á kaf og það fyrsta
sem ég gerði var að hoppa út í
bát sem var þarna og róa af stað
þangað sem bíllinn hvarf. Ég ætl-
aði að reyna að stinga mér niður
að bílnum til að hjálpa henni út.
í fátinu hafði ég gleymt að losa
bátinn og meðan ég var að bjástra
við það kom Lilja upp. Þá stakk
ég mér í sjóinn með kaðal sem
strákur hélt í endann á um borð
í bátnum. ÓB
Ferðafélag Islands:
Kort af Þórsmörk
FERÐAFÉLAG íslands hefur
gefið út kort af Þórsmörk og
nágrenni. Á kortinu eru merktar
gönguleiðir út frá Skagfjörðs-
skála, sæluhúsi Ferðafélagsins í
Langadal. Landkostir sf. á Sel-
fossi sáu um að teikna kortið.
Jon Böðvarsson fyrrverandi
skólameistari skrifar ágrip af sögu
Þórsmerkur á bakhlið kortsins og
lýsingu á gönguleiðum sem merktar
eru á kortinu. Einnig sá Jón um
að setja örnefni inn á kortið, sam-
kvæmt öruggustu heimildum, og
koma fram nokkrar leiðréttingar
frá eldri kortum af svæðinu.
Kortið er í litlu broti svo það
fari vel í vasa, enda til þess gert
að fólk hafi það með í gönguferðir
um Mörkina. Kortið er einnig gefið
út með enskum texta, og annaðist
Terry G. Lacy þýðinguna.
(Fréttatilkynning)
Titilsíða kortsins með mynd af
Skagfjörðsskála.
ÞÓRSMÖRK
Skagfjördsskáli
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Næsta hraðlestrarnámskeið hefst 14. september nk.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn í hvers kyns lesefni skaltu
skrá þig tímanlega á námskeiðið.
Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að meðaltali
lestrarhraða sinn með betri eftirtekt en þeir hafa áður vanist.
Skráning öll kvöld kl. 20:00-22:00 í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKÓUNN
Nýr opnunartími
Eftir 1. sept. veröa verslanir
HAGKAUPS opnar sem hér segir:
Skeifan
Mánud. -fimmtud. 900-l830
Föstud. 900-2030
Laugard. 1000-1630
Knnglan sérvörudeild
Mánud.-fimmtud. 1000-1900
Föstud. 1000-1900
Laugard. 1000-1600
Knnglan matvörudeild
Mánud. -fimmtud. 1000-1900
Föstud. 1000-1930
Laugard. 1000-1600
Kjörgarður
Mánud. -fimmtud. 9°0_1800
Föstud. 900-1900
Laugard. 1000-1300
Seltjarnarnes
Mánud. -fimmtud. 900-1830
Föstud. 900-2000
Laugard. 1000-1600
Njarðvík
Mánud. -fimmtud. 1000-1830
Föstud. 1000-2000
Laugard. 10°°-1400
Akureyri
Mánud. -miðvikud. 900-1800
Fimmtud. -föstud. 900-1900
Laugard. 1000-1600
HAGKAUP
Reykjavik Akureyri Njarðvík