Morgunblaðið - 03.01.1989, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSMPnAIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
S
t
f
9'
Kaupskipaútgerð
Kaupskipaflotinn um
áramót alls 44 skip
Alls 102,8 þúsund brúttólestir og burðargetan 171,6 þús. tonn
KAUPSKIPASTÓLL íslensku kaupskipaútgerðanna um áramót telur
alls 44 skip, sem eru samtals 102,809 brúttólestir að stærð og 171,623
tonn að burðargetu. Þar af eru 31 skip í íslenskri eign eða alls
66,658 brúttólestir, eitt skip er undir íslenskum fána í þurrleigu en
í erlendri eign, þ.e. Saltnes sem er 3,928 brúttólestir, og tvö skip
skip eru í íslenskri eigu en sigla undir erlendum fána, þ.e. Hvítanes
og Sandnes sem eru samtals 4,984 brúttólestir. Þá eru sjö skip und-
ir erlendum fánum en i þurrleigu hjá íslenskum útgerðum, alls
20,291 brúttólest að stærð, tvö skip eru í tímaleigu hjá íslenskum
útgerðum, alls 4,984 brúttólestir og eitt skip ter í erlendri eigu og
undir erlendum fána en rekið og mannað af íslenskri útgerð, þ.e.
íris Borg sem er alls 499 brúttólestir.
Þessari upplýsingar er að finna
í Lista yfír íslensk skip og útgerðir
þeirra, sem Samband íslenskra
kaupskipaútgerða gefur út á sex
mánaða fresti og kom út í fyrsta
sinn í maí sl. á þessu ári. Listinn
nær ekki til ferja, flóabáta og dýpk-
unarskipa heldur fyrst og fremst
kaupskipa.
Samkvæmt listanum sem nú
kemur út hafa þær breytingar orðið
helstar á skipastólnum síðustu sex
mánuði að tvö ný skip Eimskips,
þ.e. Brúarfoss og Laxfoss, hafa
bæst í flotann, Helgafell Skipadeild-
ar SÍS er orðið eign hennar og
komið undir íslenskan fána,
Keflavík, skip Víkur hf. er nú eign
Eimskips og heitir írafoss, Hvalvík,
og annað skip Víkur er orðið eign
Nesskips og heitir Hvalnes. Þá hef-
ur Skipadeild Sambandsins tekið
tvö skip á þurrleigu, þ.e. Arnarfell
og Hvassafell og tvö skip, Arnar-
fell Sambandsins og Eldvík Víkur
hf. hafa verið seld út landi.
í greinargerð með listanum frá
Sambandi ísl. kaupskipaútgerða
segir að athygiisvert sé að tíma-
Ieiguskipum með erlendum áhöfn-
um í þjónustu íslenskra kaupskip-
aútgerða í langtímaverkefnum hef-
ur fækkað og eru þau nú aðeins
tvö, þ.e. Alcyone og Dorado, og
hafa slík skip ekki verið jafn fá
síðan á síðasta áratug. Þurrleigu-
skipum hefur hins vegar íjölgað og
eru þau nú 9 talsins, þ.e. Skóga-
foss, Reykjafoss, Bakkafoss, Mána-
foss, Urriðafoss, Hvassafell, Amar-
fell, Árfell og Saltnes.
Ullariðnaður
Utflutnmgur dróstsaman um
5% fyrstu átta mánuði ársins
Vesturlandamarkaður dróst saman um 30% á sama tíma
ULLARIÐNAÐURINN hefur að undanförnu gengið í gegnum mikl-
ar þrengingar. Hefiir góðæri í sjávarútvegi haft þar áhrif vegna
þess að gengið hefur tekið mið af háu fiskverði, ásamt því að Qár-
magnskostnaður fyrirtækja í ullariðnaði hefur farið úr böndum, að
því er fram kemur í úttekt Sigurðar Ingólfssonar hjá ráðgjafastof-
unni Hannarr á stöðu og horfum í ullariðnaðinum. Segir Sigurður
að vísbendingar séu nú uppi um það að hvorutveggja verði lagað
að einhveiju leyti á næstunni og muni þá koma í ljós hvort það ásamt
fleiri aðgerðum muni duga til að bjarga ullariðnaðinum.
Morgunblaðið Emilía
SKIPAMÁLNING — Hingað komu á dögunum þeir Ralph
Nyberg og Willy Anderson frá máningarfýrirtækinu Intemational í
Svíþjóð, sem Daníel Þorsteinson hf. hefur umboðið fyrir á íslandi. Það
eru einkum tvær tegundir af málningu sem nú er verið að kynna
hérlendis. Þær eru Interfine þilfarsmálningin sem hefur þann kost
helstan að binda ryðskellur á yfirborðsflötum, svo ekki myndast ryð-
taumar og Superior botnmálningin, sem er búin þeim eiginleika að
hún heldur í skeíjum óþrifum á botni skipa, hrúðurkörlum, skeljum
og gróðri, meðan hún endist, að sögn forráðamanna fyrirtækisins. Á
myndinni em Ralph Nyberg og Willy Anderson, ásamt starfsmönnum
hjá Daníel Þorsteinssyni hf, þeim Ingvari Einarssyni og Gunnari Rich-
ter.
Sjávarútvegur
G. Ingason vinnursand-
kola markað íHoIIandi
íslenskrar pijónavörur voru flutt-
ar út til 35 landa og eru stærstu
markaðirnir Sovétríkin, Bandaríkin
og Bretland, en þessi lönd keyptu
alls um 210 tonn fyrstu 8 mánuði
ársins og er það um 75% af út-
flutningnum. Sovétríkin hafa sér-
stöðu í þessum viðskiptum. Sovét-
menn kaupa mikið magn á lágu
verði, eða 52% af heildarútflutningi
en hlutur þeirra var ekki nema 33%
af heildarverðmætum. Vesturlanda-
markaður var aftur á móti með 2h
af verðmætunum og var útflutning-
ur þangað tæpur helmingur alls
útflutnings.
Verðhækkun á vesturlandamark-
aði var heldur minni en hækkun á
Sovétmarkaði eða 23,4% að meðal-
tali. Segir Sigurður, að út frá því
megi áætla að verð hafi hækkað í
erlendum gjaldmiðlum um 10-15%.
Sé þetta minni hækkun en áætlað
hafí verið að ná. Ef annað hefði
ekki breyst mætti ætla að afkoma
fyrirtækjanna væri betri og e.t.v. í
Stjórnunarkeppni
Úrslitísam-
norrænu stjóm-
unarkeppninni
HP Á íslandi, Skeljungur hf.,
Kaupþing, Landsbankinn,
SPRON, Félagsstofiiun stúdenta,
Prentsmiðjan Oddi hf., Johan
Rönning og SKÝRR eru þau lið
sem komust í úrslit í forkeppni
í Samnorrænu stjórnunarkeppn-
inni.
Hafa þessi 9 lið unnið sér rétt
til þátttöku í úrslitakepninni, sem
fram fer í byijun mars nk. Tvö efstu
liðin úr úrslitakepninni fara síðan
til Kaupmannahafnar í byijun apríl
og taka þátt í úrslitum um það
hver verður Norðurlandameistari í
stjómun árið 1989.
kringum eða réttu megin við núllið.
Fram hefði komið í skýrslu um
„Stöðu og möguleika minni fyrir-
, tækja í ísl. ullariðnaði" frá 15. júlí
1988, að um 14% tap hefi verið á
þeim fyrirtækjum árið 1987.
Útflutningur dróst saman í
magni um 5% frá jan.-ág. ’87 tii
sömu mánaða ’88. Vesturlanda-
markaður dróst saman um 30% á
þessum tíma og. munar þar mest
um Bandaríkjamarkaö, sem minnk-
aði um helming.
Á síðasta ári var útflutningur um
500-600 tonn af pijónavöru, sem
er svipað og var árið 1986, en held-
ur minna en 1987, en þá voru flutt
út 636 tonn. Áætlað er að verðmæt-
in séu um 1 milljarður. Reiknað er
með að þessi útflutningur standi
undir störfum 750-800 manns
reiknað í ársverkum, sem skiptist
þannig:
Spunaverksmiðja..... 75 störf
Prjónastofur...... 130 störf
Saumastofur....... 430 störf
Útflytjendur...... 145 störf
Sigurður Ingólfsson sagði að
rætt hefði verið um að gera mark-
aðsátak fyrir minni framleiðendur
og verði það framkvæmt ætti það
að skila aukinni sölu.
FYRIRTÆKIÐ G. Ingason á Sel-
tjarnarnesi hefur á yfirstandi ári
flutt út um 2,500 tonn af frystum
fiski, en þetta fyrirtæki er aðeins
liðlega ársgamalt.
Í frétt frá G. Ingasyni kemur
fram, að hér sé aðallega um að
ræða sjófrystan sandkola og aðrar
kolategundir en einnig hefðbundna
fyrstihúsaframleiðslu. Segir í frétt-
inni að þessi útflutningur hafí leitt
til verulega aukinnar veiði og fryst-
ingar á sandkola, en þessi kolateg-
und hafi ekki verið veidd hér eða
seld í þessu magni fyrr.
Samningar voru gerðir við hol-
lenska kaupendur um kaup á um
1000-2000 tonnum af frystum kola
og var útskipun þessa árs um 1,500
tonn, samkvæmt upplýsingum fyr-
irtækisins. Útgerðarfyrirtækið
Glettingur í Þorlákshöfn var aðili
að þessum samningum og annaðist
veiðar og vinnslu kolans. Samning-
ar við hina hollensku kaupendur
framlengjast yfir á árið 1989.
Þá kemur fram að hefðbundin
frystihúsaframleiðsla G. Ingasonar
hafí einkum farið á markaði Evr-
ópulanda, en einnig hafi af hálfu
fyrirtækisins verið um að ræða
nokkum útflutning á ferskum físki
með flugi.
Leiðrétting
í síðasta viðskiptablaði á fimmtu-
daginn var slæddist meinleg villa
inn í fyrirsögn um þemadaga
Iðntæknistofnunar. Þar átti að
standa að iðnaðurinn eygði ýmsa
möguleika en í þess stað stóð að
iðnaðurinn eygði ehga mögu-
leika, sem var í litlu samræmi
við innihald greinarinnar. Er
beðist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
. Morgunblaðið/Bjarni
VIÐURKENNING —— Viðskiptatímaritið Frjáls verslun hefur í samvinnu við Stöð 2 tilnefnt í
fyrsta sinn Menn ársins í viðskiptalífínu. Sérstök dómnefnd sem í áttu sæti fulltrúar beggja þessara fjöl-
miðla ásamt Áma Vilhjálmssyni, viðskiptaprófessor, og Erlendi Einarssyni, fyrrverandi forstjóra Sambands-
ins, komst að þeirri niður stöðu að menn ársins 1988 væru þeir Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helga-
son, forsvarsmenn Brimborgar. Fyrirtækið hefur um árabil flutt inn Daihatsu-fólksbíla til landsins og náð
ágætri markaðshlutdeild, en vakti þó fyrst verulega athygli þegar það á síðasta ári keypti Volvo-umboðið
Velti. Hér sjást þeir Sigtryggur og Jóhann með viðurkenningarskjöl sín.