Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
31
'a og Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra ræða við íbúa í einu
fcir aurskriðurnar á sunnudag.
ákvörðun um hvernig staðið yrði
að bótum á því tjóni sem bæjarfé-
lagið hefði orðið fyrir og einnig því
tjóni sem orðið gæti ef atvinnulíf
færi úr skorðum.
Halldór Blöndal alþingismaður
kom í gær til Ólafsfjarðar í annað
sinn frá því að skriðurnar féllu.
Sagði hann ástandið vera eftir því
sem við hefði verið að búast. Lýsti
Halldór áhyggjum sínum yfir því
að Viðlagatrygging og aðrar trygg-
ingar bættu ekki það tjón sem orð-
ið hefði. Þjóðfélagið yrði að styðja
við bakið á Ólafsfirðingum.
Marinó Magnússon með dauð seiði úr kerjum Óslax.
komið á óvart hversu mikill munur
væri á úrkomu í olafsfirði og á
Siglunesi. Þó stutt væri á milli stað-
anna hefði úrkoman mælst fjórfalt
meiri á Ólafsfirði. Svo mikill aur
hefur runnið í sjó fram að sjórinn
í firðinum hefur verið mórauður frá
því á sunnudag.
Yfir 50 tilkynningar um
skemmdir á húsum og görðum
höfðu borist Brunabótafélaginu í
gær. Þá hefur orðið talsvert tjón
hjá laxeldisstöðinni Óslaxi er aur
komst í aðveiturör og ker stöðvar-
innar. Ekki er vitað hversu stór
hluti seiðanna er dauður. Að sögn
Marínós Magnússonar starfsmanns
stöðvarinnar verður afar erfitt að
hreinsa kerin þar sem mestur hluti
seiðanna er svo smár og gæti tjón-
ið því aukist mun meira. Eins og
áður segir hefur orðið tjón á hita-
veitu, vatnsveitu, reiðvelli, túnum
víðs vegar um sveitina, golfvelli,
íþrótt'avöllum, og svo mætti lengi
upp telja.
Ellefu manns dvelja
í gagufræðaskólanum
Enn dvelja ellefu manns í gagn-
fræðaskólanum á Ólafsfirði. Þar
hefur fólkið dvalið frá því á sunnu-
dag er 200 íbúar urðu að yfirgefa
hús sín vegna hættunnar á frekari
Texti og myndir frá
Ólafsfirði: Urður
Gunnarsdóttir og Þorkell
Þorkelsson.______________
skriðuföllum. „Þetta er eins og að
fara í útilegu. Það væsir ekki um
okkur hér en okkur er farið að langa
heim,“ sagði Brynja Sigurðardóttir.
Tvær fjögurra manna fjölskyld-
ur, hluti þeirrar þriðju- auk eins
manns dvelja í skólanum. Sigur-
björn Óskarsson 8 ára og Gunnar
Jónsson 5 ára kipptu sér ekki upp
við dvölina í nýja aðsetrinu. Þeir
sögðust hafa gaman af að búa í
skólanum, þar gætu þeir valsað um
og leikið borðtennis eins og þá listir.
Dvöl Signýjar Hreinsdóttur á
Ólafsfirði var orðin lengri en áætlað
var. Hún kom á föstudag til að
heimsækja kærastann og ætlaði að
dvelja yfir helgina en ilentist eins
og gefur að skilja, sagðist hún vilja
fara að komast heim en bætti því
við að hún væri vön því að komast
ekki leiðar sinnar vegna veðurs þar
sem hún væri búsett á Vestfjörðum.
Flugvöllurinn er orðinn fær en
ekki var hægt að lenda í gær vegna
mikillar þoku. Þá er Ólafsfjarðar-
vegur eystri einnig fær.
Morgunblaðið/Bjami
Frá fundi Kaupmannasamtaka íslands og starfsmanna Verðlagsstofnunar. Við borðsendann er Guð-
jón Oddsson, formaður Kaupmannasamtakanna, og honum á hægri hönd er Georg Ólafsson, verðlags-
stjóri.
Verðstöðvunin:
Haustvörur og námskeið
á sama verði og í fyrra
Smásalar gæta heildsala og neytendur gæta smásala
Morgunblaðið/Júlíus
Sérstakur verðgæslusími, (91)-622101, var settur upp í Verðlags-
stofnun í gær og þangað getur fólk beint fyrirspurnum og kvört-
unum um framkvæmd verðstöðvunarinnar. Það eru þau Hermann
Sigurðsson, Kristinn Bjarnason og Steinunn Friðriksdóttir sem
hérna sjást sitja við „kvörtunarsímann“.
Verðlagsstofnun framfylgir
verðstöðvuninni mjög hart og
hefur ekki leyft hækkanir á
haustvörum, svo sem skóla-
bókum og nýju lambakjöti, frá
fyrra ári. Það sama gildir um
gjald fyrir þjónustu, svo sem
námskeið hjá tónlistarskólum,
dansskólum og öðrum. Sér-
stakur „kvörtunarsími" var
settur í samband hjá stofnun-
inni í gær og mjög mikið er
um fyrirspurnir og ábending-
ar um hækkanir vöru og þjón-
ustu. Neytendur gæta þess að
smásalar hækki ekki sitt verð
og smásalar gæta þess að
framleiðendur og heildsalar
hækki ekki innkaupsverð. Það
sem helst var kvartað yfir í
gær var hækkun á eggjum og
kjúklingum.
Ekki hafði tekist að ná tali
af forsvarsmönnum eggja- og
kjúklingabænda þegar Morgun-
blaðið heimsótti Verðlagsstofnun
í gærdag, en þeir voru á þingi
Stéttarsambands bænda á Akur-
eyri. Verðlagsstofnun telur að
ýmis veitingahús og mötuneyti,
svo sem á Borgarspítalanum,
hafi hækkað verð hjá sér. Þeim
sem taldir eru brjóta gegn verð-
stöðvuninni er gefinn ‘ sólar-
hringsfrestur til að lækka verðið
aftur og að sögn starfsmanna
Verðlagsstofnunar virðir fólk til-
DANSRÁÐ íslands hélt fund
í gærkvöldi og mun væntan-
lega Ieggja inn beiðni um und-
anþágu frá verðstöðvuninni
hjá Verðlagsstofnun í dag.
„Það verður vonandi ekki
vandamál að fá undanþágu,
þar sem við höfum ekki hækk-
að frá því í september í fyrra,
en ef þetta er endanleg
ákvörðun yfirvalda munum
við fara eftir því,“ sagði Rakel
Guðmundsdóttir, skólastjóri
Nýja Dansskólans.
Rakel sagðist hafa haft sam-
band við Verðlagsstofnun í gær
og fengið þar góðar móttökur.
mæli þeirra nær undantekninga-
laust. Til dæmis lækkaði Sultu-
og efnagerð bakara verð á sultu
og grautum eftir að farið var
fram á það.
Starfsmenn sögðu fólk mjög
vel vakandi yfir verði á daglegum
nauðsynjavörum og mikið um
upphringingar sem skiluðu ár-
angri. Tveir menn eru í fullu
Dansráðið hefði ákveðið lág-
marksverð fyrir þetta ár, þar sem
reynt hefði verið að halda hækk-
unum í lágmarki. Námskeið hjá
Nýja Dansskólanum hefðu til
dæmis hækkað um 8-10% frá
fyrra ári. Það myndi koma sér
mjög illa fyrir marga ef engin
hækkun fengist í gegn og von-
andi yrði tekið tillit til sérstöðu
þeirra sem hækkuðu aðeins einu
sinni á ári.
Verðlagsstofnun hefur ekki
leyft hækkun á haustvörum, svo
sem skólabókum, og árlegum
námskeiðum, en hefur ekki feng-
ið skriflegar beiðnir um undan-
þágur inn á borð til sín enn.
starfi við að taka við símhring-
ingum og aðrir fimm að hluta.
Auk þe.ss fara menri frá Verð-
lagsstofnun í búðir og bera verð
saman við tölur frá athugunum
og tölvuútskriftum frá því áður
en verðstöðvunin tók gildi. Mörg
vafaatriði og erfið mál koma
upp, svo sem varðandi útsölur
og árstíðabundnar vörur, en
meginreglan er skýr: Ekkert má
hækka frá því verði sem síðast
var í gildi. Hægt er að sækja
um skriflega undanþágu frá
verðstöðvuninni, en enn hefur
engin verið veitt.
Fulltrúar Verðlagsstofnunar
eru á fjórum stöðum utan höfuð-
borgarsvæðisins: á ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri og Eski-
firði. Kvörtunum og fyrirspurn-
um skal þó beint til Reykjavíkur,
sem síðan kemur skilaboðunum
áleiðis.
Georg Ólafsson, verðlags-
stjóri, sagði að framkvæmd verð-
stöðvunarinnar hefði gengið eftir
atvikum vel og samstarf við al-
menning og hagsmunasamtök
væri gott. Georg fór á fund
Kaupmannasamtaka íslands í
gærmorgun og síðdegis var
óformlegur samráðsfundur með
Ásmundi Stefánssyni og fleiri
fulltrúum frá Alþýðusambandi
íslands. Fleiri slíkir fundir eru
fyrirhugaðir.
Dansskólar ætla að
sækja um imdanþágn