Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLÍA.ÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR ’3. JANÚAR 1089 41 Minniiig: Gunnar Steindórs- son fv. tollþjónn Fæddur 11. mars 1915 Dáinn 22. desember 1988 í dag verður til moldar borinn afi okkar Jörgen Gunnar Steindórs- son fyrrv. tollþjónn sem lést 22. desember síðastliðinn. Afi fæddist á Skjalþingsstöðum í Vopnafirði þann 11. mars 1915. Foreldrar hans voru hjónin Árni Steindór Kristjánsson bóndi og Guðrún Jörgensdóttir kennari. Þau áttu 3 börn og var afi yngstur þeirra, eftirlifandi systur hans eru Ingibjörg og Stefanía báðar búsett- ar á Akureyri. Þegar afi var 3 ára fluttist fjölskylda hans frá Skjal- þingsstöðum til Syðri-Víkur sem er næsti bær við. Þar bjuggu afi hans og amma, Kristján Árnason og Stefanía Stefánsdóttir, ásamt tveimur börnum sinum, Valdóri og Salvöru. Afi fékk ekki að njóta umhyggju móður sinnar lengi því aðeins ijórum árum eftir flutning- ana deyr hún af bamsförum. Eftir það ólst hann upp ásamt systrum sínum hjá föðursystkinum og föður- foreldmm. Faðir hans fluttist fljót- lega út á Tanga þar sem hann vann við verslunarstörf en tók engu að síður þátt í rekstri búsins ásamt fjölskyldu sinni. Þær Salvör og Stef- anía gengu bömunum í móðurstað að eins miklu ieyti og þeim var unnt. Skólaganga afa hófst með far- kennslu sem fór fram í Syðri-Vík en hugur hans stóð til frekara náms. Þar sem enginn gagnfræðaskóli var í heimabyggð hans fór hann til ísa- fjarðar í gagnfræðaskóla. Bjó hann þá hjá föðurbróður sínum, Einari Oddi Kristjánssyni, og konu hans, Hrefnu Bjarnadóttur, sem hann minntist ætíð af mikilli hlýju. Leið afa lá síðan í bændaskólann á Hvanneyri þar sem hann lauk bú- fræðiprófi árið 1936. Á Hvanneyri kynntist hann ömmu Gunnlaugu Jónsdóttur. Foreldrar hennar vom Guðfinna Sigurðardóttir ljósmóðir og Jón Friðriksson útvegsbóndi í Olafsfirði. Leiðir þeirra lágu síðan til Danmerkur þar sem afi stundaði framhaldsnám í búfræðiskóla og amma lærði hárgreiðslu. Þann 5. nóvember 1938 gengu þau í hjónaband og hófu búskap í Syðri-Vík í sambýli við föðursystk- ini afa og föður. Áfi og amma eign- uðust 6 böm, þau em Guðrún, f. 5.7. 1938, þroskaþjálfi, var gift Yngva Gestssyni byggingartækni- fræðingi sem nú er látinn; Jónína Kolfinna, f. 9.10. 1939 ritari, gift Ásgeiri Friðjónssyni sakadómara; Þórlaug Steingerður, f. 2.3. 1941, verslunarmaður, gift John Toivonen vélsmið; Steindór, f. 12.4. 1945, verslunarmaður, giftur Kristínu Geirsdóttur flugfreyju; Valgerður Salvör, f. 7.2. 1947, d. 15.2. 1947; Valgerður Salvör, f. 5.1. 1951, hár- greiðslukona, gift Dale Schultz tækniteiknara. Barnabörnin em orðin 13 og barnabarnabörnin 2. Afi og amma bjuggu í Vopnafirði í 8 ár en fluttu þá til æskustöðva ömmu í Ólafsfirði þar _sem afi vann sem bæjargjaldkeri. Árið 1953 lá leið þeirra suður og hafa þau lengst af búið í Keflavík þar sem afi starf- aði fýrst í lögreglunni en síðar sem tollþjónn á Keflavíkurflugvelli. Hann lét af störfum árið 1985 þeg- ar hann varð sjötugur. Afi tók alla tíð mikinn þátt í íþróttum og félagsmálum. Á yngri ámm æfði hann fijálsar íþróttir en er aldurinn færðist yfir lærði hann golf. Afi var jafnaðarmaður af gamla skólanum og tók þátt í ýms- um störfum fyrir Alþýðuflokkinn. Söngmaður var hann góður og um tíma söng hann með Karlakór Keflavíkur. Nú síðustu árin var lest- ur góðra bóka hans aðaláhugamál og oft undraðist maður hvað hann las mikið og fylgdist vel með. Það var alltaf gott að koma í heimsókn á Vesturgötuna til ömmu og afa, fá kaffi og kökur og spjalla um allt milli himins og jarðar. Þó ekki sé allt sem fyrr stendur heimilið okkur öllum opið eins og það hefur alltaf verið. Heilsu afa hrakaði hin síðustu ár þannig að hann átti orðið erfitt með gang og ljóst var hvert stefndi. Vissulega er alltaf sárt að sjá eftir ástvinum sínum en þetta er nú einu sinni hlustskipti okkar allra. Við getum þakkað fyrir það að afi okk- ar kvaddi þennan heim með fullri reisn og skuldlaus við guð og menn. Nú þegar komið er að leiðarlokum viljum við þakka afa fyrir sam- fylgdina og senda ömmu okkar bestu samúðarkveðjur og biðja guð að styrkja hana í sorg sinni. Barnaböm MENNTASKÓLINN VID HAMRAHLÍD ÖLDUNGADEILD Öldungadeild Menntaskólans vió Hamrahlíó er fyrsta öldungadeild við framhaldsskóla hérlendis, stofnuð 1972. Við höfum því langa reynslu og þjálfað kennaralið. Nútímaþjóöfélag gerir kröfur um menntun og nú um áramótin er rétti tíminn til að hefja nám hjá okkur - hvort sem þú vilt rifja upp, bæta við eldri menntun eða hefja nýtt nám. Öldungadeild Menntaskólans við Hamr.ahlíð býður framhaldsskólanám á 6 brautum: eðlisfræðibraut, náttúrufræðibraut, nýmálabraut, fornmálabraut, félagsfræðibraut (hún skiptist í fjölmiðlalínu, sálfræðilínu og félagsfræðalínu) og tónlistarbraut. Hægt er að stunda nám í mörgum eða fáum námsgreinum. Á vorönn 1989 býður skólinn eftirfarandi greinar: Tungumál: Danska Enska Franska ítalska Kínverska Latína Spænska Þýska Raungreinar: Stærðfræði Eðlisfræði Efnafræði Jarðfræði Líffræöi Samfélagsgreinar: Félagsfræði Þjóðhagfræði Bókfærsla Listasaga Lögfræði Stjórnmálafræði Heimspeki Saga Mannfræði Auk þessa er boðið upp á nám í tölvufræðum, bæði grunnnám og forrit- un. Notaðar eru tölvur af PC- og BBC-gerðum. Boðið er fjölbreytt nám í íslensku, bæði ritþjálfun og munnleg tfáning, bókmenntir og málfræói. Einnig eru myndlist og leiklist kenndar við öldungadeildina. Innritun og val i öldungadeild MH fer fram á skrifstofu skólans frá kl. 9.00-18.00, dagana 3.-6. janúar. Skólagjald er aóeins 7.400 krónur óháó fjölda námsgreina sem þió leggió stund á. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafh- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. FJOGURRA VIKNA NAMSKEIÐ HEFJAST 9. JANÚAR. Hressandi, mýkjandi og styrkjandi leikfimi, ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira og einnig fyrir þær sem þjást af vöðvabólgum. Herratímar í hádeginu. Góð aðstaða. Ljósalampar, gufuböð og sturtur. Kaffi og sjónvarp í heimilislegri setustofu. Innritun og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13 - 22 í síma 83295. JÚDÓDEILD ÁRMANNS Ármúla 32 essemm/siA 09.01

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.