Morgunblaðið - 01.09.1988, Page 59
59
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR FEMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
Morgunblaöiö/RAX
Siguröur Grétarsson skilaði miðheij astöðunni með mikilli prýði. Á myndinni er hann réttur maður á réttum stað, knötturinn á leið í netið og angistarsvipur sovésku vamarmannanna leynir sér ekki...
Sókn er besta vömin
Sovétmenn
ÍSLENSKU iandsliðsmennirnir
í knattspyrnu sýndu svo sann-
arlega í gœrkvöldi að ekkert lið
leikur betur en mótherjarnir
leyfa. Sovétmenn, sem fóru á
kostum í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins fyrr t sumar og áttu
þá hvern snilldarleikinn á eftir
öðrum, fengu greinilega meiri
mótspyrnu á Laugardalsvellin-
um en þeir áttu von á. Þegar
upp var staðið fór ekki á milli
mála að þeir voru meira en
ánægðir með að hafa náð öðru
stiginu.
Ísjálfu sér er frábært að gera
jafntefli við silfurliðið úr síðustu
Evrópukeppni, en eins og leikurinn
þróaðist er í raun grátlegt að hafa
ekki farið með sigur
Steinþór af hólmi. Liðsheildin
Guðbjartsson var sterk og barátt-
skrifar an gaf rfkulegan
ávöxt — fjögur
dauðafæri sáu dagsins ljós áður en
Sovétmönnum tókst að klóra f
bakkann.
Virðingarleysi
Almennt er viðurkennt að Sovét-
menn hafa á að skipa einu besta
landsliði heims, en landslið íslands
var langt því frá að sína mótheijun-
um einhveija virðingu inni á vellin-
um. Það var komið til að bíta frá
sér, kom silfurhöfunum í opna
skjöldu með svo vel útfærðum sókn-
arleik og öruggum vamarleik lengst
af að sovéski „bjöminn" vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið og var
gersamlega ráðþrota.
Dómaratríóið frá Norður-írlandi
bar hins vegar ótakmarkaða virð-
ingu fyrir Sovétmönnum og sýndi
íslendingum að sama skapi virðing-
arleysi. Gestimir komust upp með
hvert fólskubragðið á .eftir öðru,
sem einkum og sér f lagi Ásgeir
og Amór fundu heldur betur fyrir.
Sókn
Landsliðið hefur oft verið sakað •
um að reyna ekki nægjanlega mik-
ið að sækja, en að þessu sinni var
hrósuðu happi og máttu þakka ‘fyrir annað stigið
annað upp á teningnum. Miðju-
mennimir héldu sóknarleik Sovét-
manna í skefjum og þegar á þurfti
að halda gripu öftustu menn vel inn
í. í framhaldi var sóknarleikurinn
vel útfærður, sem lauk með dauða-
fæmm iðulega eftir skemmtilegt
spil upp hægri kantinn.
Leikmenn vom hreyfanlegir,
þríhymingaspil gekk vel og hratt
fyrir sig og aðeins Dassajev mark-
vörður kom í veg fyrir að staðan
var ekki 3:0 í hálfleik.
Mark
Ásgeir gaf tóninn þegar á fímmtu
mínútu, skallaði naumlega framhjá,
en Sigurður Grétarsson var réttur
maður á réttum stað skömmu síðar.
Ólafur fékk knöttinn út við hægri
hliðarlfnu, sendi á Sævar, sem gaf
inn í teiginn. Khidiyatullin brást
Island - Sovétríkin
1 : 1
LaugardaJsvöllur, undankeppni HM I knattspymu, miðvikudaginn 31. ágúgt 1988.
Mark íslands: Sigurður Grétarsson (11.).
Mark Sovétríkjanna: Gennadfj Litovtsjenko (74.).
Gult spjald: Pétur Ormslev (66.), Vladlmfr Bessanov (66.).
D&mari: Alan Snoddy, N-írlandf.
Línuverðir: Oliver Donelly og Fred McKnight, N-írlandi.
Áhorfendur: 7982.
Lið Islands: Bjami Sigurðsson, Gunnar Gfslason, Atli Eðvaldsson, Pétur Ormslev, Guðni
Bergsson, Sævar Jónsson, Amór Guðjohnsen, Sigurður Jónsson, Sigurður Grétarsson
(Guðmundur Torfason vm. i 85. mín.), Ásgeir Sigurvinsson, Ólafur Þórðarson.
Lið Sovétrfkjanna: Rfnat Dassajev, Vladfmfr Bessanov (Igor Dobrovolskíj vm. á 60.
mín.), Vagiz Khidiyatullin, Oleg Kúznetsov, Anatolíj Demjanenko, Vaselíj Rats, Sergei
Alejnikov, Gennadíj Litovtsjenko, ALexandr Zavarov, Oleg Protasov, Alexej Mfkhajlitsj-
enko.
Morgunblaðið/RAX
... en fögnuður Amórs, Sigurðar og Gunnars er að sama skapi mikill.
bogalistin, hitti knöttinn illa, Sig-
urður nýtti sér mistökin og skoraði
örugglega af markteig framhjá
Dassajev, sem kom engum vömum
við. Jafnvel þeir bestu gera mistök,
en einnig þarf snilld til að notfæra
sér þau til hins ýtrasta.
Skjálfti
Sovétmenn fengu ekki frið til að
stilla strengi sína og markið setti
þá alveg út af laginu. Þeir virtust
allir sem einn fara á skjálftavakt-
ina, en íslenska liðið tvíefldist. Sig-
urður Grétarsson fékk gullið tæki-
færi til að bæta öðm marki við á
20. mínútu eftir sendingu frá ÓI-
afi. Sigurður fékk knöttinn einn og
óvaldaður inni í teig, en Dassajev
tókst að veija. 10 mínútum síðar
var Sigurður enn á ferðinni eftir
gott spil Ólafs og Amórs, en enn
lokaði hinn frábæri markvörður
markinu.
íslendingar héldu uppteknum
hætti fram í miðjan seinni hálfleik,
en þá kom besta marktækifærið
eftir hlé. Sigurður Jónsson gaf á
Amór, sem lyfti snyrtilega yfír
vamarmann og skaut úr þröngu
færi en naumlega framhjá §'ær-
stöng. Sigurður Grétarsson var ná-
lægt stönginni en „fraus" og þar
með rann vonin um rothöggið út í
sandinn.
Mistök
Skömmu áður skiptu Sovétmenn
sóknarmiðjumanni inná fyrir vam-
armann og varð sóknarleikur þeirra
mun beittari fyrir vikið. Samt virt-
ist sem þeir ætluðu ekki að hafa
árangur sem erfíði, en þá kom áfall-
ið. Bjami varði meistaralega frá
Zavarov, hélt ekki knettinum, vam-
armennimir horfðu á, Litovchenko
var ekki seinn á sér og jaftiaði með
lausu skoti í hliðametið fjær.
Töf
Jöfnunarmarkið var gegn gangi
leiksins, en það raskaði yfirvegun
íslensku vamarmannanna og þeir
og aðrir geta þakkað Bjama mark-
verði fyrir að gestimir „stælu“ ekki
sigrinum 10 mínútum fyrir leikslok.
Síðustu mínútumar fóm Sovét-
menii sér rólega, sættu sig við orð-
inn hlut og héldu knettinum sem
lengst.
Áhorfendur
Tæplega átta þúsund áhorfendur
greiddu aðgangseyri. Þeir sáu mjög
góðan leik, en það vekur óneitan-
lega athygli að fleiri skulu ekki
mæta og styðja við bakið á íslenska
liðinu, sem þarf á öllum tiltækum
stuðningi að halda til að ná settu
marki — sæti í úrslitakeppninni á
Ítalíu 1990.