Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 44
fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989 Leikkonan Cher kynntist Rob Cameletti á árinu og eiga þau von á barni á nýja árinu. Þau áttu samleið áárinu 1988 Leikarinn Dudley Moore gekk í hjónaband í þriðja skipti er hann kvæntist Brogan Lane og er ald- ursmunurinn milli þeirra 24 ár. Brigitte Nielsen, fyrrum eigin- kona Sylvesters Stallone, hefur átt vingott við fótboltahetjuna Mark Gastineau. Kappinn hefur enn ekki fengið skilnað frá eigin- konu sinni. Joan (Joluns, eins og Ijolrtinn allur, atti vingott við tleiri en einn á árinu, hér má sjá hana með einum tröllríkum, Malcoim Fraser að nafini. Eftir langa leit fann leikkonan Britt Ekland þann rétta og er hann kallaður Slim Jim. Hann er um 20 árum yngri en hún. Stefania pnnsessa af Mónakó kynntist hljóm- plötuútgefandanum Ron Bloom og tók það Rain- er fursta langan tfma að Ieggja blessun sína yfir sambandið. Robert Redford skildi við eigin- konuna Lolu eftir 24 ára hjóna- band. Það er reyndar óljóst hver hin nýja stúlka er. Frönsk stúlka, Nathalie Naud að nafni, segir að hún sé hin útvalda. Janni Spies yfirgaf milljónamæringinn Gunnar Hellström fýrir annan milljónara, Christian Kjær, og gengu þau í hjónaband með pompi og prakt. Mike Tyson og Robin Givens skildu eftir tiltölu- lega stutt hjónaband, og hefúr hann víða leitað fanga siðan. Jannike Björling, fyrri eiginkona Björns Borgs og barnsmóðir hans, var um tíma í sambandi við Don Johnson sem einnig átti lengi vingott við leikkonuna Barbru Streisand. Dóttir Elvis Presley, Lisa, giftist Denny Keough, en leiðir þeirra skildu eftir nokkrar vikur. Þau eiga von á bami á komandi ári. Svíar máttu greina nýja tegund frændsemi er Ingemar Stenmark kynnti kærustuna, Önnu Karin, opinberlega sem „frænku“ sína. Leikkonan Shirley Maclaine um- gengst ekki aðeins menn úr andaheimi, vinur hennar Carl Bemstein er af hinni sýnilegu veröld. Sænski stórsöngvarinn Tommy Körberg kvæntist Amöndu War- ing. Og Syhrester Stallone átti vin- gott við margar, margar konur, en nýjasta kærastan heitir Jenni- ffer Flavin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.