Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 64
Grindavík:
Vöknuðu upp
við vélbyssu-
gelt frá þyrlu
Grindavík.
FJÖLDI Grindvíkingu, sem búa
vestast í bænum, vaknaði upp
mnótt eina fyrir síðustu helgi við
vélbyssugelt og drunur frá varn-
arliðsþyrlu. Páll Gíslason sá
þyrlu frá vamarliðinu fljúga lágt
yfir girðingunni umhverfis flar-
skiptastöðina, skammt frá vest-
ustu húsunum og stóðu eldglær-
ingamar út úr hríðskotabyssu
þyrlunnar í allar áttir.
„Fyrst trúði ég þessu ekki og
hélt ég sæi ofsjónir," sagði Páll.
„Það var ekki fyrr en ég fór út að
ég sá að þetta var ekki draumur.
Mér varð rórra þegar þyrlan hvarf
hálftíma seinna í vesturátt yfír fjar-
skiptastöðinfli. Klukkan var að
verða tvö um nóttina og var vél-
byssugeltið stöðugt í u.þ.b.
hálftíma," sagði Páll.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar
aðalvarðstjóra hefur lögreglu-
skýrsla um málið verið send ut-
anríkisráðuneytinu. „Lögregla á
Keflavíkurflugvelli fékk þær upp-
lýsingar hjá hemum að verið væri
að æfa vamaraðgerðir ef ráðist
yrði á stöðvar hersins en engin til-
kynning var gefín út eins og skylt
er,“ sagði Sigurður.
Tveir íslenskir fjallgöngu-
menn týndir í Himalaya
TVEGGJA íslenskra §all-
göngumanna, Þorsteins Guð-
jónssonar og Kristins Rún-
arssonar, hefur verið saknað í
Himalayaflöllum frá 18. þessa
mánaðar. Leit hefur ekki borið
árangur. Þeir félagar, sem era
báðir 27 ára gamlir og í hópi
reyndustu Qallamanna lands-
ins, héldu til Nepal i september-
mánuði, ásamt tveimur félög-
um sínum, Jóni Geirssyni og
Stephen Aisthorpe, skoskum
manni. Þeir hugðust ganga á
Qallið Pumo Ri, sem er 7.145
metra hátt, fara upp vesturhlið
og upp á suðausturhrygg.
Pumo Ri er í nágrenni hæsta
fjalls jarðar, Mt. Everest.
Að lokinni dvöl í höfuðborginni
Katmandu, þar sem tilskilinna
leyfa var aflað frá stjómvöldum,
héldu þeir til flallahéraða Iandsins
þann 24. september. Að rótum
fjallsins komu þeir 2. október og
settu þar upp aðalbúðir í um 5.000
metra hæð. Þann 5. október héldu
þeir á fjallið, settu upp fyrstu
búðir en héldu aftur niður. Sama
dag skrifuðu þeir félögum sínum
bréf, sem barst heim í síðustu
viku. Þá vom þeir við góða heilsu
og ferðin hafði gengið að óskum.
15. október hélt Jón Geirsson til
byggða af heilsufarsástæðum, rif-
bein hafði losnað og hann átti í
öndunarerfíðleikum. Jón var 8
daga á ieið til byggða og við komu
til Katmandu hélt hann rakleiðis
til Parísar, þar sem hann er bú-
settur.
Kristinn Rúnarsson
Hinn 17. október héldu Þor-
steinn og Kristinn aftur úr aðal-
búðum og upp hlíðar fjallsins.
Stephen Aisthorpe var þá með
iðrakveisu og treysti sér ekki með
þeim í ferðina en fylgdist með úr
búðunum. Félagamir lögðu upp í
björtu veðri en köldu og vinda-
sömu og komu í fyrstu búðir.
Aðrir hópar göngumanna vora þá
ekki við fjallið. Um klukkan 14
þriðjudaginn 18. sá Aisthorpe til
þeirra á leið yfír ísilagða brekku.
Lína var á milli félaganna og virt-
ist ganga að óskum. Aisthorpe
missti sjónar á þeim er þeir fóra
fyrir hvarf og sá ekki til þeirra
eftir það. Þegar ekkert sást til
Þorsteins og Kristins daginn eftir
sendi Aisthorpe innfæddan
Þorsteinn Guðjónsson
„hlaupara" til byggða en hélt
sjálfur til leitar. Hann leitaði einn
um svæðið í þrjá daga en á ij'órða
degi, þann 22., kom þyrla til að-
stoðar. Þá og á sunnudag var
henni flogið um svæðið en einskis
varð vart. Að sögn Björns Vil-
hjálmssonar formanns íslenska
alpaklúbbsins er venja í Himalaya
við aðstæður sem þessar að eftia
ekki til frekari leitar nema að ósk
ættingja og þá á kostnað þeirra.
Bjöm sagði að í dag yrði haft
samband við utanríkisráðuneytið
og óskað eftir að það hefði milli-
göngu um frekari leit.
Pumo Ri er 48. hæsta flall
Himalaya og liggur við landa-
mæri Nepals og Tíbets. í fjall-
garðinum era 15 flöll hærri en
8.000 metra yfír sjávarmáli og
um eitthundrað hærri en 7.000
metrar. Að sögn Bjöms Vilhjálms-
sonar hafa Þorsteinn og Kristinn
um árabil verið í fremstu röð hér-
lendra fjallgöngumanna. Þetta
var þriðrja ferð Þorsteins til Hima-
laya, Kristinn hafði farið einu
sinni áður, einnig Jón Geirsson.
Þeir höfðu áður klifíð um 6.800
metra hátt fjall í Perú.
Kristinn Rúnarsson er tölvun-
arfræðingur. Þorsteinn Guðjóns-
son er verkamaður. Þeir eiga báð-
ir unnustur. Unnusta Kristins
gengur með bam þeirra.
Síðustu daga hafa sex tékkn-
eskir Qallgöngumenn farist í
Himalaya, lík tveggja era fundin
en flögurra er saknað.
Morgunblaðið/Sverrir
SIGURBROSIÐ
Garrí Kasparov heimsmeistari í skák tryggði sér sigur á Heims-
bikarmótinu í gærkvöld með því að gera jafntefli við Nikolic. Þeg-
ar um jafnteflið var samið var farið að halla undan fæti hjá
Beljavskíj í viðureigninni við Spasskíj. Hér sjást Kasparov, Tal og
Andersson fylgjast með síðustu leikjunum í skákinni áður en
Beljavskíj gafst upp. Er ekki laust við að sigurbros leiki um varir
heimsmeistarans.
Sjá frétt á bls. 2, skákskýringar á bls. 62-63 og viðtal við
Kasparov á miðopnu.
Greenpeace verðlaun-
ar Long John Silver’s
„ÞAÐ HEFUR ekkert verið um
neitt samstarf milli Jerrico og
Greenpeace að ræða varðandi
hvalveiðimál og ekkert samstarf
af því tagi er fyrirhugað. Allt
og sumt sem gerðist i dag var
að fulltrúar Greenpeace komu i
heimsókn og afhentu okkur við-
urkenningu fyrir það sem þeir
túlkuðu sem liðveizlu okkar i
baráttu þeirra gegn hvalveið-
um.“ Þetta sagði Brace Cotton,
talsmaður bandaríska fyrirtæk-
isins Jerrico, sem á Long John
Silver’s veitingahúsakeðjuna, i
samtali við Morgunblaðið í gær.
Fyrr um daginn hafði fulltrúi
Greenpeace tjáð Morgunblaðinu
að i uppsiglingu væri samstarf
samtakanna og Jerrico og að
fyrirhugaður væri sameiginleg-
ur blaðamannafimdur þeirra.
„Það var ekki um neinn blaða-
mannafund að ræða hvorki í dag
né síðar. Þeir báðu um að fá að
koma í heimsókn hingað til okkar
í tengslum við stjómarfund. Þar
afhenti Campbell Plodden, fulltrúi
Greenpeace, John E. Tobe, forstjóra
Jerrico, styttu af langreyði með
kálf. Við það tækifæri þakkaði hann
Jerrico fyrir að hafa hætt að kaupa
físk af Sambandinu [Iceland Sea-
food, dótturfyrirtæki Sambandsins]
og sagði það mikilvægt framlag í
baráttu umhverfissinna gegn hval-
veiðum.
Mér er kunnugt um að Green-
peace sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu um veitingu viðurkenningar-
innar. En það var ekki haldinn neinn
blaðamannafundur.
Skipasmfðastöðin Mánavör á
Skagaströnd leggur að öllum
líkindum fram kröfu um löghald
f Þóri Jóhannssyní GK f dag, að
sögn Adolfs J. Berndsens, stjóra-
arformanns Mánavarar og odd-
vita Höfðahrepps.
„Eigendur bátsins geta ekki ráð-
stafað honum að eigin vild eftir að
löghald hefur verið framkvæmt í
honum," sagði Adolf í samtali við
Morgunblaðið. „Til að því verði af-
létt þurfa eigendumir að ganga frá
Brace Cotton sagði að í dag yrði
haldinn hluthafafundur hjá Jerrico.
Vísindaveiðar íslendinga væra þar
ekki á dagskrá né viðskipti við
ísienzka fiskframleiðendur. Hins
vegar yrði ekki hægt að komast
hjá umræðum um það mál ef spum-
ingar þar að lútandi kæmu fram á
fundinum.
tryggingum fyrir greiðslu á þeim
12 milljónum króna sem þeir skulda
Mánavör og undirverktökum við
smíði bátsins.
Það hefur dregist að afhenda
bátinn vegna þess að greiðslur
vegna vinnu við hann hafa verið
vanefndar og búið er að umbreyta
bátnum frá upphaflegum áætlun-
um. Eigendur bátsins höfðu ekki
leyfí til að sigla honum sjálfir þar
sem siglingaleyfi Siglingamála-
stoftiunar var stílað á Mánavör,"
sagði Adolf J. Bemdsen.
Þórir Jóhannsson GK:
Mánavör óskar eftir
löghaldi á bátinn