Morgunblaðið - 14.09.1988, Síða 46
46
fclk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
rithöfundur og
SELFOSS
Oseyrarbrú fagnað
Gestir í brúarsam-
sætinu voru rúm-
lega 300. Hér eru
fremstir á mynd-
inni nokkrir brú-
arsmiðanna.
easVU1 °
Eftir formlega opnun Óseyrarbrúar yfir Ölf-
usárósa 3. september bauð samgönguráð-
herra til samsætis í Hótel Selfoss. Það sátu
rúmlega 300 gestir. Matthías Á. Matthiesen tók
á móti gestum og bauð þá velkomna.
COSPER
— Nú verð ég að gefa í, ef við eigum að sleppa yfir
gatnamótin.
Það kom fram í stuttum ávörpum sem flutt
voru í samsætinu að opnunarathafnarinnar
hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Þetta kom greinilega fram hjá einum gestanna
er hann heilsaði forsætisráðherra og sagði:„
Maður lifði það þá.“
Tilkomu brúarinnar var fagnað í nokkrum
stuttum erindum sem flutt voru. Þar var tveggja
manna sérstaklega getið sem mikilla baráttu-
manna fyrir brúnni, þeirra Sigurðar Óla Ólafs-
sonar, fýrrum odvita á Selfossi og alþingis-
manns, og Vigfúsar Jónssonar, fyrrum oddvita
á Eyrarbakka.
Aðalverktakar að brúnni, SH verktakar,
þökkuðu fyrir sig með því að afhenda Snæbimi
Jónssyni vegamálastjóra og Magnúsi Karel
Hannessyni hvorum um sig litmynd af brúnni.
Samkoman í Hótel Selfossi stóð í rúma tvo
tíma sem menn notuðu til að spjalla saman og
það var mál manna að þessi nýja leið með
ströndinni opnaði nýtt og athyglisvert sjónar-
hom sem fæstir þekktu. Einn gestanna komst
svo að orði að það væri líkt og að aka með
stóru stöðuvatni þegar litið væri yfir Ölfusá-
rós. Annar sagði það hljóta að vera tilkomumik-
ið að aka yfír brúna þegar hraustlega brimaði
úti fyrir.
Tií að kynna baráttusögu brúarinnar settu
Eyrbekkingar upp sögusýningu í félagsheimil-
inu á Stað. Þar voru ljósritaðar heimildir og
blaðagreinar um brúarbaráttuna. Þangað fjöl-
menntu heimamenn og aðrir og drukku sitt
brúarkaffi á opnunardaginn.
— Sig. Jóns.
Islands
úfífstjómaídi Ra0gnarB^arnason.
alvinningur kr.
darverðmæti vinmnga kr. 300.000 .
Okeypis aðgangur.
mzzs*;
bingó
á Hótel íslandi
fimmtudagskvöldið 15. sept. kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 19.30.