Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
39
tl'llUlfUtáÍjMJKáEíW 3
'1111111 IHlJlJiiBiJáSniflMJM
Minning’:
Vilhjálmur Guðjóns-
son vélstfóri
svo og aldraðri móður Vilhjálms og
systkinum hans.
Blessuð sé minning hans.
Jarðarförin fer fram þriðjudaginn
3. janúar 1989.
Jóhann Lárusson
Aldrei er svo bjart yfir oðlingsmanni
að eigi geti syrt jafii snögglega og nú
og aldrei er svo svart yfir sorgarranni
að eigi geti birt fyrir eilifa trú.
(J.H.)
Látinn er svili minn og vinur,
Vilhjálmur Guðjónsson, aðeins 56
ára að aldri, eftir tiltölulega stutta
en hetjulega baráttu við illvígan
sjúkdóm. Vinátta okkar hófst er ég
kvæntist inn í sömu fjölskyldu og
hann og hafði því staðið í meira en
þijátíu ár. Margs er að minnast á
svo löngum tíma en efst er í huga
tryggð hans og traust. Það var afar
gott að leita til Vilhjálms, því bón-
góður var hann með afbrigðum og
vildi hvers manns vanda leysa. Ég
minnist allra heimsóknanna á hið
fallega og gestrisna heimili hans
og Halldóru mágkonu minnar, einn-
ig í sumarbústaðinn þeirra hlýja og
notalega er þau reistu sér fyrir all-
mörgum árum í Borgarfirðinum.
Vilhjálmur var mikill heimilismaður
og naut sín best innan um fjöl-
skyldu sína og vini. Ég minnist
hversu hlýr og góður hann var alla
tíð tengdaforeldrum sínum og
reyndist þeim eins og besti sonur.
Fyrir það er öll fjölskyldan honum
þakklát. Að leiðarlokum er ég þakk-
látur fyrir vináttu hans, sem aldrei
bar skugga á. Halldóru mágkonu
minni, sonum þeirra fjórum,
tengdadætrum, barnabörnum, móð-
ur hans og öðrum aðstandendum
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Siguróli Jóhannsson
Fæddur 4. mars 1932
Dáinn 27. des. 1988
I dag er ti! moldar borinn frá
Akraneskirkju Vilhjálmur Guðjóns-
son, Vogabraut 42, Akranesi. Hann
lést á Sjúkrahúsi Akraness hinn 27.
desember sl. eftir erfið veikindi og
baráttu við ólæknandi sjúkdóm.
Vilhjálmur Maríus Guðjónsson,
en svö hét hann fullu nafni, fædd-
ist 4. mars 1932 á Þorgeirsfelli í
Staðarsveit sjöundi í röðinni af
fjórtán bömum þeirra Unu Jóhann-
esdóttur og Guðjóns Péturssonar.
Fljótlega fluttu foreldrar Vilhjálms
á Gaul í Staðarsveit og bjuggu þar
í torfbæ með barnahópinn til_ 1945,
er Guðjón byggði nýtt hús. Á Gaul
ólst Vilhjálmur upp og við þann bæ
er fjölskyldan gjarnan kennd. Á
þessum árum var lífsbarátta
íslenska bóndans hörð, ekki síst ef
fjölskyldan var stór og þurftu börn-
in þá strax að taka til hendinni, er
kraftar leyfðu. Vilhjálmur vandist
því í æsku að þurfa að vinna og
var vinnusemi hans alltaf söm og
jöfn alla hans ævi.
Ungur að árum fór Vilhjálmur
að heiman og þá til Sandgerðis á
vertíð. í ársbyijun 1952 fluttist
hann svo til Akraness, þar sem
hann settist að, stofnaði heimili og
bjó á Akranesi til dauðadags.
Lengst af hefur Vilhjálmur stundað
sjóinn sem vélstjóri á fiskibátum
stórum og smáum, en hann hafði
aflað sér réttinda á hinar stærri
vélar fiskiskipa. Á ámnum 1952-
1965 reri Vilhjálmur á hinum hefð-
bundnu vertíðarbátum frá Akranesi
og var hann oftast á þessum árum
undir skipstjórn Helga Ibsen,
þekkts skipstjóra og aflamanns hér
á Akranesi.
Það var því engin tilviljun, að
þeir samstarfsmennirnir, Vilhjálm-
ur og Helgi, réðust í útgerð saman,
er þeir keyptu haustið 1965 70
tonna tréskip, mb. Rán, og stofnuðu
um reksturinn fyrirtækið Hafbjörgu
hf. Fyrirtækið gekk vel, enda eig-
endurnir báðir áhugasamir og dug-
legir. Annar bátur var síðan keypt-
ur og fiskverkun hafín. Fyrirtækið
ráku þeir félagar til ársins 1977
og gekk reksturinn flest árin harla
vel. Helgi ber Vilhjálmi einkar vel
söguna fyrir dugnað og samvisku-
semi og hefur beðið undirritaðan
að færa Vilhjálmi sínar bestu þakk-
ir fyrir afbragðs góða samvinnu og
samstarf á sjó og landi í gengum
árin.
Frá 1977 stundaði Vilhjálmur
ýmis störf, þar af nokkurn tíma
sjómennsku. Síðustu þrjú árin var
hann starfsmaður hjá Skipasmíða-
stöð Þorgeirs og Ellerts hf. á Akra-
nesi.
Vilhjálmur kvæntist hinn 8. des-
ember 1956 systur undirritaðs,
Halldóru Lárusdóttur, sem fædd er
og uppalin á Akranesi. Þau eignuð-
ust ú'óra mannvænlega drengi, sem
eru: Lárus f. 1956, kvæntur Móeiði
Sigvaldadóttur og eiga þau tvö
börn; Guðjón Unnar f. 1958; Þröst-
ur f. 1961, kvæntur Lindu Dröfn
Pétursdóttur og eiga þau tvö börn;
og Bjöm Sigurður f. 1967, sambýl-
iskona hans er Guðrún Hlín Gunn-
arsdóttir og eiga þau eitt bam.
Þau Halldóra og Vilhjálmur
bjuggu í farsælu hjónabandi í rúm
þijátíu ár og voru samhent í upp-
eldi drengjanna. Nú síðustu árin
bjuggu þau sér fallegt og notalegt
heimili að Vogabraut 42 á Akra-
nesi. Vilhjálmur var mikill heimilis-
maður og vildi helst dvelja þar,
þegar skyldustörfin kölluðu ekki á.
Undirritaður kynntist vitaskuld
Vilhjálmi talsvert náið. Hann var
dulur maður, sem flíkaði ekki til-
finningum sínum og sumum kann
að hafa fundist hann þurr á mann-
inn stundum. Það getur hafa stafað
af því, að allt smjaður og óþarfa
orðagjálfur var honum ekki eigin-
legt. Hann kunni að gleðjast í góðra
vina hópi, hann var trygglyndur,
heiðarlegur og góður vinur vina
sinna. Hann var með öðmm orðum
það sem þótti prýða hvern mann
hvað mest hér áður fyrr; það er
„drengur góður“.
En nú er komið að leiðarlokum
og þá er vissulega margs að minn-
ast. Undirritaður þakkar Vilhjálmi
einkar góða viðkynningu, sem sann-
arlega bar aldrei skugga á.
Systur minni, drengjunum henn-
ar og fjölskyldum þeirra færi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur,
Viilátm
vcnanbb
Gluggasmiðjan Kf.
Síöumúla 20,108 Rcykjavík, sími 91-601077, Telefax 91-689363
GLUGGASMIÐJAN ÓSKM LANDSMÖNNUM
FALSÆLDAR Á NÝJU Ml