Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 22
<• <' >
22 C
straMitMro?
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
Nýsending: Kjólar
Pils Blússur
Náttfot Sundbolir
Napier skartgripir
Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins
VIÐ ERUM
FLUTT
Greiningar-
og ráögjafar-
stöö ríkisins
hefur flutt starf-
semi sína aö
Digranesvegi 5,
Kópavogi
(í húsið þar sem
Útvegsbankinn var).
Nýtt símanúmer er
64 17 44
Jaröir til sölu
í Vatnsleysu-
strandarhreppi
Til greina kemur, ef viðunandi tilboð fást, að eftirtaldar
jarðir og jarðarhlutar í eigu Vatnsleysustrandarhrepps
verði seldar:
1. Hlöðunes, sem er talið vera um
14,9 ha heimaland auk fjöruréttar og
hlutdeildar í afrétti allt til marka
Krýsuvíkur. Nesbú hf. hefur leigusamn-
ing til 1996 á ca. 3,5 ha af landi Hlöðu-
ness.
2. Halldórsstaðir, sem eru nú í
óskiptri sameign að hálfu á móti dánar-
búi.
3. Breiðagerði, þ.e. eignarhluti Vatns-
leysustrandarhrepps, sem er ofan
gamla Keflavíkurvegar (þó með um-
ferðarrétti til sjávar) allt upp í mörk
Krýsuvíkur.
4. Grund á Bieringstanga, lítill skiki án
vegasambands á Bieringstanga.
5. Brekka, eyðibýli undir Vogastapa,
gegnt laxeldisstöð Vogalax, án vega-
sambands.
Allar framangreindar jarðir og jarðarhlutar eru án húsa og
hafa ekki verið í ábúð undanfarna áratugi.
Þeir sem áhuga kynnu að hafa á frekari upplýsingum um fram-
angreind lönd geta snúið sér til sveitarstjóra í Vatnsleysu-
strandarhreppi, á skrifstofu hreppsins.
Tilboðum, sem skulu tilgreina tilboðsupphæð og greiðslufyrir-
komulag, skal skila á skrifstofu Vatnsleysustrandarhreppps
að Iðndal 2,19Q Vogar, fyrir kl. 12.00 mánudaginn 14. nóv. nk
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhreppps.
Niðurstöður könnunar Jafiiréttisráðs:
Konur í sókn inn í emb-
ættismannastéttina
NIÐURSTÖÐUR könnunar, sem Jafnréttisráð hefur gert á Qölda
kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum, benda til þess að konur
með háskólapróf og aðra sambærilega menntun séu í harðri sókn inn
í embættismannastéttina, bæði inná aðalskrifstofur ráðuneyta og
aðrar opinberar stofnanir. Könnunin nær aðeins til aðalskrifstofa
ráðuneyta annars vegar og nokkurra opinberra stofnana hins veg-
ar, en hliðstæð könnun var gerð 1985.
í frétt frá Jafnréttisráði segir að
könnunin bendi til þess, að konur
séu að verða helmingur þeirra sér-
fræðinga sem þessar opinberu
stofnanir þurfa á að halda. Árið
1985 var engin kona flokkuð sem
BHM-sérfræðingur í starfi hjá
táðuneyti, en árið 1987 eru þær
orðnar 8 eða 42%. Árið 1985 voru
aðeins 5 konur deildarsérfræðingar,
1987 eru þær orðnar 11 eða 44%.
1985 var hlutur kvenna í stjórnun-
ar- eða ábyrgðarstöðum hjá öðrum
opinberum stofnunum en ráðuneyt-
um ekki nema rétt 13%. í dag er
hann orðinn 27% og hefur aukist
meira en hjá ráðuneytum. Hlutur
kvenna er þar orðinn 32%.
Þó svo að konumar vinni á, á
það ekki við um toppstöður, og
aðeins ein kona var skrifstofustjóri
ráðuneytis. I ofangreindri athugun
hefur ekki verið gerð tilraun til
þess að bera saman laun eða tekjur
kvenna og karla. Niðurstöður
skýrslu nefndar félagsmálaráðherra
frá í ár sýna að yfirvinnugreiðslur
og greiðslur vegna bílaafnota renna
í mun ríkara mæli til karla.
Helmingur sérfræðinga
í ráðuneytum
Fjöldi einstaklinga í stöðum, sem
flokkaðar em sem stjórnunar-
og/eða ábyrgðarstöður á aðalskrif-
stofum ráðuneyta, em samtals 172.
Hlutur kvenna í þessum stjórnunar-
og ábyrgðarstörfum var 24% í sam-
bærilegri athugun frá 1985 en er
orðinn 32% um mitt ár 1987. Og
svo virðist sem konur með háskóla-
próf eða aðra sambærilega mennnt-
un séu I harðri sókn inn í embættis-
mannastéttina. Þær em að verða
helmingur þeirra sérfræðinga sem
þessar stofnanir þurfa á að halda.
1985 var engin kona flokkuð sem
BHM-sérfræðingur og ekki nema 5
deildarsérfræðingar. I dag em 11
konur eða 44% flokkaðar sem deild-
arsérfræðingar og 8 eða 42% em
BHM-sérfræðingar. Það virðist sem
sókn kvenna inní Háskóla og aðrar
sambærilegar menntastofnanir hafi
skilað sér. Einnig virðist ástæða til
að ætla að háskólamenntaðar konur
vinni hjá hinu opinbera og karlar
leiti frekar í einkareksturinn, en sú
þróun á sér stað á Norðurlöndum.
í könnun Jafnréttisráðs kemur
fram að enginn kvenmaður starfar
í sjávarútvegsráðuneytinu, og hlut-
ur kvenna er lakastur í atvinnu-
málaráðuneytunum. Það er hins-
vegar í félagsmálaráðuneytinu
ásamt heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti að konur em flestar.
Sókn í opinberum
stofiiunum
I framhaldi af ofangreindri at-
hugun þótti forvitnilegt að hyggja
að öðmm opinbemm stofnunum.
Valdarvom 11 opinberar stofnanir,
ein undir hverju ráðuneyti nema
utanríkisráðuneyti. Starfsheiti vom
flokkuð niður í 7 flokka. Tölur
byggja á ríkishandbók, og miðast
við stöðuna um mitt ár 1987. Af
136 stjómunarstöðum hafa kven-
menn 37 eða 27%. Var árið 1985
rétt um 13%. Engin kona er yfír-
maður stofnunar né næstæðsti yfir-
maður, en alls 17 karlar. 6 em
deildarsérfræðingar á móti 27 körl-
um. 12 konur em deildarstjórar en
21 karlmaður. 15 BHM-sérfræðing-
ar en 29 karlar. 4 konur em flokk-
aðar sem skrifstofustjórar og gjald-
kerar en 5 karlar.
í þessum samantektum var ekki
gerð nein tilraun til að athuga hvort
laun eða tekjur væm sambærileg.
Skýrsla nefndar félagsmálaráð-
herra sýndi fram á að yfirvinnu-
greiðslur og greiðslur vegna bílaaf-
nota renna í mun ríkara mæli til
karla en kvenna. Fimmta grein laga
um jafna stöðu karla og kvenna,
segir meðal annars að óheimilt sé
að mismuna fólki eftir kynferði til
dæmis hvað varðar „hvers konar
þóknun fyrir vinnu“ og „veitingu
hvers konar hlunninda".
Nýr leikskóli á Hólmavík
Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson
Nýr leikskóli hefur verið opnaður á Hólmavík.
Hólmavík.
NÝR leikskóli var opnaður á
Hólmavík mánudaginn 31. októ-
ber. Hann stendur við Brunn-
götu. I tilefni af þessum timamót-
um var Hólmvíkingum boðið að
skoða skólann 30. október. Þar
var boðið upp á molasopa fyrir
eldri kynslóðina en yngra fólkinu
var boðið að þiggja íslenska holl-
ustudrykki úr fernum.
Með opnun nýja leikskólans er
langþráðu marki náð. Byggingar-
saga hússins nær yfir u.þ.b. fimm
og hálft ár en með bréfi mennta-
málaráðuneytisins í maí 1983 var
hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps
heimilað að hefja framkvæmdir við
bygginguna. Næstu ár á undan
hafði félag áhugafólks um dagvist-
unarmál unnið að undirbúningi í
samráði við hreppsnefnd.
Nýi leikskólinn er byggður eftir
teikningum arkitektanna Guð-
mundar Kr. Guðmundssonar og
Ólafs Sigurðssonar, en Reynir Vil-
hjálmsson landslagsarkitekt teikn-
aði lóðina. Að frátalinni dúklögn
og hluta af smíði innréttinga voru
nær allir verkþættir unnir af heima-
mönnum. Má þar m.a. nefna Bygg-
ingu sf., Ljósmagn sf., Sigberg sf.
og fleiri. Einnig störfuðu starfs-
menn hreppsins mikið við fram-
kvæmdir.
Kostnaður við leikskólabygging-
una er nú orðinn um 7,5 milljónir
króna miðað við verðlag í október
1988. Þar af er kostnaður á þessu
ári um 4 milljónir. Áætlaður heild-
arkostnaður við leikskólann miðað
við októberverðlag er nærri 9 millj-
ónir króna og er útlit fyrir að sú
áætlun standist nokkum veginn.
Þó er enn eftir að leggja í veruleg-
an kostnað við kaup og smíði leik-
fanga og leiktækja.
Félag áhugafólks og fleiri aðilar
hafa styrkt leikskólann til leik-
fangakaupa og þegar fréttaritara
bar að garði fyrsta daginn í nýja
leikskólanum var ekki annað að sjá
en ungdómurinn skemmti sér mjög
vel. Þau máttu ekkert vera að því
að tala við karlinn sem var að koma
og vildi tala við þau. Það var svo
margt nýtt og skemmtilegt að sjá.
Þess ber að geta að leikskólinn
var áður til húsa í einni skólastoíú
í Grunnskóla Hólmavíkur og þar
var hann starfræktur í tveimur
deildum, morgundeild og síðdegis-
deild. Hinn nýi skóli ungu barnanna
mun starfa áfram með svipuðu
sniði. Forstöðukonur eru tvær, þær
Þórdís Gunnarsdóttir er veitir for-
stöðu morgundeild og Jóhanna
Magnúsdóttir fóstra er veitir for-
stöðu síðdegisdeild.
NÁMSKEH)
eftirmenntunarnefnda stál- og vélsmíða
f
Framundan eru eftirfarandi námskeið:
Vökvakerfi I 35 kennslust. 25.-28. nóv. 1988
Málmsuða 25 kennslust. 15.-22. nóv. 1988
Efnisfræði I 15 kennslust. 12.-19. nóv. 1988
Enska I 36 kennslust. byrjar 10. nóv. 1988
Enska II 36 kennslust. byrjar 10. nóv. 1988
Nánari upplýsingar og skráning eru hjá
Fræðsluráðinu f síma 621755 og hjá
MSÍ í síma 83011.
- BRS