Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 Uppskeran betri en bændur þorðu að vona og regni og þegar veðurguðimir skammta þetta ekki í réttum hlut- föllum er ekki von til þess að upp- skeran verði góð. Þó fínnst okkur kartöflubændum að uppskeran sé betri en við þorðum að vona miðað við veðurlag sumarsins. í fyrsta lagi var sett niður í vor í seinna lagi vegna veðráttunnar. Júní- mánuður var síðan afskaplega þurr og í lok þess mánaðar brast á hvassviðri mikið sem skemmdi garða sums staðar. Júlímánuður var nokkuð eðlilegur, en í ágúst- mánuði var lítil sól og mikið regn. Eftir því sem ég hef haft spum- ir af hafa bændur náð kartöflunum sínum upp og aðeins á tveimur til þremur bæjum hafa orðið örlítil afföll vegna næturfrosta. Flestir sluppu fyrir hom þó menn hafi byijað mun seinna að taka upp en venja er. Beðið var eftir því að jarðvegurinn þomaði um mán- aðamótin ágúst/september eftir rigningamar svo að menn byijuðu ekki á kartöfluupptökunni fyrr en í kringum 10. september,“ sagði Sveinberg. Kartöfluupptöku nýlokið í Eyjafírði: - segir Sveinberg- Laxdal formaöur Félags kartöflubænda við Eyjaflörð Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Áreksturá Skjálfandafljótsbrú Árekstur varð á Skjálfandafljótsbrú seinnihluta sunnudags. Tveir fólksbílar, sem komu hvor úr sinni áttinni, ætluðu báðir yfir i einu með þeim afieiðingum að þeir skullu saman á miðri brúnni. Ekki urðu miklar skemmdir á bílum og fólk slapp ómeitt. Töluverð hálka var á brúnni er óhappið varð og var önnur bifreiðin á sumardekkjum. Kartöfluupptöku lauk í Eyjafirði um helgina, mun seinna en venja er. Nokkrir bændur áttu kartöflur sínar í jörðu allt þar til um síðustu helgi er þeir náðu restinni inn í hús. Afföll munu þó ekki hafa verið veruleg vegna þeirra næturfrosta, sem komið hafa á Norðurlandi. Sveinberg Laxdal formaður Fé- lags kartöflubænda við Eyjafjörð sagði í samtali við Morgunblaðið að uppskera væri í meðallagi og markaðshorfur því góðar. Ekki væri gert ráð fyrir neinum „kart- öflufjöllum" í ár eins og í fyrra þegar uppskeran tuttugufaldaðist hjá bændum í Eyjafírði frá árinu áður. Kartöflubændur þurftu að henda töluverðu magni á haugana nú í lok sumars til að rýma fyrir Eining um stofnun félags um rekstur kammerhljómsveitar nýjum birgðum. „Uppskera er verulega minni en í fyrra þó tölur liggi ekki ná- kvæmlega fyrir. Söluhorfur eru góðar og við gerum ekki ráð fyrir markaðsstríðum eins og í fyrra. Erfítt reyndist að koma allri upp- skerunni síðan í fyrra út og það sem eftir var fór hreinlega á haug- ana. Að hluta til fóru kartöflurnar á markað sunnanlands þegar líða tók á sumarið því geymsluþol kart- aflna fyrir norðan er yfírleitt betra en fyrir sunnan," sagði Sveinberg. Meðaluppskera hjá bændum í Eyjafirði er í kringum 2.500 tonn og telur Sveinberg að uppskeran í ár sé aðeins lakari, eða í kringum 2.000 tonn. „Við eigum allt okkar undir sól Stofhfúndur Félags áhugamanna um rekstur kammerhljóm- <i sveitar Akureyrar var vel sóttur og ríkti mikill einhugur um stofiiun félagsins sl. sunnudag. Ingólfur Armannsson skóla- og menningarfúlltrúi Akureyrar ávarpaði fúndargesti og minntist meðal annars á að menningar- og Iistalíf skipti miklu máli þegar fólk veldi sér stað til búsetu. Hann lauk orðum sínum með því að segja að hann vonaðist til að kammerhljóm- sveitin væri komin til að vera. Michael J. Clarke kennari við Tónlistarskólann á Akureyri flutti erindi er hann nefndi „Atvinnu- kammerhljómsveit á Akureyri". Þar rakti hann sögu hljómsveita á Akureyri en þar voru m.a. starf- ræktar blandaðar hljómsveitir um 1915 og síðar eftir 1930. Einnig ræddi hann um að Tónlistarbanda- lag Akureyrar, sem stofnaði Tón- listarskólann á Akureyri árið 1946, hefði áformað að koma á fót hljómsveit í bænum, en raunar hafí Tónlistarskólinn tekið við því hlutverki því mikil gróska hefur verið í hljómsveitarstarfsemi í skólanum um margra ára skeið. Til dæmis hélt sinfóníuhljómsveit skólans nokkra tónleika og kam- merhljómsveit skipuð nemendum og kennurum fór í tónleikaferð til Danmerkur árið 1978. Jón Hlöðver Áskelsson skóla- stjóri Tónlistarskólans á Akureyri talaði fyrir tillögu um stofnun fé- lagsins og greindi frá starfí hljóm- sveitarinnar sl. tvö ár, en hún hefur haidið átta tónleika með 30 til 50 hljóðfæraleikurum í hvert sinn. Fram kom í máli hans að aðsókn hafí farið vaxandi og á sl. vetri hafí eitt þúsund áheyrendur sótt tónleika hennar. Á þessum tveimur árum hafa fímmtán ein- leikarar og einsöngvarar, bæði heimafólk og gestir, komið fram á tónleikum hljómsveitarinnar. Tækifæri tónlistarunnenda til að hlýða á hljómsveit með sinfónískri f RAUM^SERIAN) SJUKRAHUSSOGUR Slysið Deborah Davl» nyjar kur sem þú getur verið viss skipan á Akureyri hafa þegar átt- faldast með tilkomu hljómsveitar- innar. Að lokinni umræðu og kaffihléi voru tillögur um stofnun áhugafé- lags samþykktar einróma, en í til- lögunni segir að meginhlutverk félagsins eigi að vera að efla starf- semi Kammerhljómsveitar Akur- eyrar, stuðla að því að hljómsveit- in geti reglulega haldið tónleika með vönduðu og fjölbreyttu verk- efnavali og að vekja áhuga á leik hljómsveitarinnar, málefnum hennar og félagsins. í bráðabirgðastjóm, sem starfar til framhaldsstofnfundar, sitja Einar S. Bjamason og Valgerður Hrólfsdóttir fyrir hönd áhuga- manna, Ólöf Jónsdóttir og Ömólf- ur Kristjánsson frá Kammerhljóm- sveitinni og einnig hefur verið ósk- að eftir að bæjarstjóm Akureyrar- bæjar skipi fulltrúa sinn í stjóm- ina. Unnt er að skrá sig á stofnfé- lagaskrá, sem liggur frammi í Tónlistarskólanum á Akureyri, Hafnarstræti 81. um að eru góðar ásútgáfan Lionsklúbburínn Huginn: Gjafir til krabbameins- félagsins og Sólborgar Félagar í Lionsklúbbnum Huginn á Akureyri afhentu tvær 200.000 króna gjafir fyrir skömmu. Krabbameinsfélag Akureyrar fékk 200.000 krónur til kaupa á brjóstmyndatöku- tæki og jafnhá upphæð var gefin í byggingu sundlaugar við vistheimUið Sólborg sem nú er á lokastigi. Þessum ijármunum hafa Lions- félagar safnað með ljósaperusölu, jóladagatalasölu og skósölu. Einn- ig er um að ræða tekjur af kútt- magakvöldi, sem er árlegur við- burður hjá Lions. Akureyringar mega eiga von á því að félagar úr Huginn banki upp á þann 19. nóvember nk., en sá dagur hefur verið ákveðinn sem söludagur jóladagatala. Við söluna njóta þeir aðstoðar klúbbmeðlima í Li- onsklúbbi Akureyrar. í staðinn fá þeir aðstoð við blómasölu á konu- daginn. Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Halldóra Bjarnadóttir tekur við ávisun úr hendi Jóhanns Karls Sigurðssonar formanns lionsklúbbsins. Hjá standa Jónas Franklín formaður Krabbameinsfélagsins, Þröstur Emilsson, Þorvaldur Nikulásson, Ólafur Stefánsson og Þorvaldur Jónsson. Rakel Bragadóttir starfsmaður á Sólborg fékk afhenta 200.000 króna ávísun svo ljúka megi byggingu sundlaugar við Sólborg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.