Morgunblaðið - 04.09.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988
Niðurfærsluleið for-
stj óraiiefndarinnar bitnar
harðast á launum kvenna
eftirMagnús
L. Sveinsson
Morgunblaðið varar við
skerðingu lægstu launa
í leiðara Morgunblaðsins 20.
ágúst sl. þar sem rætt er um efna-
hagsvandann, sem þjóðin býr nú
við, og leiðir til úrbóta segir m.a.:
„Samdráttaraðgerðir mega því ekki
miða að því að skerða kjör ellilífeyr-
isþega, einstæðra foreldra, lág-
launafólks eða fólks í kröggum á
húsnæðismarkaðinum. Þar er enga
óhóflega þenslu að flnna." Ég vil
taka sérstakiega undir það sjónar-
mið, sem kemur fram í þessum orð-
um leiðarahöfundar Morgunblaðs-
ins. Hér er komið að kjama máls-
ins, sem taka verður fullt tillit til
við væntanlegar efnahagsaðgerðir,
sem nú eru í undirbúningi.
Onnur hver kona með
laun undir 40.000
í bréfl Kjararannsóknamefndar,
sem var að koma út, kemur fram
að 49% kvenna við afgreiðslustörf
vom með laun undir 40.000 kr. á
mánuði fyrir dagvinnu á fyrsta árs-
flórðungi þessa árs og 88% vom
með laun undir 50.000 kr. á mánuði.
Þessar tölur sýna að meginþorri
kvenna við afgreiðslustörf em á
strípuðum launatöxtum. Stór hluti
kvenna við skrifstofustörf em einn-
ig á slíkum launatöxtum. Sama má
ÁS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
Íl_L
SftuBtaaagw .J&iriiææŒnrD & <§®
V££TUfiGOTU 16 SrMAB 1*660 21A0O
segja um fjölda annarra starfshópa
eins og verkafólk og hluta starfs-
manna hjá ríki og sveitarfélögum.
Þetta fólk, sem er að miklum
meiri hluta konur, er á umsömdum
launatöxtum, sem em á bilinu
38.000 til 55.000 krónur á mánuði.
Það segir sig sjálft að fóik á þessum
launum er ekki aflögufært og má
ekki við að laun þess séu skert.
Þetta fólk ber ekki ábyrgð á þeirri
þenslu og þeim erfiðleikum sem
þjóðin á nú við að stríða. Orsakanna
er að leita allt annars staðar einsog
allir vita. Þð væri því hróplegt rang-
læti sem ekki er hægt að una við
ef lækka á laun þessa fóiks, eins
og forstjóranefndin gerir tillögu um,
sem ieið til þess að komast út úr
þeim efnahagsvanda sem við er að
etja.
Staða fyrirtækja misjöfn
Ég efast ekki um að flestir gerir
sér grein fyrir, að vissir þættir at-
vinnulífsins, tiltekin fyrirtæki, eiga
í erflðleikum og nauðsynlegt er að
grípa til aðgerða til að tiyggja
rekstrargmndvöil þeirra svo að sem
mest atvinnuöiyggi verði áfram
tryggt í landinu. Það er hins vegar
mikil blekking að láta eins og öil
fyrirtæki í landinu séu á hausnum
og þess vegna sé nauðsynlegt að
iækka laun alira, með lagaboði.
Nógir peningar til
fjárfestingar og sífellt
meiri yfirvinnu
í því sambandi vil ég t.d. benda
o
á hina gífurlegu Q'árfestingu, svo
skiptir tugum miiljarða króna, í
ýmsum starfsgreinum að undan-
fömu og ekkert lát virðist vera á
nema síður sé. Slíkt bendir til mik-
illa erfiðleika hjá fyrirtækjum.
Þá vekur það einnig athygii, að
á sama tíma og forstjóranefndin
leggur til að dagvinnulaun fólks
með 38.000—55.000 kr. verði lækk-
uð sækja forstjórar stórra fyrir-
tækja það mjög fast að lengja enn
yflrvinnutíma starfsfólksins og hafa
í hótunum við stéttarfélög að virða
að engu ákvæði kjarasamninga um
frítíma fólks, ef þau samþykkja
ekki kröfu þeirra um enn meiri yfir-
vinnu. Það virðast sem sagt nógir
peningar vera til að greiða sífellt
lengri yfírvinnu, sem er þó um 80%
dýrari en dagvinnan, sem forsijóra-
nefndin leggur til að verði lækkuð.
Engin trygging að
öll laun lækki jafnt
Forsendur fyrir því að efnahags-
aðgerðir sem nauðsynlegt er að
grípa til eins og nú er ástatt í þjóð-
félaginu heppnist, eru að þær komi
sem réttlátast niður á þegnunum.
í því sambandi er nú sagt að ailir
verði að taka á sig jafnar byrðar.
Láður í því „réttlæti" að mati for-
stjóranefndarinnar er að lækka laun
fólks, sem er á hinum lágu launa-
töxtum um 9%. Skoðum þetta „rétt-
læti“ nánar.
í fyrsta iagi eru laun skv. um-
sömdum launatöxtum, og getið er
að framan, svo lág, að það er ekk-
Magnús L. Sveinsson
„í bréfi Kjararannsókn-
arnefndar, sem var að
koma út, kemur fram
að 49% kvenna við af-
greiðslustörf voru með
laun undir 40.000 kr. á
mánuði fyrir dagvinnu
á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs og 88% voru
með laun undir 50.000
kr. á mánuði.“
ert sem réttlætir það, að þeir séu
skertir enda þótt að eitthvað af
fyrírtækjum í landinu eigi í erfið-
leikum. Það verður einfaldlega að
tiyggja rekstrargrundvöll fyrir-
tækjanna með öðrum ráðum en að
lækka þessa lágu launataxta, sem
allir viðurkenna að eru svo lágir
að enginn geti lifað af þeim. Þeir
sem gera slíkar tillögur ættu að
sýna fólki hvemig þeir færu að því
að lifa á þessum launum.
í öðm lagi er engin tiygging
fyrir því að iagaákvæði sem kvæði
á um að laun skuli lækka um 9%
næði til allra launþega. Það sem
menn geta þó verið alveg vissir um
er að með slíku lagaboði myndu öll
laun samkvæmt umsömdum launa-
töxtum, þ.e. lægstu launin, lækka.
Það er hins vegar engin trygging
fyrir því, að laun sem einstakir
vinnuveitendur hafa ákveðið ein-
hliða og em sum miklu hærri en
launataxtamir segja til um myndu
lækka. Ég hefí rejmdar heyrt vinnu-
veitendur sem greiða yflr umsamda
taxta segja, að þeim komi ekki til
hugar að lækka laun hjá sínu starfs-
fólki og sumir hafa bætt því við,
að þeir myndu skammast sín fyrir
að lækka launin hjá starfsfólki sínu.
Menn geta því verið vissir um
að launalækkunin myndi koma að
fullu til framkvæmda hjá þeim, sem
lægstu launin hafa, en ekki nema
að hluta hjá þeim sem hærri laun
hafa.
Myndi leiða til
mikils óréttlætis
Það er því alveg ljóst, að niður-
færsluleiðin samkvæmt hugmynd-
um forstjóranefndarinnar myndi
leiða til mikils óréttlætis í landinu
og bitna harðast og þyngst á þeim
sem minnst bera úr býtum í þjóð-
félaginu og auka enn á þann ójöfli-
uð, sem ríkir í kjörum fólks. Við
slíkt er ekki hægt að una. Þess
vegna verður að koma í veg fyrir
að þessar hugmyndir hennar nái
fram að ganga.
Höfundur er formaður Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur.
ÍÞRÓTTAFÓLK OG ÞJÁLFARAR
Þrekhringurinn fyrirþá bestul
ALFREÐ GÍSLASON LANDSLIÐSMAÐUR
Þrekhringurinn og eróbikkleikfimi eru mjög góð til uppbyggingar á
þreki og úthaldi. Tónlistin er hvetjandi og aðstaðan í Stúdíói Jónínu
og Ágústu er stórfín. Ég hvet íþróttafólk til þess að sækja þessa
tíma allt árið um kring og þjálfara til þess að notfæra sér þær *
góðu teygjuæfingar, úthalds- og snerpuæfingar sem þar er boðið
upp á. Að komast fjarri venjulegu æfingasölum í skemmtilegt and-
rúmsloft geriröllum íþróttaliðum gott.
Sjáumst íStúdíói Jónínu og Ágústu.
ýttuUc
f STÚDÍÓ JÓNÍNU & ÁGÚSTU
SKEIFUNNI 7 SÍMI: 68 98 68
Höföar til
„fólks í öllum
starfsgreinum!
3 DAGA UTSALA
íTOPPSKÓNUM, VELTUSUNDI FRÁ S. WAAGE
KRINGLUNNI OG DOMUS MEDICA
ALLT SELSTINNAN VIÐ 995 KR.
KRINGLUNNI - DOMUS MEDICA
M
SE0RIHN
VELTUSUNDI 1
21212