Morgunblaðið - 03.01.1989, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR á: JANÚAR'1989
13
Tónleikar í Bústaðakirkju
Tönlist
Ragnar Björnsson
Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari og Roglit Ishay píanóleik-
ari.
Tónleikar í Bústaðakirkju
fiinmtudaginn 29. des. sl.
Hafi maður kviðið örlítið því að
hlusta á enn einn unglinginn, sem
þar að auki hefur ekki enn að fullu
losað sig við skólabekkinn, þá verður
að segjast að sá kvíði hvarf fljótlega
eftir að þær stöllur, önnur 23 ára
og hin 24, hófu leik sinn. í tvo klukk-
utíma sat undirritaður og naut þess
að hlusta og gleymdi því gjörsamlega
að hann hafði verið beðinn að skrifa
umsögn um tónleikana. Með þessari
yfirlýsingu ætti umsögninni eigin-
lega að ljúka, því getur maður farið
fram á mikið meira en að líða vel á
meðan á tónieikunum stendur? Það
þarf nefnilega töluvert til að skila
tónlist frá sér þannig að áheyrandinn
gleymi því að hann er vitni að línu-
dansi sem farið getur á hvom veginn
sem er og að hann er kannske með
fjöregg listamannsins í hendi sér.
En svo eðliiega músíseruðu þær
Biyndís og Roglit og einnig af slíku
öryggi að örlítill kvíði eða efi komst
ekki að. Hvort önnur hvor eða báðar
eiga eftir að bijóta niður múra
frægðarinnar ætla ég engu um að
spá, enda slík umfjöllun engum til
góðs, listamaðurinn á aðeins eina
leið og sú er vinna, vonbrigði og gleði
eru förunautar, frægðin á bak við
flöllin — kannske. Efiiisskráin að
þessu sinni var Sonata í d-moll eftir
Debussy, Suite Espagnole eftir de
Falla, A-dúr-sónata C. Franc, og eft-
ir hlé einleikssónata op. 8 eftir Z.
Kodály. Flutningur þeirra Bryndísar
og Roglit á verkefnum fyrri hluta
tónleikanna var mjög góður og í
anda höfundanna. Sónata C. Francks
fær breytilegt yfirbragð við einleiks-
hljóðfærið sem ræður hveiju sinni
og að þessu sinni var það sellóið.
Þótt margt gott megi segja um
hljómburðinn í Bústaðakirkju þá skil-
ar kirkjan ekki öllu jafii vel, og í
þetta skiptið kom það niður á selló-
inu á stundum a.m.k. Kirkjan hefur
mjúkan hljómburð og safamikill og
dökkur tónn sellósins vill einhvem-
veginn fletjast út, sérstaklega á
neðra sviðinu og vandamál getur
orðið fyrir píanistann að kæfa ekki
sellóið, og þá sérstaklega á neðra
sviðinu. Öll þessi verk í fyrri hlutan-
um hefði undirritaður þvi kosið að
heyra frekar í eðlilegum tónleikasal,
en hvar er hann í Reykjavík? í ein-
leikssónötu Kodálys sýndi Bryndís
mikla leikni og skilning á verkefn-
inu, en kannske þarf að spila þessa
sónötu nokkra tugi skipta á tónleik-
um, til þess að ná fullkomnu teknísku
valdi á henni, svo erfið í flutniiígi
er þessi meistarasmíð Kodálys.
Tónleikamir vom haldnir í minn-
ingu Gunnhildar, systur Bryndísar,
— óvenjuleg en fögur eftirmæli.
Árni Arinbjarnarson vígir nýtt
pípuorgel í Grensáskirkju
Danski orgelsmiðurinn Bmno
Christensen hefur á tiltölulega
stuttum tíma byggt nokkur orgel
í íslenskar kirkjur og nú síðast í
Grensáskirkju. Það fer tæplega
milli mála að Christensen er feikna
góður orgelsmiður og mælir sig
með réttu við hlið dönsku risanna
í orgelsmíði, þá Frobenius og Mark-
ussen. Grensássókn er hér með
óskað til hamingju með hljóðfærið
sem virðist hafa heppnast mjög
vel, þó veltir maður fyrir sér hvort
ekki hefði fengist meira út úr hljóð-
færinu ef verkunum hefði verið
dreift á stærri gólfflöt kirkjunnar.
Eins og því er fyrirkomið virðist
sem ætlunin hafí verið að kórinn
kæmist fyrir í beinni línu út frá
orgelinu, sem er vafasöm ákvörðun
ef bitnar á hljómi orgelsins.
En kannske skiptir þetta ekki
öllu máli, því hljómburður í kirkj-
unni fyrir tónlistarflutning er af-
leitur. Þetta er leitt því allt annað
er fyrir hendi. Enginn organleikari
er öfundsverður af að halda orgel-
tónleika við slíkar aðstæður og
vandi er að velja efiiisskrá sem
þolir slíkt hljómburðarleysi, og á
þessu vali varð Arna svolítill fótas-
kortur, eða kannske var hann að
sannreyna hvað ekki má bjóða
hljómburðinum í kirkjunni.. En Bo-
éllmann-svítan á ekkert erindi inn
í þennan hljómburð og heldur ekki
Prelúdían og fúgan í G-dúr eftir
Bach og jafnvel fleira af því sem
hann lék að þessu sinni. Tríó-
sónötur Baehs, konsertamir,
sálmaforleikimir, partítumar
mundu ganga í þessum hljóm-
burði, en gerðu um leið mjög mikl-
ar kröfur á hendur flytjandanum
og væri það út af fyrir sig mjög
spennandi reynsla. Ami flutti öll
verkin á efnisskránni af miklu ör-
yggí-
Líkamsrækt er lífstíll
í Studíó Jónínu og Ágústu,
Skeifunni 7. sími 689868
^ m m D •
Tímatafla
Gengur i gildi 9. janúar.
Eldri timataf la gildir þangaó til.
MÁNUD ,/MIÐ VIKUD. ÞRIÐJUD./FIMMTUD. FÖSTUD. LAUGARD. SUNNUD.
09.00-10.00 ERÓBIKK 12.07-13.00 ÞR.HR. 09.00-10.00 ER0BIKK 10.30-11.30 F.G.K. u "
10.00-10.50 MR< 12.07-13.00 F.G.K. 12.07-13.00 ÞR.HR. 11.00-12.00 ÞR.HR.
13.30-14.30 ÞR.HR. 13.10-14.00 MR< 16.30-17.20 MR&L 1 1.30-13.00 POLTiMlft
14.30-15.20 MR&L T. 14.00-14.50 MR< 17.10-18.10 ÞR.HR. 12.00-12.50 BARNSH. 12.30-13.30 ÞR.HR.
15.30-16.20 MÆÐUR M/B 14.50-15.50 ÞR.HR. 17.20-18.20 ERÓBIKK 13.00-14.00 ERÓBIKK 13.00—'14.00 ERÓBIKK
16.30-17.20 MR&L 17.10- 18.10 ÞR.HR. 17.20- 18.20 ERÓBIKK 18.10- 19.10 ÞR.HR. 18.20- 19.50 POLTÍMI ☆ 19.10- 20.00 MR<. 19.50-20.40 MR&L 20.00-21.15 ÞR.HR.* 20.40-21.40 ERÓBIKK 16.30- 17.30 ERÓBIKK 17.10- 18.10 ÞR.HR. 17.30- 18.20 MR&L 18.10- 19.10 ÞR.HR. 18.20- 19.20 ERÓBIKK 19.10- 20.10 ÞR.HR. 19 20-20.20 MR&L t* 20.20- 21.10 MR&L 20.10- 21.10 ÞR.HR. & _ 18.10-19.25 ÞR.HR.# 13.00-14.15 ÞR.HR.tír 14.00-14.50 MR&L 14.15-15.05 MR< 13.30-14.30 ÞR.HR
21.15-22.05 MR<
21.15-22.05 BARNSHAF
Fitumælingar, þolmælingar og liðleika-
mælingar
Barnagæsla kl. 13.00-16.00
mánud.-fimmtud.
MR&L = Magi, rass Og læri: Styrkjandi og
vaxtamótandi tímar fyrir byijendur ekkert hopp.
MR&L T t= Magi, rass og lærí: Magí, rass og
læri í tækjum: Styrkjandi æfingar í tækjasal fyrir byrj-
endur. leiðbeinandi stýrir hópnum allan tímann.
ERÖBIKK - tleiri hreyflng, mjúkt og hart
eróbikk fyrir þá sem eru komnir aSelns lengra.
MÆÐUR M/B - Mæður með nýfædd born: rólegir uppbyggjandi
tímar eftir f aeSingu. Nýfædd börn með í tímanum
BARNSH. -Barnshafandi konur, styrkjandi tímar
f. konur fyrir og eftir barnsburð.
F.G.K. = Forvarnir gegn kransæðasjúk-
dómum: Tímar fyrir karlmenn 40 ára og eldri. Hall-
dóra Björnsdóttir íþr. fræðingur stjórnar stöðvaþjálf-
un, styrkjandi og þolaukandi tímar.
PÚLTÍMAR » 90 mín tímar fyrr fólk í toppformi.
mjúkt og hart eróbikk, mikið um samsett spor.
Áhersia lögð á rass og iæri.
ÞR. HR. = í>rekhringurinn: Eróbikk og tækj-
aleikfimi í sama tímanum (stöðvaþjálfun), hörku
tímar, fjör, hvatning og aðhald. Leiðbeinandi
hópnum, skemmtileg tónlist.
& = 'KILLER" Erfiðir tlmar ætlaðir fólki í góðu formi.
r
VERÐSKRA:
stýrir
STAKUR TÍMI
4 TÍMA K0RT
8 TiMA K0RT
,.KR. 375,-
,KR. 1.410-
„KR. 2.650-
STÚOÍÓ JÓNÍNU & AGÚSTU
Skeifan 7,108 Reykjavík, S. 689868
12TÍMAK0RT;......KR. 3.400,-
1 MANUÐUR (ÓTAKM).KR. 3.800.-
3 MANUÐIR (0TAKM).KR. 8.950,-
6 MÁNUÐIR (ÓTAKM).KR. 16.620-
STAKUR TIMI í LJÓS KR. 350,-
10 TiMA K0RT í LJÓS KR. 2.700- ^