Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
25
Eru konur o g karlar and-
stæður í íslenskri pólitík?
eftir Kristínu
Einarsdóttur
Þegar talað er um stjómmál er
átt við öll félagsleg og efnahagsleg
samskipti í þjóðfélaginu. Allt sem
tengist samfélaginu er því pólitískt.
Samfélagsuppbyggingin hefur
hingað til tekið allt of mikið mið
af þörfum karla en þarfir kvenna
og þarfir fjölskyldunnar lenda þar
aftarlega á blaði. Þegar staða
kvenna í íslenskri pólitík í dag er
skoðuð, er eðlilegt að líta aðeins til
baka og spyija hvort staða íslenskra
kvenna hafi breyst í gegnum árin.
Hefiir eitthvað breyst?
í Kvennablaðinu frá 1911 segir
Bríet m.a: „Hingað til hafa karlar
einir verið einvaldir í allri löggjöf,
enda hafa þeir þar gert sig að mið-
depli, sem allt snýst um. Sérstak-
legt tillit til vor kvenna er þar
hvergi; þar sem hagsmunir karl-
manna eru annarsvegar, þá megum
vér lúta í lægra haldinu ...“
En hafa orðið einhveijar breyt-
ingar frá því þessi orð vom skrifuð?
Já, svo sannarlega hafa orðið breyt-
ingar. Konur fengu kosningarétt
árið 1915 og bundu margar vonir
við að með því væri stigið stórt
skref í átt til jafnréttis. En 60 ámm
síðar var talin nauðsyn á að setja
lög um jafnrétti kynjanna. Enn birti
yfir konum. En hefur staða kvenna
eitthvað batnað frá setningu jafn-
réttislaga? Því miður blasa stað-
reyndirnar við í könnunum og
skýrslum. Nú hafa konur og karlar
sama lagalega rétt til að hafa áhrif
á þjóðfélagið, hafa sama rétt til
náms, vinnu, launa, o.fl. sem þegn-
um þjóðfélagsins stendur til boða.
En hvernig stendur þá á því að enn
þurfum við konur að hafa svo mik-
ið fyrir að reyna að ná sjálfsögðum
réttindum okkar? Hvers vegna mið-
ar okkur svo hægt sem raun ber
vitni?
Ótrúlega lítið áunnist
Margir halda því reyndar fram
að konur hafí jafna stöðu á við
karla og að það sé konum einum
að kenna að þær hafi ekki náð
lengra. Þeir hinir sömu telja að
ekkert frekar þurfí að gera varð-
andi kvenréttindi. Nú sé nóg kom-
ið. Við höfum kvenforseta, meira
að segja eina konu í ráðherrastóli
og nú er kona orðin forseti samein-
aðs þings. Hvað viljið þið meira?
Aðrir telja að mikið hafi áunnist
en markmiðinu sé enn ekki náð.
Ef ég á að reyna að meta stöð-
una fínnst mér ótrúlega lítið hafa
áunnist. Staða kvenna hefur mikið
breyst en ég efast um að hún hafí
breyst neitt verulega umfram þær
heildarbreytingar sem hafa orðið í
þjóðfélaginu. Stundum hvarflar
jafnvel að manni hvort daglegt líf
nútímakonunnar sé nokkuð betra
en þa’ð var hér áður fyrr þrátt fyrir
öll lög.
Enn eru konur með lægstu laun-
in.
Enn bera konur ábyrgð á börnum
og ijölskyldu.
Og enn hafa karlar ekki tekið á
sig þann hluta ábyrgðarinnar sem
ætti að leggjast á þeirra herðar
vegna aukinnar atvinnuþátttöku
kvenna.
Það er jafnvel svo að í nafni jafn-
réttis hafa konur þurft að fórna
hluta af sínum réttindum til karla
án þess að karlar hafi þurft að láta
nokkuð í staðinn.
Sami hugsunarháttur
gengur aftur
Ekki alls fyrir löngu sagði einn
samstarfsmaður okkar á Alþingi
af karlkyni að hann gæti alveg
hugsað sér að taka þátt í kvenna-
byltingu, en fyrst þyrfti að gera
landsbyggðarbyltingu. Þarna birtist
nákvæmlega sami hugsunarháttur
og þegar Lenin sagði við Klöru
Kristín Einarsdóttir
„Markmið okkar með
sérstökum kvennalista
er að gera viðhorf,
reynslu og menningu
kvenna að stefiiumót-
andi afli í samfélaginu
ekki síður en reynslu,
menningu og viðhorf
karla. Við viljum varð-
veita og þróa það já-
kvæða í lífssýn kvenna
og nýta það í þágu sam-
félagsins alls.“
Zetkin fyrir meira en 60 árum síðan
— að fyrst þyrfti að hugsa um bylt-
inguna svo gæti komið að konunum.
Það er eins og blessaðir karlamir
geri sér ekki grein fyrir því að kon-
ur em helmingur samfélagsins og
að ekkert gengur upp ef þær em
ekki með.
Bríet sagði í Kvennablaðinu árið
1907: „En enginn er öðmm sjálfur.
Einmitt reynslan sýnir að karl-
mennimir hafa aldrei hingað til,
tekið eins mikið tillit til hagsmuna,
hæfileika og óska vor kvennanna,
eins og sjálfra sín. Og það er af
þeirri einföldu ástæðu, að sá veit
best hvar skórinn kreppir, sem ber
hann. Þeir hafa hvorki þekkt hæfí-
leika vora, né tilfinningar. Þeir hafa
afmarkað oss verksvið, sem vér
höfum ekki mátt fara út fyrir, og
sagt, að þetta eitt gætum vér unn-
ið, til þessa eins hefðum vér hæfí-
leika." Þetta var sagt í byijun aldar-
innar, en gæti svo sem átt við enn
í dag.
Konum stillt upp
sem andstæðum
Karlarnir hafa verið allsráðandi
allt of lengi þar sem ráðum er ráð-
ið. Það em þeir sem hafa stillt kon-
um upp sem andstæðum. Sérfram-
boð kvenna skerpir á vissan hátt
þessar andstæður. Við höfum hafn-
að því jafnrétti sem felst í því að
konur fái að vera eins og karlar.
Við leggjum í stað þess áherslu á
það sem mótar konur og setjum á
oddinn hugmyndir um kvenfrelsi
sem fela í sér rétt kvenna til að
vera metnar á sínum eigin forsend-
um til jafns á við karla.
í upphafi þessarar aldar fóm
fram mjög líflegar umræður á Al-
þingi um kosningarétt kvenna. I
þeim umræðum komu viðhorf karla
á þeim tíma mjög skýrt í ljós. Einn
þáverandi þingmaður lýsti sig
hlynntan því að konur fengju jafn-
rétti á við karlmenn þótt gáfnafari
og lundarfari væri ólíkt farið og
konur skorti oftast dómgreind á við
karlmenn. En Bjarni frá Vogi taldi
að konur mundu halda áfram að
vera mæður og hugsa um heimili
sín þótt þær tækju þátt í stjóm-
málum. Þær yrðu einmitt færari
að veita bömum sínum gott uppeldi
ef þær hefðu sjálfar tekið þátt í
opinbemm málum með fullu jafn-
rétti á við karlmenn. Ekki efaðist
Bjami heldur um stefnufestu
kvennanna, viturleika og kurteisi.
Enn í dag em viðhorfin mjög
mismunandi. Þannig sagði t.d. einn
ráðherra í dagblaði fyrir stuttu um
eina stjómmálakonu, um leið og
hann hrósaði henni fyrir dugnað,
að hún væri meira en karlmannsí-
gildi. En hvað er karlmannsígildi?
Hvert er viðmiðið? Er það e.t.v.
lausnin fyrir konur að vera metnar
sem karlmannsígildi? Nægir það til
að ná svokölluðu jafnrétti? Ég vona
að allar konur svari þessu neitandi.
Konur hljóta að vilja láta meta sig
á eigin forsendum.
Sérframboð kvenna
nauðsyn
Kvennalistinn valdi nýja en um
leið gamla leið til að ná því marki.
Sumir efast enn um að sú leið sé
vænleg til árangurs þegar til lengri
tlma er litið. Sagan ein getur skor-
ið úr um það. Ég er ekki í vafa um
að sérframboð kvenna hefur nú
þegar skilað árangri. En er þá æski-
legt að skerpa og leggja áherslu á
að konur og karlar séu andstæður
í pólitík? Ég held að svo geti verið
þangað til að karlarnir em tilbúnir
að viðurkenna sérstöðu kveiina og
tilbúnir að taka á sig hluta þeirrar
ábyrgðar sem konur hafa með
höndum. Konur axla ábyrgð á hom-
steinum þjóðfélagsins. Ér ekki kom-
inn tími til að karlar axli ábyrgð?
Markmið okkar með sérstökum
kvennalista er að gera viðhorf,
reynslu og menningu kvenna að
stefnumótandi afli í samfélaginu
ekki síður en reynslu, menningu og
viðhorf karla. Við viljum varðveita
og þróa það jákvæða í lífssýn
kvenna og nýta það í þágu sam-
félagsins alls.
Konur vilja taka þátt í stjómun
samfélagsins. Þær hafa ekki verið
ánægðar með vinnubrögðin, for-
gangsröðina og áherslumar. Konur
hafa í gegnum tíðina annast upp-
eldi, fræðslu og umönnun bama og
þær hafa borið ábyrgð á öldmðum
og sjúkum. Þess vegna miðast for-
gangsröðun kvenna ekki eingöngu
við þarfír þeirra sjálfra.
Við hljótum að stefna að því að
andstæðumar konur — karlar sam-
einist í því að skapa samféíag þar
sem allir, konur, karlar og börn em
jafnvirtir og jafnréttháir. Þá getum
við e.t.v. sagt að konur og karlar
séu ekki andstæður í íslenskri
pólitík.
Mismunandi lífssýn
kynjanna
Þetta getur því aðeins gerst að
karlar og konur setji sig inn í og
viðurkenni mismunandi lífssýn
kynjanna sem fyrst og fremst má
rekja til þeirrar mótunar og þess
undirbúnings undir lífíð sem strákar
og stelpur fá. Það er samfélaginu
til tjóns að viðhorf kvenna skuli svo
lítt koma við sögu þar sem ákvarð-
anir em teknar. Því verðum við að
breyta. Byija á sjálfum okkur og
nánasta umhverfi — aðeins á þann
hátt og með gagnkvæmum skilningi
getum við máð út þessar andstæð-
ur.
Ef ekki fer að örla á þeirri hugar-
farsbyltingu sem ég tel nauðsyn-
lega til þess að breyta því mati sem
hefur verið á framlagi kvenna til
samfélagsins og þar með á þeim
sjálfum tel ég ástæðu til að óttast
að enn eigi þessar andstæður eftir
að skerpast.
Höfundur er þingmaður fyrir
Kvennalistann íReyhjavík. Grein-
in erbyggðá erindi, sem höfund-
urflutti & 17. lands/nndi Kvenrétt-
indafelags íslands.
HITAMÆLAR
©cq)
Vesturgötu 16,
sími 13280.
ÉÍMDNSÍft
farsímar við allar aðstæður
Viðurkenndur fyrir gæði og
einstakt notagildi.
Verð aðeins frá kr: 99.000.-
í burðar- eða bílaútgáfu.
BENCO hf.
Lágmúla 7, sími 84077.
maconde
formen
MAOE IN PpRTUGAL
Glæsileg herraföt
Vörumerkiðtryggir
gæði og bestu snið
Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
jakkar kr. 4.995,-
Terylenefrakkar kuldafóðraðir kr.
4.760,- úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
terlynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,-
1.795,- og 1.995,-
AndréSf Skólavörðustíg 22, síml 18250.
Brautarholt 20, Sími 29098
Spennandi veitingastaður í hlýlegu umhveríí
Stjörimseðill vikunnar
Laxa-, lúðu- og kryddjurtakæfa með lágperusósu og kavíar
- ★ -
Hvítlauks- og engiferkryddað kjúklingaseyði með fersku
grænmeti.
- ★ -
Kiwikrapís
- ★ -
Léttsteikt aliandarbringa með græn- og rósapiparsósu
- ★ -
Steikt bjúgaldin með möndluísog súkkulaðisósu.
— ★ —
Stjörnustél vikunnar
★ Snjókoma ★
3cl. Kahlúa ★ 3cl. Jameson whisky ★ Coca-cola,
skreyttur með ávöjttum og flórsykri.
Minnumeinnigáglæsilegan sérréttaseðil og
skemmtilegan léttvínsseðil.
— ★ —.
Opið miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 19.00.
Vetrarbrautin,
Brautarholti 20. Símar: 29098 og 29099.