Morgunblaðið - 03.01.1989, Side 24
24
MORb’uNBLAÐlÉ) ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
Reuter
Beðið eftir víninu
Pólveijar í biðröð við vínbúð í Varsjá. Pólveijar eru því vanir
að standa í biðröðum og skortur og gallaðar vörur eru þeim
engin nýlunda. Margir halda því fram að ástandið í þessum mál-
um muni versna á árinu 1989 þrátt fyrir lög um efnahagsumbæt-
ur sem tóku gildi um áramótin.
Bjartsýni ríkjandi um áramót:
Margir telja hilla und-
ir lok Kalda stríðsins
Stjórnvöld í Brasilíu fordæmd fyrir eyðingn regnskógarins
London. Reuter.
BÆTT sambúð stórveldanna varð leiðtogum vestrænna ríkja tilefhi
til bjartsýni um þessi áramót. Viðskiptastríðið milli Bandaríkjanna
og Evrópubandalagsins olli þó talsverðum timburmönnum á fyrsta
degi ársins 1989. I Páfagarði gekk dagur friðar í garð og Jóhannes
Páll páfi bað þess að árið 1989 yrði ár réttlætis, einingar og vax-
andi virðingar fyrir rétti minnihlutahópa. í Líbanon glumdu spreng-
ingar og vélbyssur geltu á nýja árinu svo engum gat dulist að þar
ríkir allt annað en sáttfysin. Náttúruverndarmenn lýstu því yfir að
árið 1988 hefði verið versta ár sögunnar fyrir frumskóga Amasón-
svæðisins. Stjórnvöld í Brasilíu voru fordæmd fyrir sporna ekki við
eyðingu regnskógar á stærð við Belgíu. Roh Tae-Woo, forseti Suður-
Kóreu, spáði því í nýársávarpi að Norður- og Suður-Kórea myndu
sameinast fyrir aldamót.
í þriðja sinn skiptust Míkhaíl S.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi og Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseti, á ný-
ársávörpum. „Mikilvægur ágrein-
ingur er enn milli ríkjanna og svo
verður enn um sinn en ég þykist
þess fullviss að við höfum orðið vitni
að framförum sem geta haldið
áfram um ókomin ár ef við sýnum
gætni og staðfestu," sagði Ronald
Reagan meðal annars. Gorbatsjov
sagði að samskipti risaveldanna
væru nú manneskjulegri en fyrr og
Kalda stríðið væri að fjara út.
„Bandaríkjamenn er að uppgötva
Sovétríkin á ný og öfugt. Otti og
tortryggni víkja smám saman fyrir
trausti og samkennd.“
Gorbatsjov ávarpaði einnig landa
sína á nýársdag. Hann sagði ekki
unnt að gleðjast mjög yfir fram-
gangi umbótastefnunnar. Þrátt fyr-
ir aukna framleiðslu og umbætur í
húsnæðismálum væri ennþá mikill
skortur í landinu, einkum á gæða-
vöru. Sex sovéskir menntamenn
sendu Gorbatsjov opið bréf um ára-
mótin sem birtist í vikublaðinu
Moskvufréttum. Þeir skoruðu á
Sovétleiðtogann að sýna andófs-
mönnum meira umburðarlyndi. Auk
þess sagði í bréfinu að glasnost
hefði á þremur árum fest sig ræki-
lega í sessi í landinu en ýmsar
hættur steðjuðu enn að frjálsri
umræðu.
í sjónvarpsviðtali á nýársdag lof-
aði Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, Gorbatsjov fyr-
ir „framsýni, djörfung og hug-
rekki". Hún sagði að Kalda stríðið
væri á enda ef Sovétleiðtoganum
tækist að fylgja umbótastefnunni
eftir. Thatcher bætti því við að
Gorbatsjov gæfist aldrei upp og
heimurinn yrði betri bústaður ef
umbótastefna hans næði í höfn.
Nýársávarp Pouls Schlliters:
Velferðarkerfið hef-
ur ferið úr böndunum
Segir Dani verða að lækka launakostn-
að og opinber útgjöld en auka sparnað
Kaupmannahöfn. Reuter.
Reuter
Ekkja þjóðheiju kvödd
100.000 manns gengu um götur Rangoon, höfúðborgar Búrma,
í gær þegar Khin Kyi, ekkju þjóðhetjunnar Aung San, var fylgt
til grafar. Þetta er í fyrsta sinn sem verulegt íjölmenni hefúr
komið saman í landinu síðan herstjórnin tók völdin í sínar hendur
í september, bannaði fjöldasamkomur og skipaði hernum að
skjóta á þá sem mótmæltu stjórninni. A myndinni sést hluti
líkfylgdarinnar, þ.á m. útlendingar, búsettir í Rangoon.
Afganistan:
Najibullah lýsir yfir
einhliða vopnahléi
Islamabad. Reuter.
POIJL SchlUter, forsætisráð-
herra Danmerkur, sagði í ný-
ársávarpi sínu til þjóðarinnar að
enn eyddi hún meira en hún afl-
aði. Þrátt fyrir margvíslegan
árangur og markvissar umbætur
af hálfu opinberra aðila jafiit
sem einkafyrirtækja síðastliðin
ár skorti enn lokahnykkinn til
að koma á traustu jafiivægi í
þjóðarbúskapnum. Ekki væri
• Sársaukalaus hárrækt með „akupunktum".
leyser og rafmagnsnuddi • Vöðvabólgumeðferð
• Andlitslyfting • Orkumæling • Vílamin-
greining • Ofnæmisgreining
VILTU SOPA AF SJAMPÓI?
Hágæða snyrfivörur frá Banana Boal og
GNC unnar úr kraftaverkaþykkblöðungnum
Aloe Vera og öðrum heilsubótarjurtum:
□ Sjampð □ Brún án súlar
□ Næranði sérsjampú □ Minkolia
□ Hárnæring □ Ekta kollagen gel
□ Græðanði □ Ekta Aloe Vera gel
svitalyktareyðir □ Sárasmyrsl
□ Aprikósu húðskrúbb □ Græðandí varasalvi
fasst hja kröfuhbrðustu hár- ng snyrtistotum og
i heilsubúðum.
Ma : * Akureyri: £VA. Káðtetorpi I. HEIWOhNID. Slupa
gotu S • HalnarfírOi: HEIlSUBUÐfN. Reyk|avHuirveei E2 -
• Kópavofli: BERGVtt. Hamrsborg II . Reykjavik: AR8ÆJ
ARAPÓTEK. Hraunbæ 1020. BORGARtPÚrEK, /Ultamyn 15. BRA,
Laugavegi 74. GARÐSAPDIEK, Sogárvegi 108. HEIESUVAE. Lwfa
vefli 92, HÖOD. Grettisgotu 62 m m I I
HEILSUVAL
Laugavegi 92
S I m j 1 12 7 5
Gnc
hægt að stytta sér leið út úr vand-
anum; lækka yrði opinber útgjöld
og gera útflutningsfyrirtækin
samkeppnishæfari með því að
lækka launakostnað. Einnig
þyrfti að auka sparnað. Þá myndi
þjóðin a.m.k. hafa ráð á að búa
við jafii góð lífskjör og nú.
Dagblaðið Politiken birti ávarp
Schliiters í heild. Forsætisráðherr-
ann sagði að þótt miklar framfarir
hefðu orðið hvað snerti fjárfesting-
ar, fleiri atvinnutækifæri og aukna
framleiðslu væri sá hængur á að
neysla hefði samtímis aukist. „Mér
er það fullkunnugt að launin eru
ekki það eina sem sker úr um sam-
keppnishæfni fyrirtækjanna. En
það er óskynsamlegt að vilja ekki
horfast í augu við þá staðreynd að
frá sjöunda áratugnum fram á þann
níunda hafa laun í landinu hækkað
mun meira en í öðrum löndum.
Þessi þróun hefur grafíð undan
samkeppnishæfninni og þar er kom-
in helsta ástæðan fyrir allt of miklu
atvinnuleysi.
Þess vegna segi ég: Ef menn
Með fnverslunarsamningi
Bandaríkjanna og Kanada falla toll-
ar niður í áföngum millí þessara
tveggja viðskiptaþjóða á næstu 10
árum. Að sögn bandarískra tolla-
yfirvalda féllu tollar niður um ára-
mótin af vamingi eins og loðfeldum,
skíðum, skautum, viskíi og rommi.
Á síðasta ári námu viðskipti þjóð-
anna 150 milljörðum dollara eða
sem samsvarar 6.900 milljörðum
ísl. króna. Hagfræðingar telja að
kreijast hærri launa núna jafngildir
það kröfu um meira atvinnuleysi. í
rauninni yrði það langtum áhrifa-
ríkara ef aðilar vinnumarkaðarins
semdu um lægri laun í krónutölu
gegn því að ríkisstjómin tryggði
skattalækkun er svaraði til launa-
lækkunarinnar - með því að hækka
skattafrádráttinn. Þetta er fullkom-
lega framkvæmanlegt, getur leitt
til óbreytts kaupmáttar og lækkaðs
verðlags. Af þessu myndi leiða að
framleiðslan ykist og fleiri fengju
atvinnu. Þetta myndi merkja aukið
öryggi fyrir alla sem eru í starfí
og vinnu fyrir þá allt of mörgu sem
enga hafa fengið."
Schluter sagði að lítil sparifjár-
myndun almennings ætti rætur að
rekja til velferðarkerfísins sem farið
hefði úr böndunum. Hvergi annars
staðar væri slíkt kerfi jafn víðtækt;
annars staðar þyrfti fólk að eiga
sparifé sem það gæti gripið til ef í
harðbakkann slægi. Varla væri
nokkurs staðar hægt að fá jafn
hagstæð húsnæðislán og í Dan-
mörku. Allt þetta hefði þær afleið-
ingar að fólki fyndist óþarfi að
safna sparifé. Forsætisráðherrann
sagði að þetta gæti komið illa niður
á þjóðinni síðar.
viðskipti þjóðanna aukist enn með
tilkomu fríverslunarsamningsins.
Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, bar hugmyndina að
fríverslunarsamningnum fyrst upp
við Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta árið 1985. Síðar kom í ljós að
ekki reyndist meirihluti fyrir sam-
komulaginu á kanadíska þinginu
og Mulroney boðaði í nóvember sl.
til kosninga sem í raun snérust um
fríverslunarsamninginn. Mulroney
FORSETI Afganistans, Naji-
bullah, lýsti einhliða yfir vopna-
fór með sigur af hólmi í kosningun-
um.
Um áramótin hækkuðu
bandarísk stjómvöld tolla um 100%
á sjö vöruflokkum frá Vestur-
Evrópuríkjum. Tollahækkunin er
liður í viðskiptastríði Bandaríkjanna
og Evrópubandalagsins. EB vill
ekki leyfa innflutning á nautakjöti
frá Bandaríkjunum á þeirri for-
sendu að hormónar séu notaðir við
ræktun dýranna og þeir séu hættu-
legir mönnum. Bandaríkjamenn
svara þessu innflutningsbanni með
toilahækkunum. Hér er um að ræða
viðskipti sem nema 100 milljónum
Bandaríkjadala, 4,6 milljörðum ísl.
kr., árlega og kemur tollahækkunin
verst niður á þeim EB-löndum sem
helst_ studdu kjöt-innflutningsban-
nið, Italíu og Vestur-Þýskalandi.
hléi síðastliðinn föstudag í striði
stjórnarhersins gegn stjórnarand-
stæðingum sem staðið hefúr i 10
ár. Vopnahléið gekk i gildi um
áramótin. Afganskir stjórnarand-
stöðuhópar, sem hafa bækistöðvar
í Pakistan, höfiiuðu vopnahlénu
samstundis.
Najibullah sagði í útvarpsávarpi á
föstudag að vopnahlésyfirlýsingin
væri í samræmi við vilja Míkhaíls
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Gorbatsj-
ov mæltist til þess þegar hann ávarp-
aði allshetjarþing Sameinuðu þjóð-
anna í síðasta mánuði að endir yrði
bundinn á stríðið í Afganistan.
„Öllum stjómarandstæðingum og
hópum vopnaðra manna er boðið að
taka þátt í vopnahlénu," sagði Naji-
bullah.
Abdul Rahim, talsmaður skæru-
liðaflokksins Jamiat-i-Islami, sagði
við fréttamann Jfeuter-fréttastof-
unnar að Mujahideen-skæruliðar og
múslimar í Afganistan gætu ekki
fallist á vopnahléið. „Vopnahléið er
markleysa. Það felur í sér að stjóm-
in í Kabúl verður áfram við völd,“
sagði Rahim.
Najibullah gaf stjómarandstæð-
ingum frest til 4. janúar að gefa já-
kvætt svar við vopnahléstilboðinu.
Bandaríkin og' Kanada:
—----------------*-----
Fríverslun gengin í gildi
Washington. Reuter.
Fríverslunarsamningur gekk í gildi um áramótin milli Banda-
rikjanna og Kanada og þar með varð stærsta fríverslunarsvæði í
heimi til. Það nær frá Norður-heimskautssvæðinu suður til Rio
Grande árinnar við landamæri Bandarikjanna og Mexíkó. Á sunnu-
dag hækkuðu tollar i Bandaríkjunum á sjö vörutegundum frá Vest-
ur-Evrópuríkjum um helming. Tollahækkunin var gagnráðstöfún
Bandarikjamanna i viðskiptastríði þeirra við Evrópubandalagið.
Áður hafði Evrópubandalagið bannað innflutning á nautakjöti með
vaxtarhormónum frá Bandaríkjunum.