Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.JUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 5 Hús Guðjóns Samúelssonar til Arkitekta- félagsins Olögleg möskvastærð: Skipstjóri Friggjar hlaut 120 þúsund króna sekt SKIPSTJÓRA togarans Friggjar VE 41, sem tekinn var að ólögleg- um veiðum á föstudag, hefur verið gert að greiða 120 þúsund króna sekt til ríkissjóðs og 10 þúsund krónur í málskostnað. Varðskipið Ægir kom að Frigg að veiðum um 10 sjómflur vest- norð-vestur af Deild á föstudag. Reyndist skipið með ólögleg veiðar- færi, þar sem möskvastærðin var undir leyfílegum mörkum, sem eru 155 mm á þessu svæði. Togarinn var því færður til hafnar á Isafírði og á sunnudag var gerð dómssátt í málinu hjá embætti bæjarfógeta þar. Að sögn Péturs Kr. Hafstein, bæjarfógeta á ísafírði, var í ákæru málsins nefnt að togarinn hefði verið að veiðum á svæði þar sem allar togveiðar væru bannaðar. Þetta væri hins vegar ekki rétt, því samkvæmt reglugerð frá því í ágúst sl. væri heimilt að veiða á þessu svæði frá 1. október fram til ára- móta. Skipið hefði því ekki verið statt að veiðum á bannsvæði, en skipstjórinn gerst brotlegur við reglugerð um möskvastærð botn- vörpu. Slík brot mætti afgreiða með dómssátt og hefði sá kosturinn ver- ið tekinn í samráði við embætti ríkissaksóknara, sem þá afturkall- aði ákæru í málinu. Hins vegar væri það sjávarútvegsráðuneytisins að ákvarða um upptöku ólöglegs afla samkvæmt sérstökum lögum og hefði þeim þætti málsins verið vísað þangað. Fyrir skömmu var báturinn Una í Garði GK 100 staðinn að ólögleg- um veiðum út af Vestfjörðum og var þá hið sama upp á teningnum og með Frigg; möskvastærðin var of lítil. Þá var skipstjóranum gert að greiða 282 þúsund króna sekt, auk þess sem veiðarfæri og afli voru gerð upptæk. Pétur sagði að ef til vfll hefði embætti bæjarfóget- ans á ísafirði átt að afgreiða mál Unu í Garði á sama hátt og mál Friggjar, þar sem um sambærilegt brot hefði verið að ræða. Ákært hefði verið í báðum málunum, en við nánari skoðun á seinna málinu hefði verið litið svo á að eingöngu væri um að ræða brot á reglum um veiðarfæri. Hins vegar væri hægt að áfrýja dómi í málu Unu í Garði ef mönnum sýndist svo. Morgunblaðið/Bjami Skólavörðustígur 35, hús Guð- jóns Samúelssonar húsameistara ríkisins. Arkitektafélag íslands hefur nú fengið til sin eignarhlut sinn i húsi þvi, sem Guðjón Samúelsson átti og bjó i. Guðjón ánafnaði Arkitektafélaginu sinn eignar- hluta, tvo þriðju hluta hússins, i erfðaskrá sinni. Guðjón lést árið 1950. Margrét Einarsdóttir, átti þriðjung húseignarinnar og sam- kvæmt erfðaskrá Guðjóns skyldi hún fá að búa i húsinu og nýta fasteignina á meðan hún lifði. Margrét lést siðastliðið vor og hefiir því Arkitektafélagið nú fengið þann arf, sem þvi var ánafnaður fyrir 38 árum. Margrét Einarsdóttir arfleiddi hins vegar Hallgrímskirkju að sínum eignar- hluta hússins. Lárus M. Bjömsson hjá Arkitekta- félagi íslands sagði í samtali við Morgunblaðið að félagið hefði yfir- tekið húsið með gildandi leigusamn- ingi og þegar sá samningur rennur út verður húsið væntanlega selt. Lárus sagði þetta hús eiga sér merka sögu að baki. Auk Guðjóns Samúels- sonar, sem var húsameistari ríkisins og arkitekt Hallgrímskirkju og fleiri merkra bygginga, bjó þar Jónas Jónsson frá Hriflu. Húsið, sem er að Skólavörðustíg 35 í Reykjavík, var einnig fyrsta aðsetur Samvinnu- skólans. Féll af §órðu hæð en meidd- ist lítið MAÐUR féll af svölum á Qórðu hæð fjölbýlisliúss við Völvufell í Breiðholti skömmu fyrir kl. 8 að morgni sunnudags. Hann lenti á grasflöt og hlaut af óveruleg meiðsli. Maðurinn hafði verið í samkvæmi í íbúð á fjórðu hæð um nóttina. Þeg- ar hann var kominn út úr húsinu uppgötvaði hann að jakki hans hafði orðið eftir í íbúðinni. Ekki tókst manninum að ná sambandi við húsr- áðendur og komast inn aftur. Því ákvað hann að klifra upp húshliðina og fara inn um svaladymar til að ná í jakkann. Ferð hans upp gekk að óskum, að öðru leyti en því að hann komst ekki inn til að endurheimta jakka sinn, en þegar hann var á leið niður aftur og var utan á svölunum á fjórðu hæð missti hann fótfestuna og féll til jarðar. VIÐ HREINSUM TIL í FYRIKIÆKJUM á höfuðborgarsvædinu og Akureyri Securitas hf. ræstingardeild hefur innan sinna raða 180 manns sem daglega gera hreint í tugum fyrirtækja á stórreykjavíkursvæðinu ogáAkureyri. Við gerum þér tilboð án skuldbindinga! RÆSTINGARDEILD Sími 687600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.