Morgunblaðið - 11.01.1989, Side 43
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR MEMKUDAGUR 11. JANÚAR 1989
43
ÍÞRÚmR
FOLK
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Bogdan ætlar að fylgfast
vel með Atla Hilmarssyni
Tekur Atli þátt í B-keppninni í Frakklandi?
Atll Hllmarsson.
BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðaþjálfari íslands, hefur
mikinn áhuga á að nota krafta
Atla Hilmarssonar í B-keppn-
Inni f Frakklandi. Atli, sem
ökklabrotnaði í leik með
Granollers á Spáni f desem-
ber, er byrjaður að œfa á ný.
„Ef ég verð orðinn góður í
byrjun febrúar, mun óg gefa
kost á mér. Ég kœmi heim til
að taka þátt f lokaundirbún-
ingnum fyrir B-keppnina,“
sagði Atli Hilmarsson f viðtali
við Morgunblaðiðí gœr.
Atli fer aftur til Barcelona á
föstudaginn og byijar þá að
æfa á fuilum krafti. Bogdan ætlar
að fylgjast með Atla á Spáni og
sjá hvemig honum gengur að fá
sig fullkomlega góðan. „Ég von-
ast til að geta leikið með Granoll-
ers 29. janúar og ef allt gengur
að óskum mun ég koma heim 31.
janúar - til að æfa með landslið-
inu,“ sagði Atli.
Svíar enn með gott
tak á íslendingum
- sigruðu með eins marks mun í fyrsta leik Eyrarsundsmótsins í Gautaborg
Svíþjóð—Island
25 : 24
Lisbergahallen I Gautaborg, Eyrar-
aundskeppnin, þriðjudaginn 10. janúar
1988.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 7:2, 9:5,
11:6, 12:7, 12:10, 18:11, 18:13, 16:14,
16:16, 19:19, 19:20, 21:21, 21:22,
23:22, 28:23, 25:23, 26:24.
Sviþjdð: Lindgren 4, Wislander 3, Car-
lén 3, Hajas 3, Venalainen 3, Surinemi
Vofn 9 Hlaann 9 Anrlnrann 1 nnr
Héðlnn Gllsson á að geta brotið
6-0 vamir niður með stökkkrafti
sínum. Hann á eftir að leika stórt hlut-
verk með landsliðinu f framtfðinni.
Héðinn lék vel gegn Svíum.
Danir burstuðu Búlgara
Danir iéku við Búlgara, 28:20, í Eyrarsundskeppninni í gær. Leikurinn
fór fram í Hillerup. Staðan í leikhléi var 16:6 fyrir Dani, sem slökuðu
á í síðari hálfleik.
Otto Mets var markahæstur Dana með 8 mörk, Kim Jakobsen kom
næstur með 5 og Lars Lundbye og Mikael Fenger gerðu fjögur. Marka-
hæstur í liði Búlgara var Rossen Davidkov með sjö mörk.
ísiendingar mæta Dönum f Slagelse í Danmörku í kvöld og Svíar
mæta Búlgömm á sama stað.
KNATTSPYRNA / V—ÞYSKALAND
Jiiraer Kohler til Bayern
VIWVI. »I‘VV.UVI. *
Jilsen 1.
Varin skot: Mats Olson 15/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
ísland: Sigurður Sveinsson 8/3, Héð-
inn Gilsson 6, Kristján Arason 5, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Þorgils Óttar
Mathiesen 2, Bjarki Sigurðsson 1, Jú-
líus Jónasson 1, Valdimar Grímsson,
Birgir Sigurðsson, Sigurður Gunnars-
son.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 12,
Hrafn Margeirsson.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Mortensen og Knutsen frá
Danmörku.
Jurger Kohler. landsliðsmiðvörð-
ur V-Þýskalands, skrifaði undir
fjögurra ára samning við Bayem
Munchen í gær f Munchen. Bayem
borgaði Köln 107 millj. ísl. kr. fyrir
hann. í samningi Kohler eru ákvæði
SVÍAR hafa enn tak á íslend-
ingum á handboltavellinum. í
gærkvöldi sigruðu þeir með
eins marks mun, 25:24, í fyrsta
leik Eyrarsundsmótsins sem
hófst í Gautaborg í Svíþjóð.
íslendingar hafa aldrei unnið
Svía á heimavelli þeirra og það
var engin breyting þar á í gær
þó svo að allt hafi verið í járn-
um síðustu mínúturnar.
Islendingar komust í 1:2, eftir að
Svíar höfðu skorað fyrsta mark-
ið. Síðan kom hörmulegur kafli hjá
íslenska liðinu og Svfar gerðu sex
mörk í röð og náðu sjö marka for-
skoti um tíma. íslenska liðið náði
að klóra í bakkann og minnka
muninn í tvö mörk fyrir leikhlé,
13:11.
Jafnt
Sigurður Sveinsson (víti) og Jú-
líus Jónasson gerðu fyrstu tvö
mörkin í síðari hálfleik og náðu að
jafna, 13:13. Síðan var jafnt á öllum
tölum upp í 19:19. Þá náðu íslend-
ingar í fyrsta sinn forystu í leikn-
um, 19:20, þegar tíu mínútur voru
eftir. \
íslenska liðið var enn jrfír, 21:22,
þegar fímm mínútur voru til leiks-
loka. Svíar gerðu næstu tvö mörk,
en Sigurður Sveinsson jafnaði,
23:23, þegar tvær mfnútur voru
eftir. Wislander skoraði næstu tvö
mörk eftir að Kristján lét veija frá
sér í millitíðinni. Héðinn minnkaði
muninn í eitt mark þegar 20 sek
voru eftir og þar við sat þó svo að
íslenska liðið hafí gert heiðarlega
tilraun til að jafna með því að leika
maður á mann síðustu sekúndum-
ar.
um að honum er ftjálst að fara til
útlanda þegar samningur hans er
úti. Kohler er 24 ára.
Þá framlengdi Jupp Heynckes,
þjálfari Bayem, samning sinn um
tvö ár í gær.
Slgurður góður
Sigurður Sveinsson átti mjög
góðan leik þó svo að hann hafí
ekki leikið nema 34 mínútur af
leiknum. Hann kom inná í fyrsta
sinn er 4 mínútur vom eftir að fyrri
hálfleik. Hann gerði þá fljótlega
eitt mark og í síðari hálfleik fór
hann á kostum og gerði 7 mörk þar
af þrjú úr vítaköstum. Héðinn Gils-
son stóð sig einnig vel í vöm og
sókn, sérstaklega er leið á leikinn.
Einar stóð í markinu allan leikinn
og varði vel í síðari hálfleik.
Olson hetja Svía
Mats Olson var hetja Svía í fyrri
hálfleik og varði þá alls 11 skot þar
af eitt vítakast frá Kristjáni. Staff-
an Olson var einnig góður og mat-
aði samheija sín með góðum send-
ingum sem gáfu mörk. Eins var
Magnus Wislander dijúgur í lokin.
Slgurður Svelnsson fór & kostum
þegar hann var settur inn á gegn
Svíum.
Thomas Bertholds, landsliðsmað-
ur V-Þýskalands, sem leikur með
Veróna á Ítalíu, er með flensu og
háan hita. Hann mun ekki geta leik-
ið með Veróna næstu vikumar.
■ MOLDUXAR frá Egilsstöð-
um taka á móti ÍR-ingum í bikar-
keppni í körfuknattleik og hefst
leikurinn kl. 20. Molduxar munu
vera gamlir leikmenn Tindastóls.
Þess má geta að Breiðablik er
þegar komið, í 8-liða úrslit þar sem
andstæðingar þeirra, Þórsarar,
hættu við þátttöku í keppninni.
■ TOMISLA V Ivic, hinn júgó-
slavneski þjálfari París Saint
Germain, segir að knattspymu-
menn framtíðarinnar verði mun
minni en þeir sem leika nú. „Bráð-
lega verða bestu leikmennimir, sér-
staklega í vöm, aðeins um 1,60
metrar á hæð. Slíkir leikmenn em
fljótari og hafa betra vald á boltan-
um þar sem þyngdarpunkturinn er
lægri," sagði Ivic. Þess má geta
að Ivic hefur þjálfað mörg af bestu
liðum heims, s.s. Ajax og Portó
auk liða í heimalandi sínu, Júgó-
slavíu.
■ STEPHAN Schöne, fyrrum
félagi Páls Óla&sonar hjá
Diisseldorf, sem leikur nú meP*
Massenheim, tilkynnti f gær að
hann gæti ekki leikið með v-þýska
landsliðinu í B-keppninni í Frakk-
landi. Schöne, sem fékk slæmt
högg á nýra í leik, verður frá keppni
í nokkrar vikur.
■ GUÐNI Bergsson og félagar
hjá Tottenham munu mæta Nott-
ingham Forest um helgina. Leik-
urinn átti að fara fram á laugardag
en hefur nú verið færður á sunnu-
dag og verður sýndur í beinni új- _
sendingu í Bretlandi.
I ÍSRAELSKA körfuknatt-
leiksliðið Maccabi Tel Aviv hélt til
Mosvku í gær þar sem liðið mun
leika gegn CSKA Moskva í Evr-
ópukeppninni í körfuknattleik.
Þetta er fyrsti leikur ísraelsmanna
í Sovétríkjunum síðan 1967 en þá
slitu Sovétmenn stjómmálasam-
bandi við ísraelsmenn. Rúmlega
200 stuðningsmönnum Maccabi
var hinsvegar neitað um vega-
bréfsáritun. Síðan 1967 hafa lið frá
Sovétríkjunum og ísrael leikið á
hlutlausum velli en boð Sovét-
menna á að sýna aukinn vilja á
samstarfí við ísraelsmenn.
B VIKING fráStavanger , sem
leikur í 2. deild, varð um síðustu
helgi norskur bikarmeistari í hand-
knattleik. Viking sigraði Stavan-
ger IF, sem er efst
Sigurjón í 1. deild, í úrslita-
Einarsson leik með 21 marki
sem mættu á leik Stavanger lið-
anna. Stavanger IF var að flestum
talið sigurstranglegra fyrir leikinn
enda verið yfírburða lið í norskum
handknattleik í vetur. Fyrri hálf-
leikur var í jámum og jafnt á flest-
um tölum og í hálfleik var staðan
10:10. í síðari hálfleik skipti Viking
um markvörð, inná kom Arne Ro-f
aldkvam og gerði hann útslagið í
leiknum. Hann varði mjög vel og
braut niður „Golíat“ SIF. Lokatöl-
ur í leiknum urðu 21:17 fyrir Vik-
ing, nokkuð sem fáir höfðu gert ráð
fyrir.
B BRANN, lið bræðranna Teits
og Ólafs Þórðarsonar, lennti und-
ir smásjá skattayfírvalda hér í Nor-
egi. Niðurstaða rannsóknarinnar
sem gerð var á fjárreiðum og bók-
haldi Brann hefur leitt í ljós, að
félagið verður að greiða margar
milljónir vegna vangridds virði»-_
aukaskatts. Félagið greiddi virðis-
aukaskatt vegna útseldra auglýs-
inga á velli félagsins, en láðist að
greiða skattinn af telqum vegna
annarra auglýsinga sem félagið
seldi, m.a. á búningum liðsmanna.
Einnig þótti uppgjör félagsins við
fyrrnrn þjálfara þess Tony Knapp
ekki eins og lög gera ráð fyrir. MSr
þetta er hið versta fyrir Brann, sem
á fyrir í fjárhagsvandræðum.