Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 49 MYNDAMÓT HF Hlaðin kostum og spennandi fylgihlutum: • 20 x meiri þrýstingur en úr garðslöngu • hraðari og betri hreingerning • 85% minni vatnsþörf • sápa sem mengar ekki umhverfið • þvottabursti, hentugur fyrir bílinn • snúningsskaft með handhægu gripi • 10m háþrýstislanga • sápuskammtari Aukahlutir: • snúningsstútur sem gefur 30% aukningu á þrýstingi og 7x meiri vinnuhraða • sandblástur, garðúðari, undirvagnsþvottaskaft ofl. SNUNINGSSKAFT SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117 Afinæliskveðja: Guðmundur S. Karls- son - sj ötugur Guðmundur Stefán Karlsson verslunarmaður er 70 ára um þess- ar mundir og langar mig í tilefni þeirra tímamóta að rita um hann nokkrar línur. Það eru liðin 27 ár síðan fundum okkar Guðmundar bar fyrst saman. Ég kom þá inn á heimih hans sem tilvonandi tengdadóttir. Ég man vel að það var ekki laust við að mér væri órótt innanbrjósts, þegar ég var kynnt fyrir tilvonandi tengda- flölskyldu. Én við fyrstu kynni af tengdaforeldrum mínum hvarf sá óróleiki, því elskulegra og þægi- legra fólk er vart hægt að hugsa sér. Guðmundur er fæddur í Reykjavík, þann 18. október 1918, sonur hjónanna Guðlaugar Péturs- dóttur og Karls Guðmundssonar. Hann ólst upp á Baldursgötu 26 í Reykjavík, þar sem hann hefur átt heima alla tíð. Hann er kvæntur Margréti Sveinsdóttur frá Kambi í Flóa og eiga þau fjóra syni sem allir eru kvæntir og eru bamaböm- in þegar orðin 10. Það er mínum kæra tengdaföður sjálfsagt lítt að skapi að skrifaðar séu um hann lofmllur, þótt tilefnið sé ærið, en ég vona að hann fyrir- gefi mér tiltækið. Guðmundur er skapfestumaður, heillyndur, hæverskur og drengur góður. Yfir svip hans leikur fersk- leiki og hlýja og oft bregður fyrir glettni í augum, enda er honum einkar lagið að segja frá ýmsu skop- legu úr hinu daglega lífi. Það ber skapfestu og trúmennsku hans glöggt vitni, að allt sitt líf hefur hann búið við Baldursgötuna í Reykjavík. Ifyrst í „litla húsinu" nr. 26B húsi foreldra sinna, og frá ár- inu 1955 í „stóra húsinu“ nr. 26, sem hann byggði sjálfur ásamt systkinum sínum Pétri og Guðrúnu. Annað dæmi ekki síður umtalsvert er það að hann hefur nú í nærfelld 50 ár unnið hjá sama fyrirtækinu, Fálkanum hf. í Reykjavík. Einstök trúmennska myndi margur segja- með réttu, en það er ekki bara af trúmennsku sem Guðmundur hefur reynst starfi sínu og æskustöðvum svo trúr. Hér hefur hann fundið lífsfyllingu og hér hefur hann fund- ið lífinu tilgang og það er það sem skiptir máli. Guðmundur og Margrét eru eink- ar samhent hjón og það hefur í senn verið ánægjulegt og ómetan- legt að fá að „alast upp“ með þeim. Þau eru víðlesin og margfróð um menn og málefni og þeim leikur einkar vel að segja frá. Það er sama hvort umræðuefnið er fólk og at- burðir eða náttúrulýsing, þau hafa einstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér í frásögninni. Guðmundur er mikill náttúruunnandi og deilir þeim áhuga með konu sinni. Á sumrum eru famar lengri og skemmri ferðir á vit íslenskrar nátt- úm og á vetmm famar styttri ferð- ir og þá gjaman á gönguskíðum ef veður leyfir. Ferðimar em svo sannarlega ekki famar til þess að geta sagst hafa komið á staðinn. Nei, hver staður er vandlega skoð- aður og staðhættir kannaðir og þegar heim er komið er aflað við- bótarfróðleiks ef slíkt er fyrir hendi. Það fer fátt framhjá þessum glöggu og fróðleiksfúsu hjónum, og fyrir GOÐAR FREGNIR AF RYDFRIU STALI! Markvisst samstarf við Damstahl A/S eykur styrk okkar í birgðahaldi á ryðfríu stáli. Með stærsta lager- fyrirtæki Norðurlanda að bakhjarli tryggir Sindra Stál viðskiptavinum sínum örugga þjónustu. Skjót afgreiðsla á sérpöntunum vegna ýmissa verkefna. ZJIDamstahl Ryðfrítt stál er okkar mál! SINDRA/vlfySTALHF BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684 okkur bömin em þau eins og visku- bmnnur fróðleiks um land og þjóð. Þrátt fyrir nokkur alvarleg veik- indaáföll sem Guðmundur hefur orðið fyrir á seinni áram hefur hann ætíð með skapfestu, ótrúlegum dugnaði og dyggum stuðningi konu sinnar, náð aftur fullri heilsu og mér liggur við að segja, eflst við hveija raun. Það er áreiðanlega mikið að þakka því hversu jákvæð- ur og þrautseigur hann er, en um leið hógvær og lítillátur. Slík blanda hlýtur að leiða til hins besta sem völ er á hveiju sinni. Sem sannur Reykvíkingur hefur Guðmundur ætíð haft mikinn áhuga á fótbolta og fylgst grannt með því sem gerst hefur á vellinum í gegn- um árin, enda að vonum mikill KR-aðdáandi. Þeir vora ekkert síður iðnir við knöttinn strákamir í þá daga og þeir styðja án efa dyggilega við sína menn enn þann dag í dag, þótt aldurinn sé aðeins farinn að segja til sín. Nú er setið fyrir framan sjónvarpið þegar góðir leikir em sýndir og sparkað með og hrópuð hvatningarorð. Það er víst þannig sem sannir KR-ingar gera! Ég sendi Guðmundi og Margréti ámaðaróskir í tilefni afmælisins og óska okkur öllum til hamingju með afmælisbamið. Tengdadóttir KARCHER 570 HÁÞRÝSriDÆLAN Skmandi hreint-leikandi/étt TÚLVUSKEYTING MEÐ CR0SFIELD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.