Morgunblaðið - 16.09.1988, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988
Þegar þú innleysir spariskírteini
í Búnaðarbankanum færðu trausta
leiðsögn í peningamálum.
Búnaðarbankinn veitir alla þjónustu við innlausn á
spariskírteinum ríkissjóðs, kaup á nýjum spariskírteinum
eða val á öðrum sparnaðarleiðum.
Bankinn annast innlausn spariskírteina í öllum
afgreiðslustöðum sínum, en nú í september eiga margir
eigendur spariskírteina kost á að innleysa þau.
Sérfræðingar bankans veita góð ráð í peningamálum. í
mörgum tilvikum er tvímælalaust rétt að innleysa spari-
skírteini og huga að kaupum nýrra skírteina eða öðrum
sparnaðarkostum. í öðrum tilvikum kemur til álita að
fresta innlausn.
Við bendum þeim sem innleysa spariskírteini
sín á eftirfarandi sparnaðarkosti.
1. Gullbók og Metbók sem báðar gáfu mjög
góða raunávöxtun á fyrra árshelmingi.
2. Bankabréf Búnaðarbankans til 2-5 ára
með 9,25% raunávöxtun á ári.
3. Ný spariskírteini ríkissjóðs sem fást í
Búnaðarbankanum. Þau eru til 3-8 ára og
gefa 7-8% raunávöxtun.
Bankinn hefur opnað nýja afgreiðslu í
Hafnarstræti 8, 1. hæð, sem annast viðskipti
með Bankabréf Búnaðarbankans og spari-
skírteini. Leitaðu ráðgjafar í traustum banka.
BINAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
Bygífing grunnskólans í Hveragerði.
Fj ölskyldudagur
í Hveragerði
m VIÐ BYGGJUM skóla“ eru ein-
kunnarorð Fjölskyldudagsins í
Hveragerði sem verður nk. laug-
ardag, 17. september, á leikvell-
inum við grunnskólann.
Dagskráin hefst á leikvelli
grunnskólans kl. 14.
Fyrr í þessum mánuði flutti
gagnfræðaskólinn í nýbyggingu við
bamaskólann en frá og með þessu
skólaári starfa báðir skólamir sam-
einaðir undir .nafni Gmnnskólans í
Hveragerði.
Undanfamar vikur hefur fjöldi
fólks lagst á eitt að ljúka fram-
kvæmdum við skólann, svo að
kennsla geti hafist á réttum tíma.
Iðnaðarmenn hafa lagt nótt við dag
og ekki hafa foreldramir látið sitt
eftir liggja, því að m.a. hafa þeir í
sjálfboðavinnu sett upp leiksvið í
samkomusal skólans. A laugardag-
inn kemur taka Foreldrafélagið,
Skátafélagið og Ungmennafélagið
höndum saman og efna til Fjöl-
skyldudags á skólavellinum undir
lqörorðinu „Við byggjum skóla".
Tilgangurinn er að afla fjár til
að setja upp leiktæki á skólalóðinni
og treysta aðstandendur á að Hver-
gerðingar og Ölfusingar á öllum
aldri fjölmenni og leggi sitt af mörk-
um til uppbyggingarstarfsins.
(Úr fréttatilkynningu.)
Rit um stöðu
kynjanna á
N or ðurlöndum
ÁRIÐ 1984 hófu hagstofumar á sem gefinn var út I tilefni af
Norðurlöndum samvinnu um Kvennaráðstefnu Sameinuðu
söfnun hagtalna um stöðu kynja. þjóðanna í Nairobi 1985. í fram-
Fyrsti árangurinn af því starfi haldi af því ákváðu hagstofurnar
var bæklingurinn „Konur og að unnið skyldi að gerð ítarlegra
karlar á Norðurlöndum 1985“ rits með tölulegum upplýsingum
um stöðu kynjanna á Norður-
löndum.
Sælkeravörur
Á verði fyrir alla.
JOHN WEST
í veisluna,
hversdagsmatinn
eða nestispakkann
Stórar sardínur.
Krabbi.
Túnfiskur í olíu,
JOHN WEST
Gæðaframleiðsla
úr 1. flokks
hráefni
4 tegundir:
Karrýsósa
Barbequesósa
Majones/maísbaunir
Tómatsósa
Einkaumboð:
/////
A mprí Rlra
Undanfarin tvö ár hefur verið
unnið að þessari bók, og kom hún
út í lok júlí sl. og var þá lögð fram
á Kvennaráðstefnunni í Osló. Bókin
nefnist „Kvinnor och mán í Norden.
Fakta om jámstalldheten 1988“.
(„Konur og karlar á Norðurlöndum.
Staðreyndir um stöðu kynja 1988“.)
í bókinni er með töflum, myndum
og skýringartexta brugðið ljósi á líf
og starf kvenna og karla á Norður-
löndum og dregið fram það sem er
líkt og ólíkt í þessum efnum í lönd-
unum fimm. Bókin sýnir glöggt, að
heimur kvenna og karla er ólíkur
og aðstæður misjafnar.
Samstarfshópur á vegum hag-
stofanna á Norðurlöndum safnaði
og vann úr tiltækum upplýsingum.
Af hálfu Hagstofu íslands vann
Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóðfé-
lagsfræðingur, að gerð bókarinnar.
Bókin er skrifuð á sænsku og
norsku en aftast eru ágrip á öllum
Norðurlandamálunum, auk ensku.
Bókin „Konur og karlar á Norð-
urlöndum" er gefin út af Norrænu
ráðherranefndinni og kostuð af
henni, ásamt Hagstofu Norður-
landa í Kaupmannahöfn, af jafn-
réttisráðum í Finnlandi og á íslandi
og hagstofum landanna fimm. Bók-
in er til sölu á Hagstofu íslands og
hjá Jafnréttisráði.
(Fréttatílkynningf)
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!