Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
9
[í>nýr ém
mi BBSnH
B.MAGNÚSSONHF.
HÓLSHRAUNI2 - SÍMI 52866 ■ P.H.410 ■ HAFNARFIRÐI
\4xtarbréf
UTVEGSBANKANS
Vaxtarsjóðurinn er
VERÐBRÉFASJÓÐUR í umsjón
sérfræðinga Verðbréfamarkaðar
Útvegsbankans.
Vaxtarbréfin hafa gefið um 12%
ÁVÖXTUN UMFRAM
VERÐBÓLGU að undanförnu og
eru ýmist gefin út á NAFN
KAUPANDA EÐA HANDHAFA.
EKKERTINNLAUSNARGJALD
annan og þriðja afgreiðsludag
hvers mánaðar.
VERÐBREFAA/IARKAÐUR
ÚTVEGSBANKANS
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30
I 1
to co to 00 Góðan daginn!
HeQum
viðræður
Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfetæðis-
flokksins, segir um sam-
skiptin við EB í Morgun-
biaðsgrein á gamlársdag:
„Innan Evrópubanda-
lagsins er nú stefrit að
sameiginlegum markaði
1992. Mikill meirihluti
viðskipta íslendinga er
nú við Evrópubandalag-
ið. Við okkur blasir þvi
það vandasama verkefhi
að treysta stöðu okkar
hér i miðju Norður-Atl-
antshafinu með þvi að
efla viðskipti og treysta
viðskiptasambönd bæði
við Ameríku og Evrópu.
Aðild að Evrópubanda-
laginu hefiir að sjálf-
sögðu ekki verið á dag-
skrá. En fram til þessa
höfrun við vikið okkur
undan þvi að liefja form-
legar viðræður við Evr-
ópubandalagið til þess að
tryggja framtiðarhags-
muni okkar innan þess.
Að minu mati á nú að
lieíja þessar viðræður.
Það er að sönnu mikil-
vægt að tryggja okkur
pólitiska velvild með
óformlegum samtölum
við ráðamenn einstakra
aðildarlanda Evrópu-
bandalagsins. En það eitt
dugir ekki. Viðræður
eiga þvi að fara af stað,
án tafar."
Alliliða átak
Jón Baldvin Hanni-
balsson, sá ráðherranna
sem fer með samskiptin
við EB, vill að auknu fé
og mannafla verði varið
til undirbúnings undir
1992 af íslands hálfri. Og
hann vill endurskipu-
leggja utanrikisþjónustu
íslendinga með aukinni
áherslu á viðskiptaþjón-
ustu og markaðsmál. Ut-
anríkisráðherra minnir á
það starf sem nú er unn-
ið innan Alþingis og í
stjómkerfinu til að fylgj-
ast náið með framvind-
unni innan EB og leggja
mat á stöðu okkar. Jón
Baldvin telur m.a. að við
eigum að búa okkur und-
ir breytingamar 1992:
Afstaðan til EB
í hefbundnum spurningum sínum til forystu-
manna stjórnmálaflokka spurði Morgun-
blaðið meðal annars um þessi áramót:
„Hvernig er best staðið að undirbúningi af
íslands hálfu vegna breytinga á markaði
Evrópubandalagsins, sem kenndar eru við
1992?“ Fyrir utan að svara þessari spurn-
ingu hér í blaðinu á gamlársdag tóku for-
ystumenn stjórnmálaflokkanna afstöðu til
málsins í áramótagreinum sínum. Er staldr-
að við þetta í Staksteinum í dag.
„Með beinum viðræðum
við stjómamefiid Evr-
ópubandalagsins og
ríkisstjómir EB-landa i
þvi skyni að auka skiln-
ing á sérstöðu íslendinga
og nauðsyn sérstaks við-
bótarsamnings um
fríverslun með fiskafurð-
ir, umfram þann samn-
ing, sem nú þegar er i
gildi. Loks með tvíhliða
viðræðum við ríkisstjóm-
ir og einstaka ráðamenn
EB-landanna.“
Af orðum utanríkis-
ráðherra má ráða, að það
sé stigsmunur á afetöðu
hans og Þorsteins Páls-
sonar að þvi er varðar
ákvörðun um að hefja
formlegar viðræður.
Þær hljóta við núverandi
aðstæður meðal annars
að snúast um „nauðsyn
sérstaks viðbótarsamn-
ings um friverslun".
Breið
samstaða
í áramótagrein i
Tímanum segir
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra,
meðal annars:
„Þótt við íslendingar
deilum um flest virðist
sem betur fer vera breið
samstaða um afetöðuna
til Evrópubandalagsins.
Tvær ríkisstjómir hafa
lýst yfir að full aðild
komi ekki til greina. Á
það legg ég mikla
áherslu. Auðvelt er fyrir
litla þjóð að týnast i þvi
mannhafi sem Evrópu-
bandalagið er.
Einstaka raddir hafa
þó heyrst sem hafa talið
fulla aðild óhjákvæmi-
lega. Einkum eru þær úr
röðum iðnaðarins. Ég tel
slíkt á miklum misskiln-
•ngi byggt“ ...
Ég verð stöðugt sann-
færðari um að full aðild
er óþörf fyrir okkur ís-
lendinga. Við sækjumst
ekki eftir þeim pólitísku
áhrifum, sem fiiUri aðild
kunna að fylgja fyrir
stærri þjóðir. Við leitum
fyrst og fremst eftir
frjálsum markaði fyrir
okkar framleiðslu. Við
viljum einnig gjarna taka
þátt i vísinda- og þróun-
arstarfi. Það stendur
okkur tfl boða.“
Forsætisráðherra tal-
ar um „fulla" aðild án
þess að segja frá þvi, að
annaðhvort eru ríki aðil-
ar að EB eða ekki, það
er ekki á dagskrá banda-
lagsins að veita neinum
aukaaðild.
Stjórnmála-
starf
Steingrímur Her-
mannsson minnir lesend-
ur á, að hann hafi rætt
um ísland og EB við
ýmsa ráðamenn i EB-
ríkjum. Hann útfeerir
skoðanir sínar hins vegar
ekki með sama hætti og
þeir Þorsteinn Pálsson
og Jón Baldvin Hanni-
balsson. Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, vill
einnig einhvers konar
viðræður við EB og segir
m.a. i Morgunblaðssvari
sinu:
„Nærtækustu skrefin
til að undirbúa aðgerðir
íslendinga vegna breyt-
inga á markaði Evrópu-
bandalagsins eru að
halda áfram að safiia
ítarlegum upplýsingum
um eðli þessara breyt-
inga. Samtök atvinnulífe
og launafólks þurfa i
samvinnu við stjómvöld
að afla itarlegra upplýs-
inga og ræða ræltilega
viðbrögð okkar við þess-
um þáttasltilum.
Jafiiframt þarf að
hefia viðamikið stjóm-
málastarf til að tryggja
að hagsmunir íslendinga
eigi greiða leið að ráða-
mönnum Evrópubanda-
Iagsins ...
Þvi aðeins að við iyót-
um velvildar og skilnings
hjá forystumönnum Evr-
ópubandalagsins og höf-
um undirbúið mál okkar
af nægilegri sérfræði-
legri kunnáttu em líkur
á að okkur takist að
tryggja hagsmuni íslend-
inga þegar hinar miklu
breytingar ganga i garð
á markaði Evrópubanda-
lagsins."
Hugsar þú um framtíð
bamabamanna þinna?
Peningagjöf sem lögð er fyrir núna, getur borið
háa ávöxtun sem safnast upp þegar árin líða.
Hún tvöfaldast á 9 árum og fjórfaldast á 18
árum-miðað við 8% vexti yfirverðb'ólgu. Þá gæti
barnabarnið þitt verið að kaupa sína fyrstu
íbúð, eða verið að eignast barnabarnabarnið
þítt. Þá kæmi dálítið sparifé frá afa og ömmu sér
án efa vel. Langtímasjóður VIB - Sjóður 1 -
býður örugga leið til langtímasparnaðar.
Hugsaðu vel um fjárhagslegt öryggi fjölskyldu
þinnar. Velkomin í VIB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR HDNAÐARBANKANS HF
Armúla 7,108 Reykjavík. Sími 68 15 30