Morgunblaðið - 03.01.1989, Page 50
50
' MORGtJNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR '3‘. JANÚAR 1989
Bjór:
Tíu tegundir frá fimm
löndum koma til greina
HEINEKEN frá Hollandi, Pripps
frá Svíþjóð, Carlsberg, Ceres og
Tuborg frá Danmörku, Holsten,
Dortmunder DAB og Dortmund-
er Union frá Vestur-Þýskalandi
og Ioks Budweiser og Schlitz frá
Bandarikjunum eru þær bjórteg-
undir sem koma tii greina sem
söluvara í öllum verslunum
ATVR. Innkaupastoinun ríkisins
hefur sent innflytjendum þessara
tegunda útboðsgögn með ná-
kvæmum skilmálum, þar á meðal
um fob- og cif-verð. Þijár teg-
undir verða valdar, þó ekki meira
en ein frá hverju landi.
Höskuldur Jónsson forstjóri
ATVR segir að svör innflytjendanna
þurfi að hafa borist fyrir klukkan
11.00 þann 19. janúar næstkom-
andi. Höskuldur segir að tíminn sé
knappur sem til stefnu er eftir þann
dag. Þó verði að gera ráð fyrir að
nokkur tími fari í að bera saman
tilboð. Framleiðendur hafa frest til
1. apríl að koma birgðum til ÁTVR
og segir Höskuldur að það sé vegna
þess að þeir þurfi tíma til að aðlaga
umbúðir og annað okkar markaði.
Áfengisverslunin verður hins vegar
tilbúin til að taka á móti bjórbirgð-
um þann 17. febrúar. 1. mars má
síðan byija að selja bjór.
í útboðinu nú er einnig gert ráð
fyrir þeim möguleika að bjórinn
verði fluttur inn á tönkum og tapp-
að á neytendaumbúðir hér á landi.
Bjóraðdáendur verða því að bíða
enn um sinn fram í lok janúar eftir
að fá endanlega úr því skörið hvaða
bjórtegundir verða á boðstólum í
öllum verslunum ÁTVR. Þær verða
alls fimm, þar af tvær innlendar.
Hins vegar verða fleiri tegundir
fáanlegar frá sérstakri bjórbúð í
birgðastöð ÁTVR í Reykjavík, þær
verða á annan tug talsins.
Eldur í timburhúsi:
Eldri hjón
sluppu naum-
lega út
Keflavík.
TÖLUVERT tjón varð þegar eld-
ur kviknaði í nýlegu timburhúsi
við Óðinsvelli laust eftir klukkan
þijú á fimmtudag og sluppu eldri
hjón, sem bjuggu í húsinu, naum-
lega út ásamt tveim gestkomandi
áður en húsið fylltist af reyk.
Nágranni fólksins lét það vita
að mikinn reyk legði út um einn
glugga hússins og kallaði jafnframt
á slökkviliðið. Þegar slökkviliðs-
menn komu á vettvang var fólkið
komið út, en húsið var fullt af reyk.
Reykkafarar fóru inn og fundu
mikinn eld í bókaherbergi sem
greiðlega gekk að slökkva.
Ekki er vitað um eldsupptök, en
bókaherbergið skemmdist mikið af
eldi og jafnframt urðu miklar
skemmdir- af völdum reyks í öðrum
hlutum hússins. Húsið er einangrað
með steinull og er hún talin hafa
komið í veg fyrir að eldurinn breidd-
ist meira út.
- BB
Ný námskeið að hefjast
4 vikur kr. 2.950
3 mánuðir 20%
afsl. kr. 6.990
10 tímar í Ijós
kr 1.990
Fagmenntaðir kennarar
og góð aðstaða.
Þú ert 7 mín.
úr Breiðhoiti.
Skráðu þig strax í síma 65-22-12.
HRESS
I.ÍKWLSRÆKT (X; IJÓS
^ BÆJARHRAUNI4 VIÐ KHFLAVÍKURVEGINN SlMI 65 2212
Klaustrið í Hafnarfirði:
Líkneski úr kertavaxi
KARMEL systurnar frá Póll-
andi í klaustrinu í Hafnarfirði
hafa smíðað líkneski af jötunni
með Jesú, Maríu, Jósef og vitr-
ingunum. Var verkið sett upp
í kapellu klaustursins fyrir jólin
og mun vera þar fram yfir
þrettándann.
Að sögn séra Franz van Hooff
er ætlunin að þetta líkneski verði
sett upp um hver jól framvegis í
kapellunni. Líkneskið smíðuðu
systurnar úr kertavaxi en fötin á
styttumar eru saumuð úr venju-
legu klæðaefni. Hófst verkið í
september sl. og lauk nú skömmu
fyrir jól.
BHMR segir opinbera starfsmenn dragast aftur úr í launum:
Hæpið að semja afit-
ur til tveggja ára
- segir Páll Halldórsson, formaður BHMR
KRUPMRTTJJR DflGVINNULAUNfl INNflN flSI
OG HJfl 0PINBERUM STflRFSMöNNUM
OPINBERIR
STflRFSMENN
-FISÍ
1987
1988
OPINBERIR starfsmenn hafa
dregist aftur úr félagsmönnum
Alþýðusambands íslands hvað
kaupmátt dagvinnulauna varðar,
að því að fram kemur í yfirliti
Qármálaráðuneytisins sem birt-
ist í nýútkomnum Kjarafréttum
BHMR. Páll Halldórsson, for-
maður Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna, segir að
þetta sýni að það borgi sig tæp-
lega að gera samning við ríkið
til tveggja ára eins og síðast var
gert.
í blaði BHMR segir að yfirlit fjár-
málaráðuneytisins staðfesti að end-
urskoðunarákvæði samningsins frá
1987 hafi alls ekki tryggt ríkis-
starfsmönnum sömu launaþróun og
átt hefur sér stað á almennum
markaði. Þetta ákvæði hafi verið
forsenda þess að samningur var
gerður til tveggja ára. Launaskrið
og kjarasamningar þessa árs hafi
fært launþegum í einkafyrirtækjum
miklu meiri launahækkanir en ríkis-
starfsmenn hafa fengið, þrátt fyrir
fyrirheit um sams konar kjaraþróun
í samningi.
í útreikningum fjármálaráðu-
neytis er vísitala kaupmáttar sett
100 á öðrum ársfjórðungi árið 1986.
í ársbyrjun 1987 hefur kaupmáttur
Stal úr
Búnaðarbanka:
I varðhald og
geðrannsókn
Maðurinn, sem þann 30. fyrri
mánaðar stal 400 þúsund krónum
úr gjaldkerastúku í aðalafgreiðslu
Bunaðarbankans, hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 18.
janúar. Jafnframt hefur honum ver-
ið gert að sæta geðrannsókn.
ASÍ-félaga aukist örlítið meira en
opinberra starfsmanna, en á fyrsta
ársfjórðungi 1988 hefur kaupmátt-
ur innan ASI hækkað um nær 8%
meira en opinberra starfsmanna.
ÚLFAR Eysteinsson, veitinga-
maður, hefúr óskað eftir því að
lögbann verði sett á notkun
nafnsins Úlfar og ljón. Úlfar rak
ásamt öðrum veitingastaðinn Úl-
far og ljón við Grensásveg i tvö
og hálft ár en rekur nú veitinga-
staðinn Hjá Úlfari vestur á Haga-
mel þar sem áður var veitinga-
staðurinn Haukur i horni.
,,Ég lagði inn beiðni um að sett
yrði lögbann á notkun nafnsins
Úlfar og ljón þar sem ég tel mikla
hagsmuni vera í húfi,“ sagði Úlfar
Eysteinsson við Morgunblaðið.
„Þetta heiti er of tengt mínu nafni
og ég vil að þeir sem hafa verslað
við mig geti gengið að því sem vísu
að það sé ég sem sé við stýrið. Ég
Spá fyrir 4. ársfjórðung þessa árs
gerir ráð fyrir að kaupmáttur ASÍ
hafi aukist 12% meira en kaup-
máttur jopinberra starfsmanna mið-
að við 1986.
hef til dæmis alltaf lagt mikla
áherslu á fiskrétti en það er ekki
gert núna við Grensásveg."
Úlfar sagði að hann hefði keypt
þetta nafn af fyrrum meðeiganda
sínum og væri með einkaleyfisrétt
á því gagnvart matvæla- og veit-
ingahúsarekstri. Nú hefði hins veg-
ar hlutafélagið Villt dýr, sem þau
Leo Löve, Birgir P. Jónsson, Tómas
Kárason, Dagmar Traustadóttir og
Ágúst Guðmundsdóttir stæðu á bak
við, hafið rekstur undir nafninu
Úlfar og ljón á hans leyfi sem þeg-
ar hefði verið lagt inn. „Ég vona
að fógeti vinni í málinu svo ég losni
undan allri ábyrgð á þeirri mat-
reiðslu og þjónustu sem þarna fer
fram,“ sagði Úlfar.
Lögbanns krafist á notk-
un nafiisins Ulfar og ljón