Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
21
Einn eilíföar húsbyggjandí
- sagði Fríða Á. Sigurðardóttir er
hún hlaut rithöfundastyrk útvarpsins
Friða Á. Signrðardóttir hlaut í ár rithöfundastyrk Ríkisútvarps-
ins við hefðbundna athöfn á gamlaársdag, að viðstöddum forseta
íslands, menntamálaráðherra, útvarpsstjóra og fleiri gestum. Tekj-
ur sjóðsins sem nú koma til úthlutunar eru 300 þúsund krónur og
afhenti formaður sjóðstjórnar, Jónas Kristjánsson, Fríðu þær með
ræðu. Sagði Friða í stuttu samtali við blaðamann Morgunblaðsins
að hún hefði undanfarin tvö ár verið að vinna að skáldsögu sem
vonandi kæmi út á næsta ári og sé þessi styrkur mikilvægur fyrir
hana, þar eð hann gefi henni tækifæri til að einbeita sér að þvi
verki, án þess að hafa peningaáhyggjur og þurfa að taka að sér
prófarkalestur á meðan. Frá Friðu hafa komið smásagnasöfii og
fyrir tveimur árum kom út eftir hana skáldsagan Eins og hafið.
í þakkarávarpi sínu líkti Fríða
því að skrifa við það að gerast
einn eilífðar húsbyggjandi. Lítt
eftirsóknarvert og lánamarkaður
enn ótraustari en við aðrar bygg-
ingar. Sem vonlegt er því húsið
sé byggt úr hugmyndum og orðum,
ótryggu efni og hálu, sem mun
erfíðara er við að fást en timbur
og steypu. Allt skal gert með eigin
höndum og ekki hægt að ljúka því
á einu eða tveimur árum, því alltaf
er verið að breyta og bæta við,
einu herbergi hér, öðru þar, ef til
vill sal, eða jafnvel heilli hæð. Og
alltaf öðru hvoru eru gestir að líta
inn, sumir koma rétt í gættina og
fussa, hafa aldrei séð annað eins
hrófatildur — eitthvað annað en
áður var — aðrir telja allt of há-
timbrað og gamaldags, hæfi alls
ekki nútímanum, sumir kvarta yfir
röngu litavali, aðrir yfir herbergja-
skipan og sumir neita hreint út
að líta á húsið sjálft heldur ein-
beita þess í stað athyglinni að
húsbyggjandanum sjálfum, telja
ljóst að hann sé alls ekki fær til
byggingar sem þessarar því allir
hljóti að sjá að hann hafí ekki það
sköpulag sem til þurfí í slíkt verk.
Og húsbyggjandi fer að hugsa að
kannski væri réttast að rífa bara
kofann.
Síðar vék Fríða að öðrum gest-
um. Einu sinni á ári er húsið flóð-
lýst ef einhverju hefur verið aukið
við, hávaðinn verður ærandi og
allt fer á fljúgandi ferð, verður
æsileg glimmerhringekja sem hús-
byggjanda er eins gott að reyna
að hanga á ef hann vill ekki þeyt-
spáð í sífellu að hið ritaða mál,
„bókin" sem svo er nefnd í eintölu
að erlendum hætti, muni senn líða
undir lok, þoka fyrir „kvikmynd-
inni“ sem þá er sambærilegt orð
haft um allskonar hreyfimyndir.
Aldrei hafi verið meiri barlómur í
bókaútgefendum heldur en núna
fyrir síðustu jól.
En hvað gerist? Á bak jólavertíð-
inni kemur í ljós að meira hefur
verið keypt af bókum en nokkru
sinni fyrr og fleiri eintök verið
prentuð af tilteknum bókum en
Morgunblaðið/Einar Falur
Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfúndur tekur við styrk Rithöfúnda-
sjóðs Ríkisútvarpsins úr hendi formanns sjóðstjórnar, Jónasar
Kristjánssonar.
ast út í ystu myrkur. Hann er lengi
að jafna sig eftir þá heimsókn. En
það koma líka aðrir gestir, gestir
sem vita að byggingin er hluti af
heild, þeirri heild sém skáldkonan
Fay Weldon nefnir borg ímyndun-
araflsins, og að sú borg í öllu sínu
litskrúði og fjölbreytileika er hluti
af ennþá stærri heild sem nefnist
mannlegt samfélag. Þegar slíkir
gestir koma er gaman að lifa hjá
húsbyggjanda. Og Fríða þakkaði
gestunum sem nú hefðu gert sér
þann heiður að koma í hús hennar
færandi gjafir. Gert henni mikla
gleði.
Undir lok ræðu sinnar vék Jónas
Kristjánsson að bókinni. Því sé
dæmi eru til hér á landi. Vafalaust
séu þessar bækur misjafnar að
gæðum, en ekkert bendi til að þær
séu í heild sinni lélegri en á undan-
fömum góðárum. Tvennt megi að
minnsta kosti fullyrða án þess að
hafa lesið nema fátt eitt hinna
nýju bóka: Nú hefur meira verið
keypt af nýjum frumsömdum
íslenskum bókum, minna af þýdd-
um skáldritum eða „reyfurum“ en
tíðkast hefur um skeið. Og allur
frágangur nýju bókanna er mjög
vandaður og sumar hreinir kjör-
gripir, sagði Jónas. Því sýnist
ástæðulaust í upphafí nýs árs að
örvænta um hag íslenskra bók-
mennta. Bókin muni lifa.
21 íslendingur heiðraður
Forseti íslands hefúr sam- fyrir störf að líknarmálum. Guðrúnu Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
kvæmt tillögu orðunefndar sæmt
eftirtalda Islendinga heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu:
Birgittu Spur, safnstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
í þágu höggmyndalistar. Björgvin
Frederiksen, iðnrekanda,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
í þágu iðnaðarins. Bryndísi
Víglundsdóttur, skólastjóra,
Garðabæ, riddarakrossi fyrir störf
í þágu þroskaheftra. Egil Ólafsson,
bónda, Hnjóti, Örlygshöfn, Barða-
strandarsýslu, riddarakrossi fyrir
söfnun og vörslu sögulegra minja.
Elísabetu G.K. Þorólfsdóttur, hús-
freyju, Amarbæli, Fellsströnd,
Dalasýslu, riddarakrossi fyrir hús-
móður- og uppeldisstörf. Guðjón
Magnússon, formann Rauða kross
íslands, Reykjavík, riddarakrossi
Magnússon, sendiherrrafrú,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
í opinbera þágu. Herstein Pálsson,
fv. ristjóra, Seltjamarnesi, riddara-
krossi fyrir ritstörf. Hörð Sigur-
gestsson, forstjóra, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að samgöngu-
málum. Jóhannes Stefánsson, fv.
forseta bæjarstjórnar, Neskaup-
stað, riddarakrossi fyrir störf að
bæjar- og atvinnumálum. Jón Þór-
arinsson, tónskáld, Reykjavík, stór-
riddarakrossi fyrir störf að tónlist-
armálum. Jónas Jónsson, búnaðar-
málastjóra, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf í þágu landbúnað-
arins. Jórunni Viðar, tónskáld
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að tónlistarmálum. Kjartan Guðna-
son, formann Sambands íslenskra
berkla- og bíjóstholssjúklinga,
að félags- og tryggingamálúm.
Margréti Guðnadóttir, prófessor,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
kennslu- og vísindastörf. Pál Flyg-
enring, ráðuneytisstjóra, Reykjavík,
riddarakrossi fyrir störf í opinbera
þágu. Sigurð J. Briem, deildar-
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyr-
ir störf í opinbera þágu. Sigurlín
Gunnarsdóttur, hjúkrunarfræðing,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
í þágu sjúkra. Skapta Áskelsson,
skipasmið, Akureyri, riddarakrossi
fyrir brautryðjandastarf í skipa-
smíðum. Vilhjálm Jónsson, for-
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyr-
ir störf að atvinnumálum. Séra
Þorstein Jóhannesson, fv. prófast,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf
að kirkjumálum.
/7
Vinningaskrá 1988
Toyota Land Cruiser Turbo Diesel:
33891 - 48696
Heimilispakkar
sem innihalda:Macintosh Plus einkatölvu,
Nordmende CV 2201 kvikmyndatökuvél,
Bang & Olufsen Beosystem 5000 ásamt
Penta hátölurum, Nordmende Prestige
29" sjónvarp, Nordmende V1405 mynd-
bandstæki, Goldstar ER 654 D örbylgjuofn
og Mitsubishi farsíma:
5700 - 7835 -13069 - 27944
44513-81021 - 144353
Gervihnattamóttakarar:
324-62042-73156
81981 - 117069 - 155345
Mitsubishi farsímar:
37499 - 59129 - 82173 - 91368
Bang & Olufsen MX-2000 sjónvörp,
ásamt VHS 82.2 myndbandstækjum:
16151 - 20118 - 22437 - 157854
Macintosh Plus einkatölvur:
11322 - 33544 - 83881 - 162275
Goldstar GCD 60 hljómflutningstæki:
53642 - 55776 - 139748 - 164254
Goldstar GHV 1245 myndbandstæki:
93516 - 96520 - 114716 - 125456
Goldstar CBT-9225 20" sjónvarpstæki:
15864 - 42055 - 129434 - 155425
Goldstar CBT-4521 14" sjónvarpstæki:
10446 - 60034 - 71222 - 120739
Citizen ferðageislaspilarar:
19339 - 37595 - 84258 - 92479
Citizen ferðasjónvarpstæki:
35133 - 75735 - 145848 - 155087
(Birt án ábyrgöar)
Vinninganna skal vitjað á skrifstofu
Radíóbúðarinnar, Skipholti 19, Rvk.
Óskum öllum landsmönnum
gleðilegs nýs árs og þökkum
stuðninginn á liðnum árum.
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík
Flugbjörgunarsveitin Hellu
Flugbjörgunarsveitin Skógum
Flugbjörgunarsveitin V-Húnavatnssýslu
Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð
Flugbjörgunarsveitin Akureyri
wgmilNbifrife
Gódan daginn!