Morgunblaðið - 06.11.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 06.11.1988, Qupperneq 34
34 C MORGUNBLAÐIÐ MENNIIMGARSTRAUIVIAR SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 Þakkarávarp Við þökkum innilega öllum þeim œttingjum og vinum sem glöddu okkur í tilefni af af mcelum okkar á síðast liðnu sumri. Sérstaklega þökkum við fyrir sunnudaginn 31. júlí. Hann verður okkur með öllu ógleymanlegur. Guð blessi ykkur öll. Lilja SigurÖardóttir, Sigurður Jónasson, Hróarsdal. Skrifstofuhúsnæði til leigu Nýtt og gott skrifstofuhúsnæði er til leigu í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 35 fm, og aðgang að sameiginlegri afgreiðslu. Upplýsingar í síma 688622 frá kl. 9-17. Auglýsing Menningarverð- mætum bjargað Bítlamir snúa aftur úr leiðangri BÍTLAVINAFÉLAGIÐ er fé- lagsskapur, sem sérstaklega var stofiiaður til þess að rann- saka og bjarga verðmætum frá sjöunda áratugnum, hefur snú- ið aflur úr leiðangri sem félag- ið fór á áður ókunnar slóðir frá þessum tíma. En hver var ár- angur ferðarinnar? spurðum við Jón Ólafsson, ritara þeirra Bítlavina. „Við erum náttúrlega himinlif- andi,“ sagði Jón, „því við náðum meginmarkmiði okkar sem var að safna saman ýmsum lagabálkum frá þessum tíma og erum sann- færðir um að eftir að við höfðum farið um þá höndum, eigi þeir eftir að verða jafnvel enn nýti- legri en þeir voru. Það er auðsætt að þekking og kunnátta manna við slíkar smíðar og framkvæmd þeirra hefur verið á mun hærra stigi en fólk almennt gerir sér grein fyrir og við bíðum spenntir eftir viðbrögðum almennings þeg- ar við opinberum þá innan tíðar." Auk þess að safna og vinna úr 12 lagabálkum frá sjöunda ára- tugnum, rákust þeir félagar á ýmislegt annað markvert, sem er í stórri hættu við að falla í gleymskuhjúp og sumt sem reynd- ar er flestum gleymt. „Þetta hefur sannarlega verið guílöld og gósentíð fyrir bítilóða unglinga," segir Stefán Hjörleifs- son, leiðangursstjóri félagsins, en hann hefur fleiri og lengri ferða- lög að baki en flestir núlifandi íslendingar. Haraldur Þorsteins- son tekur undir og bætir við: „Samkvæmt mælingum okkar hafa treflamir meira að segja verið lengri en heimildir herma." Eyjólfur Kristjánsson lygnir aftur augum og segir dreyminn: „Ég myndi vilja gefa allt til þess að hafa tækifæri til að sjá Guðna Páls spila á tvo saxófóna í einu í Lídó.“ Rafni Jónssyni fínnst að ýmsa siði mætti endurvekja. „Við fundum leifar að Lark sígarettum, en það mun hafa verið algengt að þær hafí verið seldar í lausu." Það verður örugglega forvitni- legt að sjá og heyra þær heimild- ir, sem Bítlavinafélagið mun á næstunni bjóða almenningi að kynnast af eigin raun. Utgáfa þeirra er ákveðin og ber nafnið „12 íslensk Bítlalög" en þama er meðal annarra Bítlalaga að fínna Ertu með, Það er svo undarlegt með unga menn, Gvendur á Eyr- inni, Léttur í lundu, auk 8 ann- arra gersema frá þessum tíma og fúllvíst er að orðatiltækið snjalla „Með Bítlalögum skal land byggja" á ekki síður við í dag en það gerði þá. Bítlavinir hvílast eftir erfíða ferð til sjöunda áratugarins. IÆXKIAST/Sta/ida stóru leikhúsin sigt vetur? íslensk leikrít í fararbroddi Nýtt leikár er komið vel á veg og hlutur innlendrar leikrit- unar stærri en oft áður þegar af stað er farið en... í upphafi skyldi endirinn skoða og verkefnaskrár leikhúsanna benda til þess að jafn- vægi milli inn- lendra og erlendra leikrita komist á þegar líða fer á leikárið. Lítum að- eins nánar á. Þjóðleikhúsið á nú þegar §órar frumsýningar að baki; Marmara, Ef ég væri þú, Hvar er hamarinn? og nú síðast Ævintýri Hoffmanns. Sannarlega er ekki hægt að kvarta yfír hlutfalli innlends efnis í þessum pakka - þrír fjórðungar hvorki meira né minna og eitt nýtt íslenskt verk til viðbótar birtist á Litla svið- inu eftir áramótin: Brestir eftir Valgeir Skagfjörð. Óvitar Guðrúnar Helgadóttur og Fjalla-Eyvindur Jó- hanns Sigurjónssonar eru einnig framundan og er verulegur fengur að Fjalla-Eyvindi á svið Þjóðleik- hússins eftir nærri 40 ára §arvist þaðan. Já, Fjalla-Eyvindur hefur ekki verið leikinn í Þjóðleikhúsinu síðan vígsluárið 1950 segja áreiðan- legar heimildir. Nýtt leikrit Þómnn- ar Sigurðardóttur, Haustbrúður, kemur svo á fjalimar eftir áramótin og verður ekki annað sagt en inn- lend leikrit skipi öndvegi f ÞJóðleik- húsinu í vetur. Þannig á það líka að vera. Þá virðist Þjóðleikhúsið ætla að taka sig á í vetur og sinna bömun- um betur en undanfarin ár; tvö bamaleikrit og bæði íslensk eru jákvætt merki og vita vonandi á meira í sama dúr. Reyndar er Hvar er hamarinn? biðverkefni frá síðast leikári en engu að síður er tölfræi in góð. Erlend verk í minnihluta Hvað erlend verk varðar mun líklega Ævintýri Hoffmanns stand uppúr eftir leikárið sem sú sýnin er mest var borið í og mestu t kostað. Virðist sem Þjóðleikhúsi seilist sífellt lengra í þá átt að sl sjálft sig út í viðamiklum skrautsýn ingum og verður spennandi að sj hvar þetta endar. Ahoffendur virð ast kunna vel að meta. Hættulej kynni nefnist svo gaman(háð)leiku: Þjóðleikhússins í vetur; eitt þeirr: gamanleikrita sem sýnd hafa verii úti í hinum stóra heimi við mikla vinsældir. Hvað önnur erlend verk efíii varðar er Stór og smár eftii hinn þýska Botho Strauss einn: forvitnilegast, ekki síst fyrir þá söl Tveir prófílar úr íslenskum leikritum þessa leikárs. Bríet Héðinsdóttir f Ef ég væri þú eftir Þorvarð Helgason og Valdemar Öm Flygenring í Sveitasinfóníu Ragnars Amalds. eftir Hóvar Sigurjónsson DÆGURTÓNLIST.SY(i«.r// vtsir tslenskrar Ijóbahefbar? Að varðveita brageyrað Kveðskapur í íslenskri dægur- tónlist hefur ekki alltaf þótt upp á marga fiska þótt vissulega megi þar finna heiðarlegar undan- tekningar. í flestum tilfellum reyna textahöfundar þó að fylgja fslenskri Ijóðahefð í kveð- skap sínum, a.m.k. hvað rím varðar og þess eru mörg dæmi að höfundar láta textana standa í ljóðstöf- um. Þetta þykir mér virðingarvert endá virðist nú fokið í flest skjól með íslenska ljóða- gerð ef marka má beinskeyttar greinar Guðmundar Guðmundar- sonar framkvæmdastjóra um íslenska nútímaljóðlist að undanf- ömu og að þessu leyti er ég Guð- mundi sammála. Ég hef að undanförnu hlustað svolítið á nýútkomna hljómplötu hljómsveitarinnar Gildrunnar og líkað allvel margt sem þar er að fínna. Þó er ekkert á plötunni sem talist getur í sérflokki út frá fagleg- um sjónarmiðum, ekkert eitt iag, sem ég treysti mér til að benda á öðru fremur, en samt er eitthvað við þessa plötu. Tónlistin á henni flokkast ekki undir nýjustu strauma í dægurtónlistinni, en hún er heil- steypt og hið sama má segja um textana. Ef til vill ríður það bagga- muninn. Textamir eru eftir Þóri Kristins- son, og þeir félagar í Gildrunni em greinilega að koma ákveðnum boð- skap á framfæri, þótt hann risti kannski ekki djúpt í sumum text- anna. Af þeim má hins vegar ráða að höfundur hefur brageyra og reynir að halda í formið. Að vísu verður honum stundum fótaskortur og hann á það til að að ofstuðla, en viðleitnin er þó til staðar. Það er meira en sagt verður um suma. Lítum á dæmi: Silfurskuggi spegilmyndar sýndi andlit erfðasyndar. andlit er var tært sem lind en tíminn breytti i hryggðar- mynd. Og ennfremun Ég þoli ekki þá sem em að grobba þá sem era að snobba, fyrir sinfóníusveitinni og látúnsbarkaleitinni. Þessi dæmi em valinn af handa- hófi og þótt ljóst sé að Þórir verður tæplega talinn f hópi þjóðskálda fyrir þennan kveðskap er honum ekki alls varnað, og hann hefur, að mínum dómi, ýmislegt fram yfír marga þá, sem telja sig vera skáld á þessum síðustu og verstu tímum. Þórir Kristinsson er 23 ára gam- all og við nám i trésmíðum. Að- spurður kvaðst hann ekki taka sjálf- an sig alvarlega sem skáld og að textamir á þessari plötu væm þeir einu sem birst hefðu eftir sig opin- berlega. „Ég vil hins vegar halda í gömlu íslensku ljóðahefðina af því að mér fínnst það fallegra, fyrir ut- an að það er mun erf- iðara að yrkja þannig. Mér fínnst að þeir sem hvorki hirða um rím né ljóðstafi ættu frek- ar að snúa sér að smásagnagerð," sagði Þórir. Um innihaid textanna sagði hann að þeir félagar hefðu haft samráð um boðskapinn og væri þar aðallega um að ræða ádeilu á ýmislegt, sem þeim þætti miður fara í þjóðfélaginu. Þórir kvaðst ekki hafa í hyggju að gefa sig frekar að skáidskap með útgáfu ljóðabókar í huga en útilokaði ekki þann möguleika að semja texta fyr- ir næstu plötu Gildrannar. Ég gat þess hér að framan að nokkur umræða hefði átt sér stað um íslenskan nútímakveðskap að undanfömu. Gísli Jónsson mennta- skólakennari hefur í grein í Morg- unblaðinu varað við þeirri hættu að þjóðin sé að glata brageyranu. Guðmundur Guðmundarson tekur dýpra í árinni og kallar nýútkomna Ljóðaárbók 1988 „lokaaðför að íslenskri ljóðahefð". Ég get tekið undir þau sjónarmið að verið sé að svipta þjóðina tilfinningu fyrir snilld og fegurð íslenskrar ijóðlistar með ofdekri við marklaust mgl, sem kallað er skátdskapur- i dag. Og óneitanlega skýtur það skökku við ef sú verður niðurstaðan, að brag- eyrað varðveitist þar sem síst skyldi, í popptextagerð, sem hingað tii hefúr ekki þótt menningarauki að. Til samanburðar skal hér tekið dæmi úr áðumefndri Ljóðaárbók 1988 en í hana vom „aðeins valin ljóð sem að mati ritnefndar stóðust ákveðnar listrænar kröfúr". Ljóðið, sem ber heitið Ótti, er eftir Birgittu Jónsdóttur og hljóðar svo: Ég vafði álpappír um vinstra augað og hjartað. Síðan klippti ég gat á naftann og flúði út um hann. eftir Svein Guðjónsson Þórir Kristinsson: „Finnst gamla íslenska ljóðahefðin fallegri. .“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.