Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989 5 / STAÐGREHDSLA 1989 Ákveöiö hefur verið aö skattkort ársins 1988 skulu gilda áfram á árinu 1989. Þó með þeirri undantekningu að skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti gefin út á árinu 1988 falla úr gildi frá og með 1. janúar 1989. Ný skattkort, sem gilda fyrir áriö 1989, verða gefin út til þeirra sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Nýju skattkortin verða frábrugðin skatt- kortum ársins 1988 á þann hátt að á þeim verður aðeins tilgreint hlutfall pers- ónuafsláttar, auk persónubundinna upplýsinga um launamanninn, en ekki skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar eins og áður. Áríðandi er að launagreiðandi athugi, að það skatthlutfall og sú upp- hæð persónuafsláttar sem fram koma á skattkortum útgefnum vegna ársins 1988 falla úr gildi frá og með 1. janúar 1989. Frá og með 1. janúar 1989 ber því launagreiðanda að reikna stað- greiðslu af launum miðað við auglýst skatthlutfall og persónuafslátt og að teknu tilliti til þess hlutfalls pers- ónuafsláttar sem tilgreint er á skatt- korti launamanns. SKATTHLUTFALL STAÐGREIÐSLU Skatthlutfall staðgreiðslu ersameiginlegt skatthlutfall tekjuskatts og útsvars. Fyrir árið 1989 verður skatthlut- fall staðgreiðslu 37,74%. Persónuafsláttur ársins 1989 hefur verið ákveðinn 214.104 kr. Mánaðarlegur persónuafsláttur verður þá 17.842 kr. Við útreikning á staðgreiðslu launa- manns á árinu 1989 ber launagreiðanda að nota: 1. Auglýsta upphæð persónuafsláttar fyrir árið 1989 en ekki þá upphæð persónuafsláttar sem tilgreind er á skattkortum ársins 1988. 2. Hlutfall persónuafsláttar sem fram kemur á skattkorti launamanns. Sjómannaafsláttur ársins 1989 verður 492 kr. fyrir hvern dag sem maður telst stunda sjómannsstörf. I BREYTINGAR Breytingar sem kunna að verða á upp- hæð persónu- og sjómannaafsláttar síðar á árinu 1989 verða auglýstar sér- staklega, auk þess sem allir launagreið- endur, sem hafa tilkynnt sig til launa- greiðendaskrár RSK, munu fá orðsend- ingu um breytingar á fjárhæðum. Áríðandi er að launagreiðendur fylgistmeð breytingum. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Cæ AUGiySINGAÞjQNUSTAN / SIA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.