Morgunblaðið - 03.01.1989, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hrúturinn framundan
Eg vil byija fyrstu grein á
nýju ári með því að óska
landsmönnum öllum gleðilegs
árs og þakka um leið öllum
samferðamönnum og með-
bræðrum fyrir hið liðna. Á
næstu dögum ætla ég að fjalla
um árið framundan hjá merkj-
unum tólf. Fyrsta merkið til
umfjöllunar verður Hrúturinn
(20. mars-19. apríl).
Ár álags og athafna
Segja má að orka komandi
árs og ára verði sterk í lífi
Hrútsins. Því má búast við
nokkru veðri og vindum en
jafnframt því að tækifæri til
úrbóta og framkvæmda verði
fyrir hendi. Af plánetunum
verða fjórar sterkar, eða fyrst
Satúmus, Úranus og Neptún-
us og síðar Júpíter.
Markviss nýsköpun
Lykilorð fyrir þá sem eru
fæddir fram til 26. mars er
markviss og uppbyggileg ný-
sköpun. Á næsta ári verða
bæði Satúmus og Úranus í
spennuafstöðu við Sól þeirra.
Spennandi vinna
► V Satúmus kallar yfirleitt á
vinnu, þörf fyrir raunveruleg-
an árangur og aukið raunsæi.
Úranus gefur aftur á móti
rafmagn, þörf fyrir nýjungar,
spennu, aukið sjálfstæði og
breytingar. Þegar þeir lenda
báðir saman myndast sterk
orka sem getur kailað á átök
en jafnframt mikil afköst.
Hrútum gefst því kostur á að
gera raunhæfar breytingar og
verða sjálfstæðari. Lykilorð
em vinna og álag samhliða
. nýjum og spennandi verkefn-
um.
Vinna
Þeir Hrútar sem era fæddir
frá 26. mars til 5. apríl tak-
ast einungis á við Satúmus á
næsta ári. Fyrir þá mun árið
einkennast af vinnu og álagi,
reglu og raunsæi.
Skipulögö óvissa
Þeir Hrútar sem era fæddir
frá 31. mars til 2. apríl þurfa
hins vegar að takast á við
Satúmus og Neptúnus, sem
verður að teljast mótsagna-
kennd orka. Ef þeir geta ekki
fært þessa orku í afmarkaðan
farveg er hætt við að um tog-
•"ITstreitu og baráttu verði að
ræða. Sem dæmi má nefna
að reynt er að skipuleggja en
skipulagið gufar upp, útkom-
an verður skipulagt „kaos“.
Barátta getur einnig legið í
aðstæðum sem kalla 4 reglu-
festu en jafnframt sveigjan-
leika. Raunsæi og jarðbundin
viðhorf geta rekist á andleg
og trúarleg viðhorf o.s.frv.
•
Andlegt raunsæi
Satúmus og Neptúnus saman
geta einnig skapað andlegt
raunsæi. Orka Neptúnusar
víkkar sjóndeildarhringinn og
opnar augun fyirr listum og
trúarlegum málefnum. Orka
Satúmusar gefur hins vegar
raunsæja og „kalda" sjón sem
tryggir sterkt jarðsamband.
Það má því segja að þessir
Hrútar geta á næsta ári starf-
að af raunsæi að málum
sínum jafnhliða sem andlegur
sjóndeildarhringur þeirra
víkkar.
ífarvatni tískunnar
í lok ársins fer Júpíter síðan
inn í Krabbamerkið og mynd-
ar spennuafstöðu inn á Hrút-
inn. Það táknar að kraftur og
stórhugur mun vaxa með
Hrútum síðla ársins og á þvi
næsta, ásamt þörf fyrir víðar
og nýjar sjónvíddir. Þegar á
heildinar er litið eykst Hrútum
þörf til að hrista upp í lífinu
og tilverunni og því koma
þeir til með að vera í farvegi
orku og tísku umheimsins á
næstu árum, þó gengið geti á
~ ’ýmsu hjá hveijum og einum
í merkinu.
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
UUWV P0E5N T THE FAM0U5
UJORLP UJARI FLVIN6 ACE
6IVE A-CAKETOTHE REP
BARON 0N HI5 BIRTHI7AV ?
Af hveiju sendir frægi
flugkappinn ekki Rauða
baróninum köku á af-
mælisdaginn?
TMAT5 A 6REATIPEA/
IT’LL 5H0U) THAT EVEN TH0U6H
WE’RE ENEMIE5, UJE HAVE
RE5PECT FOR EACH OTHER.,
Það er frábær hugmynd!
Það sýnir að enda þótt við
séum óvinir berum við
virðingu hvor fyrir öðr-
um...
aldrei kynnst áður ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í mótsblaði Ólympíumótsins
auglýsti Kanadamaðurinn Eric
Kokish eftir nafni á þeirri kast-
þröng, sem skilaði suðri 12 slög-
um í sex gröndum í eftirfarandi
spili:
Norður
♦ D1086
¥853
♦ D876
*G2
Vestur Austur
♦ 9432 ♦ G75
¥74 || ¥ DG106
♦ G109543 ♦ 2
♦ 5 4D10973
Suður
♦ ÁK
¥ ÁK92
♦ ÁK
♦ ÁK864
NS komust með hjálp full-
komins biðsagnakerfís í sex
grönd, enda taldi suður líklegt
að hann fengi amk. tvo slagi á
hvem lit. Vestur spilaði út
hjartasjö og blindur olli sagn-
hafa nokkram vonbrigðum. En
laufgosinn var gott spil og
líklega ynnist sögnin ef vestur
ætti drottninguna. Hann af-
hausaði spaða og tígul, og spil-
aði svo litlu laufi á gosa og drott-
ingu. Þar fór sú von.
En þá fór austur að hugsa.
Hann hafði látið hugann reika
stundarkorn og misst af talningu
makkers í spaða. Og eftir nokkra
yfirlegu fann hann verstu vörn
sem sögur fara af, spilaði spaða-
gosa?!!
Sagnhafi lyftist í sætinu.
Skyndilega átti hann 11 slagi,
og sá 12. kom sjálfkrafa með
kastþröng á austur í hjarta og
laufi!
I sjálfu sér einföld kastþröng,
en Kokish þykir undanfarinn
réttlæta sérstaka nafngift. Hún
verði að fela í sér að blindur (le
mort, á frönsku) sé vakinn til
lífsins fyrir sakir fómfýsi aust-
urs. Hann fann ekki nafn, en
ætli „krossfesting" nái þeirri
hugsun nokkuð vel.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi stórandarlega skák var
tefld í júgóslavnesku deildakeppn-
inni í vetur: Hvítt: Pavicic. Svart:
Milosevic. Sikileyjarvörn. 1. e4 —
c5 2. c3 — d5 3. exd5 - Dxd5 4.
d4 - e6 5. Rf3 - Rf6 6. Be2 -
Dd8 7. 0-0 — cxd4 8. cxd4 — Rc6
9. Rc3 - Be7 10. Bg5 - 0-0 11.
Hcl - b6 12. Dd2 - Bb7 13.
Hfdl - Rb4 14. Re5 - Hc8 15.
a3 — Rbd5 16. Bf3 (Fram að
þessu hefur allt verið með kyrram
kjöram, en nú er eins og skipt sé
yfir f drepskák.) 16. — Rxc3 17.
Bxb7 - Rfe4 18. Dd3 - Bxg5
19. bxc3 — Bxel 20. Bxc8 —
Bxa3 21. Bxe6 — Rxf2
22. Bxf7+! - Hxf7 23. Rxf7 -
Dfii 24. Dc4! (Ef hvítur ætti ekki
þennan laglega leik væri hann í
miklum vandræðum.) 24. — Rxdl
25. Rh6++ - Kf8 26. Dc8+ og
svartur gafst upp, því eftir 26. —
Ke7 27. Rg8+ tapar hann drottn-
ingunni.