Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Gangandi vegfarendur í
hættu
GuðSnna Hannesdóttir
hringdi:
„Hvergerðingar, öll erum við
sammála um að koma í veg fyrir
slys af hvaða tagi sem þau eru.
Vil ég nú hvetja bæjarbúa til að
skilja bílinn sinn eftir heima svo
sem eina klukkustund og þá helst
þegar úti er stormur og hálka á
götum. Ganga því næst um þær
götur þar sem gróður er látinn
vaxa villt langt út fyrir allar girð-
ingar svo vegfarandinn fær
óvæntan kinhest og verður því
oftast að hrekjast út á akbraut-
ina. Ættu þá allir að sjá að hér
er mikil slysagildra sem nauðsyn-
legt er að íjarlægja. Ekki batnar
ástandið þegar ryðja þarf snjó af
akbrautum en þá er venja að láta
gangstéttimar geyma fönnina."
Góð þjónusta
E.S. hringdi:
„Ég vil þakka vagnstjórum
Strætisvagna Reykjavíkur fyrir
þeirra góðu þjónustu. Mér líka það
vel að verslanir fari að selja plast-
poka fyrir viðskiptavini, það dreg-
ur vonandi úr plastpokabruðlinu
sem mér hefur oft blöskrað. Þvílík
sóun og sóðaskapur. Nú fer bjór-
inn víst að koma, ekki er ég bjart-
sýn á að hann bæti drykkjuvenjur
fólksins.
Bakkus miklu böli veldur
breitir sinni grimmu kló.
Hann er líkt og falinn eldur
sem hremmir allt í elsins stó.
Veski
Veski tapaðist miðvikudaginn
28. desember í Broadway eða á
leið þaðan. í veskinu voru skilríki
o. fl. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 33865.
Kvenúr
Kvenúr fannst við Hafnar-
stræti, fyrir framan Pylsuvagn-
inn, á Þorláksmessu. Upplýsingar
í síma 685990.
I
Gegn heiðnum sið
Til Velvakanda.
Astæðan fyrir þessum skrifum
er sú staðreynd að sjaldan eða
aldrei fyrr heftir jafn mikið af and-
kristnum og heiðnum siðum komið
yfir þjóðina sem nú. Allra handa
villutrú og villukenningar eru að
kafsigla þjóðina. Ástæðan er að
mínu mati sú að maðurinn sækir í
eðli sínu í andleg efni, ekki síst
þegar harðnar á dalnum. Og ef fólki
er ekki bent á rétta veginn er auð-
velt að afvegaleiða það. Sú stað-
reynd er nefninlega sorgleg að
kristnir einstaklingar hafa ekki
staðið sig nógu vel í að Iáta í sér
heyra á opinberum vettvangi til að
benda fólki á rétta veginn. Því hvet
ég þig, ef þú þekkir Jesú Krist eins
og ég, að láta í þér heyra svo fleiri
sjái villuna og fínni sannleikann.
Því það er allt annað en sniðugt,
að hjá þjóð sem kallar sig kristna,
skuli enginn opna munninn þegar
þekktir menn í þjóðfélaginu játa sig
undir villutrú í flölmiðlum með t.d.
rúnasteinum og tilvitnunum í
stjömuspeki svo eitthvað sé nefnt.
• Það er einnig hræðilegt til þess
að hugsa að miðlum og öðrum
andakuklurum sé gert hærra undir
höfði en hinum eina sanna frelsara,
Jesús. Og haldin eru námskeið á
Snæfellsnesi og víðar til að draga
fólk lengra frá Kristi. Nú spyr
kannski einhver: „Er eitthvað and-
kristilegt við þetta?" Því svarar
BiblSan á mörgum stöðum t.d. í 1.
Jóhannesarbréfi, 4. kafla, vers 2
og 3. Einnig segir í 5. Mósebók,
18 kafla, vers 10,11 og 12: „Eigi
skal nokkur finnast hjá þér, sá er
láti son sinn eða dóttur ganga gegn-
um eldinn, eða sá er fari með gald-
ur eða spár eða fjölkynngi, eða tö-
framaður eða gjömingamaður eða
særingamaður eða spásagnarmaður
eða sá er leiti frétta af framliðnum.
Því að hver sá, er slíkt gjörir, er
Drottni andstyggilegur, og fyrir
slíkar svívirðingar rekur Drottinn
Guð þinn þá burt undan þér.“
Kristnir menn og konur. Látið í
ykkur heyra um Jesú Krist, því fólk
þarf á honum að halda og það er
okkar verk að segja frá honum.
Og þú sem ekki þekkir Jesús, leit-
aðu hans. Því eins og Jesú sagði:
„Ég er vegurinn, sannleikurinn og
lífið. Enginn kemur til föðurins,
nema fyrir mig.“ (Joh. 14:6)
Kristinn Magnússon
CONRAD
900 M
PLASTBÁTAR
L= 9,10 M
B= 3,00 M
D= 0,95 M
5,8 TONN
Örfáir af þessum frábæru bátum verða til afhendingar fyrir vorið
ef pantað er strax. Ótrúlega hagstætt verð. Bátur í Reykjavík.
Fleiri gerðir og stærðir fáanlegar.
íspóll
Upplýsingar í síma 91-73512.
pósthólf 8851, 128 Reykjavík.
í f ínu formi
Frábært myndband með leikfimi
fyrir byrjendur (45 mín.) og lengra komna (45 mín;).
Fæst i Skeifunni 7,
Pennanum,
Bókabúö fónasar Akureyrt.
Póstkröfusími 91-689868.
Innritun frá kl. 13:oo til 23:00 t stma 64 1111
Kennslustaðir: Auðbrekku 17, Kópavogi og
„Hallarseli", Þarabakka 3 í Mjódd.
DÁNSSKÓU
SIGURÐAR
HÁKONARSONAR
i
i