Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.01.1989, Blaðsíða 52
Rynkeby HREINN APPELSÍNUSAFI ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Samninga leitað um kaup á sparí- skírteinum Fjármálaráðuneytið leitar nú samninga við lánastofiianir um að þær kaupi spariskir- teini rikissjóðs fyrir samtals 1600 milljónir á næstu þremur mánuðum. Tillaga ráðuneytis- ins er að raunvextir spariskír- teina lækki um 0,2%-0,3% frá því sem síðast var. Gert er ráð fyrir að alls verði seld spari- skírteini fyrir 4700 milljónir á þessu ári, en bankar og sparisjóðir eiga enn óseld spariskirteini ríkissjóðs fyrir 1800-1900 milljónir frá síðasta ári. Fjármálaráðuneytið og Seðla- bankinn gerðu á síðasta ári samn- ing við banka, sparisjóði og verð- bréfafyrirtæki um að lánastofnan- imar keyptu spariskírteini fyrir allt að 3 milljarða króna á árinu, og yrðu þau skírteini, sem bankar og sparisjóðir gætu ekki selt aft- ur, að hluta talin sem lausafé bankanna. Samkvæmt samningn- um voru raunvextir 8% af þriggja ára bréfum, 7,5% af fimm ára bréfum og 7% af átta ára bréfum, en lækkuðu síðan í 7,3% af þriggja og fimm ára bréfum en voru áfram 7% af átta ára bréfum. Fj ármálaráðuneytið hefur óskað eftir fundi með fulltrúurrj lána- stofnana í dag, og lagt til að samn- ingur verði gerður til 3 mánaða um að keypt verði spariskírteini fyrir 700 milljónir í janúar, 300 milljónir í febrúar og 600 milljónir í mars. Gert er ráð fyrir að vextir verði 7% af þriggja og fimm ára bréfum og 6,8% af átta ára bréf- um. Þá er einnig gert ráð fyrir að óseld spariskírteini verði talin til lausafjár upp að ákveðinni fjár- hæð í stað þess að telja 50% af spariskírteinaeign til lausafjár eins og samningar síðasta árs gerðu ráð fyrir. LEIKUR AÐ LJOSUM Morgunblaðið/Ámi Sœberg Ríkisstjórnarfundur seint í gærkvöldi: Gengi krónuiinar lækk- ar um 4 prósent í dag Verðhækkunaráhrif komi ekki fram í hækkun naftivaxta RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fúndi seint í gærkvöldi, að höfðu sam- ráði við bankastjórn Seðlabank- ans, að lækka gengi krónunnar um 4%. Samkvæmt heimildum, Könnun Félagsvísindadeildar HÍ: Þorri fólks telur launamun of mikinn 86% ÍBÚA höfúðborgarsvæðisins telja launamun vera of mik- inn, þar af segja 65% að hann sé allt of mikill og 21% að hann sé heldur of mikill. 13% telja launamun vera hæfilegan. Þessar eru m.a. niðurstöður könnunar sem Félagsvísindadeild Háskóla íslands gerði á síðasta ári og birtar eru í nýjasta hefti BHMR- tíðinda. í blaðinu kemur einnig fram að hæst launuðu hópar þjóðfélagsins eru á aldrinum 35 til 45 ára. Nokkur munur er á afstöðu Atvinnutekjur og heildartekjur kynjanna til launamunar og telja fólks fara vaxandi þar til aldurs- fleiri konur en karlar að launa- munur sé of mikill. Þá kemur fram að munur er á kjósendum stjórn- málaflokkanna, bæði varðandi afstöðu til launamunar og hversu ánægðir þeir eru með fjárhags- lega afkomu sína. Fæstir úr hópi kjósenda Sjálfstæðisflokks telja launamun vera of mikinn, en flest- ir af kjósendum Borgaraflokks og Alþýðubandalags. Þeir síðast- nefndu eru einnig óánægðastir með afkomu sína, en kjósendur Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks ánægðastir. bilinu 35 til 45 ára er náð, þá eru tekjur hæstar. Lægstu tekjumar hafa elstu hóparnir, yfir 65 ára aldri. Mikið launaskrið hefur verið á síðasta áratug og hafa atvinnu- tekjur hækkað mun meira en kauptaxtar á tímabilinu 1982 til 1987 og telur Ari Skúlason hag- fræðingur ASÍ að það sé vegna þess að sjálfvirk kaupmáttar- trygging, það er vísitölubinding launa, var afnumin. Sjá nánar bls. 51. sem Morgunblaðið telur áreiðan- legar kemur þessi breyting á gengi krónunnar til fram- kvæmda, þegar gjaldeyrisdeildir bankanna opna i dag. Jafnhliða þessari gengisbreytingu mun Scðlabankinn fá heimild til að ákveða daglega gengisskráningu innan marka, sem nema 1-2% frá gildandi meðalgengi. Þessi heim- ild er veitt til þess, að Seðlabank- inn geti brugðizt við ófyrirsjáan- legum breytingum á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa ríkissljórn og Seðlabanki áhyggj- ur af því, að gengi dollars kunni enn að fara lækkandi. Ríkisstjómin hefur setið á fundum að undanfömu til þess að ræða við- horfin í efnahagsmálum. Efnisleg rök ráðherranna fyrir gengisbreyt- ingu nú munu skv. upplýsingum Morgunblaðsins vera þau, að frá því að gengisbreyting var síðast ákveðin í lok september hefði orðið talsverð breyting á alþjóðlegum gjaldeyris- mörkuðum, sem væri sjávarútvegin- um óhagstæð. Ennfremur kemur til framkvæmda nú um áramót breyt- ing á myntkörfunni, sem að óbreyttu hefði orðið óhagstæð fyrir þann hluta sjávarútvegs, sem fær tekjur sínar aðallega í dollurum. Með lækk- un um 4% nú verður gengi dollarsins gagnvart krónunni nánast það sama og það var er gengið var fellt 28. september síðastliðinn, rétt rúmar 48 krónur. Frá því í lok febrúar í fyrra hefur gengið því verið fellt fjór- um sinnum. Þá um 6%, um 10% 16. maí, 28. september um 3% og 4% nú. Morgunblaðið hefur aflað sér upp- lýsinga um það, að ríkisstjórnin muni taka upp viðræður við fulltrúa stjómarflokkanna í bankaráðum við- skiptabankanna til þess að tryggja að verðhækkunaráhrif gengisbreyt- ingarinnar komi ekki fram í hækkun nafnvaxta. Hins vegar þýða þessi verðhækkunaráhrif væntanlega 1,4% hækkun lánskjaravísitölu, þeg- ar þau eru að fullu komin fram. Bensín og bílar liækka BENSÍNGJALD hækkaði um 30% um áramót og innfiutningsgjald af bílum um 11%. Lítrinn af 93 oktana bensíni hækkaði þá úr 36,60 krónum í 41 krónu. Búist er við að hækkun innflutningsgjaldsins hækki verð bíls sem kostaði 500 þúsund krónur í árslok 1988 um 40 þúsund krónur. Lánskjaravísitala hækkar um 0,3% vegna hvorrar hækkunar um sig, sem þýðir að höfúðstóll láns, sem var ein milljón króna fyrir hækkun verður 6 þúsund krónum hærri. Bensíngjaldið hækkaði um 4,10 krónur á hvern lítra og er áætlað að þessi hækkun auki tekjur ríkis- sjóðs á þessu ári um 600 milljónir króna. Auk þess er áætlað að hækk- un þungaskatts á ökutæki auki tekjurnar um 200 milljónir króna. Eftir hækkun bensíngjaldsins eykst bensínkostnaður við að aka hringveginn úm 630 krónur miðað við að bíllinn eyði 10 litrum á hundr- aði. Áfylling með blýlausu bensíni á 40 lítra tank hækkar úr 1.464 krónum í 1.640, eða um 176 krónur. Innflutningsgjald á bíla var á bilinu 5 til 55%, en er nú 16 til 66%. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að auka tekjur ríkissjóðs um 400 milljónir króna með hækkun innflutningsgjaldsins og miðar þá við að 10 til 11 þúsund bílar verði fluttir inn á árinu. Forsvarsmenn Bílgreinasambandsins draga í efa að svo mikill innflutningur verði, telja raunhæfara að reikna með um það bil sex þúsund bílum. Framfærsluvísitalan hækkar um 0,5% og lánskjaravísitalan um 0,3% vegna bensíngjaldsins. Fram-' færsluvísitalan hækkar um 0,45% og lánskjaravísitalan um 0,3% vegna hækkunar innflutnings- gjaldsins. Sjá nánar um bensíngjald á bls. 20 og um innflutningsgjald á bls. 26-27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.