Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 26
26 MpRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Forseti haftiar böl- hyggju og bölrækt Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði þjóðinni ekkert um það í ára- mótaræðu sinni á gamlárskvöld, hvers hún mætti vænta frá ríkis- stjóminni á hinu nýbyijaða ári. Raunar bám yfirlýsingar að- standenda ríkisstjórnarinnar það með sér, að mál séu þar í einhverri biðstöðu, þótt liggi í loftinu, að efnahagsráðstafana kunni að vera að vænta fýrr en síðar. Þær hafa að vísu verið á döfinni þá þijá mánuði, sem stjómin hefur nú setið, en hing- að til hefur hún einbeitt sér að því að leggja aukna skatta og nýjar álögur aðrar á borgarana. Þótti forsætisráðherra ekki við hæfi að gera skattbyrðina að umtalsefni á síðasta kvöldi árs- ins. Hann talaði á hinn bóginn eins og fiskafli hefði verið rýr á árinu 1988 og sagði meðal ann- ars: „Eflaust eykst aflinn fljót- lega aftur og eftirspurn eftir góðum sjávarafurðum verður mikil.“ Er næsta einkennilegt að komast þannig að orði í lok árs, sem hefur fært „íslensku þjóðinni mestan sjávarafla frá því að fiskveiðar hófust,“ svo að vitnað sé í orð Þorsteins Gíslasonar, fiskimálastjóra, hér í blaðinu á gamlársdag. Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands vék að umræðum um kreppu í ávarpi sínu á nýárs- dag. Forsetinn sagði meðal ann- ars: „Því er vitanlega ekki að neita að við eigum við nokkra örðug- leika að stríða, samdrátt á ýms- um sviðum, rekstrarvanda af einu og öðm tagi. Sumir segja að þjóðartekjur muni minnka nokkuð. En er það samt ekki vanþakklæti að kalla þessa örð- ugleika kreppu? Við búum sem fyrr við einhveijar hæstu þjóðar- tekjur á nef eða samkvæmt áætlun fyrir 1988 rétt innan við milljón krónur á mann — og er þá talið með sérhvert manns- barn í landinu.“ Forseti líkti því við happ- drættisvinning, sem gerðist hér á ámnum 1986 og 1987, þegar verð á sjávarafurðum var hátt en olíuverð lágt og ýmislegt fleira okkur í hag. Eftir slíkan vinning væri erfitt að horfast í augu við hversdagsleikann. „En hversdagsleikinn er ekki kreppa," sagði forseti og bætti við innan sviga: „og allra síst þegar litið er til þess að áður- nefndar þjóðartekjur hafa stór- aukist frá því sem þær vom árið 1983 — og að þjóðin kaup- ir 15 af hundraði meira með tekjum sínum nú en hún gerði fýrir 5 ámm.“ Og enn sagði forseti íslands: „Og enginn verð- ur meiri af að leggjast í böl- hyggju og bölrækt. Við höfum illa ráð á því að eyða orku okk- ar sjálfra, sem er orka þjóðar- innar, í krepputal og kvíða.“ Þessi orð forseta íslands ganga þvert á það sem hæst hefur borið í þjóðmálaumræðum undanfarna mánuði. Að vísu hafa þær raddir heyrst oftar en einu sinni á þeim tíma, að oft væri of fast að orði kveðið hjá þeim sem hæst hafa látið í sér heyra og notað orð eins og „kreppa“ eða „þjóðargjaldþrot" um núverandi ástand og það sem í vændum væri. Sérstök ástæða er þó til að staldra við þegar forseti Islands flytur vamaðar- orð af þessu tagi. í þessu samhengi komst Vigdís Finnbogadóttir einnig þannig að orði: „Nær væri að hugsa um það sem má styrkja okkur sjálf til verka, í stað þess að berast ráðvillt með því kapp- hlaupi sem mikið er stundað í fjölmiðlum og ég vil kalla að við séum þar að vega að okkur sjálf- um með bölsýni. Síst vil ég kasta rýrð á góða fréttaþjónustu við landsmenn við að skýra þeim skjótt frá því sem er að gerast í landinu og í heiminum öllum, fréttaþyrstri þjóð. En má það ekki vera augljóst að erfitt er á stundum að öðlast heildarsýn yfír málefni lands og lýðs þegar setið er hveija stund um þá stjórnmálamenn sem þjóðin hef- ur kjörið og þeir fulltrúar eru krafðir sagna um hugsanir sínar frá andartaki til andataks." Vilji menn komast að skyn- samlegum niðurstöðum og finna hæfilegar lausnir verða þeir fyrst að gefa sér tíma til að fá yfirsýn yfir og síðan skilgreina vandann, sem við er að glíma. Fjölmiðlar hafa meðal annars því hlutverki að gegna að miðla til manna upplýsingum, svo að þeir geti dregið af þeim ályktan- ir. Stjómmálamenn hafa gefið kost á sér til ábyrgðarstarfa til að greiða úr málum, taka ákvarðanir, rökstyðja þær og afla þeim stuðnings. Fjölmiðlar geta ekki haft meira eftir stjórn- málamönnum en þeir sjálfir segja. Noti stjómmálamenn röng orð eða tali áður en þeir gefa sér tóm til að hugsa leiðir það ekki til annars en vand- ræða. Forseti íslands bendir réttilega á, að þau vandræði em töluverð með þjóðinni við upphaf nýs árs. Enginn verður n af að legjgjast í bölhyggju og böl * + Avarp Vigdísar Finnbogadóttur forseta Islan Góðir landsmenn allir, — gleðilegt nýtt ár. A þessu nýja ári vil ég fyrst þakka löndum mínum vinarhug og það mikla traust sem mér var sýnt á árinu sem nú er liðið. Sem einatt fyrr við áramót hugs- um við til þeirra sem ekki eru leng- ur meðal okkar. Sameinuð stöndum við ávallt í samhryggð okkar með þeim sem verða að horfast í augu við það sem orðið er og enginn fær breytt. En við sameinumst einnig í þeirri huggun sem líf og starf góðra manna hefur verið okkur, þeim styrk sem þeir skilja okkur eftir eins og Ólafur Jóhann Sigurðsson sagði í kveðjuljóði sínu: . Af flestu því hef ég fátt eitt gert sem fólki hér þykir mest um vert, en ef til vill sáð í einhvem barm orði sem mildar kvðl og harm. Um síðustu áramót veltum við um stund fyrir okkur bjartsýni og mikilvægi hertnar í hugarfari þjóð- ar. Ekki þeirri bjartsýni sem fæst fyrir lítið á sölutorgum, heldur þeirri sem byggir á heilbrigðu sjálfstrausti, vilja tii að finna það sem hjálpar manneskjunni af stað og er okkur nauðsynlegur orku- gjafi. Nú verður ekki betur séð en að um þessi áramót sé enn og aftur þörf á því að við tökum okkur bjart- sýnistak. Því nú um skeið hefur vofa verið á sveimi meðal okkar og breitt úr sér freklega — og er köll- uð kreppa. í fréttum er á því klifað að hún glotti framan í okkur í hverri gátt. Því er vitanlega ekki að neita að við eigum við nokkra örðugleika að stríða, samdrátt á ýmsum sviðum, rekstrarvanda af einu og öðru tagi. Sumir segja að þjóðartekjur muni minnka nokkuð. En er það samt ekki vanþakklæti að kalla þessa örðugleika kreppu? Við búum sem fyrr við einhveija hæstu þjóðartekj- ur á nef eða samkvæmt áætlun fyrir 1988 rétt innan við milljón krónur á mann — og er þá talið með sérhvert mannsbam í landinu. Á árunum 1986 og 1987 unnu ís- lendingar í happdrætti ef svo mætti að orði kveða. Verð á aðalútflutn- ingsvöru okkar, sjávarafurðum, var hátt, olíuverð var lágt og ýmislegt fleira var okkur í hag. Það er kannske von, að eftir þennan stóra happdrættisvinning verði mönnum ekki um sel, þegar þeir þurfa að horfast í augu við hversdagsleik- ann. En hversdagsleikinn er ekki kreppa (— og allra síst þegar litið er til þess að áðurnefndar þjóðar- tekjur hafa stóraukist frá því sem þær voru árið 1983 — og að þjóðin kaupir 15 af hundraði meira með tekjum sínum nú en hún gerði fyrir 5 árum). Þessu hættir okkur til að gleyma. Og enginn verður meiri af að leggjast í bölhyggju og bölrækt. Við höfum illa ráð á því að eyða orku okkar sjálfra, sem er orka þjóðarinnar, í krepputal og kvíða. Nær væri að skoða vandkvæðin algáðum augum og snpa bökum saman til að vinna okkur út úr þeim því „hvað má höndin ein og ein“ eins og Matthías kvað í Islend- ingaljóðum sínum. Nær væri að hugsa um það sem má styrkja okk- ur sjálf til verka, í stað þess að berast ráðvillt með því kapphlaupi sem mikið er stundað í fjölmiðlum og ég vil kalla að við séum þar að vega að okkur sjálfum með böl- sýni. Síst vil ég kasta rýrð á góða fréttaþjónustu við landsmenn við að skýra þeim skjótt frá því sem er að gerast í landinu og í heiminum öllum, fréttaþyrstri þjóð. En má það ekki vera augljóst að erfitt er á stundum að öðlast heildarsýn yfir málefni lands og lýðs þegar setið er hveija stund um þá stjómmála- menn sem þjóðin hefur kjörið og þeir fulltrúar eru krafðir sagna um hugsanir sínar frá andartaki til andartaks. Er svo komið að mörg- um ofbýður atgangurinn í harðri samkeppni um tíðindi sem helst þurfa að vera æsifréttir. Gæti ekki svo farið að við hættum að taka mark á þó hrópað væri: „Úlfur, úlfur. ..“ Hvenær sem við lítum í kringum okkur og skoðum þau efnislegu kjör sem þjóðum em búin, þá hljótum við að sjá að við emm vel sett með þau lífsgæði sem starf okkar og forfeðra okkar hefur fært okkur. Við vomm fyrrum úrræðalítil og bjargarlaus þjóð. — Nýlega var gefin út myndabók breska listmál- arans og íslandsvinarins Colling- wood með yndislegum og ómetan- legum vatnslitamyndum frá íslandi af þeim stöðum sem frægastir em í fomíslenskum bókmenntum — og nefnd „Fegurð íslands". Colling- wood var hér á ferð fyrir tæpri öld og lýsir þá landsmönnum og höfuð- staðnum á þennan veg: „Allir em fátæklega til fara og staðurinn sjálfur nakinn, aumur og eyðilegur. Úndirokun og sinnuleysi þeirra, sem ættu að geta stuðlað að bærilegri og uppörvandi tilvem og vaxandi velmegun þjóðarinnar, vom augljós, eða svo fannst mér að minnsta kosti. Hvarvetna er skítur og óreiða og allt virðist hálfkarað .. .“ Nú er myndin önnur. Djörfung og hugur hafa reist íslendinga úr öskustó. Hvarvetna blasir við glæsi- legur húsakostur velmenntaðrar og framtakssamrar þjóðar sem, ef á það mætti minna, sigraði td. skelfi- legan smitsjúkdóm eins og berkla á skemmri tíma en aðrar þjóðir af því að hún lærði svo vel að varast sýkilinn meðal annars með miklu líkamlegu hreinlæti, sem Íslending- ar hafa haft í hávegum æ síðan. En maðurinn lifir ekki á einu saman brauði. Þegar kreppa er nefnd verður mér það ofar í huga að við emm reyndar stödd í eins konar þjóðemislegri kreppu. Og við emm ekki ein um það. Hliðstæður vandi steðjar að mörgum öðmm þjóðum, smærri og stærri. Við lifum þá tíma að sterk alþjóðahyggja ríkir Innflutningsgjald bíla hækkar um 11%: Utsöluverð ódýrs bíls hækkað um 40 þúsund Framfærsluvísitalan hækkar um 0,45% INNFLUTNINGSGJALD af bílum hækkaði um 11% um áramótin. Gjaldið er mishátt eftir bílum, var 5—55% en verður nú 16—66%. Áhrifin á útsöluverð bíla er því mismunandi. Ef ekki verða aðrar breytingar má búast við að meðalbíllinn hækki um rúm 8%, þannig að útsöluverð bíls sem kostaði 500 þúsund fyrir áramót hækki um 40 þúsund. Fjármálaráðuneytið telur hins vegar að reynslan sýni að bú- ast megi við að hækkunin gjaldsins komi ekki öll fram i útsöluverðinu og að bilarnir hækki því um 6—7%. Að sögn Bolla Þórs Bollasonar skrifstofustjóra hagdeildar íjármála- ráðuneytisins er búist við að hækkun innflutningsgjaldsins auki tekjur ríkissjóðs um 400 milljónir á næsta ári og hafi þá verið gert ráð fyrir að hækkunin minnki innflutning bíla. Á síðasta ári voru fluttir inn 14—15 þúsund bílar og gerir fjár- málaráðuneytið ráð fyrir að 10—11 þúsund bílar verði fluttir inn á ný- byijuðu ári. Gísli Guðmundsson formaður Bílgreinasambandsins tel- ur hins vegar að bílainnflutningurinn minnki enn meira, meðal annars vegna hækkunar innflutningsgjalds- ins, og að bílafjöldinn geti farið nið- ur í 6 þúsund bíla. Ef hækkun innflutningsgjaldsins leiðir til 8% hækkunar á útsöluverði bíla mun það leiða til 0,45% hækkun- ar framfærsluvísitölunnar, sam- kvæmt upplýsingum Vilhjálms Ól- afssonar hjá Hagstofunni. í fram- haldi af því mun lánskjaravísitalan hækka um 0,3%. Gísli segir að bíla- innflutningur hafi dregist mjög mik- ið saman undanfarna mánuði. „Við teljum að við þessa hækkun innflutn- ingsgjaldsins muni innflutningurinn dragast enn meira saman. Vegna minni innflutnings mun ríkið ekki fá fleiri krónur í kassann en áður en eykur aðeins með þessu verð- bólguna, eins og fram kemur í hækk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.