Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. SEFTEMBER 1988 IpRÖmR FOLK ■ A USTURRÍKISMENN, sem leika í sama riðli og Islendingar og Sovétmenn í HM, urðu að sætta sig við jafntefli, 0:0, gegn Ungveijum í Linz í Austurríki í rrkvöldi. JEAN-Marie Pfaff, landsliðs- markvörður Belgíu og fyrrum markvörður Byern Mtinchen, hef- ur ákveðið að ganga til liðs við Wimbledon. ■ V-Þ TSKALAND vann Finn- land, 4:0, í undankeppni HM í Helsinki í gærkvöldi. 31.693 áhorf- endur sáu Rudi Völler 2, Lothar Matthíius og Karl-Heinz Riedle skora mörkin. V-Þjóðveijar léku miög vel. ■ ANDERLECHT vann sinn fímmta sigur í röð í belgísu 1. deild- arkeppninni í gærkvöldi, með því að leggja Charleroi, 2:0. Genk mátti aftur á móti þola stórtap, 0:5, fyrir Standard Liege. ■ ERIC Cantona hefur nú sæzt við Henri Michel landsliðsþjálfara Frakka og beðið hann afsökunar á niðrandi ummælum um hann. Can- tona, sem er 22 ára miðframheiji og dýrasti leikmaður Frakklands, á þar með möguleika á að komast í franska landsliðið að nýju. ■ GOLFKLÚBBURINN á Hellu heldur opið golfmót sunnu- daginn 4. september á Strandar- velli og hefst það kl. 10:00. Skrán- ing fer fram á laugardag milli kl. 16 og 21. ■ KKÍ heldur A-stigs þjálfara- námskeið í öllum landshlutum í september, fáist næg þátttaka. N’amskeiðin eru sérstaklega ætluð þeim, sem hafa áhuga á unglinga- þjálfun og verður farið í undirstöðu- atriði í körfuknattleik. Meðal leið- beinenda verður Dr. Lazslo Ne- meth landsliðsþjálfari. Nánari upp- lýsingar og skráning er á skrifstofu KKÍ. ■ OPIÐ golfmótverður haldið í Stykkishólmi laugardaginn 3. september. Ræst verður út kl. 9:00 og leiknar 18 holur með og án for- gjafar. ■ STEVE Cram þurfti að hætta kegpni í 1000 metra hlaupi í gær á Italíu. Hann hoppaði út fyrir brautina þjáður af sársuka, lagðist síðan niður og tók um hægri fót- legginn. Cram átti einungis 200 metra ófama í markið og var fyrst- ur, þegar þetta átti sér stað. í sam- tali við fréttamenn sagði Cram að hann teldi þessi meiðsli sín ekki vera mjög alvarleg. Hann hefði hins vegar ákveðið að hætta að hlaupa þegar hann fann til sársaukans, því hann hefði ekki viljað taka neina áhættu. „Ef þetta hefði verið úr- slitahlaupið á Ólympíuleikunum hefði ég haldið áfram," sagði Cram. Sebastian Coe fylgdist með hlaup- inu úr áhorfendastúkunni, en ef meiðsli Crams teljast alvarleg, tek- ur hann stöðu hans í breska ólympíuliðinu. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Bogdan búinn að velja Einar Þorvarðarson og Qelr Svelnsaon úr Val eru á meðal þeirra sem valdir voru í landsliðshópinn í gærkvöldi, og leika því í Seoul. BOGDAN Kowalczyk, lands- liðsþjálfari í handknattleik, til- kynnti leikmönnum sínum í gœrkvöldi, hvaða 15 jjað verða sem leika fyrir hönd Islands á Ólympíuleikunum íSeoul. Bogdan valdi þijá markverði, og tólf aðra leikmenn. Átta leik- menn hafa því verið „skornir" úr þeim hópi sem æft hefur í sumar. Eftirtaldir leikmenn fara til Seoul (landsleikjafjöldi í sviga): Markverðir: Einar Þorvarðarson, Val......195 BrynjarKvaran, Stjörnunni....125 Guðmundur Hrafnkelsson, UBK .60 Aðrir leikmenn: Þorgils Óttar Mathiesen, FH..194 Jakob Sigurðsson, Val........152 Bjarki Sigurðsson, Víkingi......29 Karl Þráinsson, Víkingi.........77 Sigurður Gunnarsson, ÍBV.......151 Alfreð Gíslason, KR............144 Páll Ólafsson, KR..............175 Guðmundur Guðmundsson, Vík.192 Kristján Arason, Teka..........186 Geir Sveinsson, Val............141 Sigurður Sveinsson, Val........146 Atli Hilmarsson, Fram..........137 Þeir leikmenn sem ekki voru valdir eru því eftirtaldir: Þorbergur Aðalsteinsson, Saab .160 Júlíus Jónasson, Val...........106 Valdimar Grímsson, Val..........50 Hrafn Margeirsson, ÍR ’.........14 Birgir Sigurðsson, Fram.........13 Héðinn Gilsson, FH..............28 Júlíus Gunnarsson, Fram..........5 Ámi Friðleifsson, Víkingi.......23 KNATTSPYRNA / LANDSLEIKURINN Clive Baker „njósnari“ Wednesday: Amór bestur AÐAL „njósnari" enska liðs- ins Sheffield Wednesday, sem Sigurður Jónsson leikur með, Clive Baker, var á með- al áhorfenda á landsleiknum í gærkvöldi og sagðist hafa skemmt sér vel — sagði ís- lendinga óheppna að sigra ekki. Baker sagðist ekki hafa komið hingað til lands til að fylgj- ast með neinum sérstökum leik- mönnum. „En ég er fulltrúi 1. deildarfélags í Englandi og við verðum alltaf að hafa augun opin. Það verður æ algengara að leik- menn skipti á milli landa.“ Að- spurður hvað honum finndist um frammistöðu ísiensku leikmann- anna, sagði Baker, áð Amór Guðjohnsen hefði að sínu mati verið bestur — raunar mjög góður. Baker sagði einnig, aðspurður, hvort hann sem „njósnari" Wed- nesday myndi benda Wilkinson framkvæmdastjóra á einhveija sérstaka leikmenn sem gætu hentað í lið þeirra, að 2-3 íslend- inganna gætu vakið áhúga Wed- nesday ef þeir væru fáanlegir. „Amór að sjálfsögðu og ef leik- maður númer 13 [Guðmundur Torfason] væri fáanlegur held ég að hann passaði vel inn í lið eins og Wednesday. Og ef markvörð- urinn ykkar byggi í næsta húsi við okkur, myndum við örugglega hafa áhuga á honum! Hann er góður leikmaður," sagði Baker. KNATTSPYRNA Gunnar með tilboð frá sænsku liði! Mestar líkur á því að ég komi heim, segir hann. Gunnar Gíslason. SÆNSKT1. deildarlið hefur gert Gunnari Gíslasyni, lands- liðsmanni sem nú leikur með norska meistaraliðinu Moss, tilboð um að koma til Svíþjóð- arog leika þar. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hefur Gunnar ákveðið að koma heim eftir þetta keppnistímabil í Noregi og leika með sínum gömlu félögum í KA . næsta sumar. „Það eru 90% líkur á að það breytist ekkert hjá mér — að ég komi heim,“ sagði Gunnar í sam- tali við blaðamann í gærkvöldi. „Ég mun þó ræða við forráða- menn þessa félags um helgina. Tilboðið er spennandi, en ég veit ekki hvort ég nenni hreinlega að flytja til Svíþjóðar til að vera þar í 1 eða 2 ár áður en ég kem heim,“ sagði Gunnar Gíslason. Hann staðfesti að liðið væri frá Gautaborg og væri í efri hluta 1. deildar, en vildi ekki gefa upp hvert liðið væri. í Gáutaborg eru þijú lið — IFK Gautaborg og Örgryte, sem bæði leika í úrvalsdeildinni [Allsvensk- an] og Gais, sem leikur í 1. deild. Það mun því vera Gais sem hér um ræðir. KNATTSPYRNA / LANDSLEIKURINN Morgunblaðiö/Júlíus FyrirllAarnir, Atli Eðvaldsson og Rinat Dassajev, skiptast á homfánum fyrir •«. leikinn. „Voixim heppnir -sagði Morosov, þjálfari Sovétmanna u Leikurinn var mjög erfíður, og einkenndist af mikilli baráttu,” sagði Morozov, þjálfari sovéska landsliðsins, í samtali við Morgun- blaðið. „íslenska liðið tekur greini- lega stöðugum framfömm, og verð- ur betra og betra með hveiju árinu sem líður. Bestu leikmenn liðsins í þessum leik voru númer 4 (Pétur Ormslev), sem var sérstaklega góð- ur, og númer 7 og 9 (Arnór Guðjo- hnsen og Sigurður Grétarsson). Við spiluðum hins vegar ekki eins og við eigúm að okkur, sérstaklega í fyrri hálfleik, en þá var leikur okkar alltof hægur. Markið sem við fengum þá á okkur verður að skrif- ast á reikning vamarinnar. Eftir það fékk íslenska liðið mjög góð marktækifæri, sem hefðu gert út um leikinn. í seinni hálfleik höfðum við hins vegar yfirhöndina, en vorum samt heppnir að ná jafntefli," sagði Morozov að lokum. óiiI.fQ WJ4t rtofcíiaJnD -tulni) Rinat Dassajev Rinat Dassajev sagði að leikurinn hefði verið erfíður en ekki væri hægt að vera annað en ánægður með úrslitin. „Það er mjög erfitt að skora gegn íslenska liðinu, sérstaklega eftir að það hefur náð yfirhönd- inni,“ sagði þessi heimsfrægi mark- vörður og fyrirliði sovéska lands- liðsins, og þar með var hann rokinn út í rútuna, þar sem félagar hans biðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.