Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
Morgunblaðið/V íðir
Ljósadýrð var yfir bænum
um áramótin.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Glatt logaði í þessum myndar-
lega bálkesti.
Róleg áramót
„ÉG HELD að telja megi þessi
áramót nokkuð róleg,“ sagði
varðstjóri hjá lögreglunni á Ak-
ureyri í gær. Þrír ökumenn voru
teknir fyrir meinta ölvun við
akstur á gamlárskvöld og nýárs-
dag, en engin umferðaróhöpp
áttu sér stað og engin meiddist
á gamlárskvöld, svo lögreglan
vissi.
Mikil ölvun var í bænum á nýárs-
nótt, bæði í heimahúsum og í mið-
bænum, og var nokkuð um útköll
í heimahús vegna ölvunar. Varð-
stjóri sagði mikið af fólki hafa ver-
ið á ferli í miðbænum fram undir
morgun eftir dansleiki — göngugat-
an og Torgið hefði nánast verið
fullt af fólki fram til klukkan átta.
Slökkviliðsmenn nutu áramót-
anna í rólegheitum í húsakynnum
slökkviliðsins. Ekki var leitað til
þeirra vegna elds eða annars.
Arleg fíiglatalning á Akureyri:
Mikil fjölgun æðar-
fugls undanfarin ár
TUTTUGU og ein tegund fugla sást í árlegri fuglatalningu á
Akureyri. Ahugamenn um fiigla víðs vegar um landið stunda
þessa talningu árlega á öðrum degi jóla. A Akureyri eru það fimm
manns sem sjá um talninguna. Að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar, eins talningarmanna, var talið meðfram ströndinni að mestu
leyti, frá Skjaldarvík og inn að Leiruvegi.
Þeir fuglar sem sáust að þessu
sinni voru eftirtaldir: 5 dílaskar-
far, 387 stokkendur, 201 hávella,
1465 æðarfuglar, 14 gulendur, 2
toppendur, 2 fálkar, 4 rjúpur, 369
silfurmávar, 595 svartbakar, 160
hvítmávar, 142 bjartmávar, 192
hettumávar, 40 ritur, 3 stuttnefj-
ur, 71 teista, 57 hrafnar, 3 grá-
þrestir, 1 skógarþröstur, 4 auðnu-
tittlingar, 1555 snjótittlingar og
540 ungir mávar og ógreindir,
sem voru það langt í burtu að
ekki var hægt að greina þá.
„Það er miklu meira af snjótittl-
ingi í sjálfu bæjarlandinu en fram
kom í talningunni, þar sem fólk
er mjög viljugt að gefa þeim —
en það er ekki vinnandi vegur að
fara í hvem garð í bænum til að
telja," sagði Þorsteinn í samtali
við Morgunbláðið. „Þá er einnig
mun meira af skógarþresti í bæn-
um, því fólk gerir einnig mikið
af því að gefa þeim í görðum
sínum.“
Þorsteinn sagði að dagana fyr-
ir talninguna hefðu sést 7 silki-
toppar í bæjarlandinu, einnig grá-
hegpn, sem sást á aðfangadag en
einn slíkur hefur verið hér undan-
farin ár.
Það athyglisverðasta við taln-
inguna að þessu sinni sagði Þor-
steinn vera fjölgun æðarfugls:
„Þetta er mjög ánægjulegt fyrir
æðarræktarbændur við Eyjafjörð,
því undanfarin ár hefur verið mik-
il fjölgun æðarfugls," sagði hann.
Þorsteinn sagði það hafa komið
talningarmönnum á óvart hve
margir hefðu verið að skjóta
svartfugl á annan í jólum. „Okkur
þótti einkennilegt hve mikið var
verið að skjóta svartfugl — fugl
fældist talsvert við það og gerði
okkur erfitt fyrir með talningu.
Menn voru á trillum úti á firðinum
við þetta. Það er löglegt að skjóta
svartfugl, en okkar fannst það
siðlaust að drepa þessi grey á
annan í jólum.“
Mjög gott veður var talningar-
daginn: logn og skýjað, tveggja
stiga frost, og um 30 sentímetra
nýlega jafnfallinn snjór.
Jón Sigurðarson, forsljóri Álafoss hf.:
Nálgnmst framleiðslustig sambæri-
legra fyrirtækja
VERULEGUR árangur hefur náðst í hagræðingu í rekstri Álafoss
hf. á fyrsta starfsárinu, eftir því sem fram kemur í fréttabréfi fyrir-
tækisins, A prjónunum, „þó enn þurfi að gera betur, enda varla við
kraftaverki að búast á aðeins 12 mánaða starfstímabili,“ eins og
haft; er eftir Jóni Sigurðarsyni, forstjóra fyrirtækisins.
Slysið við Hof:
Maðurinn
úr lífehættu
MAÐURINN sem ekið var á norð-
an við býlið Hof í Amarnes-
hreppi á öðrum degi jóla er nú
talinn úr lífshættu.
Maðurinn er skoskur, tengdason-
ur hjónanna á Hofi, og kom til
landsins ásamt eiginkonu sinni í
jólafrí. Hann var á leið milli bæja
ásamt mági sínum á gönguskíðum
er slysið varð.
Nýlega var gerð ítarleg úttekt á
framleiðslu Alafoss hf. Það var ráð-
gjafarfyrirtækið Boston Consulting
Group sem ásamt starfsmönnum
Alafoss sá um úttektina. í frétta-
bréfinu segir að í könnuninni hafi
komið fram að veruleg hagræðing
hafi orðið í öllum deildum fyrirtæk-
isins, jafnt í framleiðslu, þjónustu
og yfirstjóm.
Haft er eftir Jóni að í grófum
dráttum hafi tekist að halda upp-
haflegri áætlun um hagræðingu.
„Ein af þeim viðmiðunum sem not-
uð hefur verið er samanburður við
önnur fyrirtæki í svipaðri fram-
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Bjömsaon
Nýársbarnið á Akureyri
Fyrsta barn ársins á Akureyri
fæddist kl. ellefú mínútur yfir
fimm á nýársnótt. Það var
drengur, 4.090 grömm eða 16
merkur, 53 sentímetrar á
lengd. Foreldar hans eru Erna
Gunnarsdóttir og Gunnar M.
Guðmundsson og tók Rúnar
Þór myndina af stoltum for-
eldrum með syngjandi soninn í
hádeginu í gær. Það þarf ekki
að koma á óvart þó sá litli hafi
tekið lagið fyrir ljósmyndar-
ann, þvi móðirin er kunn dæg-
urlagasöngkona!
í Vestur-Evrópu
leiðslu í Vestur-Evrópu,“ sejgir í
blaðinu og haft er eftir Jóni: „I stað
þess að vera með framleiðslustig
sem er tugum prósenta lægra en
gerist hjá þessum fyrirtækjum, er-
um við að nálgast þau mjög hratt.
Þetta var eitt af markmiðum okkar
í upphafi og það hefur náðst.“ Sem
dæmi um árangur hagræðingar er
vefdeild fyrirtækisins nefnd, „þar
sem framleiddar eru værðarvoðir
og áklæði. Þar er nú helmingi færra
starfsfólk í helmingi minna húsnæði
að framleiða nær sama magn og
gert var hjá báðum fyrirtækjunum
fyrir sameiningu" — þ.e. hjá iðnað-
ardeild Sambandsins og Álafossi
hf. „Þetta er nákvæmlega það sem
stefnt var að með sameiningunni
og við eigum enn mikið verk fyrir
höndum. Við getum enn ekki borið
okkur fyllilega saman við þá sem
fremst standa. Einnig verðum við
að hafa í huga að keppinautar okk-
ar eru sífellt að vinna að því að
gera enn betur í sínum fyrirtækjum
og því er þetta verkefni sem aldrei
tekur enda,“ segir Jón Sigurðarson.
„Enn á gjörgæslunni“
í fréttabréfinu kemur einnig
fram að afkoma fyrirtækisins, fyrir
afskriftir og vexti, á umræddum
12 mánuðum hafi batnað stöðugt
og sé nú orðin jákvæð. „Fyrir sam-
einingu var talið að afkoma gömlu
fyrirtækjanna væri neikvæð um
yfir 20%,“ er haft eftir Jóni. Fram
kemur að fyrirtækið sé þó enn rek-
ið með verulegum halla og segir
Jón fjármagnskostnað þar vega
þyngst, og orsökin sé of háir vextir
og hátt gengi. Eins og fram hefur
komið í Morgunblaðinu standa nú
yfir viðræður um endurskipulagn-
ingu á fjárhagslegri stöðu fyrirtæk-
isins. Meðal annars hefur verið leit-
að til Atvinnutryggingasjóðs í því
sambandi. „Við erum ennþá á gjör-
gæslunni en vonumst til þess að
fljótlega fari að brá af okkur,“ er
haft eftir Jóni Sigurðarsyni.
Mun færri útköll 1
fyrra en árið 1987
Á NÝLIÐNU ári voru 79 brunaútköll hjá Slökkviliði Akureyrar, en 115
árið áður. Munar þar mestu um að sinubrunar voru mjög fáir á árinu,
eða 7 en voru 41 árið áður.
Mestu eldsvoðamir á árinu 1988
voru í Golfskálanum á Jaðri og á
Hólakoti í Eyjanrði, í byrjun ársins.
Sjúkraútköll voru 1.084 á árinu
1988, þar af 185 utanbæjar, en voru
1.086, þar af 172 utanbæjar, árið
áður. Af þessum 1.084 sjúkraútköll-
um voru 197 bráðatilfelli.
í skýrslu slökkviliðsstjóra, Tómas-
ar Búa Böðvarssonar, um útköll og
eldsvoða á nýliðnu ári, kemur fram
að flest útköll voru í maí, 15 alls,
og 11 í marz — en í öðrum mánuðum
fylltu útköllin ekki tuginn. Útköll án
elds voru alls 39 en útköll vegna elds
40.
Flest útköll þegar um eld var að
ræða voru vegna elds í íbúðarhúsi,
9 alls, 7 vegna elds í rusli, sinu eða
mosa og 6 vegna elds í ökutækjum.
Þá kemur fram að flestir eldsvoðar
hafa orðið um miðjan dag — á tíma-
bilinu 12.00 til 15.00, en þá urðu
11 eldsvoðar. 9 urðu á bilinu 15.00
til 18.00 en mun færri á öðrum
tímum.
Upptök eldsvoða voru í flestum
tilvikum vegna íkveikju, 12 sinnum.