Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 55
55^
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBÉR 1988
Kæruliðahreyfing í Tjamargötu
Til Velvakanda.
í dálkum þínum þann 20. nóvem-
ber síðastliðinn, vakti ég athygli á'
fámennum æsingahópum, sem hafa
sig mjög í frammi gegn ýmsum
framfaramálum. Um þær mundir
lét einn slíkur hópur mjög að sér
kveða gegn byggingu Ráðhúss
Reykjavíkur. Mótmælendur fullyrtu
þá, að með byggingu ráðhússins
yrði öllu fuglalifi útrýmt á Tjörn-
inni. Þeim tókst um tíma að sann-
færa margar hrekklausar sálir um
að svo yrði.
Nú heyrast þessi rök ekki leng-
ur, enda ólíklegt að nokkur tæki
mark á þeim í dag. Þegar fólk átt-
aði sig á blekkingunni urðu raðir
„Hinnar miklu fjöldahreyfingar"
fljótt þunnskipaðar. Þá var því liði
sem eftir stóð, stillt upp til nýrra
átaka. Tjamargata 10 skyldi verða
hið óvinnandi virki Hreyfingarinn-
ar, og þaðan átti að snúa vörn í
sókn.
Upphófst nú mesti kæruhernað-
ur sem sögur fara af á íslandi.
Allt var kært, bæði það sem var
ekki gert, og einnig það sem var
gert. Kjallarinn var of stór og kjall-
arinn var of lítill, o.s.frv. Svo langt
gekk réttindabarátta Kæruliðanna
að þeir sannfærðust um að íbúar
Tjarnargötu 10 ættu að minnsta
kosti hluta af Tjöminni og þar með
veiðiréttindi og eggjatöku! Og enn-
þá telja þeir sig vera að vinna að
hagsmunum allra Reykvíkinga.
I DV var um daginn viðtal við
helsta fjármálaspeking Alþýðu-
bandalagsins Þröst Ólafsson, sem
er meðal annars stjómarformaður
KRON og framkvæmdastjóri Dags-
brúnar. Rætt var um sölu Iðnó, sem
er í eigu verkalýðsfélaganna. Þrátt
fyrir að Alþýðubandalagsfólk sé
jafnan það ötulasta meðal mótmæl-
enda, er Þröstur nú þegar farinn
að finna peningalykt af ráðhúsinu,
því hann fullyrti að Iðnó yrði dýrt.
Þegar blaðamaður spurði nánar um
verðið, var skýring Þrastar sú, að
húsið standi á bestu lóð í bænum,
beint á móti væntanlegu ráðhúsi.
Kæruliðahreyfingin í Tjarnar-
götu á sér stuðningsmenn í helstu
stórborgum eins og alvöru „frelsis-
hreyfingar". íslenskur rithöfundur
í Róm sendi kveðju í DV þann 6.
ágúst. Hún kvartar undan fram-
kvæmdaleysi og ræfildómi Itala, en
að hennar dómi standa þeir Reyk-
víkingum mikið framar að einu
leyti. Ég læt niðurlag greinarinnar
fylgja með, sem sýnishom af mál-
flutningi Hreyfíngarinnar:
„En þó er eitt við ítölsku þjóðina
sem vekur lotningu mína:
Ef Davíð hefði farið að skurka í
ástfólginni tjöm hér í Róm, þá hefðu
ítlalir skotið Davíð.“
Frá Parísardeildinni sendi annar
íslenskur rithöfundur orðsendingu,
sem birtist í Morgunblaðinu. Hann
var sem þrumu lostinn vegna þeirr-
ar ósvífni annálsritara ráðhúss-
byggingarinnar að minnast ekki á
grein, sem hann hafði á undan öðr-
um skrifað í Þjóðviljann gegn bygg-
ingunni.
Margt góðhjartað fólk varð við
ákalli samtakanna „Tjörnin lifi“, og
vildi hjálpa þeim við að koma í veg
fyrir að hún þyrfti að gefa upp
öndina. Með eða án samþykkis
fólksins voru nöfn þess, skreytt með
starfsheitum birt í blaðaauglýsing-
um með furðulegri yfirskrift, sem
kosta í birtingu yflr 100 þúsund
krónur hver.
Borgaryfirvöld, stjóm skipulags-
mála og félagsmálaráðherra hafa
sýnt þessu fólki einstakt umburðar-
lyndi og þolinmæði og lagt mikla
vinnu í að taka saman skýrslur, sem
sanna það. sem vitað var, að allur
undirbúningur og framkvæmd við
bygginguna er unnin samkvæmt
gildandi lögum og reglum, af hinum
færustu mönnum.
Þegar ákveðið er, að hefjast
handa við framkvæmdir á borð við
ráðhúsbygginguna, er það gert með
hagsmuni og þarfir framtíðarinnar
í huga. Að tíu árum liðnum, þegar
ráðhúsið verður komið í fulla notk-
un hafa Reykvíkingar og gestir
þeirra vanist á að sækja þangað
margvíslega þjónustu í fögru um-
hverfi. Þá munu miklu fleiri njóta
iðandi fuglalífs á Tjörninni en í
dag. Þá munu ekki margir ásaka
borgarstjómina, sem stóð fyrir
byggingu hússins. Það fólk, sem
harðast hefur gengið fram í að
reyna að koma í veg fyrir bygging-
una, kysi þá helst, að afskipti þess
af málinu væru gleymd og grafin.
Að lokum. Samviskuspuming til
reykvískra kjósenda:
Setjum svo, að borgaryfirvöld
hefðu látið þennan fámenna æs-
ingahóp kúga sig til að hætta við
byggingu ráðhússins. Mundir þú
treysta þeim sömu mönnum fyrir
stjóm borgarmálanna næsta
kjörtímabil?
Andavinur.
í»essir hringdu ..
Gullfesti týndist í
Reykjavík
Tvöföld gullfesti týndist í
Reykjavík fyrir um það bil viku.
Finnandi er beðinn að hringja í
síma 11366.
Marklausar fullyrðingar
Ólafs Ragnars
Guðmundur hringdi:
„Árás Ólafs Ragnars Grímsson-
ar á verðbréfafyrirtækin hefur
borið nokkurn árangur. Með órök-
studdum fullyrðingum hefur hann
skaðað hagsmuni fjölmargra spa-
riQáreigenda. Ef hann gæti sann-
að mál sitt, væru orð hans vissu-
lega þörf, en geti hann það ekki
eru fullyrðingar hans marklausar.
Þjóðin væntir þess, að Ólafur geri
betur grein fýrir máli sínu. Þá
sést hvort hann er bara að henda
reyksprengjum eða hefur eitthvað
til síns máls.“
Kettlingur fannst á
Bergstaðastræti
Svartur og hvítur högni fannst
á Bergstaðastræti síðastliðinn
mánudag. Hann er með bláa ól,
en ómerktur. Upplýsingar í síma
10539.
Gullúr týndist nálægt
Hollywood
Karlmannsgullúr týndist í ná-
grenni Hollywood aðfaranótt
laugardagsins 27. ágúst. Finnandi
hringi í síma 34953.
Um niðurfærsluleiðina
Lesandi hringdi:
„Niðurfærsla er næsta vís,
naumast vekur kæti.
(Hæg er leið til helvítis,
hallar undan fæti.)“
Þakkir fyrir dvöl í
Svartaskógi
Böðvar Guðmundsson, Hafn-
arfirði hringdi:
„Ég dvaldist í Svartaskógi_ á
vegum ferðaskrifstofunnar Ut-
sýnar 7. til 28. ágúst. Þetta var
alveg yndislegur tími og ég vil
þakka fararstjórunum fyrir sér-
staklega góða þjónustu. Samferð-
arfólkinu sendi ég einnig bestu
kveðjur.“
Sjóminjasafn í
Kveldúlfshúsinu
Torfi hringdi:
„Ég er sammála því að breyta
Kveldúlfshúsinu í sjóminjasafn.
Mér fínnst alveg til háborinnar
skammar að láta Hafnfírðinga sjá
um þetta, þegar við höfum þetta
hentuga hús undir safnið hér í
Reykjavík."
Samráð við staðarhaldara
nauðsynlegt
Þórir Stephensen, staðar-
haldari í Viðey hringdi:
„Borgarstarfsmaður hafði ný-
lega samband við Velvakanda
vegna ferðar Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar út í Viðey.
Hann var óánægður með ferðina,
því hópnum hafði ekki gefist tæki-
færi til að skoða Viðeyjarstofu.
Þessi ferð var farin án þess að
samráð hefði verið haft við staðar-
haldara eða Viðeyjarnefnd, en
hafi hópar áhuga á að skoða stof-
una er nauðsynlegt að samráð sé
haft við staðarhaldara. Þegar
þennan hóp bar að garði var eink-
asamkvæmi á efri hæð hússins
og fjöldi matargesta á þeirri neðri.
Við þær aðstæður var ekki unnt
að fara um húsið með jafn stóran
hóp og þarna var á ferðinni. Ég
vil að lokum láta þess getið, að
mér þætti vænt um að fá að
greiða götu þessa hóps einhvem
tímann síðar rneir."
Gerið verðsamanburð
Vetrartískan frá m.a.:
Roland Klein - Burberry -
YSLo.fl.
Búsáhöld - leikföng
- sælgæti - jólavörur o.fl.
Kr. 190.- (án burðargjalds)
B.MAGNÚSSON HF.
HÓLSHRAUNI2 - SÍMI52866
4
'i
!
Tveir kennslustaðir: „Hallarsel", Þarabakka 3 í
Mjóddinni og Auðbrekka 17, Kópavogi.
Kennum alln samkvæmisdansa: suðurameríska,
standard og gömlu dansana. Eimiig barnadansa
fyrir yngstu kynslóðina. Laugardagskennsla á
báðum stöðum. Nemendur skólans unnu 17 af
20 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum
1988.
lnnritun og upplýsingar dagana 1. - 10. .
september kl. 10 - 19 í síma: 641111.
Kennsluönnin er 15 vikur, hefst mánudaginn
12. september og lýkur með jólaballi.
FÍD Betri kennsla - betri árangur.
DANSSKÓU
SIGURÐAR
HÁKONARSONAR
EB NÝR DAGUR.